Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988 félk í fréttum MATUR XJr skrifum í skólastarf Morgunblaðið/Árni Sæberg „Borðið fisk, fiskur er veislumatur" var kjörorð þessara ungu stúlkna, sem báru á borð nokkur kræsileg dæmi um hvernig megi matreiða fisk. SJÁVARÚTVEGSSÝNING í FOSSVOGSSKÓLA Ýsa var það heillin Nemendur í Fossvogsskóla héldu síðasta sunnudag sjávarútvegssýn- ingu í skólanum en þeir hafa að undanförnu unnið að verkefnum um sjávarútveg. Krakkamir voru á aldrinum 6 til 12 ára og voru við- fangsefnin af margvíslegu tagi; matreiðsla, fiskvinnsla, veiðar ofl. Ekki var annað að sjá á sýningunni en að vel hefði tekist til með starf krakkana og var hún vel sótt. Þeim leist svona rétt mátulega á „silfur hafsins“ stöllunum. Þeir sem IÖgðu Ieið sína í Fossvogsskóla uFðu margs vísari um allan þann fjölda fiskitegunda er hafið geymir. Skuttogarinn vakti verðskuldaða athygli. ingar í blað sem ekki gat staðfest upplagstölur sínar, heldur en í blað með mikla útbreiðslu sem hafði þar hreinan skjöld," segir Hilmar. „Á meðan við fengum þrjár og hálfa heilsíðuauglýsingu í bláðið frá aug- lýsingastofum, fengu blöð sem ekki tóku þátt í upplagseftirliti tólf heils- íðuauglýsingar frá stofum. Mörg þeirra seldu auglýsingar út á þá ætlun sína að vera með í upplagseft- irliti, en stóðu svo ekki við neitt.“ „Eftir að Frjálst framtak keypti Fjölni var Gestgjafinn um nokkurra mánaða skeið eina tímaritið, auk tímaritsins Heilbrigðismála, sem þátt tók í upplagseftirliti Verslunar- ráðs. En þegar við hættum með Gestgjafann og blaðið er ekki leng- ur með í upplagseftirliti er tæpast hægt að tala um slíkt eftirlit með tímaritaútgáfu á íslandi. Lesenda- könnun Félagsvísindastofnunar í nóvember olli heilmiklu fjaðrafoki og gefur einhveija hugmynd um útbreiðslu tímaritanna. Hins vegar fást ekki önnur blöð en Morgun- blaðið, Dagur á Akureyri og tímari- tið Heilbrigðismál til að hleypa end- urskoðendum í sín gögn og stað- festa með því sölutölur." Fiskur og lopapeysur „Hilmar sá um að elda matinn sem skrifað var um í Gestgjafann og ljósmyndun auk auglýsinganna," segir Elín. „Ég sá hins vegar um bókhald og áskriftir, útlit blaðsins, vélritun og prófarkalestur." Elín lærði skiltagerð og gluggaskreyt- ingar í Danmörku og hefur að sögn Hilmars gott auga fyrir ýmsu sem lýtur að útliti hlutanna, sem kom sér vel við útgáfu Gestgjafans. Hilmar kveður tímaskort hafa hindrað sig í að halda matreiðslun- ámskeið í húsnæði Gestgjafans á sínum tíma. „Þar höfðum við allt sem til þurfti, en blessaðar auglýs- ingarnar tóku ótrúlega mikinn tíma. Annars kviknaði hugmyndin um matreiðsluskóla fyrir tíu árum þeg- ar ég hélt námskeið í íslenskri matargerð fyrir útlendinga á Hótel Loftleiðum. Við höfum einmitt hug á að bjóða upp á námskeið í fiskrétt- um, jafnvel lambakjötsréttum, fyrir erlenda ferðamenn í Matreiðsluskó- lanum okkar. Er ekki eins líklegt að ferðamenn sem hingað koma langi að læra réttu tökin á fiskin- umj eins og að máta lopapeysur?" Áður en Hilmar og Elín hófu útgáfu á Gestgjafanum var Hilmar veitingastjóri á Hótel Loftleiðum í ellefu ár. Hann er nú forseti Klúbbs matreiðslumeistara á íslandi og sit- ur því í stjóm Félags norrænna Hjónin Hilmar B. Jónsson mat- reiðslumeistari og Elín Kára- dóttir em athafnafólk. Þau fylla þann flokk manna sem drífur í hlut- unum og sjá sjálf um það sem gera þarf, hvort sem staðið er í hús- byggingu, blaðaútgáfu eða að stofnsetja skóla. Þau rækta jafnvel baunirnar í kaffið sitt sjálf og brenna í eldhúsofninum. Elín og Hilmar gáfu út tímaritið Gestgjafann á árunum 1981-87 og nú eftir helgina tekur Matreiðslu- skólinn okkar til starfa að Bæjar- hrauni 16 í Hafnarfirði. Fólk í frétt- um heimsótti Elínu og Hilmar fyrir skömmu og spjallaði við þau um blaðaútgáfuna og ástæður þess að þau hættu henni, nýja skólann og nýstárlegar hugmyndir sem honum tengjast. „Arin sem við gáfum út Gestgjaf- ann voru feikilega skemmtileg," segir Hilmar, „við ætluðum að hætta á toppnum og höfum líklega staðið við það.“ „En raunveruleg ástæða fyrir því að við seldum Gest- gjafann síðasta haust,“ bætir Elín við, „er sá skortur á fagmennsku sem ríkir í auglýsingamálum hér- lendis. Hilmar sá um auglýsingar í blaðinu og hafði fengið sig fullsadd- ann á streðinu sem því fylgdi. Gest- gjafinn er dýrt blað, allt í lit, og oft létu auglýsendur sem þeir væru að gera Hilmari persónulegan greiða með því að setja auglýsingu í blaðið." Auglýsingamálin lýjandi „Auðvitað var óskemmtilegt að betur skyldi ganga að selja auglýs- Elín gaf Fólki í fréttum að smakka á dvergappelsínum sem vaxa í garðhýsi heima hjá þeim Hilmari. Þar rækta þau líka kaffibaunir og vínber. Hilmar myndast við að setja ofn í eldhús MatreiðsJuskóIans okkar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.