Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988 06 ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / HANDKNATTLEIKUR Lið Hattar ásamt Sigurði Ananíassyni þjálfara og Karli Erlingssyni liðsstjóra. Morgúnblaðiö/Andrés „Mætti vera meiri stuðningur við okkur heima á Egilsstöðum" - segir Hörður Guðmundsson, fyrirliði 4. flokks Hattar HÖTTUR frá Egilsstöðum hefur komið á óvart með þennan eina flokk, 4. flokk karla, sem þeir senda til keppni á íslandsmóti í þetta skiptið. Þeir eru sem stendur í öðru sæti í sínum riðii og hafa veitt efsta liðinu, Þór, harða keppni. Við ræddum við Hörð Guð- mundsson fyrirliða liðsins um árangur liðsins: „Við lögðum KA og Völsung í síðustu umferð og . .*■■■■■ ætlum að reyna að *Andrés leggja Þórsara að Pétursson velli í þetta skiptið,“ skntar (viðtalið tekið áður en 2. umferðin fór fram) sagði Hörður í byijun: „Það eru 11 strákar sem æfa þannig að við getum ekki spilað úr jafn stórum hóp og liðin héðan frá Akureyri." Annars eru allir strákamir í bæði handbolta og fótbolta og einmitt núna um þessa helgi er Austur- landsmótið í fótbolta innanhúss. Við getum því ekki stillt upp okkar allra sterkasta liði þó svo að flestir leik- mennimir hafi valið handboltann í þetta skiptið." Er mikill stuðningur við liðið heima á Egilsstöðum? „Boltaíþróttirnar em mjög vinsælar heima og það eru nokkrir sem standa dyggilega við bakið á okkur. Þar má fyrst og fremst nefna þjálfarann okkar, Sig- urð Ananíasson, og liðsstjóranna Karl Erlingsson'. Þeir vinna frábært starf í sjálfboðavinnu með okkur og án þeirra myndi Höttur ekki senda neinn flokk til keppni í hand- bolta. Hinsvegar mætti vera meiri stuðningur við okkar af bæjarbúum t.d. með því að mæta á leiki hjá okkur.“ Með þessum orðum þökkuðum við Herði Guðmundssyni fyrirliða Hatt- ar fyrir spjallið. „Við spiluðum illa og kerfin gengu ekki upp“ - segir Leó Örn Þorleifsson, fyrirliði 5. flokks KA Blaðamaðurinn fylgdist með leik Þors og KA í 5. flokki. Leikurinn var nokkuð harður en spenn- andi og greinilegt að bæði liðin lögðu allt í sölurnar. Þórsstrákarnir voru þó sterkari allan leikinn og unnu ■■■■^^■l öruggan sigur, 15:9. Þcirra bestu menn Andrés voru Ómar Kristinsson og Sigurgeir Pétursson Aðalsteinsson. Hjá KA bar mest á þeim skrifar Heiga Þór Arasyni og Ómari Am- grímssyni. Einnig átti fyrirliðinn Leó Örn Þorleifsson ágætan leik. Við ræddum við Leó Öm eftir leikinn og spurðum hann um ástæðuna fyr- ir tapinu. „Við spiluðum illa og kerfin gengu ekki upp,“ sagði Leó*Om. „Annars er Þórsliðið með gott lið en á góðum degi eigum við að geta staðið í þeim. Hjá KA æfa þetta milli 20—30 strákar að meðaltali. Flestir strákamir eru líka í fótbolta en mér finnst persónulega skemmtilegra í handboltanum." Við þökkuðum Leó Erni fyrir spjallið en þess má geta að hann er sonur hins gamalkunna leikmanns og núverandi liðsstjóra KA-liðsins, Þorleifs Ananías- sonar, þannig að enn sannast það að eplið fellur sjald- an langt frá eikinni. Leo Örn Þorlelfsson. Árni Páll Jóhannsson: „Eigum að geta unnið þennan riðil“ órsarar em með sterkt lið í 4. flokki og fyrirliði þessa flokks er Ámi Páll Jóhannsson. Við spurð- um hann hvort þeir byggjust við að komast í úrslit. „Við unnum alla leikina í fyrstu umferð og ættum líka að geta unnið alla leikina núna. Þetta er stór og öflugur hópur sem æfir hjá okkur, 25—30 manns, og kjaminn hefur æft saman síðan í 5. flokki. Þá komumst við í úrslit og náðum þá 2. sætinu. Við stöndum hinsvegar ekki 'jafn vel og liðin fyrir sunnan út af æf- ingaleikjum. Við höfum mun færri tækifæri til að spila við sterk lið og það háir okkur þegar í úrslita- keppnina er komið." Ert þú í öðmm íþróttum með hand- boltanum? „Á sumrin spila ég fótbolta með Þór. Það kemur stundum til árekstra milli þessara tveggja íþróttagreina. Maður getur stundað báðar greinarnar þegar maður er svona ungur en ég held að maður verði að velja þegar komið er inn í meistaraflokk. Hvora íþróttina ég mundi velja er erfitt að segja á þessu stigi málsins. Þær em báðar mjög skemmtilegar og ég held ég láti það bara ráðast.“ Morgunblaöið/Andrés Árni Páll Jóhannsson fyrirliði 4. flokks Þórs. Þórsstelpurnar Dóra Sif Sigtryggsdóttir og Harpa Frímannsdóttir. „Kristján Arason er bestur og svo er hann líka svo sætur“ — segja Þórsstelpurnar Dóra Sif og Harpa Frímannsdóttir Við hliðarlínuna á leik Þórs og Að sögn þeirra æfa um 20 stelpur KA í 3. flokki kvenna hitti hjá Þór undir handleiðslu Ingu blaðamaðurinn tvær hressar Huldar Pálsdóttur meistaraflokks stelpur úr 4. flokki Þórs. Þær leikmanns, og Birgis Björnssonar. heita Dóra Sig. Sigtryggsdóttir Þær em líka í knattspymunni og og Harpa Frímannsdóttir og em segja að báðar íþróttirnar séu þær báðar 12 ára. Þær kváðust mjög skemmtilegar. Þegar þær hafa verið að spila við KA og vom spurðar hver væri uppá- urðu að viðurkcnna að KA vann haldsleikmaðurinn svömðu þær leikinn. báðar að það væri Kristján Aran- Þær sögðu að úrslitin hefðu verið on. Hann væri bestur og svo væri óheppni og ætluðu þær sér að hann líka svo sætur, bættu stúlk- vinna síðasta leikinn í riðlinum. umar við og hlógu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.