Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988
#S'
KORFUKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNIN
Jafnt í Seljaskóla
■ ALFREÐ Gíslason skoraði 5
mörk í fyrrakvöld er Essen sigraði
2. deildarliðið Fredenbeck í 64-liða
úrslitum vestur-þýsku bikarkeppn-
innar í handbolta 25:23 á útivelli.
■ ÞAÐ er nú orðið nokkuð ör-
uggt að Juri Klimov, aðstoðar-
landsliðsþjálfari Sovétríkjanna,
hættir sem þjálfari vestur-þýska
úrvalsdeildarliðsins Milbertshofen
eftir þetta keppnistímabil. Hann tók
við liðinu í haust en ekkert hefur
ÞAÐ er ekki á hverjum degi
sem leikir enda með jafntelfi í
körfuknattleik, enda er það
ekki leyfilegt nema í bikar-
keppninni. Það var þó svo í gær
er IR og Gindavík gerðu jafn-
tefli, 63:63, ífyrri leik liðanna
í 8-jiða úrslitum í bikarkeppni
KKÍ. Tveir leikir voru til við-
bótar í bikarkeppninni, báðir í
Njarðvík. Heimamenn sigruðu
Breiðblik 96:51 og Haukar sigr-
uðu B-lið Njarðvíkinga 51:71.
Leikur ÍR og Grindavíkur var
mjög harður og vamarleikurinn
var í fyrirrúmi. Grindvíkingar skor-
uðu tvö fyrstu stigin, en eftir það
tóku ÍR-ingar við og leiddu lengst
af með 6-10 stigum. I hálfleik var
staðan 34:28, ÍR í vil.
Grindvíkingar söxuðu á forskot
ÍR-inga í síðari hálfleik, en tókst
ekki að jafna fyrr en á síðustu sek-
úndunum. Þegar tvær mínútur voru
til leiksloka var staðan 63:59, ÍR-
ingum í vil, en Grindvíkingum tókst
að jafna á síðustu sekúndunum.
Síðustu körfu leiksins skoraði Guð-
mundur Bragason þegar örfáar sek-
úndur vom til leiksloka.
Stig ÍR: Karl Guðlaugsson 19, Jon Öm
Guðlaugsson 16, Ragnar Torfason 13, Björn
Steffensen 8, Johannes Sveinsson 5 og
Vignir Hilmarsson 2.
Stig UMFG: Guðmundur Bragason 15,
Rúnar Ámason 15, Eyjólfur Guðlaugsson
11, Hjálmar Hallgrímsson 6, Steinþór
Helgason 5, Jon Páll Haraldsson 5, Ólafur
Þ. Johannesson 4 og Guðlaugur Jóhannsson
2.
Auðvett hjá meisturunum
Njarðvíkingar unnu auðveldan sig-
ur yfir botnliði Breiðbliks, 96:51.
Það voru reyndar aðeins átta Blikar
sem mættu til leiks og áttu aldrei
möguleika gegn meisturunum.
Njarðvíkingar náðu strax góðu for-
skoti og í hálfleik var staðan 47:27.
Breiðablik skoraði svo ekki stig
fyrstu sex mínúturnar í síðari hálf-
leik og þá breyttist staðan í 61:27
og það sem eftir var leiksins var
aðeins formsatriði.
Þrír bræður léku í liði Njarðvíkur,
þeir Teitur, Sturla og Gunnar Ör-
lygssynir og stóðu sig vel.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson 16, Teit-
ur Órlygsson 14, Ámi Lárusson 12, Helgi
Rafnsson 10, Hreiðar Hreiðarsson 10, Ell-
ert Magnússon 10, Sturla Örlygsson 9, Frið-
rik Ragnarsson 7, Gunnar Órlygsson 6 og
Jóhann Sigurðsson 2.
Stig UBK: Hannes Hjálmarsson 17, Guð-
brandur Stefánsson 10, Kristján Rafnsson
8, Ólafur Adolfsson 6, Óskar Baldursson
4, Sigurður Bjamason 4 og Kristinn Al-
bertsson 2.
Þá gömlu skorti úthald
B-lið Njarðvíkur, sem var að mestu
skipað gömlum stjörnum, sýndi oft
skemmtileg tilþrif gegn Haukum.
Þeir gömlu höfðu engu gleymt,
nema kannski úthaldinu og eftir
góða byijun urðu þeir að sætta sig
við tap, 51:71.
I liði Njarðvíkur voru m.a. Guð-
steinn Ingimarsson, Brynjar Sig-
mundsson og Gunnar Þorvarðarson.
Þeir byijuðu vel og höfðu forystuna
framan af, en smám saman náðu
Haukar undirtökunum og í hálfleik
var staðan 27:33, Haukum í vil.
Munurinn jókst smám saman í
síðari hálfleik og sigur Hauka var
öruggur.
Þorsteinn Bjarnason var allt í öllu
í liði Njarðvíkur og átti rríjög góðan
leik. Henning Henningsson átti góð-
an leik hjá Haukum og Pálmar Sig-
urðsson átti góðan kafla í síðari
hálfleik, en þá skoraði 4 þriggja
stiga körfur, en það voru reyndar
einu stigin hans í leiknum.
Stig UMFN b: Þorsteinn Bjarnason 22,
Júlíus Valgeirsson 7, Stefán Bjarkason 6,
Brynjar Sigmundsson 5, Gunnar Guð-
mundssson 4, Gunnar Þorvarðarson 4, Guð-
steinn Ingimarsson 3.
Stig Hauka: Henning Henningsson 20, ívar
Ásgrímsson 15, Pálmar Sigurðsson 12,
Skarphéðinn Eiríksson 9, Tryggvi Jonsson
6, Rúnar Guðjónsson 4, Sveinn Steinsson 3
og Ingimar Jónsson 2.
Pátur Pétursson.
Mm
FOLK
■ ÞRÍR leikmanna KR í knatt-
spymu eru nú famir til Hollands
þar sem þeir munu dvelja við æfing-
ar hjá Excelsior í Rotterdam.
Þetta eru Björn Rafnsson, Heimir
Guðjónsson og Pétur Pétursson.
Það má segja að Pétur sé þarna á
heimavelli Feyenoord, sem hann
lék á sínum tíma með við frábæran
orðstír, er einmitt frá Rotterdam.
■ WAYNE Gretzky, sem talinn
er besti leikmaður ísknattleiksdeild-
arinnar í Bandaríkjunum setti met
í fyrrakvöld. Hann gaf sendingu á
finnska félaga sinn Jari Kurri og
hann skoraði fyrsta markið í leik
Edmonton Oilers gegn Los Ange-
les Kings. Það merkilega við þessa
sendingu var að hún var 1.050.
stoðsending Gretzky og þar með
sló hann gamalt met Gordie Howe
sem var 1.049 sendingar. Gretzky
hefur aðeins leikið í 9 ár í deild-
inni, en átta sinnum verið kosinn
besti leikmaður deildarinnar. Þess
má geta að það tók Gretzky aðeins
681 leik að ná metinu, en Howe
hafði notað 1.707 leiki til að setja
það. Eftir leikinn óskaði Howe
Gretzky til hamingju með metið
og sagði að hann hefði ekki viljað
sjá neinn annan slá metið.
gengið og liðið er í botnbaráttu.
Þá eru einnig allir líkur á að so-
véski leikmaðurinn Júri Gagín,
sem er hjá Milbertshofen snúi aft-
ur heim. Hann hefur lítið sýnt í
vetur. Nú er rætt um rúmensku
stórskyttuna Vasili Stinga sem
líklegastan eftirmann Gagíns.
I BLACKPOOL keypti í gær
miðvörðinn Larry May frá Sheffi-
eld Wednesday á 100 þúsund
pund. May er 29 ára og kom til
Sheffield Wed. frá Barnsley í
fyrra.
■ BRYAN Robson verður í liði
Manchester United gegn Nor-
wich um næstu helgi. Robson
meiddist fyrir skömmu, en hefur
nú náð sér að nýju og útlit er fyrir
að nái fleiri leikjum en hann hefur
náð þau sex keppnistímabil sem
hann hefur verið hjá Manchester
United. Hann hefur nú Ieikið 29
leiki, en hann hefur aldrei leikið
fleiri en 33 leiki á einu keppnistíma-
bili.
I MICHEL Platini, knatt-
spymukappinn góðkunni, var meðal
áhorfenda á leik Bayem Miinchen
og Real Madrid í fyrrakvöld. Hann
lýsti leiknum fyrir frönsku sjón-
varpsstöðina Canal PIus. Platini
notaði tækifærið og bauð tveimur
leikmanna Bayem, þeim Pfaff
markverði og miðvallarleikmannin-
um Lothar Mattheus sæti í heims-
liði sem hann velur og á mæta sér-
stöku úrvalsliði Platinis í Nancy
23. maí í vor. Það verður opinber
kveðjuleikur leikmannsins, en hann
hóf einmitt ferilinn með liði Nancy.
IR kærir
jafnteflið
viðUMFG
„KKÍ geturekki breytt alþjóðaregl-
um,“ sagði Einar Bollason, þjálfari
ÍR, eftir leikinn í gærkvöldi
IR-INGAR hafa kært úr-
slitin í leik þeirra gegn
Grindavík ígær.
Leiknum lauk með jafntefli,
63:63, en samkvæmt alþjóð-
legum körfuknattleiksreglum
geta leikir ekki_ endað með jafnt-
elfi. Stjórn KKÍ ákvað hinsvegar
í haust að gera undantekningu frá
þessari reglu í bikarkeppninni.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
leik í bikar- og deildakeppni í
körfuknattleik lýkur með jafn-
tefli, en venjan er að framlengja
þar til annað liðið hefur náð að
knýja fram sigur.
„Leikir eiga ekki að geta endað
með jafntefli í körfubolta og KKÍ
getur ekki breytt alþjóðareglum,“
sagði Einar Bollason, þjálfari ÍR,
í samtali við Morgunblaðið eftir
leikinn í gærkvöldi. „Þetta er í
fyrsta sinn á íslandi sem leik lýk-
ur mað jafntefli í körfubolta á
íslandi og jafnvel í heiminum og
það brýtur greinilega í bága við
alþjóðareglur.“
ÍR-ingar skrifuðu athugasemd á
leikskýrsluna og hún mun líklega
fara fyrir fund KKÍ síðar í vikunni.
KNATTSPYRNA
Halldór leikur
með Brann í dag
Tekursvo þátt íinnanhússmóti
meðfélaginu á sunnudaginn
HALLDÓR Áskelsson frá Þór
á Akureyri hélt í gærmorgun
til Bergen í Noregi þar sem
hann dvelst fram yfir helgi og
æfir með liði Brann.
Halldór æfði með okkur í dag
og spilar æfingaleik með
okkur gegn 2. deildarliði á morg-
un [í dag],“ sagði Teitur Þórðar-
son, þjálfari Brann, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Æfingaleikurinn átti að vera á
laugardag, en var færður fram.
„Strákamir eiga frí á laugardag-
inn en við tökum þátt í innan-
hússmóti hér nálægt Bergen á
sunnudaginn og Halldór leikur
með okkur þar. Síðan æfír hann
með okkur á mánudaginn áður
en hann fer heim aftur," sagði
Teitur.
Halldór Áskelsson.
Ásgeir Sigurvlnsson.
hsSm
FOLK
■ ASGEIR Sigurvinsson verður
með Stuttgart gegn Köln í þýsku
úrvalsdeildinni á morgun. Hann er
orðinn góður af meiðslum í öxl sen^^
hrjáðu hann.
■ JOHAN Cruyff, sem hefur
verið orðaður sem arftaki Luis
Aragones sem þjálfari Barcelona,
segir að hann hafi ekki áhuga' á
starfínu. Cruyff, sem lék á sínum
tíma með Barcelona, var meðal
áhorfenda á leik Barcelona og
Bayer Leverkusen í Evrópu-
keppninni í fyrra kvöld.
■ SIGURÐUR Sveinsson og
félagar í Lemgo nældu í mjög dýr-
mætt stig í þýsku úrvalsdeildinni í a
vikunni er þeir gerðu jafntefli,
22:22, gegn Wallau Massenheim
á útivelli. Sigurður lék mjög vel
og skoraði sex mörk.
■ LÖGREGLUMENN á leikjum
í knattspymunni í Bretlandi kostar
drjúgan skilding. Á síðasta keppn- -
istímabili þurftu liðin í Englandi
og Skotlandi að borga samtals 3.5
miljónir punda, um 235 miljónir ísl.
kr. Það var skoska liðið Celtic sem
borgaði mest, 1.28 miljón pund.
Chelsea, Liverpool, Manchester
United og Arsenal borguðu öll
yfir 100.000 pund, Chelsea þó
mest eða um 114.000 pund. Það
var þó 2. deildar liðið Millwall sem
borgaði mest hlutfallslega,
pund á hveija 1.000 áhorfendur.
■ JÓHANN Ingi Gunnarsson,
fyrrum þjálfari vestur-þýska meist-
araliðsins Tusem Essen, lenti í
þriðja sæti í kjöri þjálfara ársins í
Þýskalandi að þessu sinni. Frá
þessu var greint .í nýjasta hefti
handboltablaðsins Handball Magaz-
ine, en lesendur blaðsins kjósa.
Petre Icvanescu, landsliðsþjálfari,
fékk flest atkvæði, um 3.000,
Heine Brand, þjálfari Gummers-
bach, varð annár og Jóhann Ingi
þriðji með um 1.500 atkvæði. Fjórði
var svo þjálfari Páls Ólafssonar
og félaga hjá Diisseldorf, Bred-
emayer. Til gamans má geta þess
að Jóhann Ingi var kjörinn þjákí-__
ari ársins í fyrra. „Ég er ánægður
með útkomuna nú miðað við að ég
var sendur snemma í sumarfrí!"
sagði Jóhann Ingi í gær.
JUDO
íslandsmót
unglinga
á Akureyri -
ÆT
Islandsmót í júdó, fyrir 21 árs og
yngri, verður haldið á Akureyri
um helgina. Keppt er í flokkum
drengja 15 ára og yngri, 16-18 ára
og 19-21 árs og í kvennaflokki.
Motið héfst í fyrramálið kl. 11.00
í íþróttaskemmunni á Oddeyri.
keppendur eru skráðir.