Morgunblaðið - 04.03.1988, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1988
DAÐISYNIRI
GALLERÍ BORG
Myndlist
Valtýr Pétursson
Daði Guðbjömsson er sýningar-
glaður málari. Hann hefur nýlokið
við að sýna verk sín í sambandi við
húsgagnasýningu, og nú er hann
aftur kominn fram á sjónarsviðið
með verk sín í Gallerí Borg við
Austurvöll. Það er af sem áður
var, þegar það tók yfirleitt íjögur
ár að undirbúa sýningu hjá mynd-
listarmönnum. Breyttir tímar til
hins betra, ef gæðin eru hin sömu.
Annar hraði, ef menn vilja leggja
þann skilning í hlutina, og það gild-
ir fyrir alla þætti listarinnar, stíl
og stefnur og hlutverk hvers lista-
manns fyrir sig. En látum slíkar
hugrenningar lönd og leið, og snú-
um okkur að líðandi stund.
Daði Guðbjömsson er einn þeirra
ungu listamanna, sem bundnar hafa
verið vonir við. Hann hefur sýnt
góð tilþrif í málverkinu, en nokkuð
hefur hann byggt á skreytingum í
verkum sínum og gerir enn. Hann
hefur næma tilfinningu fýrir með-
ferð lita, samhljómi þeirra og eðli,
en hann beitir sér ef til vill um of
að því að fylgjast með í róti tímans
til að gefa sér tóm til að koma sam-
an heilsteyptri myndbyggingu, og
þá vill stundum verða heldur
skrautlegt á myndfletinum. En ég
efast ekki um, að að baki þessa
spilverks blundar málari sem hefur
þá hæfileika, sem til þarf, svo að
til verði verðugt myndverk. Það
hefur bara ekki brotizt fram í dags-
ljósið enn sem komið er. Sanngjam-
ast væri því að segja um verk Daða
í Gallerí Borg, að þau sanni fyrst
og fremst, að hann sé enn í mótun
sem málari, en lofi góðu. Það eru
drjúgir sprettir í þessum verkum,
og viss glettni gerir vart við sig í
flestum málverkum Daða. Hann
virðist einnig miklu meir í essinu
sínu í málverkinu en í þeirri grafík,
sem sézt hefur eftir hann að und-
anfömu. Á sýningunni í Gallerí
Borg em öll verkin — tuttugu og
fímm talsins — unnin með olíu á
striga.
Að undanfomu hefur verið mikil
gróska í sýningum hér í borg. Ung-
ir menn hafa staðfest umbrot og
þroska með verkum sínum, og það
er eins og nú sé að skila sér viss
þroski, sem sjaldséður var í eina tíð.
Þetta er sannarlega til hins betra,
en ef til vill var maður orðinn lang-
eygur eftir að sjá eitthvað áþreifan-
legt gerast. Það fer ekki framhjá
neinum, að málverkið hefur tekið
mikið stökk til hins betra hvort það
er kallað nýlist eða eitthvað annað.
Af skrifum mínum upp á síðkast-
ið má sjálfsagt sjá, að ég er ánægð-
ari en oft áður með það, sem er á
ferðinni. Það em hlutir að gerast,
sem áreiðanlega eiga eftir að skilja
slóða eftir sig. Þetta er ágætt, og
þannig á þetta að vera. Endurnýj-
unin er nauðsynleg, en hún verður
að vera rökrétt og í fullum tengslum
við það, sem á undan er gengið.
Þetta er lífleg sýning hjá Daða og
skemmtilegt að líta þar inn.
GÆÐI og GLÆSILEIKI
OPiÐ LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-16
M-9B-V
HERRADEILD
BAUMLER
Athugasemd
um fulln-
ustu launa
í Morgunblaðinu þann 1. mars
síðastliðinn er frétt þar sem haft
er eftir Úlfari Ágústssyni að tíu-
menningarnir sem dæmdir voru
fyrir rekstur ólöglegrar útvarps-
stöðvar á ísafirði í verkfalli opin-
berra starfsmanna haustið 1984
hafi ætlað að mótmæla dómi
Hæstaréttar með því að neita að
greiða sekt og láta í stað þess
reyna á vararefsingu sem var 8
daga varðhald. (9 dagar skv.
frétt Mbl.)
Mér, sem einum þessara tíu-
menninga, kom þessi frétt mjög
á óvart af eftirtöldum ástæðum:
1. Af fréttinni verður ekki annað
ráðið en að Úlfar tali fyrir munn
allra þeirra tíu sem dæmdir voru,
en til þess hafði hann ekki mitt
umboð, enda var það aldrei
ásetningur minn að sitja sektina
af mér í fangelsi.
2. Þótt ég hafi ekki ætlað að sitja
af mér sektina var ég ekkert að
flýta mér að greiða hana og þar
kom að ég fékk senda kvaðningu
um að mæta í afþlánun á til-
teknum degi í síðasta mánuði.
Það virðist því ekki gilda sama
um mig og aðra sem dæmdir
voru fyrir sama brot samkvæmt
því sem haft er eftir Úlfari í
umræddri frétt. Ég þurfti hins-
vegar ekki að fara í steininn þar
sem ég borgaði áður en að því
kom. Eg sé engar skýringar á
því að aðrar aðferðir skuli hafð-
ar við að framfylgja dómi mínum
en hinna, aðrar en þær að ég
bý nú í öðru lögsagnarumdæmi
og því kom það í hlut bæjarfó-
getans á Akureyri að framfylgja
dómnum yfir mér. En ég hélt
að það giltu sömu lög'á Akur-
eyri og Isafírði.
í ljósi þess sem að framan grein-
ir og fréttarinnar í Morgunblaðinu
frá 1. mars sl. sýnist mér það vera
verðugt verkefni fyrir Morgunblað-
ið að leita skýringa á því hjá bæjar-
fógetanum á ísafírði og dómsmáia-
ráðuneytinu hvort vararefsing
vegna dómssektar sé bara fyrir
suma eða hvort það sé undir geð-
þótta embættismanna komið hvem-
ig Hæstaréttardómum er framfylgt.
4