Morgunblaðið - 18.03.1988, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1988
59
KNATTSPYRNA
Júrí Sedov fagnar hér sigri Víkings f 2. deild tslandsmótsins f fyrra.
Hann tekur nú við þjálfun U-21 árs landstiðsins ásamt því að þjálfa Víking í
1. deild.
Júrí Sedov
þjáHar U-21 árs
landsliðið
- var ráðinn til tveggja ára og mun stjórna liðinu í
Evrópukeppninni
JÚRÍ Sedov, þjálfari Víkings,
var í gœr ráðinn landsliðs-
þjálfari U-21 ársliðsinsí
knattspyrnu. Hann mun sjá
um liðið nœstu tvö árin.
Júrí Sedov tekur við 21 árs lið-
inu af Guðna Kjartanssyni,
sem hafði tilkynnt stjórn KSÍ að
hann yrði ekki áfram með liðið.
Fyrsta verkefni Sedovs með
landsliðið verður þátttaka þess í
Evrópukeppninni. Fyrsti leikurinn
verður gegn Hollendingum hér
heima 13. september f haust.
Síðan verður farið til Finnlands
og leikið 28. september. Fjórir
leikir verða svo á næsta ári. 30.
maí verður leikið gegn Vestur-
Þjóðverjum hér heima og við
Finna 5. september. Siðustu leik-
imir verða við Hollendinga 10.
október og 24. eða 25. september
við Vestur-þjóðveija ytra.
Júrí Sedov er annar sovéski þjálf-
arinn sem kemur til starfa hjá
KSÍ. Nafni hans, Júrí Ilitchev, tók
við af Tony Knapp og þjálfaði
A-landsliðið 1978 og 1979. En
hann þjálfaði einnig Val og síðan
Víking á jæim tíma.
Sedov er íslendingum að góðu
kunnur og hefur náði mjög góðum
árangri með Víking og gerði liðið
að íslandsmeisurum tvö ár í röð,
1982 og 1983. Hann tók sfðan
aftur við Víkingsliðinu á síðasta
keppnistímabili og undir hans
stjóm fór það upp í 1. deild eftir
tveggja ára veru í 2. deild.
Hann er vel menntaður á sínu
sviði og án efa einn af fróðari
þjálfurum sem þjálfað hafa hér á
landi. Hann hefur einnig unnið
mikilvæg störf á sviði knattspym- ^
unnar í heimalandi sínu og var
meðal annars aðstoðar landsliðs-
þjálfari Sovétríkjanna 1976.
HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNI KARLA
„Bætir upp lélegan vetur“
- sagði Atli Hilmarsson sem skoraði sigurmark Fram þegar 5 sekúndur voru eftir og tryggði
Fram þar með sæti í undanúrslitum ásamt UBK, Val og KR
„AÐ SLÁ Víkinga út úr bikar-
keppninni bætir upp allan
þennan lélega vetur hjá okkur.
Það er sérstök tilfinning að
vinna íslandsmeistarana,"
sagði Atli Hilmarsson sem var
hetja Framara í gær og skoraði
11 mörk. „Ég fann mig mjög
vel í leiknum. Fyrir leikinn
skoðaði ég sterkustu hliðar
Kristjáns í markinu og reyndi
að skjóta á markið þar sem ég
var ekki vanur að skjóta áður.“
Framarar byijuðu af miklum
krafti og komust í 4:1 og síðan
7:4. Víkingum tókst að jafna, 7:7
og um miðjan fyrri hálfleik var stað-
mpHHH an 9:8 fyrir Fram.
Valur Þá kom besti kafli
Jónatansson Víkings í leiknum.
skrifar j,er gerðu næstu sex
mörk og breyttu
stöðunni í 9:14. Fram náði að
minnka muninn í tvö mörk fyrir
leikhlé, 13:15.
Fram náði að jafna 15:15 í upphafi
síðari hálfleiks og síðan var nokkuð
jafhræði á með liðunum. Þegar tvær
mínútur voru eftir var staðan 24:24.
Atli skoraði 25. markið og Árni
Friðleifsson jafnaði þegar hálf
mínúta var til leiksloka.
Atli skoraði síðan sigurmarkið eins
og áður segir þegar fimm sekúndur
voru eftir. Annað sinn í jafnmörgum
leikjum sem hann tryggir Fram sig-
ur á síðustu sekúndunum. „Það var
ekkert annað að gera en skjóta félg-
ar mínir biðu eftir því,“ sagði Atli.
Þetta var kærkominn sigur fyrir
Framara sem ekki hefur átt sjö
dagana sæla í deildarkeppninni í
vetur. Þeir urðu fyrir miklu áfalli í
upphafi íslandsmótsins er lykil-
menn þeirra meiddust hver á fætur
öðrum. Þeir fengu því uppreisn æru
í gærkvöldi. Þeir léku lengst af
mjög agað og voru ákveðnir í að
gefa allt í leikinn.
Það var að sama skapi sárt fyrir
Víkinga að taða. Þar með varð
draumur þeirra um titil á þessu
keppnistímabili úr sögunni, en þeir
hafa unnið annað hvort bikarinn
eða íslandsmótið síðustu tíu árin.
Morgunblaðið/Þorkell
Atll Hllmarsson var óstöðvandi gegn Víkingum í gærkvöldi og skoraði 11 mörk. Hann skoraði sigurmarkið þegar
fimm sekúndur voru til leiksloka. íslandsmeistarar Víkings eru úr leik í bikarkeppninni.
Víkingar náðu aðeins að sýna sitt
rétta andlit undir lok fyrri hálf-
leiks. Það var eins og alla einbeit-
ingu vantaði í liðið. Leikmenn voru
kærulausir og biðu eftir að sigurinn
kæmi af sjálfum sér. „Ég á varla
til orð. Við hreinlega hættum í
síðari hluta seinni hálfleiks. Þetta
er sorglegt en vonandi tekst okkur
að halda 3. sætinu í deildinni," sagði
Bjarki Sigurðsson einn besti maður
Víkigns í gær.
Atli var besti leikmaður vallarins
og átti sinn besta leik með Fram í
vetur. Annars var liðsheildin góð.
Júlíus Gunnarsson lék vel í síðari
hálfleik og skoraði mikilvæg mörk
er Víkingar reyndu að taka Atla
úr umferð.
Bjarki var besti leikmaður Víkings.
Sigurður Gunnarsson var tekinn úr
umferð allan leikinn en slapp nokkr-
um sinnum úr gæslunni og þá var
ekki að sökum að spyija. Árni Frið-
leifsson stóð einnig fyrir sínu. Karl
Þráinsson klúðraði tvívegis knettin-
um í sókninni á síðustu mínútunum
og var það dýrkeypt.
M#rk Fram: Atli Hilmarsson 11, Júlíus
Gunnarsson 4/1, Ragnar Hilmarsson 3,
Birgir Sigurðsson 8, Hermann Bjömsson
2, Egill Jóhannesson 2 og Hannes Leifsson
1.
Mörk Víkings: Bjarki Sigurðsson 7, Ámi
Friðleifsson 6, Sigurður Gunnarsson 6/2,
Guðmundur Guðmundsson 2, Karl Þráins-
son 2, Hilmar Sigurgíslason 1 og Sigurður
Ragnarsson 1.
Dómarar: Hákon Sigurjónsson og Guðjón
Sigurðsson og dœmdu erfiðan leik þokka-
lega.
oiyui yunyu
Víkingslokið
Það má segja að tíma-
mót hafi orðið hjá
Víkingum í gær. Þeir
hafa náð frábærum ár-
angri á síðustu 10 árum
og unnið þá annað hvort
íslandsmeistaratitil eða
orðið bikarmeistarar.
Nú er þeirri sigurgöngu
lokið. Þeir eiga ekki
möguleika á Islands-
meistaratitlinum og í
gær féllu þeir út i bikar-
keppninni.