Morgunblaðið - 02.06.1988, Blaðsíða 16
16
rjAfjT < cttt^ a srr f'mttiírj'j' nrn a TcrrAJTr\nr'\T>A
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JUNI 1988
Gallerí Gangskör:
Nýir listamenn
bætast í hópinn
FIMM nýir listamenn hafa nú
bæst í hóp þeirra, sem standa að
rekstri Gallerís Gangskarar við
Amtmannsstíg. Listamennirnir
eru nú tólf og mun breytinga að
vænta á rekstri gallerísins er því
hefur bæst þessi liðsauki.
Ákveðið hefur verið að hópurinn
standi að samsýningu á listahátíð
í júní. Hann hefur einnig í hyggju
að sýna saman í galleríum hér
heima og erlendis, en fyrsta sýning-
in verður í Galleri Arctander í Osló
í september næstkomandi. Þar
verður svo önnur sýning í maí á
næsta ári.
Breyting verður nú einnig á opn-
unartíma Gangskarar, opið verður
frá þriðjudegi til föstudags frá
klukkan 12 til 18. Lokað verður frá
laugardegi til mánudags nema þeg-
ar sérsýningar eru í galleríinu.
Nýliðamir í hópi Gangskörunga,
eins og hópurinn kallar sig, heita
Anna Gunnlaugsdóttir, Áslaug Hö-
skuldsdóttir, Margrét Jónsdóttir,
Ragnhildur Stefánsdóttir og Sigrún
Olsen.
Talið frá vinstri:Áslaug Höskuldsdóttir, Lísa K. Guðjónsdóttir, Ragna Ingimundardóttir, Hafdís Ólafs-
dóttir, Sigrún Olsen, Jenný Guðmundsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Lísbet Sveinsdóttir, Þórdís Alda Sigurð-
ardóttir, Kristjana Samper og Anna Gunnlaugsdóttir. Ragnhildi Stefánsdóttur vantar á myndina.
Talaðu við okkur um nýju
tölvustýrðu þvottavélina og
þurrkarann frá Miele.
SUNDABORG 1
C JOHAhN OLAFSSON & LÖ HF
0
*.'V**^ ; rjiW w* #1
E ÍSVA'
hdr -* m\
jmv
Árás á samn-
ingsrétt-
inn mótmælt
STJÓRN fiskvinnsludeildar
Verkamannasambands íslands
hefur „fordæmt ósvifna árás ríkis-
stjómarinnar á samningsrétt
verkalýðsfélaganna og þá kjara-
skerðingu sem henni fylgir," eins
og segir í fréttatilkynningu sem
Morgunblaðinu hefur borist.
Þar segir ennfremur: „Stjómin
mótmælir harðlega lagaboði um
kjaraskerðingu og afnám samnings-
réttar, og skorar á ríkisstjómina að
afturkalla lagasetninguna svo verka-
fólk endurheimti fijálsan samnings-
rétt. S^óm deildarinnar skorar á
fiskvinnslufólk um land allt að búa
sig undir að fylgja þessari áskorun
eftir af fullri einurð ef þurfa þykir."
Leikjanám-
skeið á veg-
um KFUM
o g KFUK
Leikjanámskeið KFUM og
KFUK í Reylyavík fara senn að
hefjast. Fyrsta námskeiðið
hefst 6. júní, en hin tvö sem
starfrækt verða hefjast 20. júní
og 4. júlí.
Námskeiðin eru fyrir 6-10 ára
böm og verða með líku sniði og
undanfarin sumur. Hvert nám-
skeið stendur í tvær vikur. Bömin
koma á staðinn kl. 10.00 fyrir
hádegi og fara heim klukkan 16.00
síðdegis. Dagskrá námskeiðanna
samanstendur af íþróttum, leikjum
og skoðunarferðum. Bömin fá að
mála, teikna, vefa og baka. Þá fá
þau biblíufræðslu við sitt hæfi og
ýmis konar verkefni að fást við.
Námskeiðin em haldin í félags-
heimili KFUM og KFUK við Holta-
veg (gegnt Langholtsskóla). Inn-
ritun er þegar hafín en nánari
upplýsingar fást á skrifstofu
KFUM og KFUK að Amt-
mannsstíg 2B.
Fréttatilkynning
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN