Morgunblaðið - 02.06.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
25
Tilgangur j afnr éttisáætlana
eftírAsdísi J. Rafnar
Nú þegar ríkisstjómin hefur sam-
þykkt þá ósk Jafnréttisráðs, að
hvert ráðuneyti og stofnun hins
opinbera vinni framkvæmdaáætlun
um hvemig stuðla megi að jafnrétti
karla og kvenna í ráðuneytum og
stofnunum er þörf á að kynna í
stuttu máli þær hugmyndir sem
Jafnréttisráð hefur um efni slíkra
áætlana. Stefnumótun um hvemig
vinna megi með skipulegum hætti
að jafnrétti karla og kvenna á vinnu-
stöðum hins opinbera er mjög brýn,
en allt frá setningu fyrstu jafnrétti-
slaganna hefur slík stefnumótun
ekki verið unnin, þannig að lögin
hafa ekki náð tilgangi sínum sem
skyldi. Með setningu jafnréttislag-
anna tóku stjómvöld að sér að vinna
að tilgangi laganna, en staðreyndin
er sú í dag, að störf hjá hinu opin-
bera em ekki síður kyngreind en
störf á almennum vinnumarkaði,
fáar konur skipa stjómunarstöður
hjá hinu opinbera og opinberar
nefndir, stjómir og ráð em að mestu
skipaðar körlum, þrátt fyrir ákvæði
jafnréttislaganna um að þar skuli
leitast við að jafna hlut kynjanna.
Sérstakar aðgerðir og opinbert
frumkvæði er nauðsynlegt eigi laga-
setningin að hafa tilgang.
Hefur lögunum verið fylgt?
Þá skyldu má leiða af jafnréttis-
lögunum, að sæki kona og karl um
starf í starfsgrein, þar sem annað
kynið er allsráðandi og bæði tvö
hafa sömu menntun og hæfileika
til að bera, þá skuli veita þeim aðila
starfið, sem er af því kynferði sem
er í minnihluta í viðkomandi starfs-
grein. Hafa yfírmenn ráðuneyta og
stofnana unnið samkvæmt þessari
meginreglu við ráðningar. í stöður
og störf á sínum vettvangi? Hafa
þeir hvatt konur í sama mæli og
karla til að sækja um stöður? Leita
þeir að hæfum konum sem körlum
f störf á sínum vettvangi? Leitast
þeir við að þjálfa konur sem karla
til að gera þau hæfari til að gegna
ábyrgðarmeiri störfum? Er leitast
við að jafna hlut karla og kvenna f
opinberum nefndum, stjómum og
ráðum? Er markvisst unnið að þvl,
að jafna stöðu kynjanna innan fyrir-
tækja og stofnana hins opinbera og
stuðlað að því, að störf séu ekki
flokkuð sem sérstök kvenna- og
karlastörf, eins og 9. grein jafnrétti-
slaganna kveður á um að sé gert?
Má að fullu skýra mikinn mun á
hlunnindagreiðslum karla og
kvenna hjá ríkinu með eðli þeirra
starfa sem kynin gegna? Hvers
vegna fer náms- og starfsfræðsla
og jafnréttisfrasðsla ekki fram með
skipulegum hætti f skólum landsins
þótt lögin kveði á um að slík fræðsla
fari þar fram?
Með jafnréttisáætlunum má
ná tilgangi laganna.
Rökin að baki því, að hvert ráðu-
neyti og stofnun móti sér sjálfstæða
áætlun em þau m.a., að hver yfír-
maður þekkir til innviða sinnar
stofnunar og metur fyrst stöðu kynj-
anna eins og hún er í dag og mótar
áætlunina í samræmi við hreyfíngar
í störfum og milli starfa á vinnu-
staðnum. Þá eru störf mismunandi
kyngreind hjá hinu opinbera og þörf
stofnana mismunandi á sérmennt-
uðum starfsmönnum. Samstarf þarf
að vera náið við samtök launþega
hjá ríkinu eigi árangur að nást af
slíkum aðgerðum og þá hlýtur það
að reynast árangursríkast að sú
samvinna miðist við hvem vinnu-
stað.
Starfsauglýsingum má haga
þannig, að konur séu hvattar til að
sækja um þau störf, sem karlar
gegna að meirihluta hjá ríkinu og
öfugt. Norðurlandaráð hefur aug-
lýst störf með þessum hætti sl. tvö
ár. Síðastliðinn vetur auglýsti Norð-
urlandaráð stöðu ritara menningar-
málanefndar ráðsins þannig; „Meiri-
hluti nefndarritara við skrifstofuna
em karlmenn, en leitast er við að
fjöldi karla og kvenna í stöðum þess-
um verði sem jafnastur."
Ábyrgð kvenna sjálfra á þróun
jafnréttis hjá hinu opinbera er mikil
ekki síður en stjómvalda. Hlutverk
launþegasamtakanna getur því ver-
ið veigamikið m.t.t. námskeiðahalds
og aðgerða til að hvetja konur til
að axla þá ábyrgð, sem fylgir áætl-
unum stjómvalda. Ríka nauðsyn ber
til að skapa jákvætt viðhorf til jafn-
réttismála í þjóðfélaginu eigi lögin
um jafnan rétt og jafna stöðu
kvenna og karla að hafa tilgang.
Sveitarfélögin og hinn
almenni vinnumarkaður
Félagsmálaráðuneytið og Jafn-
réttisráð munu halda fund með full-
trúum sveitarfélaga og jafnréttis-
nefnda sveitarfélaga i júni, þar sem
Ásdis J. Rafnar
óskað verður eftir því að sveitarfé-
lögin móti sér jafnréttisáætlanir að
dæmi hins opinbera. Samkvæmt
jafnréttislögunum skal Jafnréttisráð
vera stefnumótandi aðili í jafnréttis-
málum og vera ráðgefandi gagnvart
stjómvöldum, stofnunum og félög-
um í málefnum sem varða jafna
stöðu og jafnan rétt karla og
kvenna. Því hyggst Jafnréttisráð
leita eftir viðræðum við aðila vinnu-
markaðarins, atvinnurekendur og
launþega um að þessir aðilar móti
sér stefnu um það, að unnið skuli
með skipulegum hætti að kynjajafn-
rétti á almennum vinnustöðum.
Samtök atvinnurekenda og laun-
þega á Norðurlöndunum hafa mótað
slíka stefnu. Á ráðstefnu Jafnréttis-
ráðs I mars sl. kynnti forstjóri IBM
„Ríka nauðsyn ber til
að skapa jákvætt við-
horf til jafnréttismála í
þjóðfélaginu eigi lögin
um jafnan rétt og jafna
stöðu kvenna og karla
að hafa tilgang.“
á fslandi yfírlýsingu IBM um jafn-
rétti kynjanna, en ýmis stórfyrir-
tæki erlendis hafa í starfsmanna-
stefnu sinni lagt áherslu á fjölgun
kvenna í ábyrgðar- og stjómunar-
störfum. Ástæða þess er sú, að kon-
ur hafa eins og karlar hæfíleika, sem
atvinnulífíð þarf á að halda.
Höfundur er formaður Jafnréttia-
ráða.
ÆÆMw wSSbS
Mitsubishi L300 4.W.D.
Bfflinn sem sló strax í gegn
— í öllum hlutverkum — tll allra verka.
— Til fólksflutninga eöa vöruflutninga.
I
Æmmk
Mitsubishi Lancer 4.w.d.
— Meö sítengt aldrif.
— Ferðabíll sem fer á kostum.
VERD FRÁ KR. 698.000.
Mitsubishi Pajero Langur eða stuttur
— Fjölhæfasta farartækiö á landi.
— A vegi eöa vegleysu.
VERD FRÁ KR. 1.065.000.
ÞRJAR STJORNUR FRA
MITSU BISHl
□ Allir meö aldrif.
□ Allir meö aflstýri.
□ Allir meö snertulausa
kveikju.
□ Allir meö rúllubílbelti
í hverju sæti.
□ Allir meö litaöar rúöur.
□ Allir meö tregöulæsingu
á afturdrifi.
□ Allir meö dagljósabúnaö.
(samkvæmt nýju umferðarlögunum).
TIL AFGREIÐSLU 5TRAX
Á GAMLA VERÐINU