Morgunblaðið - 02.06.1988, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
33
Norrænt gigtlæknaþing í Reykjavík
Gigtlæknar hvaðanæva
úr heiminum sitja þingið
NORRÆNT gigtlæknaþing
stendur nú yfir i Reykjavík.
Þetta er 22. þingið í röðinni en
þing þessi hafa verið haldin
reglulega annað hvert ár. Fyrir-
lesar koma hvaðanæva úr heim-
inum og að sögn Kára Sigur-
bergssonar læknis eru þeirra á
meðal margir færustu læknar
heims á þessu sviði læknavisind-
anna.
Það er gigtsjúkdómafélag
íslenskra lækna sem stendur fyrir
þinginu og er Kári Sigurbergsson
formaður þess. Aðrir sem hafa stað-
ið að undidrbúningi þingsins eru
Kristján Erlendsson, Kristján.
Steinsson og Jóhann Gunnar Þor-
bergsson. Kári Sigurbergsson og
Kristján Steinsson voru spurðir
nánar út í þinghaldið og helstu
umræðuefni.
„Það eru um 500 þáttakendur á
þinginu sem haldið er á Hótel Sögu
og í Háskólabíói og stendur það í
þijá daga. Þessi þing hafa verið
haldin reglulega annaðhvert ár í
44 ár og er þetta 22. þingið í röð-
inni en síðast var það haldið hér á
landi ’76. Að þessu sinni er þingið
með alþjóðlegu yfirbragði því hér
eru fjölmargir gestir sem koma
annarsstaðar að en frá Norðurlönd-
um. Þar á meðal eru Bretar, Banda-
ríkjamenn, Frakkar, einn Japani
auk gesta víðsvegar að úr Evrópu.
Ýmsum heimsþekktum fyrirles-
urum á sviði gigtlækninga var boð-
ið til þingsins og má þar á meðal
nefna nöfn eins og Alfred D. Stein-
berg og Evelyn V. Hess frá Banda-
ríkjunum og Edward C. Huskisson
og Paul A. Dieppe frá Bretlandi.
í upphafí þingsins verða jrfírlits-
erindi sem spanna stór svið innan
gigtlækninga. Síðan verða eftirmið-
dagsfundir alla dagana þar sem
kynntar verða nýjustu rannsóknir
og niðurstöður þeirra ræddar. Með-
al helstu umræðuefna eru iktsýki
(liðagigt), slitgigt, gigt af völdum
kristalla og gigtsjúkdómar sem
tengjast ónæmiskerfínu. Auk þess
verður talað um skurðaðgerðir á
liðagigtarsjúklingum, faraldsfræði
gigtsjúkdóma og nýjungar á sviði
röntgenrannsókna. Sérstakir fyrir-
lestrar verða ennfremur um liðagigt
bama og eldra fólks.
Samhliða þessu þingi munu full-
trúar gigtarfélaga Norðurlanda
(Scandinavian Leagues against
Rheumatism), sem eru samtök
sjúklinga, ræða sameiginleg hags-
munamál og_ málefni gigtsjúklinga.
Gigtarfélag íslands var stofnað fyr-
ir tólf árum og er Jón Þorsteinsson,
yfirlæknir, formaður þess.
Gigtsjúkdómar eru meðal erfíð-
ustu sjúkdóma mannkynsins og er
álitið að um 20% íslendinga fái ein-
hverskonar gigtarsjúkdóma ein-
hvemtíman á ævinni. Sumir gigt-
sjúkdómar eru afskaplega erfíðir
og það er mjög mikilvægt að greina
sjúkdómana rétt því þeir krefjast
mismunandi meðferðar og horfur
em mismunandi."
Auknar batahorfur barna
Rætt við dr. Hans Martin Höyeraal
EINN þeirra sem halda fyrirlest-
ur á Norræna gigtlæknaþinginu
er Norðmaðurinn dr. Hans Martin
Höyerdal. Hann er að sögn for-
svarsmanna þingsins meðal fær-
ustu sérfræðinga í barnagigt-
lækningum. Hann var inntur eftir
helstu nýjungum á sínu sviði og
efni fyrirlestanna sem hann flyt-
ur á þinginu.
„Á þessu þingi mun ég einkum
fjalla um rannsóknir í ónæmisfræð-
um, nýjar lækningaaðferðir og
bamaliðagigt. Það hafa orðið miklar
framfarir í gigtlækningum á undanf-
ömum ámm og em batahorfur
þeirra bama sem þjást af gigt mun
betri nú en fyrir tíu ámm síðan.
Margir halda að böm fái ekki þenn-
an sjúkdóm en af milljón bömum
undir 16 ára aldri í Noregi koma
fram 120 ný tilfelli á hveiju ári. Það
samsvarar því að á íslandi komi fram
8 ný tilfelli árlega eða að 1—200
íslenskr böm þjáist af gigt. Fyrir tíu
ámm dóu 5% þeirra úr sjúkdómnum
en nú er hlutfallið undir 1%.
Við vitum ekki fyrir víst hvort
þessi þróun er því að þakka að beitt
er kröftugri meðferð en áður eða
hvort sjúkdómurinn hafí breytt sér
og ég tel ekki ráðlegt að ftillyrða
neitt í því sambandi.
Gigt er ekki einn sjúkdómur held-
ur flokkur sjúkdóma. Það er því afar
mikilvægt að geta greint hvers kon-
ar gigt er um að ræða þegar með-
ferð er ákveðin og því er brýnt að
flokka sjúklinga eftir hinum ýmsu
áhrifaþáttum og finna hveijir það
em sem bregðast við meðferð og
hveijir ekki. Það þarf að átta sig á
sérkennum hvers hóps og finna
hveijir það em sem svara hveiju
lyfjaformi. Við þessar rannsóknir hef
ég unnið með Stig Larsen sem hefur
aðstoðað við tölfræðilega hlið máls-
ins en við störfum hjá Oslo Samtets-
forening Rheumatism Hospital.
Ein af athyglisverðari nýjungum
í gigtlækningum er nýtt lyf sem
nefnist Methotrexat. Rannsóknir
hafa verið gerðar á stómm hóp sjúkl-
inga og kom í ljós að 2/3 hópsins
svömðu meðferð. Rannsökuð em
áhrif lyfsins og þol gegn því og ef
ástand sjúklingsins er óbreytt eða
verra eftir lyfjameðferðina er ekki
talið að hann bregðist við lyfínu.
Ef sjúklingurinn hins vegar þolir
lyfíð vel og sýnir merki um bata er
talað um að hann bregðist við lyfinu.
Starf gigtlækna byggir mikið á
hópvinnu og höfum við m.a. unnið
með tannlæknum, einkum í tengsl-
um við gigt í kjálkaliðum og sam-
verkan tannskemmda í bömum og
liðagigtar.
Eitt af því mikilvægasta í meðferð
gigtsjúklinga og ekki hvað síst gigt-
veikra bama er að upplýsa bæði
foreldra og sjúklinga um sjúkdóm-
inn, meðferð og batahorfur. Nú er
litið á fræðslu um sjúkdóminn sem
hluta af meðferðinni. Mikilvægt er
Morgunblaðið/Þorkell
Dr. Hans Martin Höyeraal,
norskur sérfræðingur í bama-
gigtlækningum.
að láta bömin nota vöðvana til að
draga úr fötlun af völdum gigtar.
Af þeim sem fá gigtsjúkdóma á
bamsaldri geta nú 85% vænst þess
að lifa eðlilegu lífi 25 ámm síðar.
Sem sagt; batahorfur eru góðar.“
Morgunblaðið/Þorkell
Læknamir Kári Sigurbergsson formaður undirbúningsnefndar norr-
æna gigtlæknaþingsins og Kristján Steinsson varaformaður.
Blönduð lyfjameð-
ferð vinsælust núna
- segirdr.Ed-
ward C. Huskis-
son frá Bretlandi
DR. HUSKISSON er einn af
þekktustu fyrirlesurum heims á
sviði gigtlækninga. Hann var
spurður um efni þeirra fyrir-
lestra sem hann flutti á þessu
þingi og hveijar væm helstu
nýjungar í gigtlækningum.
„Fyrirlesturinn sem ég hélt fjall-
aði um mælingar og meðferð gigt-
arsjúkdóma og ræddi ég einkum
um það hvemig mætti mæla árang-
ur meðferðar, m.a. þar sem skipt
erum liði og einnig árangur lyfja-
meðferðar. Einkum beinast þessar
mælingar að langtíma útkomu.
Það hafa orðið miklar breytingar
á meðferð gigtarsjúklinga og fram-
farir í gigtlækningum og það þarf
að skrá betur hvað verður um sjúkl-
ingana og hver árangur lækning-
anna er þegar til lengri tíma er litið.
Það hafa sömuleiðis orðið fram-
farir í notkun röntgenmynda þar
sem tölvan hefur að miklu leyti leyst
hefðbundinn samanburð röntgen-
mynda af hólmi og þannig auðveld-
að greiningu og gert hana nákvæm-
ari.
Mikið af nýjum lyfjum hefur ver-
ið reynt á undanfömum árum og
eru mörg þeirra afar áhrifarík og
sum jafn mikilvæg í meðferð gigt-
sjúkdóma og sýklalyf voru á sínum
tíma í baráttu við sýkingar.
Meðferð gigtarsjúklinga hefst nú
mun fyrr en áður tíðkaðist og er
reynt að grípa inn í með lyfjum eða
skurðaðgerðum áður en gigtin veld-
ur varanlegri fötlun. Fólk í hjóla-
stólum er því ekki lengur jafn al-
geng sjón á gigtlækningastofnun-
um og áður var.
Morgunblaðið/Þorkell
Dr.Edward C. Huskisson frá
Bretlandi.
Lyf gegna mjög stóm hlutverki
í baráttunni gegn gigtsjúkdómum.
Sem dæmi um eitt af þessum nýju
lyfjum sem rætt verður um á þing-
inu er lyfið Ciclosporin A og notkun
þess í meðferð sóríasistengdrar
liðagigtar (psoriatic arthritis). Nú
er mikið í tísku að reyna fleiri en
eitt lyf í einu í hveiju tilfelli (comb-
ination therapy) og hefur það oft
reynst árangursríkt þar sem sjúkl-
ingar bregðast ekki við einhveiju
einu lyfí.
En undirstaða allrar meðferðar
er rétt og örugg greining eins fljótt
og auðið er og beinast nú helstu
rannsóknir að því að greina gig-
ktsjúkdómana að og flokka þá á
sem skilmerkilegastan hátt.“
GÍSLI J. JOHNSEN SF. M1
NÝBÝLAVEGI 16 - P.O.BOX 397 - KÓPAVOGI - SÍMI 641222