Morgunblaðið - 02.06.1988, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
Unglingar
- KEILUIXIÁMSKEIÐ
Keilunámskeid
verðaísumará
laugardögumfrá
kl. 11-13.
öll ungmenni á aldrinum 10-16 ára eru velkomin tii þátttöku. Nám-
skeiðiö kostar aðeins kr. 330,- hvert sinn (með skóm). Frekari upplýs-
ingar veittar í síma 621599, Keiiusalnum, Öskjuhlíð.
í framhaldi af námskeiðinu verður Flugleiðamótið haldið síðsumars.
Þeir, sem standa sig vel á því móti, fá ferðaverðlaun til Englands í
keilukeppni o.fl. verðlaun.
LEIÐBEIIMENDUR VERÐA:
Kelluungllngar eftlr sigurför «11 Englands
Guðmundur H.
Guðný
Jón
Guðmundur G.
IOLLU FALLI,
GENGISFALL
eftirFriðrik
Eysteinsson
Nú er nýafstaðin gengisfelling
sem öllu á að bjarga fyrir hom
svona einsog fram að næstu gengis-
fellingu.
Tvær síðustu gengisfellingar
hljóta að hafa sýnt fólki svo ekki
verður um vilist að stefna ríkis-
stjómarinnar í efnahagsmálum,
sem þangað til fyrir stuttu miðaðist
við að halda genginu föstu, hafí
beðið skipbrot. Núna hefur stefnan
breyst í að vera: „gengið er fast
en stundum fastara en annars".
Það sem annars ætti að vekja
mesta athygli í sambandi við geng-
isfallið er að ríkisstjómin virðist
ganga út frá því að efnahagsað-
gerðir beri ekki árangur nema al-
menningur viti ekki af þeim fyrir-
fram. Eða eins og einn góðkunningi
almennings orðaði það: „Tal um
gengisfall er efnahagsaðgerð."
Nú er það spuming, og fer eftir
því hvaða „skóla" í hagfræði maður
aðhyllist, hvort og að hvað miklu
leyti maður trúir á áhrifamátt opin-
berra efnahagsaðgerða. Þeir sem
aðhyllast svokallaðar rökvæntingar
(rational expectations) halda því
fram að ekki sé hægt að plata al-
menning kerfísbundið. Efnahagsað-
gerðir, sem byggja á því að leynd
þurfi að hvíla yfír þeim til þess að
þær virki, verða því haldlausari og
haldlausari með tímanum ef þeim
fylgja ailtaf svipaðir fyrirboðar (t.d.
á Islandi að stjómmálamenn og
seðlabankastjóri segi að gengisfell-
ing komi ekki til greina og „grát-
kórinn" í fískvinnslunni geti sýnt
fram á meira tap en Þjóðhagsstofn-
un). Það hefur endar komið á dag-
inn að margir aðilar keyptu gjald-
eyri rétt fyrir gengisfallið.
Og hvað vinnst þá með þessari
gengisfellingarleynd? Jú, einkum
þrennt. í fyrsta lagi eiga þeir sem
Friðrik Eysteinsson
„Nú er það spurning,
og fer eftir því hvaða
„skóla“ í hagfræði mað-
ur aðhyllist, hvort og
að hvað miklu leyti
maður trúir á áhrifa-
mátt opinberra efna-
hagsaðgerða.“
lakast eiga með að afla sér upplýs-
inga (eða eiga erfíðast með að vinna
úr þeim) undir högg að sækja. Þeir
eiga væntanlega erfíðara en aðrir
með að taka „réttar" ákvarðanir. í
öðru lagi þá fer dýrmætur tími og
peningar í að spá fyrir um hvenær
næsta gengisfelling verður og hve
mikii hún verður. Og í þriðja lagi,
og það sem kannski er alvariegast
af öllu, er að trúnaðarbrestur verð-
ur milli almennings og ríkisstjómar-
innar. Ráðherramir ljúga að þjóð-
inni. Og ef þeir Ijúga í þessu máli,
hvers vegna ekki líka I öðmm?
Gengisfellingarleynd (og önnur
leynd í fjármálum hins opinbera og
peningamálum) er af hinu slæma.
Eðlilegra væri að ríkisstjómin
fylgdi föstum og einfoldum reglum.
Við það myndi óvissa minnka (sem
myndi þýða lægri raunvexti til
dæmis, sem er eitt af því sem ríkis-
stjómin stefnir að, en að því er virð-
ist með kolröngum aðferðum). Dýr-
mætur tími og peningar, sem áður
fóm í að spá fyrir um aðgerðir ríkis-
stjómarinnar, myndu nýtast til
þarflegri hluta og síðast en ekki
síst myndi ríkisstjómin og komandi
ríkissýómir geta tekið lygaramerk-
in af bæði tám og fíngmm.
Höfundur er rekstrarhagfræðing-
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
Okkur er ánægja að tilkynna opnun nýrrar og • Veitingasala
glæsilegrar þjónustumiðstöðvar, HLÍÐARENDA, við • Kaffitería
Austurveg á Hvolsvelli. • Ferðamannaverslun
í björtum og rúmgóðum húsakynnum HLÍÐARENDA, • Bílaleiga
er fyrsta flokks aðstaða fyrir ferðamenn og þjónustan er • Bensínafgreiðsla
af margvíslegu tagi, jafnt fyrir fólk og farartæki: • Afgreiðsla Austurleiðar
Komið við á notalegum áningarstað næst þegar leið ykkar
liggur um Suðurland. HLÍÐARENDI er í alfaraleið og við
bjóðum ykkur velkomin.
ESSO OLÍUFÉLAGIÐ HF HÓTEL HVOLSVÖLLUR ■ KAUPFÉLAG RANGÆINGA AUSTURLEIÐ HF • BÍLALEIGA HVOLSVALLAR
izr.
Ungmennafé-
lag Skeiða-
manna 80 ára
Selfossi.
Ungmennafelag Skeiðamanna
heldur upp á 80 ára afmæli fé-
lagsins 3. júni klukkan 21.00. Þá
verður slegið upp veislu í Braut-
arholti og flutt dagskrá þar sem
helstu atriði úr félagsstarfinu
verða rifjuð upp.
Félagið var stofnað 24. maí 1908
og fyrsti formaður þess var Eiríkur
Þorsteinsson. Kjartan Ágústsson
núverandi formaður sagði að i til-
efni afmælisins yrði bmgði upp
svipmyndum úr starfí félagsins sem
fínna mætti í blaði þess. Þessir
molar úr starfmu verða síðan tengd-
ir ýmsum uppákomum. Þá verður
söngur og gamanmál með tilheyr-
andi kaffiveitingum.
Þess er vænst að allir félagar
ungir sem aldnir bæði þeir sem
búsettir em í sveitinni sem og þeir
sem burtfluttir em láti sjá sig í
afmælinu. Núverandi stjóm Ung-
mennafélags Skeiðamanna skipa:
Kjartan Ágústsson formaður, Ást-
rún Davíðsson gjaldkeri og Matt-
hildur Vilhjálmsdóttir ritari.
— Sig. Jóns.