Morgunblaðið - 02.06.1988, Blaðsíða 57
d»ei iwíi .s auoAcnjTMatr? ,<HaAJHiM3aaoM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
«15
íyC»
57
liðsstjirRaadi
Jón Hjallalín Magnússon, formaður HSÍ, er
rafrnagnsverkffæðingur með eigið iyrirtæki og
þekkir því af eigin raun mikilvægi þjónustu Pósts
og síma fyrir starfsemi fyrirtækja.
f
að er liðsheildin sem skiptir máli. Það vita peir,
sem notfœra sér margpœttapjónustu Pósts og síma.
I Póstur og sími hefur komið upp víðtœkum sam-
skipta- og fjarskiptanetum, sem gera fyrirtœkjum
m. a. kleift að senda tölvugögn og telex á auðveld-
an, pœgilegan og fljótvirkan hátt.
Póstur og sími býður einnig fjölbreytt úrval
vandaðra símtœkja, símakerfi af ýmsum stœrðum
og gerðum, myndsenditceki, telextœki og annan
fjarskiptabúnað sem hentar öllum fyrirtœkjum.
Myndsendipjónustan stendur öllum til boða á
flestum póst- og símstöðvum um land allt
Þjónusta Pósts og síma sparar fyrirtœkjum
fjármuni og tíma.
Því ekki að nofana meira!
POSTUR OG SIMI
Félag áhugamanna
um bókmenntir:
Fundur um
Málfríði
Einarsdóttur
FÉLAG áhugamanna um bók-
menntir heidur fund laugardag-
inn 4. júní á Hótel Loftleiðum,
Kristalssal, um skáldkonuna
Málfríði Einarsdóttur og verk
hennar.
Fundurinn hefst kl. 13.30 og
verða á dagskránni fjögur erindi
auk upplesturs úr verkum Málfríð-
ar. Frummælendur verða Ingunn
Þ. Magnúsdóttir, Elías Mar, Ragn-
heiður Guðmundsdóttir og Vilborg
Dagbjartsdóttir. Guðbergur Bergs-
son mun flytja frumsamið ljóð um
skáldkonuna.
í anddyrinu verður sýning á út-
saumsverkum Málfríðar.
Þingið er öllum opið.
(Fréttatilkynning)
Stykkishólmur:
Miklar breyting-
ar á Hólmkjöri
Stykkishólmi.
AÐ UNDANFÖRNU hefir verið vera þakklátir fyrir dugnað þeirra
unmð við að breyta, skipuleggja
og stækka versiunarrými Vöru-
hússins Hólmkjörs i Stykkis-
hólmi, og er þar nú orðin bylting
í öllum umsvifum.
Verslunarrýmið hefir verið
stækkað, bætt við borðum fyrir
vörur og kjöt og fiskborð og borð
fyrir mjólkurvörur og þau sett á
bæði aðgengilegri og hagkvæmari
stað. Öll afgreiðsluskilyrði starfs-
fólks hafa með þessu verið bætt og
ýmsum hagræðingum komið fyrir.
Þá hafa skrifstofur verið fluttar og
eins kaffistofan sem hefír fengið
hagkvæmara og betra pláss. Lýsing
öll í afgreiðsluborðum hefir verið
breytt og endumýjuð. Öll þessi
breyting er í hagræðingarátt og
meira rými gefst nú viðskiptavinum
til innkaupa. Er Hólmkjör nú orðið
með nýtískulegustu verslunum
landsbyggðarinnar. Þessi umsvif
eiga svo eftir að skila sér í meiri
hagkvæmni í öllum rekstri.
Svo sem áður hefir verið sagt frá
í fréttum átti Hólmkjör nýlega 20
ára afmæli og minntist þess á veg-
legan hátt. Eigendur fyrirtækisins,
þeir Benedikt Lárusson, Bjami Lár-
usson og Svanlaugur Lámsson
keyptu verslun Sigurðar Ágústs-
sonar og ráku hana fyrst í húsa-
kynnum hennar við Aðalgötu, en
fluttu sig síðan um set og byggðu
stórt verslunarhúsnæði við Borgar-
braut, ofarlega í bænum. Verslunin
og þjónustan hefír um árin staðist
alla erflðleika í rekstri vegna þess
hve eigendur hafa verið samhentir
og lagt á sig erfíði til að sem allra
minnst færi úrskeiðis. Eftir að
Kaupfélag Stykkishólms hætti
rekstri um sl. áramót, jukust um-
svif Hólmkjörs og með tillit til þess
varð enn brýnna að koma þessum
framkvæmdum í höfn. Þetta er því
verðugt framtak eigenda.
Allur verslunarrekstur á lands-
byggðinni er erfiður svo ekki sé
meira sagt, samkeppnin við stór-
markaði höfuðborgarinnar og jafn-
vel innkaupaferðir til útlanda, er
þung í skauti og mega Hólmarar
þremenninga í verslunarmálum,
sem setja sinn metnað í að veita
sem besta og hagstæðasta þjón-
ustu, enda hafa verðlagskannanir
sýnt að þeir standast samkeppnina
vonum framar.
Er þeim félögum óskað farsældar
í starfi og að þeir megi hafa árang-
ur sem erfiði. Þeir eru allir fæddir
Hólmarar og hér hefir starfssvið
þeirra verið.
- Árni
Morgunblaöið/Ámi Helgason
Hólmkjör eftir breytingarnar.
Höfðar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!