Morgunblaðið - 02.06.1988, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 02.06.1988, Qupperneq 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988 Afmæliskveðja; Hlíf Tryggva- dóttir kennari Oft er það, að einhver sérstök minning vaknar öðrum fremur þeg- ar hugsað er til fyrstu kynna við þá, sem síðar urðu samferðamenn og vinir. Þegar ég hugsa til fyrstu samfunda minna við Hlíf Tryggva- dóttur, þá fínnst mér sem ég sé umleikinn sólardýrð hásumardags. En það var einmitt á slíkum degi, sem leiðir okkar lágu fyrst saman. Ekki er það þó einvörðungu sólar- dýrð þeirra samfunda, sem vekur hina björtu minningamynd í vitund minni. Þar bætast einnig við þeir eiginleikar umræddrar konu, að birtan fylgdi henni alltaf, hvar sem hún fór. Og þó að árin hafí liðið, þá fer víðs fj'arri að Hlíf Tryggva- dóttir hafi glatað þeim eiginleika að breiða birtu og yl yfír umhverfi sitt. Hlíf Tryggvadóttir fæddist í Reykjavík 2. júní 1908. Foreldrar hennar voru hjónin Tryggvi Matt- hfasson trésmiður og Kristín Þórð- ardóttir. Þau hjónin eignuðust þijár dætur. Elst þeirra er Auður, hús- móðir suður í Garði, en yngri voru tvíburamir Nanna og Hlíf. Nanna er látin fyrir tveimur árum. Tveggja ára gömul fluttist Hlíf með foreldrum sínum og systrum suður að Skeggjastöðum í Garði og þar ólust þær systumar upp. Að loknu námi í bamaskóla og unglingaskóla fór Hlíf til Reykjavík- ur og lærði þar kjólasaum. En hug- ur hennar stefndi lengra á náms- brautinni, enda gædd ótvíræðum hæfíleikum á þeim vettvangi. Hún hóf nám í Kennaraskóla Islands haustið 1931 og útskrifaðist þaðan vorið 1933 með kennaraprófi og auk þess sérstöku söngkennara- prófí. Næst lá svo leiðin til Ólafsvíkur. Þar kenndi Hlíf við bamaskólann um tveggja ára skeið. Árið 1935, hinn 9. janúar, giftist hún unnusta sínum og skólabróður, Sigurbimi Ketilssyni frá Álfsstöðum á Skeið- um. Þau settust fyrst að í Reykjavík og vom þar við kennslu í eitt ár. Eftir það fóm þau austur á Eski- flörð og kenndu bæði við bamaskól- ann þar næstu fímm árin. Þá var Sigurbjöm ráðinn skólastjóri við Njarðvikurskóla. Þanngað fluttu þau 1942 og áttu heima í Ytri- Njarðvík. í Njarðvík var svo ævi- starfíð unnið. Hlíf hóf þegar kennslu hjá manni sínum og kenndi alltaf í skólanum hjá honum. Handavinna og söngur vom hennar aðalkennslugreinar. Annars var hún oftast nær reiðubúin að grípa þar inn í, sem þörf var á hveiju sinni. Fyrstu árin í Njarðvík var hún stundakennari, en frá 1955 var hún í fastri stöðu þar. Hlíf var fædd kennari og naut þess að miðla öðmm af þekkingu sinni og hæfíleikum. Ég kynntist störfum hennar talsvert náið. Bæði vomm við samkennarar f Njarðvík- urskóla á annan áratug og auk þess var hún organisti í því bama- starfí, sem fram fór á vegum kirkj- unnar í Ytri-Njarðvík á starfsámm mínum þar syðra. Það var gott að starfa með Hlíf. Hún var svo samvinnufús, jákvæð og uppörvandi, að allt varð starfíð léttara, ánægjulegra og umfram allt árangursríkara en það ella hefði orðið. Hún náði oft og tíðum alveg stórkostlegum tökum á bamakóm- um sínum, sem alla tíð var starf- andi í Njarðvíkurskóla á meðan hennar naut þar við. Þá má ekki gleyma þeim þætti, sem söngurinn skipaði í skólastarfínu. „Syngjandi skóli er góður skóli," er eftir vitmm skólamanni haft. Óg ég hygg, að Hlíf hafi einmitt sannað þá stað- hæfíngu með starfí sínu í Njarðvík- urskóla. Þeir em áreiðanlega marg- ir, bæði þátttakendur og áheyrend- ur, sem muna eftir hinum fagra og fágaða söng, sem setti svo mikinn svip á hátíðarhöld litlu jólanna í Njarðvíkurskóla. Oft kom mér en- glasöngur í hug, þegar ég hlýddi á Fullkomin viðgerða- og varahiutaþjónusta. Heimills- og raftækjadeild EKLAHF uauyavegi 170-172 Simi 695500 KÆLI- OG FRYSTISKÁPUR Samt. stærö: 275 I. Frystihólf: 45 I. ★★★★ Hæö: 145 sm. Breidd: 57 sm. Dýpt: 60 sm. Færanlegar hillur í hurð. Sjálfvirk afþýöing í kæli. Vinstri eða hægri opnun hinar björtu og glöðu bamaraddir hljóma við undirleik ýmiss konar ásláttarhljóðfæra, sem bömin sjálf léku á. En Hlíf stjómaði og kórinn hlýddi stjómanda sínum eins og hún væri að leika á hljóðfæri. Þó hygg ég, að stærsta sigurinn hafí kórinn hennar unnið, þegar hann söng við hátíðarguðsþjónustu í Innri- Njarðvíkurkirkju á Thorkillí-hátíð- inni svonefndu, þegar minnisvarði Jóns Þorkelssonar skólameistara var afhjúpaður 29. maí árið 1965. Það hefði verið gaman að eiga upp- töku af þeim söng og eins af lögun- um, sem kórinn söng úti við af- hjúpunina sjálfa. Þetta var mikil hátíðarstund, en hápunktur hennar var hinn ógleymanlegi söngur bam- anna. Árið 1951—1952 var Sigurbjöm skólastjóri í fríi og dvaldi erlendis. Tók Hlíf þá að sér hlutverk eigin- manns síns og var settur skóla- stjóri í fjarveru hans. Fórst henni það vel úr hendi, svo sem að líkum lætur. Hlíf kom víðar við sögu á vett- vangi söng- og tónlistarmála í Njarðvík en í sambandi við skóla- kórinn og söngkennslu í skólanum. Árið 1944 var Innri-Njarðvíkur- kirkja endurvfgð og Innri-Njarðvík gerð að sérstakri sókn. Þá tók Hlíf að sér að æfa upp nýjan kirkjukór þar í hverfínu og stjómaði honum til 1948. í Ytri-Njarðvík var engin kirkja. En reglulegt guðsþjónustuhald hófst þar árið 1954 og fóm guðs- þjónustumar fram í samkomuhús- um þar. Nokkru síðar hófst Hlíf handa og stofnaði kirkjukór í Ytri- Njarðvík og söng hann jafíian við guðsþjónustur þar upp frá því, með örlitlum hléum þó. Síst ber að van- meta og vanþakka hinn mikla og einlæga áhuga söngfólksins, sem hlaut að starfa við mjög erfiðar aðstæður. En fyrst og fremst var það þó hinn brennandi baráttuhug- ur söngstjórans, sem hélt liðinu saman, bar starfíð uppi og náði oft og tíðum stórkostlegum árangri. Draumurinn um nýja kirkju var vakandi í vitund margra Ytri- Njarðvíkinga. Sá draumur varð að blessuðum vemleika á sumardaginn fyrsta vorið 1979. Við þá fram- kvæmd lögðust margir á eitt. En sannfæring mín er sú, að með því góða og gifturíka starfí, sem Hlíf innti af hendi með söngstjóm sinni, bæði meðal bama og fullorðinna, megi telja hana meðal fremstu og virkustu brautryðjenda að kirkju- byggingunni. Auk tímafrekra starfa að söng- stjóm og organleik tók Hlíf tals- verðan þátt í félagsmálum Njarðvíkinga. Hún var t.d. formað- ur kvenfélagsins Njarðvíkur árin 1943-1945 og 1951-1954. Af því sem hér hefír verið sagt mætti ætla, að Hlíf hafí ekki haft mikinn tíma afgangs til að sinna húsmóðurstörfum. En því fór víðs fjarri. Hún bjó fjölskyldu sinni fag- urt heimili og gestrisni var hjá þeim hjónum í hæstu hávegum höfð. Ég minnist margra ógleymanlegra ánægjustunda á heimili þeirra og áreiðanlega er ég einn af mjög mörgum um slíka reynslu. Bamaláns hafa þau hjónin orðið aðnjótandi. Þau eiga fímm böm, sem öll em á lífí. Elstur þeirra er Tryggvi, verkfræðingur og fram- kvæmdasljóri, kvæntur Siglinde F. Klein, þau búa í Reykjavík, þá er Kristín, kennari og húsmóðir í Reykjavík, gift Sigurði Halldórssyni arkitekt, Drífa, kennari og húsmóð- ir, búsett í Lúxemborg, gift Þórði Sæmundssyni flugvirlq'a, Álfdís Katla, húsmóðir í Tampa í Flórída í Bandaríkjunum, gift Charles Co- urtney lífeðlisfræðingi og yngstur er Þráinn, verkfræðingur, búsettur í Suður-Áfríku, kona hans, Susan, er ^af ensk-hollenskum ættum. i dag em afkomendur þeirra hjóna 28 talsins. Hlíf hélt áfram kennslu til 1978. Eftir það bjuggu þau hjónin í Ytri- Njarðvík til 1985. Þá um vorið fluttu þau til Reykjavíkur og hafa átt þar heima upp frá því, í Stóra- gerði 34. Ég kom til þeirra á sólbjörtu síðdegi nú á þessu vori. Það var alveg jafn gott og gaman að sækja þau heim þá eins og suður í Njarðvík í gamla daga. Sama glaðværa gest- risnin, vináttan og hlýjan. Tíminn tók á flug. Það var liðið langt á kvöld, þegar ég loksins kvaddi, þó að það virtist ekki vera nema ein örskotsstund. Þau fylgdu mér fram á ganginn. Þangað inn var kvöldsól- in að senda síðustu geislana sína. Enn sem fyrr ljómaði birtan í þeim ranni, sem Hlíf Tryggvadóttir réði ríkjum. Mætti sú birta lýsa upp veginn, sem framundan er, allt til lokadæg- urs. Ég flyt afmælisbaminu mínar innilegustu heillaóskir á merkum tímamótum um leið og ég þakka góð og elskuleg kynni og allt gott í vináttu og samstarfí á liðinni tíð. Blessun Guðs vaki yfír þér og þínum, kæra Hlíf, alla daga, allar stundir. Björn Jónsson Bátar í Stykkishólmshöfn. Morgunblaðið/Ámi Helgason Stykkishólmur: Eyjabændur vel á verði gagnvart minknum ÞAÐ ER misjafn hitmn 1 þessum mánuði. Það fer ekki á milli mála. Jafnvel frost á nóttunni upp í 13 stig um hádaginn en það er ekki oft. Mikið er af ferðahópum og þá sérstaklega ungir nemendur, sem voru að Ijúka skólagöngu í vetur. Sauðburður er í fullum gangi og mikið um að vera hjá þeim sem þar bera ábyrgð. Þar er ekki einungis um dagvinnu að ræða og eftir því sem fréttaritari hefír fylgst með hefir allt gengið vel á þeim vett- vangi til dagsins í dag, en það er svolítið eftir enn. Fuglinn er byijaður að verpa og menn famir að tína eggin og er það gott búsflag og tilbreyting. En varp- ið byijaði nokkuð seint. Þó var vitað til að æðurinn var þar á undan varg- inum, þ.e. svartbaknum sem er ekki vel séður hér í námunda við æðar- fuglinn. Það er alltaf mikið um minkinn og hann gerir mjög vart við sig. Hér í nágrenninu hafa undanfarið verið unnir 8—10 fullorðnir minkar og nokkrir yrðlingar. Þeir fylgja með en eftir er að ieita á nokkru svæði enn. Það er ótrúlegt hve minkurinn er duglegur að synda og koma sér út í eyjar og því þurfa eyjabændur allt- af að vera vel á verði. - Árni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.