Morgunblaðið - 02.06.1988, Qupperneq 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
ffclk f
fréttum
Reuter
Framkvæmdamaðurinn Steve Pearce, sem skipuleggur sumarleyfisferðir til ófriðarsvæða víðs vegar
um heim.
SUMARLEYFI
Ferðir til ófriðarsvæða
ILondon hefur nýr ferðaklúbbur
hafið starfsemi sína, og ber hann
nafnið „Sumarleyfisferðir fyrir vit-
firringa". Býður þessi óvenjulegi
ferðaklúbbur upp á pakkaferðir til
ófriðarsvæða víðs vegar um heim,
þar sem ferðalangamir geta átt það
á hættu að verða hnepptir í varð-
hald eða látnir sæta fangelsisvist.
Markmiðið er að ná til þeirra sem
„vilja komast í burtu frá öllu sam-
an“ í sumarleyfum sínum, og hafa
þá eitthvað annað í huga en það
að flatmaga á sólarströnd
Ferðaklúbburinn, sem skipulegg-
ur ferðir til ófriðarsvæða í Afríku,
Mið-Ameríku og landa fyrir botni
Miðjarðarhafs, er nýjasta framtak
25 ára gamals Englendings að nafni
Steven Pearce, sem hefur áhuga
fyrir öllu sem er á einhvem hátt
afkáralegt. Hann starfrækir nú
þegar hljómplötuútgáfu, sem ber
nafnið „Fáránlegar hljómplötur",
og leitast við að gefa út hljómplötur
með hljómsveitum sem t.d. nota
vélknúnar stórviðarsagir í stað
gítara. Einnig rekur hann sýningar-
salinn „Varfæmislega fáránlegt",
sem sýnir listaverk eftir mjög fram-
úrstefnulega listamenn.
„Ég legg á það áherslu að vera
alltaf einu skrefi framar því sem
fólk á von á,“ segir Steve. „Maður
verður að hafa eitthvað fyrir stafni,
og maður verður líka að skemmta
sér.“
Hann segir ennfremur að það sé
varla meiri áhætta fólgin í því að
heimsækja ófriðarsvæði heldur en
að ferðast með neðanjarðarlest í
London seint um kvöld í vitlausum
bæjarhluta. „Ef fólk vill ferðast til
írak og verða vitni að eldflaugaár-
ás, þá skulum við sjá um að koma
því þangað. Ekkert mál.“
Það kostar um 7000 krónur að
verða meðlimur í ferðaklúbbi Steve
Pearce, og hann segist gera sér
grein fyrir því að klúbburinn sé
ekki við hæfí hrekklausra ferða-
manna, og hann ætlar sér að und-
irbúa væntanlega ferðalanga áður
en þeir leggja í hann.
Steve Pearce er sjálfur vanur
óvenjulegum ferðalögum, og
síðasta jólaleyfi sínu eyddi hann í
Zaire, Zimbabwe og Zambíu.
COSPER
ioi»b^ COSPER
-- Keyptirðu páfagauk? Nægir þér ekki að hafa mig?
-jf :
COCO CHANEL
Dularfullt
ástarsamband
rifjað upp
Reuter
w
IParís er nú verið að vinna að
framhaldsmyndaflokki fyrir
sjónvarp, sem fjallar um leynim-
akk á árum síðari heimsstyrjaldar-
innar. í honum er meðal annars
er fjallað um samband tískuhönn-
uðarins Coco Chanel við þýskan
foringja í leyniþjónustunni.
Framhaldsþátturinn sem heitir
„Maðurinn sem bjó á Ritz“ er
byggður á bandarískri skáldsögu,
og er það franska leikkonan og
dansmærin Leslie Caron, sem fer
með hlutverk hins þjóðsagna-
kennda tískuhönnuðar; stúlku sem
gekk til mennta í klaustri, og
breytti síðan kventískunni varan-
lega með því að láta konur klæð-
ast buxum, jakkafötum og ódýrum
skartgripum.
Á millistríðsárunum átti Chanel
nýtískulegt íbúðarsetur í miðborg
Parísar, en hélt jafnframt her-
bergjum á Ritz hótelinu um 40
ára skeið.
Samkvæmt heimildum ævi-
söguritara hennar, þá var það ein-
mitt á Ritz hótelinu sem Chanel,
þá 57 ára gömul, bjó með dular-
fullum þýskum elskhuga sínum,
sem var sautján árum yngri en
hún.
A yngri árum hafði Chanel átt
í sambandi við ríkan enskan aðls-
mann, hertogann af Westminster,
og rússneska tónskáldið Igor Stra-
vinsky, en hún giftist aldrei.
Leslie Caron, sem nú er 56 ára
gömul, þykir einstaklega lík hinum
fræga tískuhönnuði í útliti. Hún
sló fyrst í gegn þegar hún lék
aðalhlutverkið á móti Gene Kelly
í söngvamyndinni „Ameríkumaður
í París", en síðan þá hefur hún
leikið í fjöldamörgum kvikmynd-
um og einnig á leiksviði.
Á fundi með fréttamönnum
sagði leikkonan að hún hefði
' ágimst þetta hlutverk mjög mikið,
þrátt fyrir orðstír hönnuðarins fyr-
ir að vera meinkvendi hið mesta.
„Kvikindisháttur hefur aldrei
staðið í vegi fyrir því að fólk geti
verið aðlaðandi," sagði leikkonan,
og bætti því við að hún teldi kulda-
lega framkomu Chanel hafa stafað
af meðfæddri feimni.
„Hún hitti þennan liðsforingja,
sem var tæplega fertugur, og stóð
í ástarsambandi við hann þar til
löngu eftir að stríðinu lauk. Um
tíma bjuggu þau saman í Sviss."
Það virðist sem Chanel hafí
verið mjög ástfangin af honum,
þótt hún væri ekki álitin stuðn-
ingsmaður nasista, og lokaði hún
tískuverslun sinni á meðan á
stríðinu stóð.
„Hún lokaði tísku verslun sinni
árið 1939, og opnaði hana ekki
aftur fyrr en 1954, en þá var hún
orðin sjötug," sagði Caron. „Ég
held að hún hafi byrjað aftur í
viðskiptum af því að velgengni
Christian Dior skapraunaði
henni.“ Hin nýja tíska sem Dior
innleiddi árið 1947 var andstæða
þess sem Chanel hafði gert.
En Frakkar voru lengi að fyrir-
gefa henni samband hennar við
nasista, og dómamir sem Chanel
fékk fyrir fyrstu tískusýningu sína
eftir stríðið, árið 1954, vom hroða-
legir.
Hún hélt samt ótrauð áfram,
og tveimur ámm seinna hafði
henni tekist að endurreisa stór-
veldi sitt.
Chanel, sem var hafnað í fyrstu
vegna fábrotins uppmna síns, varð
að lokum sú fagmanneskja sem
réði klæðaburði allra mest áber-
andi kvenna í heiminum.
„Hún var mjög bardagagjöm,"
sagði Caron. „Hún varð drottning
tísku og viðskipta, og menn bæði
Marilyn Monroe 19 ára gömul.
MARILYN MONROE
Gamlar
ljósmyndir
til söiu
Af fáum konum hafa verið
teknar jafnmargar ljós-
myndir og af Marilyn Monroe,
og nú tuttugu og fimm árum eft-
ir að hún lést, eru enn að koma
í leitimar Ijósmyndir af henni,
sem margar hverjar hafa aldrei
áður verið birtar opinberlega.
Nýjustu myndimar sem fram
hafa komið, og aldrei hafa birst
áður, tók ljósmyndari að nafni
William Carroll, þegar Marilyn
Monroe var nítján ára gömul og
hét þá Norma Jean Dougherty.
Myndir þessar áttu að prýða aug-
lýsingar.
Búist er við því að myndimar,
sem eru 96 talsins, seljist fyrir
um það bil fjörutíu þúsund krónur
hver, þegar þær verða boðnar til
sölu hj+a uppboðsfyrirtækinu
Christie’s í New York þann 21.
júní næstkomandi.