Morgunblaðið - 07.06.1988, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988
IlAuGA
Norrænt gigtlæknaþing í Reykjavík:
Nýjungar í liðaskurðaðgerðum
og rannsóknir á rauðum úlfum
Vinningstölurnar 4. júní 1988.
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.274.166,-
1. vinningur var kr. 2.140.958,- Aöeins einn þátttakandi var
með 5 réttar tölur.
2. vinningur var kr. 641.240,- og skiptist hann á milli 205
vinningshafa, kr. 3.128,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.491.968,- og skiptist á milli 6.016 vinn-
ingshafa, sem fá 248 krónur hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka
ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingarsími: 685111
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
MARGAR athyglisverðar nýj-
ungar voru kynntar á norræna
gigtlæknaþinginu sem haldið var
á Hótel Sögu. Kynntar voru nið-
urstöður ýmissa rannsókna og
ný lyf. í fyrirlestrum þeim sem
mesta athygli vöktu var m.a.
fjallað umrannsóknir á gigtar-
sjúkdóm sem nefnist rauðir úl-
far, nýjungar í liðaskurðaðgerð-
um, nýja aðferð við röntgen-
myndatökur og gull í töfluformi
(aurofin).
Með því athyglisverðasta sem
fram kom voru tvö erindi um sjúk-
dóminn rauða úlfa, en það er
fslenskt heiti yfír brenglun á ónæ-
miskerfinu sem veldur m.a. lið-
bólgum og munu um 1—200 íslend-
inga hafa þennan sjúkdóm. Fjölluðu
fyrirlestramir m.a. um samspil
umhverfisþátta sem valda sjúk-
dómnum, en orsakasamhengi þar á
milli verður að sögn íslensku lækn-
anna æ ljósara. Meðal þeirra sem
töluðu voru bandarískur og finnskur
læknir. Þeir lögðu áherslu á nauð-
syn þess að greina þessa sjúkdóma
sem fyrst og hefja meðferð eins
fljótt og unnt er; því fyrr sem tekst
að greina sjúkdóminn, því betri eru
horfur sjúklingsins. Einkum varðar
það rauða úlfa og iktsýki, sem er
alvarlegasta form liðagigtar.
Annar bandarískur læknir talaði
um liðaskurðlækningar og gaf yfir-
lit um hvað hægt er að gera þegar
mjaðmir, hné og aðrir liðir skemm-
ast þannig að það veldur sjúklingn-
um miklum kvölum eða fötlun.
Einkum fjallaði hann um aðgerðir
á öxlum og olnbogum en þær hafa
verið afar fátíðar hér á landi til
þessa. Aftur á móti sagði Jón G.
Þorbergsson læknir að góð reynsla
væri á mjaðma- og hnjáaðgerðum
og eru þær fremur algengar.
Bandaríski læknirinn, dr. Thom-
hill, kynnti nýtt form af gerfíliðum
en miklar framfarir hafa orðið á
því sviði og endast nú liðimir mun
betur en áður, bæði vegna þess að
betri efni em notuð og meiri reynsla
er komin á þessar aðgerðir.
Jón sagði að aðgerðir sem þessar
væru ekki gerðar fyrr en í lengstu
lög , t.d. ef sjúklingurinn væri mjög
illa haldinn af verkjum eða stirð-
Aukin áhersla á vel-
líðan sjúklingsins
—segir dr. Gunilla Borg frá Svíþjóð
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111
MEÐAL þess sem kynnt var á
norræna gigtlæknaþinginu voru
niðurstöður rannsókna á lyfi sem
nefnist Auranofin, sem er gull í
töfluformi. Umsjón með þessum
rannsóknum, sem gerðar voru á
vegum fjölþjóðafyrirtækisins
SK&F, hafði sænskur læknir, dr.
Gunilla Borg og var hún beðin
að segja nánar frá helstu niður-
stöðum þeirra.
„Megin niðurstaða rannsóknanna
er sú að því fyrr sem lyfjameðferð
hefst því lengur er hægt að halda
sjúkdómnum í skefjum og koma í
veg fyrir skemmdir á liðum. Áður
var ekki hafin lyfjameðferð fyrr en
sjúkdómurinn var kominn á mun
hærra stig en nú hefur verið sannað
að hægt er að draga mjög úr og
hægja á liðskemmdum og sjúkling-
urinn getur lifað eðlilegu lífi mun
lengur.
Það sem er nýtt við þessar rann-
sókn er þessi áhersla á almenna
vellíðan sjúklingsins og mikilvægi
þess að hann geti haldið áfram að
vinna og lifað sem eðlilegustu lífi.
Auranofin er heiti á gulli í töflu-
formi en gull hefur lengi verið not-
að til gigtlækninga í formi stungu-
lyQa. Munurinn á Auranofín töflun-
um og þeim lyfjum sem fyrir voru
er fyrst og fremst að þær hafa
ekki eins miklar aukaverkanir og
þau lyf sem hingaðtil hafa verið
notuð. Fólk getur haldið áfram að
vinna og lifa eðlilegu lífí í stað þess
að hætta störfum fyrir aldur fram
vegna sjukdóms síns. Gulltöflumar
eru sömuleiðis einfaldari í notkun
en stungulyf" sagði dr. Gunilla
Borg.
leika sem háðu honum í daglegu
starfí og færi það eftir aldri sjúkl-
ingsins hvers konar aðgerð væri
gerð hveiju sinni.
Ein af merkari nýjungum sem
kynntar voru á þessu þingi eru
gulltöflur, en þær hafa verið á
markaðnum í um 5 ár. Gull hefur
mjög lengi verið notað til að draga
úr virkni gigtarsjúkdóma og þá yfir-
leitt sem stungulyf. Gulltöflumar
hafa þann kost umfram stungulyfið
að sjúklingar þola þær betur en
mörg af eldri lyfjum. Þessar gull-
töflur eru því nýtt lyfjaform og þar
sem nýjustu rannsóknir sýna fram
á öryggi þess umfram önnur sam-
bærileg lyf telja læknar líkur á að
það verði mikið notað í framtíðinni.
Á síðari áram hafa komið fram
tvær höfuð aðferðir sem hjálpa til
við greiningu gigtsjúkdóma. Onnur
er svokölluð tölvusneiðmynd en hin
kallast MRI eða magnetic resonan-
ce imaging, og var hún kynnt á
þinginu. Helgi Jónsson læknir, sem
starfar í Svíþjóð, sagði að þessi
aðferð kæmi að mestum notum við
rannsóknir á hrygg og stóram liðum
og kæmi hún til með að stórbæta
greiningu á sjúkdómum í þeim lið-
um. Þessi aðferð hefur verið að
ryðja sér til rúms í Evrópu undan-
farin ár en tæki til svona mynda-
töku era mjög dýr og er ekkert slíkt
tæki til hér á landi. Kristján Steins-
son læknir sagði að það væri mik-
ill áhugi fyrir því að fá svona tæki
hingað en þar sem tækniþrún er
mjög ör á þessum sviðum og mikið
fé í húfí þá væri trúlega ráðlegt
að bíða með að kaupa það a.m.k.
í nokkur ár. Ein tölvusneiðmynda-
vél sem kemur að notum við rann-
sókn gigtsjúkdóma er til hér á landi.
Gigtsjúkdómar aldraðra var eitt
af umræðuefnunum á þessu þingi
og flutti sænskur læknir, Anders
Bjelle frá Gautaborg, fyrirlestur um
faraldsfræðilegar athuganir á gigt
hjá öldraðu fólki. Kom þar í ljós
að gigt er mjög stórt vandamál hjá
þessum aldurshópi og mikil þörf á
að sinna því betur en gert er. Helstu
gigtsjúkdómar sem hijá gamalt fólk
era slitgigt, bólgusjúkdómar í vöðv-
um og svokölluð kristallagigt.
Norræna gigtlæknaþinginu lauk
á föstudag með móttöku á Kjarvals-
stöðum í boði heilbrigðismálaráð-
herra og borgarstjóra Reykjavíkur
og opinberam kvöldverði á Hótel
Sögu.
maszoB
BÍLABORG HF.
FOSSHÁLSI 1,S 68 12 99.
BF.STI Bll.!.!!“
Nú 5. árið í röð kusu lesendur hins
virta þýska bílatímarits „AUTO
MOTOR UND SPORT“ MAZDA 626
„HEIMSINS BESTA BÍL“ í milli-
stærðarflokki innfluttra bíla. Hinn
nýi MAZDA 626 hefur fengið fá-
dæma góðar viðtökur um viða veröld
og eru þessi verðlaun aðeins ein í
röð fjölmargra viðurkenninga, sem
hann hefur hlotið. Betri meðmæli
fást því varlal!
Ath: Óbreytt verð!!
Opið laugardaga fró kl. 1 — 5