Morgunblaðið - 07.06.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988
21
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Halldór Jonsson læknir, sem hlaut Syntex styrkinn á norræna gigt-
læknaþinginu.
ísland er kjörið til far-
aldsfræðirannsókna
—segir Halldór Jónsson læknir sem
hlaut Syntex rannsóknastyrkinn
Lukkutríó björgunarsveitanna:
Nýr skrapmiði á markaðinn
ríkislottóið. Aðstandendur happ- ust með prentuninni og segja að
drættisins fóru til írlands og fylgd- fyllsta öryggis hafi verið gætt.
Fulltrúar björgunarsveitanna með eintök af nýju skrapmiðunum.
Meðal vinninga verða fjögur sumarhús og standa þeri hjá einu sliku.
Verslunarráð íslands:
Viðbrögð fyrirtækja
á samdráttartíma
VIÐ opnunarathöfn norræna
gigtlæknaþingsins í Reykjavík
var tilkynnt hveijir hefðu hlotið
styrk sem lyfjafyrirtækið Syntex
veitir til rannsókna á sviði gigt-
lækninga. Einn þeirra þriggja
sem hlutu styrkinn, samtals 730
þúsund krónur, ^ var ísienskur
læknir, Halldór Jonsson, en hann
starfar nú í Lundi í Sviþjóð.
Styrkinn hlaut hann til að vinna
að rannsóknunm á gigtsjúkdómi
sem nefnist rauðir úlfar (lupus
eryhematosus).
Halldór Jónsson lærði gigtlækn-
ingar f Lundi í Svíþjóð og hlaut
sérfræðiréttindi 1985. Hann hefur
síðan stundað rannsóknir á gigtar-
sjúkdómum þar ytra.
Sá sjúkdómur sem Halldór hefur
fyrrst og fremst rannsakað nefnist
rauðir úlfar. „Þessi sjúkómur er
frekar sjaldgæfur" sagði Halldór
þegar hann var spurður hvers kon-
ar sjúkdómur þetta væri sem hann
væri að rannsaka. „Her á landi eru
um 80 tilfelli. Sjúkdómurinn leggst
fyrst og fremst á konur og einkenn-
ist af brenglun á ónæmiskerfinu'.
Algengustu einkenni eru frá húð
og liðum en alvarlegust frá nýrum
og miðtaugakerfínu.
Fyrir ekki mörgum árum var
þessi sjúkdómur talinn mjög alvar-
legur og oftast banvænn en nú
hafa menn lært að meðhöndla hann
og nýjar greiningaraðferðir hafa
gert það að verkum að fleiri tilfelli
hafa fundist en áður. Með réttri
meðferð geta flestir sjúklingar með
rauða úlfa nú lifað eðlilegu lífí.“
Halldór hefur unnið að þessum
rannsóknum í tæp §ögur ár og
hafa þær einkum beinst að gangi
sjúkdómsins og faraldsfræði.
„Ég lít fyrst og fremst á þennan
styrk sem mikinn heiður en að sjálf-
sögðu mun hann flýta eitthvað fyr-
ir rannsóknum og gera mér kleift
að einbeita mér að þeim í einhvem
tíma. Ég mun halda áfram rann-
sóknum úti í Lundi I a.m.k. ár í
viðbót en ég hlakka til að koma
heim og vonast til að geta haldið
áfram sambærilegum rannsóknum
hér heima.
„ísland er að mfnum dómi alger
gullnáma að því er varðar faralds-
fræðilegar rannsóknir þar sem
nauðsynlegt er að geta fylgst með
hæfilega stórum hópi fólks í langan
tíma. Hér eru menn þegar byijaðir
að rannsaka hegðun og útbreiðslu
gigtarsjúkdóma og er það afar mik-
ilvægt að hægt verði að fylgja þeim
vel eftir með samstarfi gigtar-
lækna, erfðafræðinga og ónæmis-
fræðinga“ sagði Halldór.
LUKKUTRÍÓ björgunarsveitanna
hefur sett á markaðinn nýjan
skrapmiða. Með þessum miða er
algjörlega skipt um vinningaskrá
og gamlar birgðir teknar til baka.
Stærstu vinningarnir eru 4 fullbú-
in sumarhús, sem komið verður
fyrir hvar sem er á landinu eftir
ósk vinningshaf a þeim að kostnað-
arlausu. 50 % söluandvirðis fer i
vinninga og lætur nærri að vinn-
ingur komi á fimmta hvern miða,
að sögn forsvarsmanna Lukkut-
ríósins. Milljón miðar verða settir
á markaðinn í fjórum 250 þúsunda
hollum, og verður vinningshlutfall
í hveiju holli það sama.
Lukku—Tríóið er sameiginlegt
fyáröflunarátak björgunarsamtak-
anna í landinu, það er Landssam-
bands flugbjörgunarsveita, Lands-
sambands hjálparsveita skáta og
Slysavamafélags íslands. Að sögn
forsvarsmanna samtakanna var búið
að gefa þeim vilyrði fyrir að þeir
fengju að sitja nánast einir að skrap-
miðahappdrætti hérlendis og þeir eru
óánægðir með að þeim sé ýtt út í
samkeppni, þar sem hagnaðurinn
komi augljóslega til með að minnka.
„Við höfum reynt margar fjáröflun-
arleiðir, en það er hvergi friður. Við
reynum þó að standa okkur í sam-
keppninni," sögðu þeir.
80—90% af kostnaði við rekstur
og uppbyggingu björgunarsveitanna
er aflað með fjáröflun þar sem leitað
er á náðir almennings, en styrkir frá
ríki nema 8—9 milljónum, sem dreif-
ist á um 125 sveitir. Vonast forráða-
menn sveitanna að Lukku—Tríóið
verði snar þáttur í fjáröflun þeirra.
Ágóðaskiptingin er þannig, að SVFÍ
fær 53%, LHS 31,5% ogLFBS 15,5%.
Miðamir eru prentaðir á írlandi,
sem er eitt af stærstu fyrirtækjum
á sínu sviði I Evrópu og prentar
meðal annars skrapmiða fyrrir írska
HVERNIG eiga islensk fyrirtæki
að bregðast við samdrættí eftir
bullandi góðæri? Er svarið aukið
samstarf eða jafnvel samruni?
Þessum og fleiri spurningum
verður velt upp á fundi sem
Verslunarráðið gengst fyrir
næsta fimmtudagsmorgun, 9.
júní, á Hótel Sögu.
Raunar em deildar meiningar um
góðæri síðustu misseri og þá ekki
síður hvort þessi tími hafí verið
rétt notaður. Nú em blikur á lofti,
miklir erfíðleikar blasa við ýmsum
atvinnugreinum og mörgum fyrir-
tækjum, og horfur em á enn versn-
andi stöðu atvinnulífsins. Verslun-
arráðið hefur því fengið þijá menn
sem standa beint og óbeint í eldlín-
unni til þess að fjalla um hugsanleg
viðbrögð.
Þetta em Þorsteinn Guðnason
framkvæmdastjóri JL-Völundar hf.,
Páll Kr. Pálsson forstjóri Iðntækni-
stofnunar íslands og Steinþór Páls-
son forstöðumaður lánasviðs Versl-
unarbanka íslands hf. Umræður
verða eftir framsögu þeirra, en
fundarstjóri verður Vilhjálmur Eg-
ilsson framkvæmdastjóri VÍ.
Fundurinn verður í Skálanum í
Hótel Sögu fímmtudaginn 9. júní
og hefst með morgunverði klukkan
8. Óskað er eftir því að þátttakend-
ur skrái sig hjá Verslunarráðinu
fyrir fundinn.
(Fréttatilkynning)
ÚBORGAR EKKI
ÓF MÍKIÐ ÞEGAR ÞÚ
KAUPIR VOLVO
ÞÚBORGAR ÞAÐ SEM KOSTAR
AÐ SMlÐA GÓÐAN BlL - VOLVO
Þaö eru einkum fimm atriöi sem undir-
strika gœöi Volvo-bílanna: Öryggi, styrkur,
áreiöanleiki, þœgindi og ending. Þetta er
greipt í huga flestra.
öryggi og styrkur einkenna Volvo.
Sœnska stáliö, hertíeldi kunnáttumanna,
metnaöarfyllstu bílasmiöa sem um getur.
Þessi trausti efniviöur er uppistaöan t ör-
yggisbúrinu sem umlykur bílstjóra og far-
þega, verndar þá þegar á reynir.
Volvo hefur haft forystu í aö skapa ör-
yggi í akstri. Þaö vita allir. Um áreiöanleika
Volvo efast enginn. Og sem betur fer þarf
Volvo-eigandinn ekki aö velja á milli
áreiöanleika og þœginda.
Þaö er síöast en ekki síst gott til þess aö
hugsa að góöir hlutir endast.
Mittir
(20\
IfHWHíHMt