Morgunblaðið - 07.06.1988, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 07.06.1988, Qupperneq 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988 Allir að mynda alla við rútuna á Húsavík í sól og snjó. Morgunblaðið/Hulda fclk í fréttum F ifljk In- V 1 u é nl u§SL'>*$^- Kjm L 1 Ægk UbK' Av. W jK”, Jjm | iiSf. p tMj H m k Bíh fi Jj mm : ■ ■ iti 1 Jll Ipgyw 11 HT «|| • mmá gt h Mm m mm ÍWM fc. É B wmm v m { 1 AKUREYRARFERÐ Fiðlarinn á þakinu með flensu Glaðbeittar kvinnur í sinni fyrstu Vonarferð. Þingeyri febrúar í vetur ákváðu kvenfé- lagskonur í Von á Þingeyri að bregða undir sig betri fætinum, fljúga til Akureyrar á sumardaginn fyrsta, sjá Fiðlarann á þakinu á laugardaginn 23 apríl og fljúga vestur aftur á sunnudag. Allt lofaði góðu, samið var um leiguflug, leik- sýninguna gistingu á Hótel KEA, sælkeramáltíð og í Sjallann skyldi farið. Sjaldan er ein báran stök. Tíu dögum fyrir brottför var frumsýn- ingu á Fiðlaranum aflýst og frestað um viku. Verkfall var í sjónmáli og engu var hægt að breyta með gist- ingu jafnvel þótt verkfall skylli ekki á og óvíst var orðið um flug til baka. Nú voru góð ráð dýr, því Vonarkonur voru ekki á þeim bux- unum að hætta við ferðina þótt blik- ur væru á lofti. Karlpeningurinn á Þingeyri hafði á orði, að greinilega ætti að fara þótt ekkert yrði á boðstólunum nema Sjallinn! Ekki voru konur af baki dottnar, ef í harðbakkann slægi, mundi Landhelgisgæslan bjarga þeim heim. Talað var við forstjóra Amaró og eigendur brugð- ust vel við bón kvenna um búðar- ferð 2-3 tíma á föstudegi. Þá var Afmælisbamið í ferðinni, Jó- hanna Jónsdóttir. bara að skella sér í bíl til Húsa- víkur til að sjá sýningu leikfélagsins þar á leikritinu Gísl. Vonarkonur voru horskar á hundaþúfunni þegar séð var að breytt áætlun mundi standast. Tutt- ugu og átta manna hópur komst með Flugfélagi Norðurlands en 5 Aldursforsetinn, Erla Sveins- dóttir heiðruð með gleraugna- gjöf, gefandinn, Sigmundur Þórðarson, ánægður með útkom- una. manns úr hópnum komu að sunn an. Ekki brást norðlensk gestrisni, öðru nær. Amarómenn stóðu við sinn þátt með prýði, Húsvíkingar sýndu fyrir troðfullu húsi við mikinn fögnuð og buðu síðan hópnum að vestan í kaffi að sýnigu lokinni. Þeir höfðu aldrei áður fengið svo stóran hóp Vestfirðinga í sitt hús og okkur gafst tækifæri til að þakka fyrir góða sýningu að ógleymdu kaffinu. Veðrið lék við Vonarliðið, vart sást skýhnoðri á lofti er flogið var heim. Allt stóðst áætlun, enda var heitið á Þingeyrarkirkju í upphafi ferðar að venju. Laumufarþegi flæktist með vestur, sá hafði ætlað suður á sama tíma með annari flug- vél en skildi ekki orðin þegar brott- för var tilkynnt, enda útlendingur en hann komst á réttan áfangastað síðar um kvöldið. Osannað er, hvort mögnuð hafi verið sending á flökkulýðinn, a.m.k. hljóp flensa í þó nokkra er heim kom, svo sumir komust ekki í vinnu á mánudegi vegna hita, hósta og beinverkja. Aðrir féllu í sömu viku en helgina á eftir voru allir búnir að ná sér á strik, þótt röddin bæri keim af ofnotkun og rangri radd- beitingu. Almenn ánægja ríkti með norðurförina svo ekki sé meira sagt. Hulda Hér er erfitt að sjá hvort það er Michael eða Stefanía sem situr f jrrir. Þetta er Michael og í þessu gervi er hann ótrúlega líkur prins- essunni. Michael Lienherr, 23ja ára. Svona er hann ómálaður. sparikjól, eins og Stefanía hef- ur notað. Þessi mynd var tekin f hæðum Mónakó, nálægt höll Grimaldi-fjölskyldunnar. Brooke Shields Leikkonan og ljósmyndafyrir- sætan Brooke Shields heldur hér á risastórum demanti, sem að vísu er ekki ekta, en hún er um þessar mundir að leika í kvik- mynd sem heitir „Demantaránið mikla“. Samstarfsfólk hennar kom henni á óvart fyrsta daginn sem tökur á kvikmyndinni fóru fram, en þá var henni færð kaka í tilefni 23 ára afmælis leikkon- unnar, sem einmitt bar upp á þennan sama dag. Þetta er fyrsta stóra hlutverk Brooke Shields í kvikmyndum síðan hún lauk námi við Princeton háskólann. COSPER - Ég vona að þú komir endurnærður til starfa eftir sumarfríið. n I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.