Morgunblaðið - 07.06.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.06.1988, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐH), ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988 S^ómarandstaðan krefst af- sagnar dómsmálaráðherrans Lundi, frá Pétri Péturssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Svíþjóð. RANNSÓKNIN á morði Olofs Palme er enn efst á baugi í Svíþjóð. Komið hefur í ljós að dómsmálaráðherrann Anna Greta Leijon Ieyfði bókaútgefandanum Ebbe Carlsson að hefja einkar- annsókn á morðinu en Carlsson viðurkenndi í síðustu viku að hafa reynt að flytja ólöglegan hlerunarbúnað inn I landið. Stjórn- arandstaðan hefur krafist þess að dómsmálaráðherrann segi af sér eða verði ella settur af I ljósi þess að hún hafi lagt bless- un sina yfir einkarannsókn Carlssons með þvi að gefa honum meðmælabréf. Mál þetta hefur komið sér mjög illa fyrir ríkisstjómina og ekki eru nema fáir mánuðir til kosninga. Leijon hefur viður- kennt að hafa ekki sýnt nægilega dómgreind með því að gefa Ebbe Carlsson umrætt meðmælabréf en hún virðist ekki hafa haft samráð við aðra ráðherra áður en það var skrifað. Þegar ijöl- miðlar og stjómarandstaða hófu gagnrýni sína flokkaði hún bréf- ið sem leyniskjal og neitaði að sýna það á þeim forsendum að slíkt gæti skaðað rannsókn morðmálsins. Ríkisstjómin breytti þessu og hafa fjölmiðlar fengið að sjá bréfíð. Náinn vinur Holmérs Ebbe Carlsson er náinn vinur Hans Holmérs, lögreglustjórans fyrrverandi sem stjómaði rann- sókn á morði Palme. Holmér var sem kunnugt er látinn víkja þar sem rannsókn hans bar ekki ár- angur. Getum hefur verið að því leitt að Holmér hafí enn afskipti af rannsókn morðsins í gegnum Ebbe Carlsson. Carlsson styðst við sömu kenningu og Holmér gerði um að Kúrdar hefðu staðið að morðinu á Palme. Hann hefur yfírheyrt ýmsa aðila í því aug- namiði að tengja íran og Kúrda við málið, þeirra á meðal Ban- iSadr, fyrrverandi forseta Irans. Hann telur sig hafa upplýsingar sem styðja þá kenningu að Olof Palme hafí haft upplýsingar um ólöglega vopnasölu til írans og hótað að stöðva hana. Því hafí sterk öfl í íran haft hag af því að lyðja honum úr vegi og PIÖC, samtökum Kúrda, verið falið að myrða Palme. Við rannsókn málsins hefur Carlsson haft að- stoðarmenn og margar milljónir sænskra króna til umráða. Hann hefur einnig haft lífvörð sem áður var lífvörður Hans Hol- mers. í síðustu viku var lífvörð- urinn stöðvaður í tollinum í Hels- ingborg er hann reyndi að smygla ólöglegum hlerunarbún- aði inn í landið. Carlsson hefur viðurkennt að hann hafí verið á sínum vegum. Dómsmálaráðherrann skrifaði meðmælabréf Athygli hefur vakið að Anna Greta Leijon, dómsmálaráðherra Svíþjóðar, virðist hafa lagt bless- un sína yfír einkarannsókn Carlssons þar sem hún skrifaði meðmælabréf honum til handa. Hún sagði fyrir helgi að hún stjómaði engri rannsókn og gæti þess vegna ekki tekið á sig neina ábyrgð þótt Carlsson hefði verið staðinn að ólöglegu athæfí. Carlsson hefði að hluta til starf- að á eigin vegum en yfírstjóm lögreglunnar hefði vitað um starfsemi hans. Ekki væri óvið- eigandi að lögreglan styddist við aðila utan sinna raða við rann- sókn mikilvægra mála og að henni væri skylt að nýta alla þá aðstoð sem að gagni gæti komið. Ebbe Carlsson hefði haft áhuga- verðar upplýsingar og mikilvæg sambönd sem óforsvaranlegt hefði verið að nýta ekki, sagði Leijon. Lögreglan hefur fengið ýmsar upplýsingar frá Carlsson en flestir stóðu í þeirri trú að hann gæfí þær sem einstaklingur en stæði ekki sjálfur að sjálf- stæðri rannsókn málsins. Sér- stakur réttarumboðsmaður hefur verið fenginn til að rannsaka málið og geta niðurstöður hans ráðið miklu um pólitíska framtíð dómsmálaráðherrans. Anna Greta Leijon hefur áður gegnt mikilvægum ráðherraembættum fyrir flokk sinn. Komi til afsagn- ar hennar verður það mikið áfall fyrir jafnaðarmenn en vonast var til að henni tækist sem dóms- málaráðherra að endurheimta traust almennings á lögreglu og réttarkerfínu. Áhugi Ebbe Carlsson á að rannsaka málið vaknaði við grun hans um að ágreiningur innan öryggislögreglunnar ylli því að Kúrdakenningin væri ekki rann- sökuð til hlítar. Pullyrt hefur verið að aðvörun hafí komið á sínum tíma frá bresku öryggis- lögreglunni um að forsætisráð- herranum væri hætta búin en Ebbe Carlsson telur að öryggis- lögreglan vilji þagga þetta niður af ótta við álitshnekki og því væri lítið gert úr þætti írana í morðinu. Enn er of snemmt að segja til um hvort þessar getsak- ir eigi við rök að styðjast en víst Anna Greta Leijon, dómsmála- , ráðherra Svíþjóðar. er að Ebbe Carlsson hefur notið stuðnings úr ýmsum áttum við að koma á fót einkarannsókn sinni þótt lögreglan hafí haft takmarkaða vitneskju um hana. Þekktur jafnaðarmaður, Thomas Fischer, sem er auðugur bókaút- gefandi hefur upplýst að hann hafí persónulega veitt Carlsson tvær milljónir sænskra króna (15 mllj. ísl.) til að nota við rannsókn málsins. Með því vildi hann styrkja mann sem sýnt hefði virðingarvert framtak og tæki áhættu við þjóðþrifaverk. Fisc- her er tengdur ýmsum valda- mestu aðilum jafnaðarmanna- flokksins og var vinur Qölskyldu Palme. takmmaagrnkaðI MF8SB ^ SsAMBANDSINS '.. " '—■■■■■ .—— ÁRMÚLA3 slml-68791 ■ . ■'•i.tr . 't-t. ^LÞOWATT ÖÖ1Í Heimilístækí sem bíða ekki! -T tfy .- isskápnr þurrkari eltlavól irvslikisia Nú er ekki eftir neinu aö bíöa, þú verslar í Rafbúö Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt öll heimilistækin í einu, valiö sjálfur hvert tæki af ótal geröum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki eða hrærivél viö og skipt greiðslum jafnt niður á , 24 mánuöi. Engin útborgun og fyrstagreiðsla eftir einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur boðiö slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Hafðu sam- band við Rafbúð Sambandsins strax - það er ekki eftir neinu að bíða. \ \ \ \\NT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.