Morgunblaðið - 07.06.1988, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988
+
Bróðir minn,
ÁSMUNDUR STEINGRÍMSSON,
andaðist 3. júní í Sjúkrahúsi Siglufjarðar.
Þórveig Steingrfmsdóttir.
Þórður Sigurðs-
son — Minning
+
Frænka mín,
ÁSLAUG JENSDÓTTIR,
Stýrimannastfg 4,
lést föstudaginn 3. júní á hjúkrunardeild Hrafnistu, Reykjavík.
Guðlaug Jónsdóttir.
+
Eiginmaður minn og faðir okkár,
GUNNARJ. MÖLLER
hæstaréttarlögmaður,
lóst mánudaginn 6. júní.
Ágústa S. Möller,
Jakob Þ. Möller, Jóhanna G. Möller,
Þóra G. Möller, Helga Möller.
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
LIUA GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR,
Hétúni 10b,
lést á Borgarspítalanum sunnudaginn 5. júní.
Hulda Friðriksdóttir, Jón Óskar Karlsson,
börn og barnabörn.
Fæddur 13. ágúst 1917
Dáinn 21. maí 1988
í dag verður kvaddur hinstu
kveðju í Bústaðakirkju Þórður Sig-
urðsson, síðast til heimilis í Stigahlíð
22, Reykjavík.
Þórður eða Doddi, eins og hann
var alltaf kallaður á mínu heimili,
fæddist 13. ágúst 1917. Hann var
því aðeins rúmlega 70 ára gamall
er hann féll frá.
Hann kvæntist eftirlifandi konu
sinni, Guðlaugu Erlendsdóttur, 31.
maí 1941. Voru þau hjón mjög sam-
taka í þvi sem þau tóku sér fyrir
hendur. Til merkis um þetta vil ég
segja frá því að í mínum uppvexti
minnist ég þess varla að talað væri
um annað þeirra hjóna án þess að
nafn hins fylgdi með. Þannig var
alltaf talað um Dodda og Löllu sem
eina heild.
Doddi og Lalla voru að koma í
heimsókn, eða fara þetta eða hitt.
Þessi tvö nöfn voru tengd saman
eins og persónumar sem nöfnin
báru.
Doddi starfaði mestan hluta starf-
sævi sinnar hjá Olíufélaginu hf.
Hann hafði gaman af að ferðast um
landið. Hann var félagi í Jöklarann-
sóknafélaginu og fór margar ferðir
um óbyggðir íslands með þeim fé-
lagsskap. Honum leið vel á fjöllum
og naut sín þar. Hann var einnig
virkur félagi í Flugbjörgunarsveit-
inni á sínum tíma.
Doddi var fjarskalega bamgóður.
Eg fór ekki varhluta af þeirri góð-
mennsku hans. Á mínum uppvaxt-
arárum var hann ólatur við að bjóða
mér með sér í bíltúra, eins og það
hét þá. Þessir bílstúrar voru oft lang-
ir og skemmtilegir fyrir lítinn dreng.
Mér er sérstaklega minnisstæð ein
ferð okkar í Laugardalinn þegar ég
var sex ára gamall, því þá leyfði
Doddi mér að keyra bílinn sinn á
túninu. Eftir þessa ökuferð_ komst
Doddi í guðatölu hjá mér. Á þeirri
stundu var hann tilbúinn að skilja
þá geysilegu löngun ungra drengja
að fá að keyra bíl, þó svo að aldurs-
munurinn væri töluverður á milli
okkar.
Mér er ekki unnt í þessum fáu
línum að tíunda allar þær ánægju-
stundir sem ég átti með Dodda sem
bam og unglingur.
Ég vil með þessum orðum tjá
þakklæti mitt fyrir liðnar samveru-
stundir og votta aðstandendum
Dodda samúð mína.
Magnús Haukur Magnússon
Þórður Sigurðsson var fæddur 13.
ágúst 1917 í Reykjavík. Foreldrar
hans vom Sigurður íshólm og kona
hans, Kristjana Erlendsdóttir. Á
þessum árum var erfitt um atvinnu
í Reykjavík og fluttust foreldrar
Þórðar til Siglufjarðar þegar hann
var ungur drengur. Hann varð eftir
hjá móðurömmu sinni og afa og óist
þar upp.
Það var vor í lofti þegar Þórður,
þá nýfermdur, kom til sumardvalar
að Laugarvatni fyrir 57 árum. Fullur
eftirvæntingar og eflaust kvíða hef-
ur hann verið þegar hann yfirgaf
rólega og trygga veru hjá afa og
ömmu til að dveljast í sveit hjá
ókunnugum. Þá var margmenni á
Laugarvatni og ungar heimasætur
litu þennan nýja heimilismann gagn-
rýnum og forvitnum augum. En
áður en langur tími leið var hann
boðinn velkominn í hópinn og varð
þá strax okkar góði vinur og félagi.
Sú vinátta hefur haldist öll þessi ár.
Þórður var strax sem ungur mað-
ur mjög vel gerður, léttur í skapi,
góðlyndur og skemmtilegur; góður
drengur í orðsins fyllstu merkingu.
Enda kom það seinna í ljós hve gott
var að geta leitað til hans.
Dvöl Þórðar á Laugarvatni lengd-
ist um mörg ár og þegar unglingsár-
unum sleppti keyrði hann hjá Ólafi
Ketilssyni í nokkur ár. Upp úr því
fluttist hann til Reykjavíkur og vann
þar ýmis störf uns hann réðst til
Olíufélagsins hf. árið 1954, en hjá
því fyrirtæki starfaði hann síðan í
33 ár eða þar til hann varð 70 ára
í fyrra.
Þórður Sigurðsson var mikill nátt-
úruunnandi, átti alltaf góða bfla sem
hann notaði til að ferðast í um landið
vítt og breitt. Hann gekk snemma
í Jöklafélagið og fór með þeim fé-
lagsskap marga hálendisferðina og
hafði mikla ánægju af.
Þann 31. maí 1941 giftist Þórður
Guðlaugu Erlendsdóttur, Pálmason-
ar, skipstjóra, og konu hans, Hrefnu
Ólafsdóttur frá Fjalli á Skeiðum.
Hann bauð okkur systrunum heim '
til að kynna konu sína fyrir okkur;
Tvær góðar þvottavélar frá
SIEMENS
Góð og hagkvæm
þvottavél
• 18 þvottakerfi.
• Sparnaðarhnappur.
• Frjálst hitaval.
• Vinduhraði 600 og
sn./mín.
• íslenskir leiðarvísar.
• Þurrkari fáanlegur með •
sama útliti. •
WV 2760
800
Kjörgripur handa
hinum vandlátu
• Fjöldi þvottakerfa.
• Sparnaðarhnappur.
• Frjálst hitaval.
• Áfangaþeytivinding.
Mesti vinduhraði
sn./mín.
Hagkvæmnihnappur.
íslenskir leiðarvísar.
WV 5830
Verð
63.600,-
1200
Hjá SIEMENS eru gæði, ending og fallegt
útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300