Morgunblaðið - 07.06.1988, Blaðsíða 55
55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988
Minning:
Gunnbjörn Jónsson
í Ysta- Gerði
Fæddur 3. febrúar 1931
Dáinn 31. maí 1988
Lífið er fljótt
líkt er það elding, sem glampar um nótt,
ljósi, sem tindrar á tárum,
titrar á bárum.
(MatthJoch.)
í dag verður til moldar borinn frá
Glerárkirkju á Akureyri Gunnbjöm
Jónsson, fyrrverandi bóndi í Ysta-
Gerði, Saurbæjarhreppi í Eyjafírði.
Bjössi, en svo var hann nefndur af
þeim sem hann þekktu, var fæddur
á Eyvindarstöðum í Eyjafirði þann
3. febrúar 1931. Foreldrar hans voru
hjónin Jón Jónsson og Kristín Sigurð-
ardóttir sem þar bjuggu. Bjössi ólst
upp i foreldrahúsum í faðmi blárra
fjalla kominn af Eyfírðingum langt
fram í ættir. Hann var yngstur fímm
systkina, en tveir bræður eru látnir
á undan honum. Eftir lifa Ragn-
heiður og Valdimar, bæði búsett á
Akureyri.
í febrúar 1957 kvæntist Bjössi
unnustu sinni, Svanhildi Friðriks-
dóttur frá Selá við Eyjafjörð og hófu
þau búskap í Ysta-Gerði í fyrstu í
sambýli við foreldra hans. Árið 1956
var flutt í nýtt íbúðarhús og bústofn-
inn aukinn jafnt og þétt. Byggt var
stórt flós, hlaða o.fl. I Ysta-Gerði var
svo til eingöngu rekið kúabú og var
þar oft allt að 40 mjólkandi kýr auk
geldneyta. Geta má nærri að ein-
hvem tíma hefur þurft að taka til
hendinni. Þegar ég lít til baka verður
mér hugsað til þess hvílíkur lánsmað-
ur Bjössi var að hafa Svönu sér við
hlið öll þessi ár. Dugnaður hennar
og ósérplægni áttu sér lítil takmörk.
Auk þess sem hún vann úti sem inni,
eignuðust þau sex böm á þessum
árum og kom það sér þá vel að hafa
Kristínu ömmu innanbæjar sem var
sérlega bamelsk kona og náði þvi
að annast þijár kynslóðir. Böm
þeirra Bjössa og Svönu eru: Kristín,
sambýlismaður hennar er Stefán
Jónsson framkvæmdastjóri Ryðvam-
arstöðvarinnar sf. á Akureyri og eiga
þau eina dóttur, Anna fóstra, gift
Katli Helgasyni bónda, Finnastöðum
í Eyjafírði, og eiga þau 3 böm, Ragn-
heiður, kennari, gift Einari Thorlac-
ius trésmíðameistara, Hrafnagili í
Eyjafírði og eiga þau 2 böm, Jenny
kennari, hennar sambýlismaður er
Bjami Sigurðsson verslunarmaður
og eiga þau ema dóttur, Jónheiður,
sambýlismaður hennar er Pétur
Ingason sölumaður. Yngstur var
Björgvin Rúnar, sem lést á fyrsta
ári. Það veit ég að lát hans var þeim
hjónum þung raun, en Bjössi var að
því leyti dulur að hann ræddi ógjam-
an um það sem innst bjó.
Eina dóttur átti Bjössi áður en
hann kvæntist, með Lilju Árelíus-
dóttur, það er Hafdís hjúkrunar-
fræðingur, sem gift er Aðalsteini
Arinbjamarsyni tæknifræðingi. Búa
þau í Mosfellsbæ og eiga tvö böm.
Mikill kærleikur ríkti milli Bjössa
og allra dætra hans og sérstakrar
ástúðar nutu öll hans bamaböm sem
hændust mjög að afa sínum. Síðustu
mánuði ævi hans stytti honum stund-
ir lítil dótturdóttir sem dvaldi á heim-
ili hans.
Meðfram búskapnum hafði Bjössi
hrossarækt sér til yndis og ánægju.
Margur var þar gæðingurinn og
hrein unun fýrir þá sem vom að
„flækjast" fyrir norðan að virða fyr-
ir sér þessi fallegu dýr. Þau virtust
kunna að meta eiganda sinn, enda
var Bjössi sérlega natinn við búpen-
ing sinn.
Flest sumur sem þau Svana og
Bjössi bjuggu í Ysta-Gerði komum
við hjónin og synir okkar til þeirra
og dvöldum þar lengri eða skemmri
tíma. Alltaf var nóg rými í Ysta-
Gerði á hvaða tíma sem komið var
og hversu margir sem vom fyrir.
Gestrisni þeirra og foreldra hans var
byggð á gömlum grunni sem fátíð
er orðin nú til dags. Árið 1983 hættu
Bjössi og Svana búskap og fluttu í
Bakkahlíð 27 á Akureyri og tóku
gestrisnina og risnuna með sér þang-
að: Þangað var jafngott að koma og
í Ysta-Gerði.
Bjössi hóf vinnu hjá Kaupfélagi
Eyfírðinga. Umskiptin vom mikil
fyrir rótgróinn bónda og kunni hann
ekki of vel við sig á mölinni. Keypti
hann iðnaðarhúsnæði á Fjölnisgötu
6 E á Akureyri, þar sem Stefán
tengdasonur hans stofnaði ryðvam-
arverkstæði. Þar vann Bjössi síðan
þar til í janúar sl. en þá fór hann
að kenna lasleika, sem læknar
greindu að fullu nokkru síðar. Hann
fékk að vita að hann gengi með ban-
vænan sjúkdóm. Þessi úrskurður
kom að sjálfsögðu eins og reiðarslag
yfír konu hans og dætur. Reynt var
að tefja fyrir framvindu mála en allt
kom fyrir ekki. Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri 31. maí
sl. Helgina áður vomm við hjónin
stödd á Akureyri og náðum að kveðja
hann sæmilega hressan. Þott við
vissum að hann væri alvarlega veik-
ur og við myndum líklega ekki sjá
hann aftur, gmnaði okkur ekki að
svona stutt væri eftir. Um leið og
ég og fjölskylda mín þökkum Bjössa
fyrir áratuga vináttu, þökkum við
einnig Svönu sem enn gengur sömu
brautina og við. Við samhryggjumst
henni og allri hennar stóm fjölskyldu
á saknaðar- og kveðjustund.
Gott er góðs að minnast.
Sveinn Jónsson
MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ
VEIÐIHJÓL OG
STANGIR
Fást f nœstu sportvöruverslun.
ÞAÐ ERU GÆÐIN
SEM SKIPTA MÁLI!
tegund: GENUA 3+2+1
...fyrir þá sem vilja gæði.
REYKJAVlK
Það er...
virðulegt,
klassískt,
þægilegt,
hlýlegt
og það sem
mestu skiptir,
það er leður.