Morgunblaðið - 07.06.1988, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988
Opið bréf til
borffarráðs
tilboð!!
kr. “I.346,-
Reykjavík: Rammagerðin, Hafnarstræti 19, Akranes: Blómaríkið, Kirkjubraut 15. Blönduós: Ósbær, Þverbraut 1.
Rammagerðin, Kringlunni. Borgarnes: Husprýði, Borgarbraut 4. Akureyri: Blómaversl. Laufás, Hafnarstræti.
Kópavogur: Blómahöllin, Hamraborg 1-3. Vestmannaeyjar: Sjónver, Heiðarvegi 6. Egilsstaðabær:
Hafnarfjörður: Búsáhöld og leikföng, Strandgötu 11-13. Hellisandur: Versl. Blómsturvellir. versl. Sveins Guðmundssonar.
Keflavík: Stapafell, Hafnargötu 29. ísafjörður: Straumur, Silfurgötu 5. Selfoss: Blómahornið, Austurvegi 21.
eftirPétur
Gunnarsson
Fyrir tveimur árum, eða nánar
tiltekið 29. maí árið 1986, reit ég
borgarráði eftirfarandi bréf:
„Hæstvirt borgarráð, mig langar
til að vekja athygli ykkar á stór-
hættulegri slysagildru nálægt
mörkum Skógarhlíðar og Litlu-
hlíðar. Til frekari glöggvunar má
geta þess að þarna skammt frá er
Slökkvistöðin, bensínstöð Shell og
biðskýli strætisvagna á leið í Kópa-
vog og Hafnarfjörð. Vegna ný-
byggðar í Suðurhlíðum hefur um-
ferðarþunginn aukist stöðugt og
má segja að nú sé óslitin umferð
þama allan daginn.
Og þá vaknar spumingin: hvem-
ig á að komast yfir? Fólk á erindi
jrfír götuna til að taka strætó, einn-
ig hinir fjölmörgu sem ætla yfir í
Oskjuhlíð sér til heilsubótar og ynd-
isauka. Oftlega sér maður unga sem
aldna sæta lagi og reyna að skjót-
ast yfír milli bíla og setja sig í stóra
hættu, en næsta gangbraut er í
u.þ.b. 500 metra fjarlægð í átt að
miðbæ. Nú þegar sól er komin hátt
á loft eykst umferð þama yfír í
Öskjuhlíð og það er einungis tíma-
spursmál hvenær alvarlegt slys
verður á þessum slóðum. Ég tel því
ákaflega brýnt að þama komi nú
þegar gangbraut og beini þessum
tilmælum vinsamlega til ’oorgarráðs
með von um skjót viðbrögð."
10. júní sama ár barst mér svar
frá gatnamálastjóranum í
Reykjavík fyrir hönd borgarráðs.
Þar voru skilmerkilega útlistaðar
yfírvofandi breytingar á gatnakerfi
svæðisins og síðan sagði:
„Vegna þessara breytinga á
jatnakerfínu er ekki gert ráð fyrir
ið leggja í kostnað við umferðarljós
i Skógarhlíð nú í ár, sem aðeins
:rðu í notkun í skamman tíma.
'Júverandi ástand sem vissulega
)ýður upp á nokkra hættu, mun
)ví verða áfram í eitt ár.“
Og það gekk eftir. „Núverandi
istand" varði í eitt ár og hafði var-
ið í eitt og hálft ár þegar sex ára
irengur beið bana á fyrrgreindum
Það er gott að griha
Hvítlaukspylsurnar frá SS
SS pylsur eru
sælgæti á grillið
Pétur Gunnarsson
„Daglega setur fjöldi
barna sig í lífshættu við
að komast ieiðar sinnar
á jafn sjálfsagðan stað
ojg útivistarsvæðið í
Öskjuhlíð.“
stað, en hann ætlaði að freista þess
að komast yfír.
Og nú em liðin rétt tvö ár frá
því að gatnamálastjóri sagði eitt
ár og í því tilefni langar mig til að
ítreka viðvörun mína. Daglega setur
fjöldi bama sig í lífshættu við að
komast leiðar sinnar á jafn sjálf-
sagðan stað og útivistarsvæðið í
Öskjuhlíð. Ég man ekki betur en
kosningabæklingur Sjálfstæðis-
flokksins fyrir síðustu borgarstjóm-
arkosningar: „Áfram Reykjavík"
hafi sýnt á kápu böm að borða ís
uppi í Öskjuhlíð. Því skal ekki svar-
að hvemig þau komust þangað, en
nú þegar hefur eitt bam látið lífið
í þessari slysagildm sem er af
manna völdum og ykkur ber skylda
til að ráða bót á.
Því hefur mjög verið haldið á
lofti í umræðum undanfarið að fjár-
hagsstaða borgarinnar væri góð og
því rými til mikilla umsvifa. Spum-
ing mín er því einfaldlega þessi:
Hvað kosta gangbrautarljós og
hvað þurfa margir að slasast/láta
lífið til að þyki svara kostnaði að
setja þau upp?
Virðingarfyllst.
Höfundur er rithöfundur.
Setning
féll niður
Ein setning féll niður í greininni
„Orð úr Ölduseli“, sem birtist í blað-
inu sl. föstudag. Þar átti að standa:
„Hann (þ.e. Daníel Gunnarsson) er
mikill og góður skólamaður og af-
bragðs kennari. Hann hefur í senn
þá festu og þann sveigjanleika sem
er aðalsmerki góðs stjómanda."
Blaðið biðst velvirðingar á þess-
um mistökum.
Leiðrétting:
Stúdent af
eðlisfræði- og
nýmálabraut
í SAMTAL blaðsins við Gunnar
Ólaf Hansson nýstúdent frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
sem birtist á miðopnu blaðsins í
gær, er rangt farið með.
Gunnar er sagður útskrifast af
eðlis- og náttúmfræðabraut en hið
rétta er að hann lýkur námi á eðlis-
fræðabraut og nýmálabraut. Blaðið
biðst velvirðingar á mistökunum.