Morgunblaðið - 07.06.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988
23
Nú skundum
við á skátamót
eftir Guðmund Fertram
Sigurjónsson
Hvað er það sem fær fjöldann
allan af skátum til að taka sig upp
um helgar og halda á skátamót?
Er það félagsskapurinn, náttúran,
dagskráin, spennan, varðeldur-
inn ...? Líklega sitt lítið af hverju.
Vormót Hraunbúa helgina
27.-29. maí
fimmtíu orðum eftir að hafa horft
á hann í hálfa mínútu o.s.frv.
Tækniöldin bauð upp á kynningu
á ýmsum tegundum farstöðva; svo
sem SSB, VHF og farsíma, kynn-
ingu á björgunarbúnaði, blaða-
mennsku og blaðaumbroti. Hjálp-
arsveit skáta, Hafnarfirði, sá um
farstöðva- og björgunarbíla, sex
hjóla torfærutröll sem kallast Pinz-
gauerar, á staðinn og fengu þeir
flokkar sem völdu björgunarbúnað-
arkynninguna leiðsögn í meðferð
Frá Hafravatnsmótinu á síðastliðnu ári.
§H
Frá kvöldvöku á Krísuvikurmótinu.
Þegar vora tekur beinast augu
sunnlenskra skáta að Krísuvík,
tjöldin og gönguskómir eru dregnir
fram, súrringar eru æfðar o.s.frv.
Spennan eykst sífellt þegar nær
dregur mótsdögunum. Loksins er
haldið af stað á vit ævintýranna.
Síðastliðið föstudagskvöld var 48.
vormót Hraunbúa sett, áætlað hafði
verið að halda mótið um hvítasunn-
una eins og vant er en þá var því
frestað vegna veðurs. Einkunnarorð
mótsins, „í nýjum búningi", gengu
eins og rauður þráður í gegnum
alla dagskrá mótsins, alls staðar
var eitthvað nýtt og spennandi sem
enginn hafði áður prófað. Astæðan
fyrir þessum einkunnarorðum var
sú að ný skátadagskrá hefur tekið
gildi ásamt nýjum skátabúningi.
Horfið hefur verið frá áfanga- og
skátaprófunum og þeirra í stað tek-
in upp sk. starfs- og grunnnáms-
vérkefni. Einnig hefur skátahreyf-
ingin skipt um andlit; skyrturnar
eru orðnar ljósbláar á lit og nýr
skátaklútur hefur verið tekinn í
notkun.
Fyrsti dagskrárliður mótsins var
svokallaður kynningarleikur sem
fór þannig fram að allir þátttakend-
ur mótsins, sem voru tæplega 200,
fengu úthlutað bókstaf úr orðinu
búningur og áttu síðan að fá með
sér í flokk skáta með aðra bókstafi
úr orðinu, í hveijum flokki mátti
hver stafur aðeins koma fyrir einu
sinni (í þessu tilviki n tvisvar). Um
tuttugu flokkar voru myndaðir.
Flokkamir áttu síðan eftir að starfa
mikið saman á mótinu og kynnast.
vel._
Á mínútunni 7.55 var lúðrabást-
ur, kynningarleiksflokkamir borð-
uðu saman morgunverð og bjuggu
sig undir störf dagsins. Að lokinni
tjaldskoðun hófst iþróttakeppni
kynningarleiksflokkanna. íþrótta-
keppnin var á engan hátt venjuleg
keppni því allar keppnisgreinar
hennar voru nýstárlegar svo sem
drumbakast, kínverskt boðhlaup,
söngvakeppni og síðast en ekki síst
hand-fótboltinn, sem var æsispenn-
andi og naut mikilla vinsælda. Regl-
ur hand-fótboltans voru svipaðar
leikreglum venjulegrar knattspymu
að því undanskildu að aðeins mátti
koma við boltann með krepptum
hnefa og að sjálfsögðu var ekki leyft
að halda á honum.
Eftir hádegi á öðrum og þriðja
degi mótsins fóm Aldarleikamir
fram. Aldarleikjunum var skipt í
fjögur tímabil: víkingaöld, tækniöld,
geimöld og fomöld. Þátt tóku í
leiknum flokkar innan hvers félags,
ekki kynningarleiksflokkamir. Ald-
arleikamir vom ekki skipulagðir
sem keppni heldur að hluta til sem
þrautir og að hluta til sem nám
eins og kynning á fjarskiptatækj-
um, búnaðar og björgunarbifreiða
og blaðamennsku. Flokkamir
skráðu sig í þá dagskrárliði sem
þeir höfðu áhuga á.
Víkingaöldin skiptist í ratleik,
burðarstólasúrringu, skátaspilið og
að reyra útsýnisturn. Mestra vin-
sælda naut ratleikurinn og skáta-
spilið. Ratleikurinn var nokkurs
konar áttavitakennsla og var loka-
þáttur kennslunnar í að finna gull-
ið. Til þess að finna gullið varð að
leita uppi nokkur skilaboð sem að
lokum bentu á fjársjóðinn. Skáta-
spilinu svipaði nokkuð til „Mata-
dors“, notaðir vom teningar og
þurftu spilaramir að þreyta ýmsar
þrautir t.d. binda áttu-hnút, sýna
krossbindingu, lýsa hlut með
björgunartækja ásamt stuttri tor-
fæmferð með öðmm bflnum á mel
rétt við mótssvæðið. Á mótinu var
gefíð út mótsblaðið Labbi sem inni-
hélt safaríkar frásagnir af tjald-
búðarlífínu ásamt sögum og brönd-
umm. Blaðið var skrifað af þátttak-
endum í blaðamennsku og sett upp
af blaðaumbrotsflokkunum.
Nokkm fyrir mótið settu dróttskát-
ar Hraunbúa upp þrautabraut við
mótssvæðið og var jjessi þrauta-
braut Geimöldin. I henni háði
margur skátinn harða baráttu við
þyngdarlögmálið. í síðasta hluta
aldarleikanna, fornöldinni, vom
dagskrárliðimir úr mörgum áttum.
Fyrsti liðurinn var björgun, síðan
hellisganga og líflínukast og síðasti
liðurinn nefndist Eggjandi-kartafla.
Eggjandi-kartaflan var eini liðurinn
á dagskrá mótsins þar sem æfð var
útieldun og fylgir hér á eftir upp-
skriftin af þessum einfalda rétt:
Kartafla tekin, skorinn hattur af
henni og grafín hola í hana sem
síðan er fyllt með eggi. Hatturinn
settur á, álpappír vafíð utan um og
eggfyllta kartaflan grilluð í nokk-
um tíma og ... eggjandi-kartafla.
Óp, öskur og læti! Hvað var að
gerast? Baráttan um Móra og
Skottu stóð yfír. Dagskrárstjóri
mótsins, Pétur Sigurðsson, faldi
tvær dúkkur á mótssvæðinu og gaf
yfirlýsingu um það að það félag sem
fyndi Móra eða Skottu og héldi fram
að fánaathöfn laugardagskvöldsins
fengi sérstaka viðurkenningu. Allar
aðferðir til að ná dúkkunum vom
löglegar.
Skáti sem ekki hefur tekið þátt
í næturleik getur varla talist alvöm
skáti. Á laugardagskvöld, eftir
kvöldvöku, var einn slíkur. Skipt
var í tvö lið, lið Gullgrafara og
Ræningja. „Gullgrafaramir" duttu
í lukkupottinn og fundu geysimikið
gull í hlíðum Amarfells, þeir vom
varkárir og vildu flytja gullið sem
fyrst í bankann, sem stóð handan
ræningjahóls. Gullið var sett í tunnu
og ákváðu þeir að reyna að koma
gullinu í banka í skjóli nætur. Að
sjálfsögðu komust ræningjamir á
snoðir um þessa áætlun. „Ræningj-
amir“ sátu fyrir gullgröfumnum
miðja vegu milli Amarfells, bæki-
stöðva gullgrafaranna og bankans,
með þá fyrirætlun að ræna gull-
tunnunni og koma því sjálfir í bank-
ann. Leikurinn var æsispennandi
og lögðu margir mikið á sig til að
missa ekki líf sitt sem var í formi
grisjuspotta sem bundinn var á
vinstri upphandlegg hjá gullgröfur-
unum en á þann hægri hjá ræningj-
unum. Úrslitin vom ekki auðséð því
ekki var hægt að sjá hvort liðið
hafði komið tunnunni inn í bank-
ann. Við talningu eftirlifandi manna
kom í ljós að Ræningjamir vom
mun fleiri, og sigmðu því...
Fyrri helmingur sunnudagsins,
lokadags mótsins, fór í að keppa
til úrslita í íþróttakeppninni og sá
síðari í Aldarleikana og tiltekt á
mótssvæði. Um fimmleytið var
mótsfáninn dreginn niður og mótinu
slitið. Það vom þreyttir en ánægðir
skátar, uppfullir af minningum um
ævintýri helgarinnar, með síma-
númer nýrra vina í vösunum, sem
snem heim eftir ævintýraleg helgi,
staðráðnir í að koma aftur að ári.
Úrslit í íþróttaleikjakeppni
Stígvélakast Fálkar
Pílukast Pálína
Hand-fótbolti KogKÍK
Blindingjaboðhlaup Skunkar
Pokahlaup Dúllur
Söngvakeppnin „Krisu- R8
vision“
Kinverskt boðhlaup Skonsurmeð
osti
Reiptog Skúnkar
Drumbakast Dropar
Sagan um Steina
súperskáta
(Úr Labba, mótsblaði vormótsins.)
„Steini súperskáti, þekkið þið
hann? Ef ekki þá skal ég segja
ykkur frá honum. Þegar hann var
ungur strákur fór hann á sitt fyrsta
skátamót. Þar var hann svo heppinn
að kynnast Siggu sætu. Er leið á
mótið urðu kynnin nánari og nán-
ari og mótið betra og betra. Síðasta
dag mótsins ætlaði Steini að hitta
Siggu sætu við kamrana. Þegar
hann gekk upp hlíðina að kömmn-
um blasti við honum ófögur sjón,
stærðarinnar jarðýta — sem minnti
hann á verk djöfulsins — sem
stefndi á kamrana. Siggi hljóp í
æðiskasti upp að kömmnum til að
bjarga Siggu sætu sem sá ekki jarð-
ýtuna vegna þess að hún var bak-
við og uppi á þaki. En þegar ýtan
var alveg að ýta kamrinum upp þá
datt Sigga en hann Steini bjargaði
henni á seinustu stundu og þama
lágu þau í sjöunda himni, á milli
skýjanna. Eftir þessa björgun var
Steini svo kallaður Steini súper-
skáti.“
Þessa sögu skrifaði flokkurinn
Beljur í skátafélaginu Vífli í Labba,
blað mótsins.
Fleiri skátamót!
Fjöldinn allur af skátamótum
verður haldinn í sumar út um allt
land og munu skátar því vanda-
laust geta fengið útrás fyrir „móts-
fíkn“ sína á komandi sumri. Næsta
mót er hið árlega stórmót Árbúa
við Hafravatn og má búast við mikl-
um mannijölda þangað dagana 9.
til 12. júní. Mótið heppnaðist mjög
vel í fyrra og komu þátttakendur
þess af öllu Islandi og víðar. Mikið
hefur verið lagt í dagskrá mótsins
og það er víst að enginn þátttak-
andi þess mun koma óánægður
heim að móti loknu eftir að hafa
reynt alla þá dagskrárliði sem upp
á er boðið. Sem dæmi má nefna
kanóa-siglingar, vatnasafarí, fleka-
reyringar, margskonar hike (langar
gönguferðir) ásamt stórgóðum
kvöldvökum. Upplýsingar um mótið
er að fá hjá Bandalagi íslenskra
skáta í Skátahúsinu, Snorrabraut
60, og í síma 23190.
Ljósmyndir: Þórarinn Pálsson og
GFS.