Morgunblaðið - 07.06.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 07.06.1988, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988 Morgunblaðið/Rúnar Þór Koddaslagur í Grímseyjarhöfn ÍA • H. • i ■ BHHíÍP tP*' • ■'rm Grímseyingar grilluðu í Básavíkinni Landmenn léku „þúfnabolta“ gegn sjómönnum BLÍÐVIÐRI var i Grímsey er sjó- mannadagurinn rann upp og tóku eyjarskeggjar virkan þátt í hátíðahöldunum, sem hófust með skemmtisiglingu kl. 10.00. Ekki er hægt að segja að dagskráin hafi veríð í föstum skorðum, enda eru Grímseyingar vanarí því að spila eftir eyrum veður- guðanna. Að siglingunni lokinni var ekki haldið til hafnar, heldur út í Básavík, sem er norðvestantil á eynni. Þar var kveikt bál, grillað, krakkarnir fengu að spreyta sig á gúmbjörgunarbát björgunarsveitar- innar og farið var í leiki. Um kl. 15.00 var haldið heim úr Básavík- inni og sáu tveir bátar úr flota Grímseyinga um selflutningana. Konur sáu um kaffíveitingar í „Féló“, eins og þeir Grímseyingar kalla félagsheimili sitt og niður við höfn var aftur safnast saman að því loknu þar sem fram fór kodda- slagur. Síðan var farið í fótbolta, eða þúfnabolta, eins og sumir vildu kalla það, landmenn gegn sjómönn- um, og lágu úrslit ekki fýrir þegar leiknum lauk. Um kvöldið var hald- inn dansleikur í félagsheimilinu, þar sem akureysku piltamir úr Rokk- bandinu léku. Síðuhverfi: Ibúarnir stofna samtök Stofnfundur ibúasamtaka í Síðuhverfi á Akureyri verður haldinn í Glerárkirkju fimmtu- daginn 9. júní nk. og hefst hann kl. 21.00. Helsti tilgangur sam- takanna gæti veríð að efla skoð- anaskipti og samvinnu við ráða- menn bæjarins og virkja íbúa til athafna í þágu bæjarfélags- ins, segpr I fréttatilkynningu frá undirbúningsnefnd. Félagið er hið fyrsta sinnar tegundar á Akureyri. Síðuhverfíð er tiltölulega ungt að árum og enn í uppbyggingu á meðan önnur hverfí eru uppbyggð og gróin. Það ætti þó ekki að hindra gott samstarf milli hverf- anna því mörg áhugamál eru þeim sameiginleg. Flest mál varða öll hverfi en áhugi Síðubúa sérstak- lega gæti ef til vill beinst að skipu- lags- og umferðaröryggismálum, frágangi gatna og gangstíga, samgöngumálum, varðveislu nátt- úruverðmæta og sérkenna, að- stöðu til útivistar og íþróttaiðkun- ar, segir ennfremur. Þá þarf að koma á bættri þjón- ustu við hverfið svo sem hvað varðar póstafgreiðslu, lyfsölu, bókasafn og heilsugæslu og auk samskipta íbúasamtaka við bæjar- yfírvöld, er áhugi fyrir eflingu samstöðu og samveru íbúanna. Amtsbókasaf n: 25 tillögur bárust um hönnun viðbyg’gingar Morgunblaðið/Rúnar Antonsson Þrír sjómenn voru heiðraðir á Akureyri, frá vinstrí á myndinni eru: Grétar Gíslason, fulltrúi Sjómanna- félagsins, Sigurður Jóhannesson, fulltrúi Skipstjórafélagsins og Hans Karl Þórarinsson, fulltrúi Vél- stjórafélagsins. Þrír sjómenn heiðraðir ALLS bárust 25 tillögur í sam- keppni um hönnun nýbyggingar við Amtsbókasafnið sem bæjar- stjórn Akureyrar stendur fyrir. Samkeppninni er ætlað að laða fram bestu lausn hvað varðar Dag’ur hætt- ir útgáfu á mánudögum Mánudagsútgáfa Dags á Akur- eyri verður felld niður frá og með 20. júni nk., en þess í stað verður gefið út blað á laugardög- um sem ekki hefur tíðkast til þessa hjá fyrírtækinu. Jóhann Karl Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Dags, vildi ekki tjá sig um ástæður þessa breytta fyrir- komulags í samtali við Morgun- blaðið, en segir í Degi í gær að með þessari breytingu sé tekið mið af vaxandi vinsældum helgarútgáfu dagblaða auk þess sem um er að ræða ákveðna hagræðingu í rekstri. „Mánudagsblað Dags hefur ekki notið þeirra vinsælda auglýsenda sem við var búist og hvorki náð að þjóna viðskiptalífínu né almenningi að því leyti,“ segir hann jafnframt. fyrirkomulag og notagildi ný- byggingar og núverandi húss sameiginlega. Dómnefnd er þessa dagana að hefla störf, en frestur til að skila inn tillögum rann út 18. maí sl. í dómnefnd eru, fyrir hönd Akur- eyrarbæjar, Gunnar Ragnars for- maður, Sigríður Stefánsdóttir og Agúst G. Berg. Fyrir hönd Arki- tektafélags íslands sitja Björn Hallsson og Ormar Þór Guðmunds- son. Agúst G. Berg, húsameistari Akureyrarbæjar, sagði í samtali við Morgunblaðið að vissulega hefði fy'öldi tillagna farið fram úr björt- ustu vonum manna og mætti búast við því að við þessar 25 tillögur hefðu unnið á bilinu 70 til 100 manns. Ágúst átti von á því að dómnefnd yrði meira og minna að störfum út júnímánuð, en að því loknu yrði haldin sýning á tillögun- um og þær kynntar. Verðlaunafé nemur samtals 1,3 milljónum króna, þar af eru fyrstu verðlaun ekki lægri en 650.000 krónur. Dómnefnd er auk þess heimilt að kaupa þrjár tillögur. Gert er ráð fyrir um 1.500 fer- metra stórri byggingu, en núver- andi Amtsbókasafn telur 1.200 fer- metra. Því er um rúmlega tvöföldun húsnæðisins að ræða. Sjómannahelgin á Akureyrí var haldin hátíðleg samkvæmt hefðinni. Hátíðarhöldin hófust við Torfunesbryggju kl. 15.00 á laugardag með kappróðri. Guðs- þjónustur fóru fram kl. 11.00 á sunnudag. Þrír sjómenn aðstoð- uðu séra Þórhall Höskuldsson við guðsþjónustuna í Akureyrar- kirkju og Þorsteinn Vilhelmsson skipstjóri og útgerðarmaður flutti hátíðarræðuna i Glerár- kirkju, en þar messaði séra Pálmi Matthíasson. Dagskrá hófst síðan kl. 13.30 við sundlaugina. Lúðrasveit lék, ræður voru fluttar fyrir hönd útgerðar- manna og sjómanna og þrír sjó- menn voru heiðraðir. Þá fór fram stakkasund, reiptog, koddaslagur og björgunarsund. Slysavamadeild kvenna sá um kaffisölu á Hótel KEA. _kóteí_ STEFANÍA 96-26366 AKUREYRI 96-2G366
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.