Morgunblaðið - 07.06.1988, Page 31

Morgunblaðið - 07.06.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988 f-------- Eru þeir að fá 'ann ■ lV-------- VEIÐIN byijaði prýðilega í Kjarrá í Borgarfirði á laugar- daginn, 16 laxar komu á land fyrsta daginn, þar af einn 19 punda eftir því sem næst verð- ur komist. Urðu veiðimenn laxa varir upp eftir allri á, allar götur upp í Rauðaberg. Veiði þessi fékkst bæði á flugu og maðk. Síðan hefur veiði verið nokkur og trúlega komnir um 90 laxar úr ánum báðum, Kjarrá og Þverá, sem raunar er ein og sama áin, þótt nöfnin séu tvö. Þverá, sem er neðri hlutinn, hafði opnað 1. júní, en um helgina var veiði þar nokkuð farin að dvína eftir líflega bytjun. Lax var þó stöðugt að ganga og á laugar- dagsmorgun veiddi ungur veiði- maður, Þorvaldur Eyjólfsson frá Síðumúla 18 punda hrygnu í Kirk- justreng á maðk. Var það Maríu- lax Þorvaldar. Veiði hefur verið fremur dauf í Norðurá eins og oft vill verða fyrstu daganna eftir opnun. StJóm SVFR veiddi ails 36 laxa fyrstu tvo og hálfa daginn, þann stærsta 15 punda. Sá minnsti var 4 pund og er óvenjulegt að svo smár fískur sé á ferðinni svona snemma sumars. Eitthvað hefur víst borið á smálaxi í netunum í Hvítá og hvað svo sem þetta merkir, ef það merkir þá nokkuð, þá hafa margir veiðimenn illan bifur af slíku. Um 50 laxar hafa nú veiðst í Norðurá. Hafa þeir fengist víða, en flestir geispað golunni á Eyrinni, Brotinu og Stokkhylsbroti. Veiði hefur verið þokkaleg í Laxá á Ásum sem opnaði einnig Morgunblaðið/gg. Þorvaldur Eyjólfsson með Mariulaxinn, 18 punda hrygnu úr Kirkjustreng í Þverá 4. júni siðast liðinn. 1. júní. Fyrsta daginn veiddust 8 laxar og síðan hefur verið nokkur fískför upp ána og nokkur veiði. Athygli vakti fyrsta daginn, að sumir laxanna báru þess merki að hafa verið í ánni í kannski hálfan mánuð eða lengur. New York: Islendingur meðvit- undarlaus eftir árás UNGUR íslendingur liggur nú meðvitundarlaus á sjúkrahúsi í New York, eftir að hafa orðið fyrir árás á götum borgarinnar á miðviku- dag. Við árásina höfuðkúpubrotnaði maðurinn og hefur hann ekki komist til meðvitundar síðan á fii íslendingurinn, sem er þrítugur, er við nám í Bandaríkjunum. Á miðvikudag kom hann á sjúkrahús í New York og leitaði aðstoðar, þar sem hann hafði orðið fyrir árás. Ekki sáust miklir áverkar á honum og eftir rannsókn var honum vísað heim, þar sem talið var að hann væri ekki alvarlega slasaður. Á fímmtudag hné hann hins vegar niður meðvitundarlaus og hefur ekki komist til meðvitundar síðan. Komið hefur í ijós að hann er höfuð- kúpubrotinn og að blætt hefur inn á heilann. Helgi Gíslason, ræðismaður ís- lands í New York, sagði að ekki væri að fullu ljóst hvað hefði komið fyrir manninn, þar sem hann hafði ekki gefíð lögreglunni fullnaðar- skýrslu um málið. Talið væri að hann hefði verið sleginn í höfuðið með einhverju oddhvössu áhaldi. Helgi kvaðst hafa haft samband við fslenskan lækni, sem starfar í New York og hefur hann gengið úr skugga um að maðurinn fái eins góða meðferð og unnt er. Foreldrar mannsins dvelja nú hjá honum ytra. Gott verð á fiskimjölinu Fyrirframsala á fiskinyöli héðan er nú að hefjast í einhverjum mæli. Er þar aðallega um að ræða sölu til milliliða, sem síðan selja nyölið öðrum. Verð er talið um. Vöxtur f fiskirækt um allan í búpening er hluti skýringar á Jón Reynir Magnússon, fram- kvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins, sagði í samtali við Morg- unblaðið, að menn væru að byija á fyrirframsölunni, en hún væri eins og venjulega töluvert happ- drætti. Á síðasta ári hefði verið óhag- kvæmt að selja mikið fyrirfram, en nú virtist áhættan minni. Verð nokkuð gott, nálægt 30.000 krón- heim og aukin notkun fiskimjöls hækkandi verði. gæti auðvitað hækkað, en líklega ekki teljandi og svo gæti það auð- vitað lækkað líka. Verðið væri fremur hátt miðað við verð á soja- mjöli, en menn yrðu bara að bíða fram á haust til að sjá hvert verð- ið yrði þá. Hins vegar væri það óskandi að veiðar hæfust nú fyrr en á síðasta ári. Þá hefðu skipin farið tveimur mánuðum seinna til veiða en heimilt hefði verið. Hugmynd að næstu HÁDEGIS VEISLU „Hálf ‘ dós af rjómaskyri. Nóg pláss fyrir mjólk út á. Njóttu vel! AUK/SlA K3d1-573

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.