Morgunblaðið - 07.06.1988, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988
Rúmlega 70 manns biðu bana í
sprengingu í Sovétríkjunum:
Orsök sprengúigarinnar
! í vörulestínni ókunn
Flokkur Le Pens kom illa út úr fyrri umferð
frönsku þingkosninganna í gær og á nú á hættu
að detta út af þingi. Le Pen hélt blaðamannafund
eftir kosningarnar og skoraði á hægri flokka að
mynda með sér kosningabandalag fyrir seinni
umferðina enda er það hans eina von í stöðunni.
Reuter
Kosningabaráttan var að vanda lífleg í Frakkl-
andi fyrir helgi og grípa frambjóðendur til ýmissa
ráða til að vekja á sér athygli. Hér sést Raymond
Barre, fyrrum forsætisráðherra, halda á brúðu i
sinni mynd.
Moskvu. Reuter.
RÚMLEGA 70 menn biðu bana
og um 200 slösuðust þegar
sprenging varð i vöruflutninga-
lest í borginni Arzamas, nærri
Gorkí, á laugardag. Járnbraut-
arstöðin eyðilagðist að hluta og
rúður sprungu í húsum í allt
að tveggja kilómetra fjarlægð.
Að sögn Gennadíj Vedemikov,
aðstoðarforsætisráðherra, er enn
óljóst hvað sprengingunni olli.
Vöruflutningalestin var hlaðin
sprengiefni, sem nota átti til
náma- og mannvirkjagerðar og
vegna jarðfræðirannsókna.
Sprengingin varð er lestin ók inn
á jámbrautarstöðina. Margir
hinna látnu vora í bflum sem biðu
við jámbrautina þar sem akbraut-
in liggur yfir hana.
Að sögn Prövdu, málgagns
Fyrri umferð þing-kosning-anna 1 Frakklandi:
Urslitin mikil vonbrigði
fvrir franska sósíalista
J -------iti
sovézka kommúnistaflokksins,
era ýmsar kenningar á lofti um
orsakir sprengingarinnar. Blaðið
skýrði ekki frá hveijar þær væra
en sagði nefnd háttsettra embætt-
ismanna rannsaka málið. Að sögn
Prövdu gjöreyðilögðust 150 hús í
sprengingunni og skildi hún eftir
sig djúpan gíg, sem er 53 metrar
í þvermál, við brautarstöðina.
Arzamas er 400 kflómetra aust-
ur af Moskvu og 65 kflómetra
suður af Gorkí. Slysið er hið
mannskæðasta frá því 106 manns
biðu bana í árekstri tveggja lesta
í kolaborginni Kamensk-Shakh-
tinskíj í fyrra.
Vedemikov sagði að lestin hefði
sprangið í tætlur og hlutar hennar
kastast tugi metra. Eldur hefði
kviknað og breiðst í íbúðarhús og
verksmiðjur í nágrenni lestar-
stöðvarinnar.
Björgunarmenn og sjúkralið
streymdi að úr næstu borgum.
Tveir tugir skurðlækna vora sóttir
alla leið til Moskvu. íbúar Arzam-
as bragðust skjótt við og stóðu í
biðröðum við að gefa blóð. Einnig
buðu þeir fólki, sem orðið hafði
heimilislaust, húsaskjól.
^ París, Reuter.
ÚRSLIT í fyrri umferð frönsku þingkosninganna urðu önnur en
skoðanakannanir bentu til. Sósíalistum hafði verið spáð yfirburða-
sigri en þess I stað er nú mjótt á munum milli þeirra og Bandalags
hægri og miðflokka, URC. Sósíalistar fengu 37,55% atkvæða, URC
40,52%, kommúnistar 11,32% og Þjóðemisfylking Le Pens 9,35%
atkvæða. Sósialistar kenna lélegri kjörsókn um úrslitin en hvorki
meira né minna en þriðjungur kjósenda sat heima. Þjóðemisfylking-
in á nú á hættu að detta út af þingi vegna meirihlutakosningarinn-
ar, sem kemur illa út fyrir smærri flokka. Jacques Chirac, leiðtogi
Ný-Gaullista og fráfarandi forsætisráðherra, var hróðugur eftir
fyrri umferðina og sagði að kosingabandalag mið- og hægri flokka
gæti enn unnið sigur.
Á sunnudag gengu út 120 sæti
af 577 þingsætum á franska þing-
inu. Þar af fengu sósíalistar 40
þingsæti en URC, Bandalag hægri
og miðjuflokka, 79 sæti. í banda-
laginu era ný-gaullistar undir for-
ystu Jacques Chiracs og Lýðræðis-
fylkingin undir forystu Giscards
d’Estaings. Nú er að nýju kosið
eftir meirihlutakerfi en árið 1986
fór fram hlutfallskosning. Þeir
frambjóðendur sem náðu hreinum
meirihluta I sínu kjördæmi á sunnu-
daginn komast á þing. í þeim kjör-
dæmum þar sem enginn fékk hrein-
an meirihluta verður kosið aftur á
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn í
Bretlandi:
Tveir sækjast eftir
leiðtogaembættinu
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara MorgnnblaðsinB.
sunnudaginn kemur og eru þeir í
framboði sem náðu 12% atkvæða í
fyrri umferðinni. Það á því eftir að
úthluta 457 þingsætum og ræður
einfaldur meirihluti í hveiju Iqor-
dæmi.
„Við erum enn inni í myndinni,"
sagði í fyrirsögn hægriblaðsins
Quotidien de Paris. Að sögn blaðs-
ins eiga hægri menn enn möguleika
á að koma í veg fyrir meirihluta
sósíalista á þingi. Stjómmálaskýr-
endur gerðu mikið úr lítilli kjör-
sókn, þeirri minnstu á öldinni, sem
gerði allar spár um yfirburðasigur
sósíalista að engu.
„Okkur hafði verið lofað miklu
meira," kvartaði Laurent Fabius,
fyrram forsætisráðherra úr röðum
sósfalista, en flokknum hafði verið
spáð allt að 100 sæta meirihluta á
þingi.
Þrátt fyrir að hægri og miðju-
menn hafi forystu eftir fyrri umferð
er sósíalistum spáð naumum meiri-
hluta á þingi þegar upp er staðið.
Þeir græða á því að hægri atkvæði
skiptast milli hófsamra og hins
öfgasinnaða flokks Le Pens. Flokk-
urinn fékk tæp 10% atkvæða og
er líklegur til að detta út af þingi
InJ
l o e
H»gri- os Kommúnistar PjðAemiB- '
mWloWw fyMngin
Atkvæðahlutfall
Semijámá,
•rtalsvaröur
munurá
atkvϚahlut-
falll oq'
þlngsBBlum
Ifyrrlumtarö
frOnskuþing-
koanlnganna
9.35% Oriáfilr
11.32% \ 3
(ommúmstar \ g
40.521^^
H»grt og mlóflohkamir
nema kosningabandalag takist með
honum og URC. í kosningunum
árið 1986 fékk flokkurinn 32 þing-
menn og Le Pen fékk tæp 15% at-
kvæða í fyrri umferð forsetakosn-
inganna í aprfl síðastliðnum. URC
neitar því í orði að gert verði banda-
lag við Le Pen en sérfræðingar
segja að ekki verði unnt að koma
í veg fyrir slíka samvinnu í smærri
kjördæmum.
Búist er við því að kommúnistar
og sósíalistar myndi með sér banda-
lag fyrir seinni umferðina. Það þýð-
ir að frambjóðendur sósíalista draga
sig í hlé þar sem kommúnistar hafa
forystu eftir fyrri umferð og öfugt.
Svíar eltast
við ókunna
kafbáta
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKI sjóherinn sprengdi á
laugardag sprengju, sem komið
hafði verið fyrir á hafsbotni
skammt frá Gautaborg, og var það
þriðja atlagan á einni viku að
ókunnum kafbátum.
Hans Gustaf Wassberg, talsmaður
herráðsins, sagði, að sprengjan hefði
verið sprengd þegar mælitæki gáfu
til kynna, að kafbátur væri á ferð-
inni skammt suður af Gautaborg. Á
aðeins fimm dögum hafa þá verið
sprengdar þijár sprengjur vegna
ferða ókunnra kafbáta innan sæn-
skrar lögsögu en það var síðast á
árinu 1984, að gripið var til sams
konar aðgerða. Svíar segjast nú
munu reyna að sökkva ókunnum
kafbátum í stað þess að reyna að
þvinga þá upp á yflrborðið.
í desember sl. var skýrt frá því,
að vart hefði orðið við 30 kafbáta
síðasta misserið og foringjar í hem-
um segja engan vafa leika á, að
þeir séu frá Varsjárbandalagsríkjun-
KOSNINGABARÁTTA um leið-
togaembættið f Fijálslynda lýð-
ræðisflokknum hófst f siðustu
viku. Tveir hafa boðið sig fram.
Kosningar fara fram sfðar f sum-
ar.
Sfðast í aprílmánuði varð ljóst, að
David Steel, fyrrum leiðtogi Fijáls-
lynda flokksins og annar af núver-
andi leiðtogum Fijálslynda lýðræðis-
flokksins, mundi ekki bjóða sig fram
til leiðtogaembættis þess nýja flokks,
sem stofnaður var upp úr Fijálslynda
flokknum og Jafnaðarmannaflokkn-
um. Talið er nánast öruggt, að Ro-
bert Maclennan, fyrrum leiðtogi
Jafnaðarmannaflokksins, og núver-
andi leiðtogi Fijálslynda lýðræðis-
flokksins, muni ekki bjóða sig fram.
Samkomulag varð um það í hinum
nýja flokki, að enginn byði sig fram
til leiðtogaembættisins fyrr en 1.
júnf. í síðustu viku gáfu tveir núver-
andi þingmenn kost á sér, þeir Paddy
Ashdown og Alan Beith. Álan Beith,
sem er gamalreyndur þingmaður,
hefur verið varaleiðtogi Davids Ste-
els og málsvari hins nýja flokks í
fjármálum. Hann var fyrst kosinn á
þing 1970 í Berwick-upon-Tweed í
Skotlandi. Paddy Ashdown er þing-
maður fyrir Yeovil f Englandi og var
fyrst kosinn á þing árið 1983. Hann
hefur verið talsmaður hins nýja
flokks f skóla- og menntamálum.
Hann hefur frá upphafí verið um-
deildur þingmaður og t.d. gefið óvar-
legar yfírlýsingar um utanríkismál.
Kosningabaráttan hófst $ sfðustu
viku, og um sfðastliðna helgi héldu
frambjóðendur fundi víða um land.
Paddy Ashdown leggur aðaláherslu
á, að hinn nýi flokkur eigi að ráða
niðurlögum Verkamannaflokksins og
verða annar stærsti flokkur landsins.
Hann hafnar öllum hugmyndum um
samstarf við aðra flokka. Beith legg-
ur áherslu á, að hinn nýi flokkur
móti sjálfur stefnu sína, og útilokar
ekki samstarf við aðra flokka. Hann
bendir einnig á reynslu sína á þingi,
sem muni auðvelda honum að leiða
hinn nýja flokk.
f skoðanakönnun, sem birtist í
Sunday Times síðastliðinn sunnudag,
kemur í ljós, að meðal stuðnings-
manna Fijálslynda lýðræðisflokksins
nýtur Paddy Ashdown fylgis 47%,
en Alan Beith 9%. Þótt þessar tölur
bendi til mikils forskots Paddys Ash-
downs, mun kosningabaráttan
standa í átta vikur, ogþað era flokks-
menn, en ekki stuðningsmenn, sem
kjósa munu leiðtogann.
London:
Málinu gegn Waldheim vísað
frá í sjónvarpsréttarhöldum
London, Vín. Reuter.
FIMM uppgjafadómarar kom-
ust að þeirri niðurstöðu í réttar-
höldum, sem sett voru á svið í
sjónvarpi, að ólfklegt væri, að
Kurt Waldheim, forseti Aust-
urrikis, hefði gerst sekur um
stríðsglæpi. Waldheim sjálfur
hefur fagnað sjónvarpsþættin-
um og kveðst vona, að deilunum
um fortíð hans fari nú að linna.
Dómararnir, Bandaríkjamaður,
Breti, Kanadamaður, Vestur-
Þjóðveiji og Svíi, kváðu upp dóm-
inn eftir að hafa hlýtt á framburð
35 vitna í 170 klukkustundir og
þar á meðal á nokkra fyrram
hermenn og samstarfsmenn
Waldheims. Þá fóru þeir einnig
yfir meira en 10.000 skjöl frá
styijaldaráranum.
„Við erum á einu máli um, að
fyrirliggjandi gögn í þessu máli
og annað, sem fram hefur komið,
era ekki nægileg til að líklegt sé,
að Kurt Waldheim hafi framið þá
stríðsglæpi, sem hann hefur verið
sakaður um,“ segja dómaramir í
úrskurði sínum.
Sjónvarpsþátturinn var sendur
út í Bretlandi og Bandaríkjunum
sl. sunnudagskvöld og síðasti hluti
hans einnig f Austurríki en banda-
ríska kapalkerfafyrirtækið Box
Offíce og breska sjónvarpsstöðin
Thames Television unnu hann í
sameiningu.
Dómaramir áttu ekki að kveða
úr um sekt eða sakleysi Wald-
heims, heldur hvort málatilbúnað-
urinn á hendur honum væri yfir-
leitt dómtækur. Kváðust þeir ekki
efast um, að þýski herinn í Grikk-
landi og Júgóslavíu hefði myrt
þúsundir óbreyttra borgara og
skæruliða á áranum 1941-45 en
„dr. Waldheim getur því áðeins
verið sekur um stríðsglæpi, að það
verði óvefengjanlega sannað, að
hann hafí tekið þátt í þeim eða
hjálpað þeim, sem þá frömdu".
Þá segja dómaramir, að „minn-
isleysið", sem vart hafí orðið við
hjá Waldheim varðandi herþjón-
ustu hans í Grikklandi og á Balk-
anskaga, sé í sjálfu sér engin
sönnun um, að hann hafi framið
stríðsglæpi.
Waldheim, sem nú er í opin-
berri heimsókn í Saudi-Arabíu,
sagði í gær, að sjónvarpsþátturinn
hefði sýnt, að hann væri fómar-
lamb óhróðursherferðar.