Morgunblaðið - 07.06.1988, Síða 41

Morgunblaðið - 07.06.1988, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988 41 Víða pottur brotinn í aðbúnaði í málmiðnaði STJÓRNENDUM þriggja fyrir- tækja í málmiðnaði var veitt við- urkenning á kynningarfundi sem Vinnueftirlit ríkisins hélt með starfsmönnum og stjórnendum í greininni fyrir nokkru. Á síðasta ári kannaði Vinnueftirlit rikisins hvernig aðbúnaði, hollustuhátt- um og öryggi væri háttað í grein- inni og sýndu niðurstöður að verulegra úrbóta er þörf í þeim málum. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra veitti eftirtöldum fyr- irtækjum viðurkenningu: Bjarma sf. í Hafnarfírði, Málmsteypunni Hellu hf. í Hafnarfírði og Vélum og þjón- ustu hf. í Reykjavík. Sagði hún af því tilefni að hún mundi óska eftir því við Vinnueftirlit ríkisins að hér verði úr bætt og að félagsmálaráðu- Höfðar til .fólksí öllum starfsgreinum! neytið fái skýrslu um árangur og niðurstöður að tilteknum tíma liðn- um. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins, sagði fundar- mönnum frá framkvæmd verksins, niðurstöðum, og kynnti leiðir til úrbóta, en ráðist var í verkefnið vegna þess að há slysatíðni er í málmiðnaði og vitað er að ýmsum störfum í greininni fylgir óhollusta ef réttar varúðarráðstafanir eru ekki gerðar. Framkvæmd verkefnisins var í fyrsta lagi fólgin í því að skoða fyrirtækin, gefa ábendingar og gera kröfur um úrbætur, ástand vinnu- staðanna var metið og starfsmönn- um veitt fræðsla um vinnuvemd. Alls voru 53 fyrirtæki skoðuð í samráðj við hagsmunaaðila í grein- inni. Úttekt á hveiju fyrirtæki skiptist í þijá hluta: vinnurými, tæki og búnað og starfsmanna- rými. Niðurstöður sýndu að léleg loftræsting og skortur á afsogs- búnaði við suðu og logskurðarvinnu veldur mestu um óholla loftmengun í vinnurými. Hávaðamengun er mikið vandamál í iðngreininni og er talin „óviðunandi" og „ábóta- vant“ í þremur af fjórum fyrirtækj- um sem komu til skoðunar. Hvað tæki og búnað varðar kom í ljós að vélar í málmiðnaði em komnar til ára sinna og endumýjun þeirra gengur hægt. Starfsmannarými, svo sem bún- ings- og snyrtiherbergi, var í meiri- hluta fyriríækjanna talið óviðun- andi. Vinnueftirlitið hefur nú gert ýmsar ráðstafanir sem ættu að geta stuðlað að endurbótum, meðal ann- ars hafa verið settar nýjar reglur um öryggisbúnað véla, mengunar- vamir við málmsuðu og aðrar regl- ur varðandi öryggisatriði. Morgunblaðið/Matthías Jóhannsson Þegar starfsmenn Vegagerðarinnar höfðu lokið við að blása snjó af veginum yfir Lágheiði voru skaflarnir vfða tvær mannhæðir. Lágheiði: Fær minni bifreiðum Siglufirði. LÁGHEIÐI hefur nú verið opnuð fyrir umferð fólksbifreiða, en heiðin er enn of blaut til þess að hægt sé að leyfa þyngri bifreiðum að aka hana. Starfsmenn Vegagerðarinnar unnu hálfan annan dag við snjóblást- ur á heiðinni og vom skaflar við veginn víða tvær mannhæðir. Nokkr- um dögum síðar, eða á föstudag, var heiðin opnuð fyrir umferð minni bif- reiða. Heiðin er nú að þoma og líður þvf varla á löngu áður en flutninga- bifreiðar fá að aka hana, til dæmis mjólkurbíllinn frá Akureyri, en leið hans styttist þá um 50-60 kflómetra. Á síðasta ári var heiðin opnuð nokkm fyrr, en þó er ekki óalgengt að hún verði fyrst fær fólksbifreiðum í byij- un júní. Matthfas. Hanna Schygulla f hlutverki Elín- ar í kvikmyndinni „Lulu — að eilífu" sem sýnd er f Regnbogan- um. Regnboginn sýnir „Lulu — að eilífu" Regnboginn hefur tekið til sýninga kvikmyndina „Lulu — að eilífu“. Með aðalhlutverk fara Hanna Schygulla og Debbie Harry. Leikstjóri er Amos Koll- ek. Myndin flallar ekki um Lulu þó hún gangi sem rauður þráður gegn- um myndina. Hún fjallar um aðra konu, Elínu Hines, verðandi rithöf- und, sem á í mesta basli. Flest snýst gegn henni og ætlar hún loks að binda endi á allt saman þegar dæm- ið snýst við fyrir tilviljun og gæfan brosir við henni. í einni svipan verð- ur hún rík, fræg og eftirsótt en það hefur líka sínar dökku hliðar því setið er um lff hennar. Hún fær riddara sér til hjálpar og lífíð held- ur áfram. En þá á eftir að upplýsa — hver er Lulu? (Fréttatilkynning) Amdís dúx í málum í FRÉTT Morgunblaðsins á laug- ardag af skólaslitum f Mennta- skólanum við Sund var ekki get- ið nafns stúlku sem hlaut hæstu einkunn úr málaskor. Það var Amdís Björk Ásgeirs- dóttir sem náði hæstu meðalein- kunn úr málaskor, eða 8,6. lOLVIIR I SKOLASTARFI Islensk kennsluforrit Skrifborðsútgáfa (Desk Top Publishing) Tengingar við skóla í Evrópu — EARN Gagnad ís,Windows, mús o.fl. miðvikudagur 8. júní kl. 9:30—12:00 AUMEHN KYNNINC FYRIR SKÓLAFÓLK hjá IBM Skaftahlíð 24. HERMILÍKÖN: Þetta forrit hefur verið prófað í 6.—9. bekk í þremur grunnskólum hérlendis og fengið mikið lof. Forritið Hermilíkön kemur úr rannsóknarverkefninu INFA (Informatik i Skolens Fag) sem IBM í Danmörku og danski kennaraháskólinn (DLH) vinna sameigin- lega. Forritið hefur verið íslenskað og aðlagað íslenskum aðstæðum. Því verður dreift í skóla fyrir næsta vetur. Með forritinu má setja upp ýmis líkön sem nemendur þekkja úr daglega lífinu, t.d. úr umferðinni, biðraðir, smithættu og mann- fjöldaspá. Nemandinn setur inn upplýsingar og fær niður- stöðurnar myndrænt. STÆRÐFRÆÐISPIL: Kynnt verða nokkur stærðfræðispil fyrir 2.—5. bekk grunnskóla. Þessi spil eru einnig úr INFA rannsóknarverkefninu. Þau verða íslenskuð í sumar. DESKTOP PURLISHING: Skrifborðsútgáfa. Með Pagemaker og Windows er hægt að setja upp texta í mörgum leturgerðum og stærðum, brjóta um sfður, fella inn myndir og fleira. Með umbrotsforritinu verður sýndur IBM leysiprentari og skanner. GAGNADÍS: Gagnadís (Dataease) er gagnasafnskerfi sem er nýkomið á markaðinn. Forritið er alíslenskað og með íslenskri handbók. Gagnadís er mjög sveigjanlegt, hraðvirkt og öflugt gagnasafnskerfi sem fengið hefur frábæra dóma. STORYBOARD PLUS: Storyboard Plus er nýtt og öflugt forrit til myndrænnar framsetn- ingar á hvers konar efni. Hægt er að nota mús til að stjórna aðgerðum. Með forritinu fylgir safn mynda. TIC TAC / PENFRIEND: Hugbúnaður fyrir tungumálakennara. Þessi pakki sem inniheldur nokkur tungumál gerir notandanum kleift að skrifa texta án þess að kunna málið til hlítar. TENGING VIÐ ÚTLÖND: IBM mun á næstunni setja upp tölvur og mótald í fjórum grunnskólum hérlendis til að tengjast sambærilegum skólum í Danmörku. íslensku nemendurnir verða þátttakendur í sameiginlegu rannsóknarverkefni í tungumálakennslu og samfé- lagsfræði með því að skiptast á upplýsingum við jafnaldra sína erlendis. Með þessari uppsetningu er einnig fengið beint tölvu- samband við aðra skóla hérlendis. PS/2 — OS/2 Stutt kynning á helstu eiginleikum IBM PS/2 tölva og nýja stýri- kerfinu OS/2 sem m.a. gerir margvinnslu mögulega. Sýnt verður ritvinnsluforritið Ritvangur 4 fyrir OS/2 með íslensku orðasafni. fimmtudagur 9. júní kl. 9:00—14:00 föstudagur 10. júní kl. 9:00—16:00 $YNIN6 - 0P» HUS: I húsnæði IBM í Skaftahlíð er fullkomin aðstaða til að skoða allt það sem kynnt verður á almennu kynningunni 8. júní, auk nettenginga sem henta m.a. vel í skólum. Starfsfólk IBM verður til taks til að sýna, kenna og veita upplýsingar um það sem kemur skólafólki að gagni. Vinsamlega tilkynnið þútttöku á almennu ktjnn- inguna og í kennsluna á Gagnadís í símu 68 73 73, eigi síðar en þriðjudaginn 7. júní Allar nánari upplýsingar veitir Kristín Steinarsdóttir í síma 2 77 00. mánudagur 13. júní kl. 9:00—14:00 KENNSLA A Kennd verður notkun Gagnadísar. Farið verður í uppbyggingu á gagnaskrám, gerð valmynda og tekin dæmi um nemenda- skráningu og einkunnabókhald. FYRST OG FREMSÍ SKAFTAHLÍÐ 24 105 REYKJAVÍK SÍMI 27700 W

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.