Morgunblaðið - 07.06.1988, Page 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988
August Hákans-
son - Minning
Pæddur 29. september 1906
Dáinn 27. maí 1988
Ég var staddur vestan hafs, þeg-
ar mér bárust þær fréttir að hann
afi, August Hákansson, væri dáinn.
Ég hafði hitt hann hressan daginn
áður og þá var hann að ræða við
mig hugsanleg bflakaup sín. Hann
andaðist aðeins rúmum sólarhring
síðar, á Eyrarbakka, þar sem hann
og amma áttu sitt sumarhús og
sælustað, Norðurkot. Heilsan var
óbiluð fram á síðustu stund og
ánægjan af að lifa lífinu skein af
honum.
Fyrstu átta æviár mín bjó ég í
húsinu hjá ömmu og afa og tengd-
ist þeim því líklega stekari böndum
en ella. A þeim árum var mesta
„sportið" að fá að fara niður I
Skiltagerð, verslunina sem þau ráku
á Skólavörðustíg. Nokkrar ferðir
fór ég einnig með þeim norður í
land að heimsækja dóttur þeirra,
foðursystur mína.
Er árin liðu gat ég við og við
rétt honum hjálparhönd í verslun-
inni. Afi var ákveðinn, hann krafð-
ist nákvæmni og réttra vinnu-
bragða. í staðinn veitti hann traust
og ábyrgð. Hann var af gamla skól-
anum og vildi hafa allt sitt á hreinu.
Fyrir nokkrum árum hóf hann
að draga úr umsvifum sínum og
sinna áhugamálum sínum. Hann og
amma keyptu sér sumarbústað,
lögðust í ferðalög og nutu afrakst-
urs mikillar vinnu á fyrri árum. Afi
byijaði jafnframt að mála á ný.
Hápunkturinn var opnun gallerís
15 og málverkasýning afa sl. haust.
25. október 1931 kvæntist hann
Petru Maríu Sveinsdóttur, sem lifir
mann sinn. Æviatriði afa ætla ég
ekki að nefna að öðru leyti, til þess
verða eflaust aðrir. í janúar 1985
varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi
að hafa afa sem farþega í flugvél
sem ég var flugmaður á og faðir
minn flugstjóri. Afi sat aftan við
okkur í flugstjómarklefanum. Það
var vetrardagur eins og þeir gerast
fallegastir á íslandi, heiðskírt og
kalt. Þessi ferð varð okkur til mikill-
ar ánægju. Myndir úr henni tilheyra
nú fjársjóði minninganna.
Elsku amma, við Jóna Ósk og
bömin sendum þér okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur nú þegar
lífsförunautur þinn er genginn.
Afa þakka ég 27 ára samvist í
þessu lífi.
Kristin trú kennir að við hitt-
umst aftur. Ég ætla að treysta því.
August jr.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
I dag er kvaddur hinstu kveðju
August Hákansson. Þegar svo góð-
ur vinur sem August er til moldar
borinn, líða upp í huga minn ótal
yndislegar stundir með honum og
eftirlifandi konu hans Petru Hák-
ansson. August var fæddur í
Reykjavík, lauk námi í húsgagna-
og skrautmálun hér í borg, en fór
því næst í framhaldsnám til Dan-
merkur og naut þá tilsagnar f list-
málun hjá þekktum malurum. Hann
nam við listaskóla Finns Jónsson-
ar,Jóhanns Briem og sótti einnig
nám við listaskóla í Danmörku og
Þýskalandi.
Leiðir okkar Augustar lágu fyrst
saman fyrir rúmum 8 árum, er ég
tók við rekstri fyrirtækisins Litir
og föndur. Hann hafði stofnsett það
og starfrækt síðan árið 1947 undir
nafninu Skiltagerðin. Fyrstu árin
tengdist rekstur fyrirtækisins
skiltagerð. Síðar hóf hann innflutn-
>ng og smásölu á myndlistarvörum.
Það skal engan undra að fyrirtækið
blómstraði í höndum þessa hag-
leiksmanns, enda sinnti hann því
af einstakri natni og alúð, og naut
í hvívetna stuðnings eiginkonu
sinnar sem ávallt starfaði honum
við hlið.
Þegar ég kynntist Augusti hafði
bann hætt allri skiltagerð og hafði
ákveðið að selja verslunina, þá 73
ára að aldri, en við bestu heilsu.
Hann hélt áfram með innflutning-
inn þar til fyrir 2 árum, en þá ákvað
hann að snúa sér alfarið að áhuga-
málum sínum. Við þá breytingu gat
August meðal annars látið gamlan
draum sinn, um að opna sýningar-
sal, rætast. Sýningarsalinn Gallerí
15 opnaði hann svo formlega 28.
nóvember á síðasta ári, á Skóla-
vörðustíg 15 í Reykjavík. Þar sýndi
hann myndir sem hann hafði málað
allt frá því að hann var um tvítugt
og fram til þess dags. Engum sem
sá þá sýningu gat dulist að þar var
góður myndlistarmaður á ferð, sem
hefði án efa náð langt á því sviði,
ef hann hefði alfarið helgað sig
henni. Hann var maður ungur í
anda, fullur af orku og lífskrafti
enda þarf slíkt að vera til staðar,
til að fara aftur í Myndlistarskóla
á áttræðisaldri. Þar vildi hann
spreyta sig á nýjum sviðum, skapa
ný kynni og fylla sig anda listarinn-
ar.
Ég mun aldrei nógsamlega getað
þakkað Augusti fyrir allar þær ráð-
leggingar og faglegar upplýsingar
sem hann miðlaði mér ungri að
árum og óreyndri, stígandi mín
fyrstu spor í verslunarrekstri.
August var alla tíð mikill gæfu-
maður. Hann var kvæntur Petru
Hákansson og áttu þau saman 4
böm. Petra og August voru einstak-
lega samhent, hamingjusöm og
lífsglöð, og ætíð var jafn gott og
indælt að vera samvistum við þau.
Ég veit að nú er mikið frá Petru
tekið að hafa ekki August til skrafs
og ráðagerða lengur, en hún er
sterk og skynsöm og veit að þó hún
ekki sjái hann mun August standa
áfram við hlið hennar, styðja hana
og styrkja. Ég og fjölskylda mín
vottum þér, elsku Petra, okkar
dýpstu samúð, svo og bömum ykk-
ar, bamabömum og öðrum að-
standendum.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Guðfinna A. Hjálmarsdóttir
I dag er til moldar borinn August
Hákansson, er lést 27. maí sl., á
áttugasta og öðru aldursári.
Kynni okkar Augustar hófust
fyrir um tíu árum síðan. Þá hafði
ég skömmu áður kynnst tveimur
af mínum bestu vinum, frænkunum
Hrafnhildi og Bryndísi, bamaböm-
um Augustar. Það er mikið happ
að eignast vini sem þær, og hefiir
aldrei borið skugga á vináttu þá.
Fljótlega kynntist ég mæðrum
þeirra, Gretu og Sonju, og fjölskyld-
um þeirra, svo og auðvitað ömmu
Petru og afa Augusti. í þessum
hópi hefur mér ávallt verið tekið
sem einum í fjölskyldunni, og minn-
ist ég óteljandi ánægjustunda, bæði
á Hagaflötinni og Mjóuhlíðinni, með
þakklæti og virðingu.
í þessum káta og annars háværa
hópi bar oft minnst á Augusti.
Hann var gjaman hljóður en fylgd-
ist grannt með, og skaut einatt að
velígrunduðum athugasemdum, oft
krydduðum fágaðri kímni. Um-
ræðuefnið var oftar en ekki listir
og menningarmál, enda vorum við
Hrafnhildur, Sonja, Greta og Berg-
ljót samtímis í myndlistamámi,
Bryndís í leiklistamámi, og August
sjálfur listmálari um áratugaskeið,
meðfram ævistarfi sínu sem höndl-
ari skilta og myndlistarvöru.
Síðustu árin hafði August rýmri
tíma til myndlistariðkunar, og gat
einnig farið að huga að gömlum
draumi. Það var hátíðleg stund í
desember sl. er draumurinn rættist;
Gallerí 15 í kjallara Skólavörðustígs
15, listsýningarsalur Augustar og
Petru, opnaði með sýningu meistar-
ans. Hér gat að líta árangur undan-
farinna ára í fínlegum vatnslita-
myndum, sem báru ögun stfls hans
og natni fagurt vitni.
A heimili Augustar og Petru í
Mjóuhlíðinni var ævinlega gaman
að koma. Innan um smekklega val-
in málverk hinna stærri og smærri
spámanna landslagsmálverksins
var úðað í mann góðgerðum, og
engin fyrirhöfn var of mikil til að
gera gestum til hæfís.
Ég minnist Augustar með hlýju
fyrir margháttaða vinsemd sem
hann sýndi mér. En meir þykir mér
koma til um ást hans og áhuga á
myndlistinni, sem lýsir sér best í
opnun hins snotra sýningarsalar við
Skólavörðustíginn. Menn eins og
August eru sannarlega happ í
nútímasamfélagi; menn sem eru
reiðubúnir að veija sínum verald-
lega auði í aðstöðu þar sem aðrir
geta notið andlegra verðmæta.
Það er von mín að fjölskylda
Augustar haldi uppi merki hans,
og haldi uppi þróttmiklu sýningar-
starfi í Gallerí 15.
Petru og fjölskyldunni sendi ég
hugheilar samúðarkveéjur.
Halldór Arni Svehisson
Þótt ekki eigi að koma mönnum
með öllu á óvart að fólk, sem kom-
ið er á níræðisaldur, hverfi á brott
af þessum heimi, þá grunaði mig
ekki, er ég kvaddi tengdaföður minn
að kvöldi dags hinn 25. maí, að það
væri í síðasta sinn, sem ég sæi
hann hérna megin fortjaldsins
mikla. Eins og margir þeir, sem
stunda sjálfstæðan atvinnurekstur
og verða þar með að standa á eigin
fótum, þá hafði hann ásamt tengda-
móður minni átt langan starfsdag
og sjaldan kennt sér nokkurs meins.
Ekki eru mörg ár síðan þau tóku
að rifa seglin og aðeins tvö ár síðan
þau seldu síðasta hluta þess fyrir-
tækis, sem þau höfðu rekið í fjölda
ára. Þá var loks unnt að sinna öðr-
um hugðarefnum.
August var listfengur maður og
bera þess ljósan vott myndir, sem
hann gerði í æsku. Hugur hans stóð
til þess að verða listmálari, en efna-
hagur og tíðarandi leyfðu ekki
slíkan munað. Þó aflaði hann sér
nokkurrar menntunar á þessu sviði
og málaði lítillega á yngri árum.
Síðan tók brauðstritið við og lagði
hann þá listiðkun á hilluna um langt
árabil. Á síðari árum tók hann upp
þráðinn á ný, eftir því sem frístund-
um fjölgaði. Þegar um hægðist
hófu þau hjónin að innrétta sýning-
arsal í kjallara hússins að Skóla-
vörðustíg 15, og þegar því var lok-
ið í nóvember á síðasta ári vígði
August staðinn, „Gallery 15“, með
því að halda þar sína fyrstu einka-
sýningu.
August Hákansson var fæddur í
Reykjavík 25. dseptember 1906,
sonur Frantz Adolps Hákansson
bakarameistara og konu hans, ísa-
foldar Halldórsdóttur. Þau hjón áttu
Iðnó og ráku þar veitingahús. Mér
er í minni frásögn Augustar af
því, þegar hann í spönsku veikinni
1918, þá tólf ára gamall, fór vítt
um bæ ásamt föður sínum að færa
sjúku fólki mat.
August lærði málaraiðn, fyrst í
Reykjavík, en sigldi síðan til Kaup-
mannahafnar og lauk þaðan sveins-
prófi frá Det Tekniske Selskabs
Skole árið 1926. í Kaupmannahöfn
átti hann nokkum frændgarð. Afi
Augustar var sænskur bakari, sem
flust hafði til Hafnar, átti danska
konu og eignaðist með henni sjö
böm. Föðursystkin voru því sex.
Aðeins einn föðurbræðranna eign-
aðist son og á sá enga afkomend-
ur. Þessi grein ættarinnar lifir því
einungis áfram á íslandi.
August varð málarameistari í
Reykjavík árið 1929. Hann var í
nokkur ár verkstjóri á málningar-
verkstæði Strætisvagna Reylq'avík-
ur og málaði þá m.a. þær auglýs-
ingar, sem þá tíðkaðist að hafa á
vögnunum. Árið 1938 setur hann á
stofn skiltagerð í Reykjavík. Þá
voru skiltin handmáluð, auk þess
sem málaðar voru stórar auglýs-
ingar á húsveggi og gafla. Síðar
komu til steypt skilti úr kopar eða
léttmálmi og grafín skflti á málm-
plötur eða harðplast. í samvinnu
við Jón J. Víðis landmælingamann
mun August hafa grafíð velflestar
Íær útsýnisskífur, sem Ferðafélag
slands og önnur félagasamtök hafa
sett upp vítt um landið. Jafnframt
skiltagerðinni stunduðu þau hjón
verzlun, sem með tímanum þróaðist
í verzlun með föndur- og listmálara-
vörur. August kenndi málarasvein-
um á námskeiðum þeim, sem mál-
arameistarafélagið hleypti af
stokkunum, og eftir að málaradeild
var komið á við Iðnskólann í
Reykjavík kenndi hann þar í sextán
ár og átti hvað stæstan þátt í mót-
un þeirrar deildar skólans.
í starfi málarameistara fólust
ýmiss konar skreytingar og m.a.
það að leggja gullþynnur, þar sem
sérstakiega skyldi vandað til verka.
Fáir munu þeir hér á landi, sem
nú kunna þá iðn til hlítar. Þegar
gagngerar endurbætur fóru fram á
Dómkirkjunni í Reykjavík fyrir
nokkrum árum var ákveðið að
leggja blaðgull á rósabekki í kór
og kirkju. Það verk unnu þeir í
sameiningu, August og Sighvatur
Bjamason málarameistari.
August tók virkan þátt í félags-
starfi bæði hjá málurum og í Iðnað-
armannafélagi Reykjavíkur. Mér
segir svo hugur um, að þar hafi
hann oft átt stærri þátt í fram-
gangi mála en hann sjálfur hirti
um að tala eða að festa á bækur,
því hann var bæði hógvær og lít-
illátur. August var frumkvöðull að
því, að Iðnaðarmannafélag
Reykjavíkur gerði sér fána og vann
ásamt fleirum að lokatillögum að
merki félagsins. Hann hefur hlotið
margháttaða viðurkenningu frá
iðnfélögum þeim, sem hann hefur
starfað fyrir.
Hinn 25. október 1931 kvæntist
August eftirlifandi konu sinni,
Petru Maríu Sveinsdóttur. Börft
þeirra urðu fyögur:
Aðolfundur
Vinnuveitendasambands íslands verður haldinn í
dag, þriðjudaginn 7. júní, í Súlnasal Hótels Sögu.
D A G S K R Á:
Kl. 11.30 Kjörfundurbeinna meðiima.
Kl. 12.00 Fundarsetning. Ræða formanns Gunnars J. Friðrikssonar.
Kl. 12.30 Fládegisverðuraðalfundarfulltrúa og gesta.
Kl. 13.45 ATVINNULÍF OG EFNAHAGSFIORFUR
- Kristinn Björnsson, framkvæmdastjóri Nóa & Síríus
- Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri Hraðfrysti Rvk.
- Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Hagkaups hf.
- Jón Sigurðsson, forstjóri ísl. járnblendifélagsins
Stjórnandi umræðu HörðurSigurgestsson, forstjóri Eimskips hf.
Kl. 15.00 Skýrsla framkvæmdastjóra fyrirliðið starfsárog önnuraðal-
fundarstörf.
Kl. 16.00 Fundarslit
GUNNARJ.
FRIÐRIKSSON
KRISTINN
BJÖRNSSON
ÁGÚST EINARSSON JÓN ÁSBERGSSON
JÓN SIGURÐSSON
HÖRÐUR
SIGURGESTSSON