Morgunblaðið - 07.06.1988, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 07.06.1988, Qupperneq 59
8861 inín. .v auoAauiaífl-a .aiaAunviuoaoM MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988 82 59 Greta, gift þeim sem þetta ritar, Sonja, gift Braga Óskarssyni, raf- tæknifræðingi, Frantz, flugstjóri, kvæntur Málfríði Guðjónsdóttur, Ellen, íþróttakennari, gift Kristjáni Kjartanssyni, húsasmíðameistara. Bamabörnin eru níu og barna- bamabömin þtjú. August á tvo bræður, Vilhelm málarameistara og Erik bankaféhirði og eina fóstur- systur, Huldu ritara. Fyrir nokkrum ámm keyptu þau Petra og August sér lítið hús á Eyrarbakka og hafa unnið að því að endurbæta það og fegra sem sumarbústað. Þangað fóm þau föstudagskvöldið 27. maí og ætluðu að dvelja þar yfir helgina. Nokkm eftir að þangað var komið kvartaði August um ónot fyrir bijóstinu, gaf þessu þó lítinn gaum. Skömmu síðar varð ljóst að kallið var komið. Það hlýtur að vera ljúft að mega kveðja á þennan hátt, þótt svo skyndileg brottför veki í fyrstu sárs- auka hjá nánustu vandamönnum. Eigi að síður gleðjumst við yfír því að hafa átt góðan lífsförunaut, föð- ur og afa. August átti til að bera hið létta skopskyn, sem svo oft ein- kennir frændur vora í Danmörku, og inni fyrir bjó viðkvæm og góð sál. í návist hans var gott að vera. Við þökkum af alhug liðna tíð og væntum honum góðs á himinsins vegum. Sigurður Björnsson, verkfræðingur. Fyrir nokkmm dögum barst mér sú harmafregn að hann August Hákansson hefði kvatt sitt jarðn- eska líf. Hann var vinur vina sinna eins og öll hans fjölskylda. Ef einhver átti bágt, reyndi hann að gera gott úr því. August var giftur frænku minni, Petm, og varð þeim margra bama auðið. Var búskapur þeirra mjög hamingjusamur og félagslynd vom þau hjónin með afbrigðum. Hafa þau verið mér sérstaklega elskuleg. Væri margt hægt að nefna, en fyrir það fær hann þakk- læti hinum megin. Á þessari stundu flýgur hugurinn yfir hafíð til konu hans, bama og bamabama. Bið ég góðan Guð að hugga þau og styðja. Munið það að þótt hinu jarðneska lífí sé lokið þá er líf eftir dauðann, þar sem við hittumst öll á efsta degi. Guð blessi ykkur öll og styrki ykkur í sorg ykkar. Sveinn Bergsson og frú Andöy, Noregi. August var fæddur 25. septem- ber 1906 í Reykjavík. Hann varð bráðkvaddur 27. maí síðastliðinn austur á Eyrarbakka, þar sem hann og kona hans áttu lítið hús sem þau dvöldu gjaman í um helgar. Málaraiðn nam August á ámnum 1920—1925, fyrst hjá Jóni Reyk- dal, en að honum látnum hjá Ágústi Lámssyni. Það var ekki óalgengt á þessum ámm að ungir málarar hygðu á framhaldsnám. August var einn þeirra, með brennandi áhuga á frekara námi, enda var þessi ungi maður búinn góðum kostum og hæfileikamaður á mörgum sviðum. Hann var listfengur mjög, fágaður í allri framkomu, og snyrtimennska einkenndi hann alla tíð. Hann sótti framhaldsnám við hinn þekkta skóla í Kaupmannahöfn, Det Tekn- iske Selskabs Skole árið 1925—’26 og lauk þar sveinsprófí það ár. Mér þykir mjög sennilegt að hann hafi kynnst eitthvað félagsmálum málara í Kaupmannahöfn því hann er einn þeirra manna, sem vinnur ötullega að stofnun Málarasveinafé- lags Reykjavíkur hinn 4. mars 1928 og er kjörinn gjaldkeri í fyrstu stjóm þess. Meistararéttindi fékk hann 1929 og gekk þá í Málara- meistarafélagið og hóf rekstur í iðn sinni, en árið 1938 setti hann á stofn skiltagerð og rak hana ásamt verslun með listmálara- og föndur- vörur Alla tíð tók August mikinn þátt í félagsmálum stéttarinnar og hefur því gegnt margvíslegum störfum í þágu hennar, var meðal annars árum saman í fræðslunefnd og próf- nefnd. Hans helsta áhugamál í sam- bandi við stéttina voru fræðslumál og vann hann ötullega að þeim alla tíð. Hann var kennari við námskeið og við málaradeild Iðnskólans árin 1947 til 1965. Augusti var sýndur margvíslegur heiður innan stéttar- innar. Gullmerki Málarasveinafé- lagsins fékk hann 1978, þjónustu- merki Málarameistarafélagsins 1968 og nú síðast á 60 ára afmæli þess var hann gerður að heiðurs- félaga. August hafði alltaf fengist við að mála málverk, bæði í olíu- og vatnslitum og nú þegar þessar línur eru ritaðar hafði hann losað sig við fyrirtækið fyrir nokkru og hugðist helga sig þeim draumi sem lengst hafði blundað með honum — að fá tíma til listsköpunar, „vera ég sjálf- ur“ eins og hann orðaði það ein- hveiju sinni við mig. Hann var bú- inn að skapa sér góða aðstöðu til að vinna að þessu hugðarefni sínu. Nú hélt hann sína fyrstu sjálfstæðu málverkasýningu, og var það auð- séð að þar fór listfengur maður með næma tilfínningu fyrir formi og litum og virðingu fyrir fegurð landsins okkar. Ég kynntist þessum heiðurs- manni og hans ágætu eiginkonu Petru fyrir tæpum 50 árum og allar götur síðan hefur verið góð vinátta með okkur. August og Petra voru einstaklega samhent og elskuleg hjón sem gott var að eiga að vinum. Þau eignuðust fjögur mannvænleg böm, sem eflaust verða móður sinni stoð og stytta við hennar mikla missi. Kona mín og ég sendum Petru og börnum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sæmundur Sigurðsson • 11 m jjifiijXT Eii[í\j' I J' * Sterkbyggt og fallegt í Ijósum litum. * Hentaröllum gerðum prentara. * Hægt að hafa allt að 6 mismunandi pappírs- form I einu. * Þú skiptir um pappír með einu handtaki án þess að þurfa að beygja þig. * Ef þú þarft oft að skipta um pappír, þá erþetta prentaraborð fyrir þig. * íslensk hönnun — íslensk framleiðsla. * Styðjum Islenska framleiðslu — kaupum íslenskt. MTÆKNIVAL Grensásvegi7, 108 Reykjavlk, Box8294, S: 681665 og 686064 Paradís fjölskyldunnar finnur þú í Flórída. Við hjá Ferðaskrifstofu Reykjavíkur höfum sérhæft okkur í ferðum til Flórída með fjölda valkosta á dvalartímanum, ódýrum aðgöngumiðum í alla hina heimsþekktu skemmtigarða, bílaleigubílum af öllum stærðumog gerðum o.fl. o.fl. Ath! Cocoa ströndin eraðeins í u.þ.b. 23ja mínútna fjarlægð frá Orlando. Það eru allir velkomnirtil okkar. Við höfum sannarlega góð sambönd í sólarríkinu. FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR AÐALSTRÆTI 1 6 S í M I 91-621490
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.