Morgunblaðið - 07.06.1988, Síða 63

Morgunblaðið - 07.06.1988, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1988 63 TVÍFARISTEFANÍU AF MÓNAKÓ: „Mér líður eins og henni“ — segir klæðskiptingnrinn Michael Lienherr sem græðir á tá og f ingri Brynja Tomer skrifar. Tvífarar og eftirlíkingar eru orð- in arðbær fyrirbæri á hinum ólíklegustu sviðum. Margir hafa atvinnu af því að líkja eftir frægu fólki og nú má Stefanía Mónakó- prinsessa láta sér það lynda að karlmaður fari í gervi hennar og sýni sig út um heim undir hennar nafni. Michael Lienherr heitir 23ja ára gamall maður sem hefur það að atvinnu að fara í gervi Stefaníu Mónakóprinsessu og mun hann græða á tá og fingri um þessar mundir. Mörgum kann að þykja kaldhæðið að það skuli einmitt vera karlmaður sem er vinsælasta eft- irlíking prinsessunnar, sem oft hef- ur verið álitin of ftjálsleg og stráks- leg í framkomu. Michael sem vinnur sem klæð- skiptingur á þekktum næturklúbbi í París segin „Ég líkist henni ekki eingöngu í útliti, heldur líður mér eins og henni. Mér finnst ég vera Stefanía þegar ég er kominn í gervi hennar." Margir álíta að þessi yfir- lýsing piltsins sé auglýsingabrella, en hann segir að hann hreyfí sig ósjálfrátt eins og prinsessan þegar hann sé kominn í gervið. „Kannski er það vegna þess að við eigum afmæli í sama mánuði," útskýrir drengurinn, en fáum þykir það trú- leg ástæða. Kærastinn ruglaðist Því verður ekki neitað að mikill svipur er með þeim Michael og Stef- aníu þegar hinn fyrmefndi er búinn að klæða sig upp og mála sig. Þó eru fótleggir Stefaníu að flestra mati fallegri. „Við erum svo lík,“ segir Michael, „að meira að segja Paul Belmondo ruglaðist á mér og henni. Ég var f boði þar sem hann var líka og þetta var nokkrum dög- um eftir að samband hans og Stef- aníu slitnaði. Þegar ég gekk fram- hjá Paul, kom á hann mikið fát og hann vissi ekki hvert hann átti að líta. Ég skemmti mér vel, en hann fór í annað herbergi." Michael hóf störf á hárgreiðslu- stofu þegar hann var 16 ára, en leiddist sú vinna og fór að skemmta á skemmtistaðnum Michou, þar sem hann dansaði allsnakinn fýrir gest- ina. Nú er heitasta ósk hans sú að sitja fyrir á mynd með Stefaníu sjálfri. „Ég á henni mikið að þakka," segir hann. „Frægð, pen- inga og góðan árangur í skemmt- anaiðnaðinum.“ [ sundbol, en sem kunnugt er hefur prinsessan hannað sundfatnað sem hlotið hefur verðskuldaða athygli. Þessi stelling fyrirsætunnar varð fyrir valinu af skiljanlegum ástæðum. SUMARNAMSKEIÐ JSB Stimarlínurnar í lag, takk! Núfaraalliríkúr. Stutt og ströng - 2 vikna 4x í viku. Morgun-, síðdegis- og kvöldtímar. Næsta námskeið hefst 13/6-23/6 og 27/6-7/7. ^Síðasta námskeið fyrir sumarfrí. KERFI Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri, flokkar sem hæfa öllum. T eygju - þrek - jazz fjör - púl- og sviti fyrir ungar og hressar! Vertu með, hringdu strax. Suðurver sími 83730. Hraunberg sími 79988. Suðurveri, sími 83750 Hraunbergi, sími 79988 f SKEMMUVEGI4A, KÓPAVOGI Sfmar 76522 og 76532

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.