Morgunblaðið - 14.06.1988, Page 49
Cj\
S&fci í 'lii .. ■ j[ Jí,iil .«i :il (KtVJUl.-ÍU-'.l'i
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1988
49’
Sigurþór Hersir,
bryti — Minning
Mig langar nokkrum fátækleg-
um orðum að minnast mágs míns,
Sigurþórs Hersirs, sem andaðist í
Landspítalanum 5. júní sl. Sigurþór
fæddist 28. júlí 1914, sonur Mar-
grétar Sigurþórsdóttur frá Garðs-
stöðum, Vestmannaeyjum, og Guð-
mundar Hersirs bakarameistara.
Snemma hneigðist Sigurþór til
sjávar og er óhætt að segja að sjór-
inn hafi átt hug hans alla tíð. Fyrst
á fiskiskipum og síðan á fragtskip-
um Sambandsins og Eimskip. Hjá
Eimskip starfaði Sigurþór einkum
sem bryti, m.a. á Gullfossi. En
síðustu árin í mötuneyti Eimskips
í Sundahöfn.
Ég kynntist Sigurþór fyrst þeg-
ar hann kom í fjölskyldu mína og
þá fann ég fljótt hvað hann var
mikill öðlingur. Sigurþór var alltaf
boðinn og búinn að hjálpa hveijum
sem var og öll þessi ár sá ég hann
aldrei skipta skapi sínu. Betri mág-
ur er vandfundinn.
Aslaug Jens-
dóttir — Minning
Fædd 10. nóvember 1907
Dáin3.júní 1988
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn gefðu þinn frið,
gleddu og blessaðu þá
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjl
(H. Andrésdóttir)
Nú er hún Ása frænka okkar
búin að fá hvíldina, en hún lést að
kvöldi 3. júní á hjúkrunardeild
Hrafnistu.
Áslaug var fædd í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Ingibjörg
Þorsteinsdóttir og Jens Jonsson tré-
smiður. Hjónin byggðu hús við
Stýrimannastíg í Reykjavík og bjó
Áslaug með þeim þar og áfram með
móður sinni eftir lát föður síns
1937. Alltaf var hús þeirra opið
ættingjum og vinum og margir
gistu þar lengri eða skemmri tfma.
Áslaug starfaði við verslunarstörf
í Versluninni Liverpool og síðan hjá
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur. Hún
hafði yndi af ferðalögum og fór
víða innanlands sem utan, meðal
annars heimsótti hún ættingja sína
í Kanada.
Við fjölskyldan eigum góðar
minningar um sunnudagsheimsókn-
ir á Stýrimannastíg, en þar tóku
mæðgumar á móti okkur af mikilli
gestrisni, ávallt með heitri jólaköku
og kieinum.
Áslaug var glæsileg kona og
naut félagsskapar vina sinna.
í desember 1981, þegar heilsu
hennar var farið að hraka, fluttist
hún að Hrafnistu í Reykjavík og
dvaldi þar til æviloka.
Blessuð sé minningÁstu frænku.
Gulla og börn
Sigurþór kvæntist eftirlifandi
systur minni, Guðlaugu Pálsdóttur
frá Ósgerði, 18. mars 1951. Var
heimili þeirra alla tíð í Reykjavík.
Þau eignuðust einn son, Gylfa Pál.
Sigurþór var mjög barngóður
og kom það best í ljós þegar hann
eignaðist sonarson, Kára, en hann
var augasteinn afa síns. Minnist
ég þess að fyrir skömmu er Sigur-
þór tók utan um hann og sagði
„Þetta er minn eini sanni vinur."
Sigurþór hefur nú lagt í sína
síðustu ferð. Við systkinin í Ós-
gerði kveðjum vin okkar Sigurþór
hinstu kveðju, en eftir stendur
minning um góðan vin og félaga
sem við vitum að við eigum eftir
að sakna.
Elsku systir, við sendum þér og
fjölskyldu þinni innilegustu samúð-
arkveðjur.
Þór Pálsson
Grein þessi varð eftir í prent-
smiðjunni, en hún átti að birtast
með öðrum greinum um hinn látna
í blaðinu á sunnudag. — Er beðist
velvirðingar á mistökunum.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Norskur prammi notaður íSandgerði
Grundarfoss kom á til landsins með dýpkunarpramma sem
Hafnarmálastofnun hefur tekið á leigu hjá norsku Hafnarmála-
stjórninni til að vinna að dýpkun á innsiglingunni i Sandgerðis-
höfn. Jón Leví, forstöðumaður tæknideildar Hafnarmálastofnunar
sagði prammann vera nýjung, þar sem hann væri í raun mjög
fullkomið tæki til neðansjávarsprenginga. Jón sagði ætlunina að
grafa fyrstu 100 metrana af 50 metra breiðri rennu út úr höfn-
inni í sumar en áætlað er að sú renna verði alls 800 metra löng.
Leigan á prammanum nemur 2 milljónum króna en honum verð-
ur skilað til síns heima í haust.
Vrið cigum 60 ára aíinæli um þes.sar mundir, í
tilefni af þ>ví bjóðum við viöskiptavinum okkar
15% afslátt af öllum vöaim verslunarinnar frá
13. til 25. júní.
V,
'erölaunasamkeppni. Gullfallegt
Pierre Cardin úr í verölaun.
Iglugganum hjá okkur í Bankastræti
er sundurtekiö úr, keppnin felst í því
aö geta úr hve mörgum hlutum úriö er
samansett.
í búöinni færðu reglur keppninnarog pátttökuseðil.
Úr, skart og skrautgripir
GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON SF
BANKASTRÆTI 12
S. 1 40 07
WtotsmMdtíb
Góðan daginn!
Svefnpokar
ajimgllak.
Ajungilak er án efa einn stærsti
svefnpokaframleiðandi í heimi. Allar
tegundir poka fyrirliggjandi og við
hjálpum þér dyggilega við val á poka
eða pokum sem henta þínum þörf-
um. Mundu að ráðleggingar okkar
eru byggðar á reynslu.
SKÁTABÚÐIN
Snorrabraut 60 sími 12045
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!