Morgunblaðið - 14.06.1988, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNl 1988
,, Hva& er PcÁ nákvaemlega senq
Þó ger\r hérrxa, HrócSmundlur ?<l'
Það er hér sem ung kona,
með sjálfstæðan atvinnu-
rekstur, getur fengið
leigt?
Með
morgunkaffinu
tfc)
Ég setti varalitinn hennar
mömmu óviljandi í lita-
kassann minn og fór með
hann í teiknitíma ...
HÖGNI HREKKVÍSI
* éC HEy(?OI H/AMN PLA-MRA MIE>0« STlGAVW
AlEfi> pi’pUNA lpÍNA OG IMMIöKÓNA."
Yemdum einstæða náttúm íslands
Til Velvakanda
„Enginn er búmaður nema berji
sér“, segir máltækið. Það kunnum
við Islendingar svo sannarlega.
Þótt allir séu ropandi af offylli
kvartar hver sem betur getur um
kjör sín, þó eiga flestir nýja bíla
og skreppa til útlanda svona tvi-
svar á ári. Ef til vill er þetta vegna
þess að við erum farin að miða
allt við alls kyns gervilífsgæði og
glingur, fólk vill komast yfir allt
og eiga allt, og ef það tekst ekki
er allt ómögulegt. Þetta lífsgæða-
kapphlaup fer illa með margan
og er fáum til ánægju þegar allt
kemur til alls.
Við íslendingar eigum mikla
auðlegð sem ekki verður metin í
peningum þ.e. hina stórbrotnu
náttúru landsins. Það gefur meira
í aðra hönd að litast um úti í náttú-
runni heldur en góna í sjónvarps-
skjá og það jafnvel þótt hann sé
tengdur rándýru myndbandstæki.
Hvort skyldi eftirsóknarverðara,
tjaldferð í Þórsmörk eða sólar-
landaferð með tilheyrandi bjór og
brennivínsþambi. Eg er ekki í
vafa.
Að lokum. Vemdum hina ein-
stæðu náttúru landsins. Hún er
okkar mesta auðlind þegar allt
kemur til alls.
Útilegumaður
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um
hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli
kl. 10 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma þvi
ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábend-
ingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð,
en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda
blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut
ekki eftir liggja hér í dálkunum.
Yíkveiji skrifar
eglur um hundahald eru
m.a. á þann veg, að bannað
er að hundur gangi laus utan
dyra. Þessar reglur eru þverbrotn-
ar á hveijum einasta degi á höfuð-
borgarsvæðinu - og einmitt þar
sem sízt skyldi - á útivistarsvæð-
um borgarbúa. Fólk, sem er á
ferð á þessum svæðum, t.d. í Foss-
vogsdalnum, gengur daglega
fram á vegfarendur, sem eru á
gönguferð með hunda sína og nær
undantekningarlaust ganga hund-
arnir lausir.
Hundahald í þéttbýi hlýtur að
byggjast á því, að þær reglur, sem
settar hafa verið, séu haldnar.
Hundar eru falleg dýr og í langf-
lestum tilvikum láta þeir fólk í
friði. En dæmi eru um annað og
þau eru vond. Hundaeigendur
verða að skilja, að þótt þeir þekki
hundana sína á hið sama ekki við
um ókunnugt fólk. Sumum er líka
lítið um hunda gefið og þeir eiga
fullan rétt á því að ganga um
útivistarsvæði borgarinnar án
þess að hafa áhyggjur af því að
hitta fyrir hunda, sem ganga laus-
ir.
xxx
IFossvogsdalnum eru nokkrar
göngubrýr, sem liggja yfir skurði
á þessu svæði. Ein þeirra - sú
stærsta og veigamesta - er að falli
komin. Hún liggur yfir djúpan
skurð, sem töluvert vatn getur ver-
ið í. Á þessu svæði er mikið um
smáböm að leik. Brúin getur verið
þeim hættuleg og þess vegna er
nauðsynlegt, að þessi brú verði lag-
færð þegar í stað. Víkvetja er ekki
ljóst, hvort hún er í landi Reykjavík-
ur eða Kópavogs.
XXX
Víkveiji var nýlega farþegi í
þotu frá Pan Am flugfélaginu
í innanlandsflugi í Bandaríkjunum.
í þeirri flugvél var almenningssími
þannig að farþegar gátu hringt, ef
nauðsyn bar til, meðan á ferðinni
stóð. Hvenær taka íslenzku flugfé-
lögin upp þessa þjónustu?
xxx
Annars virðist stundum skorta
á venjulegt símasamband á
milli skrifstofa Flugleiða hér og
erlendis! Víkveiji kom nýlega á
skrifstofu Flugleiða á Kennedyflug-
velli á leið heim til íslands. Þar
fengust upplýsingar um nokkurra
klukkutíma seinkun á flugi og út
af fyrir sig ekkert við því að segja,
enda ástæður eðlilegar. Hitt var
óeðlilegt, að á sama tíma og þessar
upplýsingar lágu fyrir á Kennedy-
flugvelli, voru þær upplýsingar
gefnar hér á Íslandi, að flug þetta
væri á áætlun. Starfsfólk Flugleiða
fór á sl. ári á sérstök námskeið til
þess að bæta þjónustu við viðskipta-
vini. Er ekki hægt að koma þjón-
ustu af þessu tagi í betra horf?