Morgunblaðið - 06.08.1988, Síða 1
64 SIÐUR B OG LESBOK
STOFNAÐ 1913
176. tbl. 76. árg.
LAUGARDAGUR 6. AGUST 1988
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Viðræður um frið í Angólu og Namibíu:
Samkomulag náðist
um skref í friðarátt
Leynd hvílir yfir samkomulaginu fram yf ir helgi
Genf. Reuter.
FULLTRÚAR Angólu, Kúbu og
Suður-Afríku sögðust í gær hafa
náð samkomulagi um skref til
friðar í Angólu og Namibíu eftir
fjögurra daga viðræður, sem
mikil leynd hvíldi yfir, í Genf.
Samkomulag varð um að skýra
ekki frá í hverju friðarskrefin felast
fyrr en á mánudag. Þegar Pik
Botha, utanríkisráðherra Suður-
Afríku, var inntur eftir því hvort
samið hefði verið um vopnahlé í
Norður-Noregur:
Atak tíl aðstoðar
sjávarútveginum
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
NORSKA stjórnin hefur ákveðið að veita miklu fé til að treysta
undirstöður sjávarútvegs í Norður-Noregi sem átt hefur við mikla
örðugleika að stríða undanfarin ár. í fyrstu verður veitt 115 milljón-
um n.kr. (780 milljónum ísl. kr.) til atvinnugreinarinnar og er búist
við að Stórþingið samþykki þá ráðstöfun.
Að undanförnu hefur verið rætt
um að setja á stofn sérstakt ráðu-
neyti sem fást skyldi við þau vanda-
mál sem nú herja á Norður-Noreg.
Ríkisstjórnin hefur þó vísað þeirri
iiugmynd á bug.
Miklum hluta íjárins verður veitt
til nyrsta fylkisins, Finnmerkur, en
þar eiga sjávarútvegsfyrirtæki í
afar miklum erfiðleikum. Ekkert
fiskaðist á Barentshafi og við Lófót-
en síðastliðinn vetur og kemur þetta
hart niður á sjómönnum jafnt sem
landverkafólki. Fjöldi fólks flyst nú
á brott frá Finnmörku og veldur
það norskum heryfirvöldum áhyggj-
um; komi til átaka við Sovétmenn
verður framvarðalína Norðmanna á
þessu svæði. Fækki fólki í fylkinu
mun það verða til að veikja varnar-
búnaðinn þar. Eining ríkir um þetta
sjónarmið hjá norskum stjórn-
málmönnum.
Bandaríkin:
Brady tekur
við af Baker
Washington. Reuter.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, tilkynnti í gærkvöldi um
afsögn James Bakers, fjármála-
ráðherra, og að hann hefði skip-
að bankamanninn Nicholas
Brady í hans stað. Búist er við
að þingið staðfesti þá ákvörðun
forsetans.
Baker hættir 17. ágúst næstkom-
andi og tekur þá við stjórn kosn-
ingabaráttu George Bush, forseta-
efnis repúblikana við forsetakosn-
ingarnar í nóvember.
Brady var formaður nefndar, sem
Reagan skipaði til að grafast fyrir
um orsakir verðhrunsins á verð-
bréfamarkaðinum í New York 19.
október sl. Talið er að skipan hans
muni mælast vel fyrir í fjármála-
heiminum. Árið 1982 var hann út-
nefndur til setu í Öldungadeild
Bandaríkjaþings í háift ár í stað
Harrisons Williams, sem dæmdur
var fyrir pólitíska spillingu.
Umrædd framlög til sjávarút-
vegsins verða notuð sem hreinir
styrkir til sjómanna og útvegs-
manna, til að lækka vexti og auka
lausafé útgerðarfyrirtækja. Sam-
band norskra sjávarútvegsmanna
hafði farið fram á miklu hærri
styrki. Talið er að fiskvinnslufyrir-
tækin ein þarfnist 500-800 milljóna
n.kr. (3.200-5,500 milljóna ísl. kr.).
Angólu, sagði hann að menn yrðu
að bíða svars við þeirri spumingu
til mánudags.
„Við færðumst nær markinu,“
sagði Francisco Paiva Nyunda, að-
stoðarvamarmálaráðherra Angólu,
eftir fundinn. Samningamenn vörð-
ust allra fregna en lýstu allir
ánægju með fundalotuna, sem varð
lengri en gert hafði verið ráð fyrir.
Chester Crocker, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sem gegnt
hefur hlutverki milligöngumanns,
aflýsti blaðamannafundi vegna
samkomulags samningamanna um
fréttabann af fundinum. Fyrir-
hugað var að aðalefni þessarar
samningalotu yrðu leiðir til að koma
á vopnahléi í Angólu. Ákveðið var
að efna til nýrra funda eftir tvær
vikur.
Persaflóastríðið:
MUNKAR MOTMÆLA
Reuter
Japanskir munkar við lok 1.300 kílómetra göngu frá Tókýó til Hírósh-
íma sem þeir efndu til til að leggja áherzlu á kröfur sínar um bann
við kjamorkuvopnum. Þess er minnst í Japan í dag að 43 ár em liðin
frá því kjamorkusprengjum var varpað á borgimar Híróshíma og
Nagasaki.
De Cuellar býður
upp á málamiðlun
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
JAVIER Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, skýrði frá því i gær að
hann hefði kynnt fulltrúum
deiluaðila í Persaflóastríðinu
Reuter
IFANGIFORSÆTISRAÐHERRANS
Opinberri heimsókn Margaretar Thatcher, forsætisráðherra Bretlands,
til Ástralíu lýkur í dag. Thatcher heimsótti í gær sýningu í Brisbane
þar sem meðal annars varð á vegi hennar þessi kóalabjöm sem virtist
kunna hið besta við sig í fangi forsætisráðherrans. Kóalabimir eru
spendýr af ættbálki pokadýra.
málamiðlunartillögu, sem hann
vonaði að kæmi skríði á sáttatil-
raunir sinar.
De Cuellar átti í gær viðræður
við Tariq Aziz, utanríkisráðherra
íraks, og að þeim loknum sagði
hann að Irakar vildu ekki hvika frá
þeirri afstöðu sinni að deiluaðilar
samþykktu að hefja beinar viðræð-
ur áður en vopnahlé yrði lýst yfír.
Þykir það til marks um að írakar
hefðu tekið málamiðlunartillögu de
Cuellars fálega.
Tillagan gerir ráð fyrir þvi að
deiluaðilar fullvissi de Cuellar um
að þeir hafi raunverulegan áhuga
á að uppfylla öll ákvæði vopnahlésá-
lyktunar Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna, hina svoköllubu ályktun
númer 598, frá í fyrra. Hún gerir
m.a. ráð fyrir allsheijar friðarsam-
komulagi ríkjanna. Áð því fengnu
ákveði framkvæmdastjórinn vopna-
hlésdag og heQist þá beinar viðræð-
ur milli deiluaðila.
De Cuellar sagði í gær að ut-
anríkisráðherrar írans og íraks
„gerðu nú sitt bezta“ til þess að
umleitanir hans bæru árangur og
„væri hann þeim þakklátur fyrir
það“.
Brezk herstöð í Vestur-Þýzkalandi:
Fjórir særast í
sprengingu IRA
DUsseldorf. Reuter.
ÞRÍR brezkir hermenn og
óbreyttur borgari slösuðust þegar
sprengja sprakk við brezka her-
stöð í Vestur-Þýzkalandi i gær.
Allt bendir til að hinn ólöglegi
írski lýðveldisher, IRA, beri
ábyrgð á sprengingunni.
Tom King, írlandsmálaráðherra
brezku stjórnarinnar, hélt í gær til
Belfast til neyðarfundar með yfir-
mönnum hers og lögreglu á Norður-
írlandi vegna hryðjuverka IRA í vik-
unni er kostað hafa á annan tug
manna lífíð.
Vitni sáu til tveggja bifreiða, sem
ekið var burt frá brezku herstöðinni
í Dusseldorf í þann mund, sem
sprengjan sprakk. Tilræðið var eign-
að IRA og er hið þriðja gegn brezk-
um hermönnum í V-Þýzkalandi frá
í maí.
Talsmaður IRA sagði í gær að
herinn hyggðist auka hryðjuverk á
næstunni og myndu þau ná hámarki
næsta sumar, en þá verða liðin 20
ár frá því brezkar hersveitir voru
sendar til Norður-írlands til að
hindra átök mótmælenda og kaþól-
skra.