Morgunblaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988 Nepölsk kona hvílir lúin bein. undir viðeigandi blómabamatónlist Cats Stevens renndum við í hlað við Kathmandu Guesthouse. í Kathmandu var Encounter- ferðinni lokið og aðeins eftir nokkr- ir dagar upp á eigin spýtur til að skoða Kathmandudal og borgina. Þessa daga notuðum við í sitt af hverju, gengum um og skoðuðum hin fjölmörgu hindúa- og búddista- hof sem þar er að finna, hjóluðum til nágrannabæjar Kathmandu, fór- um í dýragarð til að sjá tígrisdýrin og nashymingana sem við sáum ekki í Chitwan-skógi og einn morg- uninn fórum við á útsýnisstað í dalnum til að sjá Everest-tind í fjarska. Við vissum að visu aldrei fýrir víst hver hinna fjölmörgu tinda, sem báru hver við annan, var sá rétti, en við vissum að einhver þeirra var Everest og að við sáum hann. Mannlíf og stemmning í Kathmandu á engan sinn líka. Ekki vegna þess að Nepalbúar, sem í sjálfu sér em indælisfólk, séu svo skrautlegir, heldur er það hræri- grautur afdankaðra hippa og amer- ískra túrista en þó fyrst og fremst margvíslegustu heimshomaflakk- ara sem setur mark sitt á borgina. Kathmandu er áningarstaður eða endastöð allflestra bakpokaflakk- ara í Asíu, hvort sem þeir koma frá Suðaustur-Asíu, Vestur-Asíu, Kína, Tíbet eða Indlandi. Þess vegna myndast þar mjög sérstök stemmn- ing þegar allt þetta lífsreynda fólk, sem sumt er ekki eins og fólk er flest, hittist og skiptist á ferða- og reynslusögum og hagnýtum upplýs- ingum. Á kvöldin voru langar og trega- fullar kveðjustundir í hópnum, flest- ir hinna ætluðu að halda áfram að ferðast, flestir til Thailands og það- an til Indónesíu og Ástralíu, aðrir til Burma og tvö ætluðu að ferðast um Indland í hálft ár í viðbót. En okkar Hrólfs biðu skuldir til að borga svo við urðum að gera svo vel að fara heim. Að morgni 7. jan- Götumynd frá Delhí. eftir fórum við af stað með rútu til baka til Sauraha, þar sem hópurinn og trukkurinn biðu. Rútan, sem var ævagamall Benz-kálfur, skrölti á 10—15 kílómetra hraða eftir holótt- um vegum, um hvert smáþorpið af öðru og bráðlega troðfylltist hún af prúðbúnu fólki á leið í kaupstað. Á miðri leið var stoppað í tæpan hálftíma því að bflstjórinn vildi sitt Dhal Bhat á matartíma og engar reíjar, en eftir rúmlega tveggja tíma ferð komum við loks til bæjar- ins Bharatpur. Þar tókum við aðra rútu sem við fórum með nokkurra kílómetra leið til Tadi Bazar, þaðan sem við vorum búin að verða okkur úti um far með uxakerru síðustu kflómetrana til Sauraha þegar trukkurinn okkar átti þar leið hjá fyrir tilviljun. Þetta kvöld héldum við áramótafagnað yið varðeldinn en að morgni nýársdags var lagt af stað í lokaáfanga ferðarinnar og úar flugum við frá Kathmandu og 35 tímum síðar, eftir viðdvöl í Delhí, Dubai og Kuwait, lentum við á Heathrow-flugvelli í London. Þessari fyrstu, en væntanlega ékki síðustu, ferð minni utan alfaraleiða íslenskra ferðamanna var lokið og við tók hversdagsgráminn og dag-' draumar um næstu ferð. Hvað það verður þá, eyjahopp í lndónesiu, á puttanum um Suður-Ameríku, með Síberíuhraðlestinni til Peking, hver veit? En sannið til, ég fer aftur af stað. Höfundur er hankamaður á Blönduósi. Tveir listamenn sýna á Kjarvalsstöðum Myndlistarfólkið Guðlaugur Þór Ásgeirsson og Rut Rebekka Sigurjónsdóttir opna sýningar í vestursal Kjarvalsstaða í dag, laugardag, kl. 14.00. Guðlaugur Þór lauk námi frá grafíkdeild Myndlista- og handíða- skóla íslands vorið 1981. Hann hefur áður haldið tvær einkasýning- ar, þá fyrri í Nýja Galleríinu á Laugavegi 12 árið 1982 og hina síðari í Gallerí Djúpi 1983. Guðlaug- ur Þór hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum, t.d. sýn- ingunni Ungir myndlistarmenn sem haldin var á Kjarvalsstöðum 1983. Flestar myndimar á sýningu Guðlaugs Þórs eru olíu- og pastel- myndir, sem hann hefur unnið. á árunum 1986—87. Rut Rebekka stundaði nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík og útskrifaðist síðan frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla íslands 1982. Hún hefur einnig dvalið í norrænni gistivinnustofu í Dan- mörku á vegum Nordisk Kunst- center. Rut Rebekka hefur áður haldið þrjár einkasýningar, síðast á Kjarvalsstöðum 1985. Hún hefur einnig tekið þátt í ýmsum samsýn- ingum hérlendis, í Danmörku, Bandaríkjunum og í Kanada. Rut Rebekka sýnir bæði olíumál- verk og grafík á sýningu sinni. Sýningar Guðlaugs Þórs og Rut- ar Rebekku standa frá 6. til 21. ágúst og eru opnar daglega frá kl. 14-22. (Fréttatilkynning) Ahrif kjarnorku- styrjalda á veðurfar FUNDUR um áhrif kjarnorku- styijalda á veðurfar verður hald- inn sunnudaginn 7. ágúst í Odda og hefst kl. 15. Fundurinn er öllum opinn svo lengi sem hús- rúm leyfir. Á fundinum munu tveir fyrirles- arar flytja erindi um efnið, þeir Alan Robock frá Maryland-háskóla og G.L. Stenchikov frá reiknimið- stöð sovésku vísindaakademíunnar í Moskvu. Að fyrirlestranum lokn- um verða pallborðsumræður þar sem Robock og Stenchikov munu ræða efnið við þá Henning Rodhe frá veðurfræðideild háskólans í Stokkhólmi, Arnt Eliassen prófess- or í Osló, Tómas Jóhannesson frá samtökum eðlisfræðinga gegn kjaniorkuvá og Pál Bergþórsson veðurfræðing. Allir munu þeir og svara fyrirspurnum áheyrenda eftir því sem tími vinnst til. Fyrirlestrar og umræður munu fara fram á ensku og er stýrt af Henning Rodhe sem mun einnig kynna efni og fyrir- lesara. Fundurinn er haldinn í tengslum við norrænt mót veðurfræðinga sem stendur dagana 6. til 9. ágúst nk. (Fréttatilkynning frá undirbúningsnefnd) Ríkey Ingimundardóttir í hinni nýju vinnustofu sinni, sem einnig er sýningarsalur. Ríkey opnar sýningarsal RÍKEY Ingimundardóttir opnaði vinnustofu og sýningarsal á Hverfisgötu 59 í Reykjavík föstu- daginn 4. ágúst. I sýningarsalnum verða eingöngu til sölu hennar eigin verk. Það eru málverk, postulínslágmyndir, stytt- ur og minni hlutir úr leir og postu- líni. Ríkey mun einnig mála eða móta verk eftir óskum hvers og eins. Vinnustofan verður opin á venju- legum verslunartíma. (F réttatilky nning) N-ísafjarðarsýsla: Kjörmannafundur vill hækkun fullvirðisréttar Á kjörmannafundi Stéttarsam- bands bænda sem haldinn var í N-ísafjarðarsýslu 16. júlí síðast- liðinn var samþykkt tillaga um að þau héruð sem alfarið byggja á sauðfjárrækt fái hækkun á fullvirðisrétti og að settar verði reglur um hámarksbústærð. Á fundinum var einnig samþykkt tillaga þar sem mótmælt var allri skattlagningu á matvæli úr íslensk- um framleiðsluvörum, og virðis- aukaskatti var mótmælt þar sem hann stóreykur skriffinnsku bænda og annarra smáframleiðenda. Flutningsmaður beggja tillagn- anna var Halldór Þórðarson. <o“ GS3£®=D=,[iöíi]0[o)©U®[l)0[RÍ]
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.