Morgunblaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988 fltargi Útgefandi UlfrlfKMfr Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: ' Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 70 kr. eintakið. Að lokinni verslunarmannahelgi Bandaríkin; Efnahagslífið stendui um, en Bush á undir l Dukakis hefur mikla yfirburði í skoðanakönnunum, en rey verið fljótur að skipta um skoðun eftir ÓLA BJÖRN KÁRASON Verslunarmannahelgin hefur skipað sér ótvíræðan sess sem mesta ferðahelgi ársins. Upphaflega átti þessi helgi að vera fríhelgi verslunarfólks en hún hefur þróast í nokkurs kon- ar fríhelgi allra vinnandi manna sem tilvalin er að nota til ferða- laga og útivistar. Fyrst og fremst hefur unga fólkið nýtt sér þessa helgi í þeim tilgangi. Síðasta helgi var þar engin und- antekning. Þúsundir íslendinga voru þá á faraldsfæti. 10 til 12 þúsund ferðalangar fóru um Umferðarmiðstöðina í Reykjavík, 4.700 flugu með Flugleiðum innanlands og tug- þúsundir til viðbótar ferðuðust með einkabifreiðum. Sem betur fer gekk umferðin stórslysalaust fyrir sig að þessu sinni um sjálfa verslunarmanna- helgina. Tvö banaslys fímmtu- daginn fyrir helgina skyggðu þó verulega á. Það verður að teljast einskær heppni að ekki fór verr en raun varð á. Hátt á annað hundrað ökumenn voru gripnir af lög- reglu ölvaðir við akstur og stoftí- uðu þar með lífí sínu og annarra í hættu. Þetta er veruleg aukn- ing frá því á síðasta ári en þá voru 58 ökumenn teknir fyrir ölvunarakstur um verslunar- mannahelgina. Þessi gífurlega fjölgun er verulegt áhyggjuefni, ekki síst í ljósi þess mikla áróð- urs sem rekinn hefur verið gegn ölvunarakstri að undanfömu í kjölfar hörmulegra slysa af hans völdum. í fréttum Morgunblaðsins af samkomuhaldi verslunarmanna- helgarinnar er sagt frá atvikum sem vel hefðu jjetað endað á hrikalegan átt. A Melgerðismel- um ók til dæmis ölvaður fimmt- án ára piltur bíl með stolnum númeraplötum um tjaldsvæðið. Hafði pilturinn ekið utan í tvö tjöld áður en lögreglan náði að skakka leikinn. Þama og í öðr- um tilvikum mátti litlu muna að stórslys hefði orðið og vekja atburðir af þessu tagi upp spumingar um hvers konar far- veg skemmtanahald um verslun- armannahelgina er komið í. Eins og venja er vom haldnar fjölmargar skipulagðar útihátíð- ir víða um land. Mesta fjölmenn- ið var á Þjóðhátíðinni í Vest- mannaeyjum um 8.000 manns. Á bindindismótinu í Galtalæk vom um 5.000,4.000 á Melgerð- ismelum þegar mest var, 2.000 í Atlavík, 1500 í Vík í Mýrdal, 1100-1200 á Kirkjubæjar- klaustri og 4-500 í Bjarkar- lundi. Þúsundir manna vom síðan samankomnir á ýmsum stöðum víðs vegar um landið þó þar hafí ekki verið neitt skipu- lagt samkomuhald. Margar þessar samkomur virðast því miður þjóna þeim til- gangi að leyfa unglingum, allt niður í gagnfræðiskólaaldur, að flykkjast saman í þúsundatali og drekka frá sér vit og rænu eina helgi á ári víðs fjarri föður- húsum. Á þessu em þó sem betur fer undantekningar og má í því sambandi nefna bindindismótið í Galtalæk, sem nú var haldið í tuttugasta og fyrsta sinn, og ýmsar aðrar fjölskyldusamkom- ur. Umgengni ferðamanna um landið er einnig vemlegt áhyggjuefni ekki síst um þessa miklu ferðahelgi. Hún er ljót lýsingin sem birtist í frétt í Morgunblaðinu á miðvikudag um viðskilnað samkomugesta á Laugarvatni. Þar söfnuðust saman þúsundir ungmenna um vérslunarmannahelgina, þó ekki hafí verið skipulegt samkomu- hald á staðnum, með þeim af- leiðingum að tjaldstæðið var líkast sorphaug þegar gestimir vom á brott. I fyrmefndri frétt Morgunblaðsins segir: „Að sögn Jónu Gísladóttur, sem rekur tjaldmiðstöðina á Laugarvatni, var engu líkara en ekið hefði verið yfír allar mslatunnur á svæðinu eða hoppað á þeim og raslinu úr þeim síðan dreift út um allt.“ Þurfti tuttugu manna hóp til að þrífa eftir tjaldgestina og lauk því verki ekki fyrr en seint á mánudagskvöld. Sú fyrir- litning á landinu og náttúm þess sem framkoma af þessu tagi ber með sér er hreint ótrú- leg en því miður ekkert eins- dæmi. Hvemig ætli ástandið hafí verið á stöðum þar sem stærri hópar vom samankomnir eða þar sem enginn var til stað- ar að tína upp að loknum gleð- skapnum? Það er vissulega íhugunarefni hvort ekki sé ástæða fyrir þá aðila sem standa að skipulagn- ingu útihátíða um verslunar- mannahelgina að endurmeta þær í ljósi reynslu síðustu ára. Oft em það ungmenna- eða íþróttafélög sem standa að há- tíðunum og ætti það að vera kappsmál slíkra félaga, er leggja áherslu á heilsusamlegt líferni, að reyna að beina hátíðahöldun- um í annan farveg. Atvinnuleysi hefur ekki verið minna í 14 ár, verðbólga ekki lægri í liðlega 8 ár, viðskipta- hallinn fer minnkandi og svo mætti lengi telja. Efnahagslífið í Bandaríkjunum virðist standa traustum fótum, þó ýmsir hag- fræðingar bendi á að samdrátt- ur sé óhjákvæmilegur á næsta ári. Þetta ætti að vera góður jarðvegur fyrir repúblikana og George Bush, varaforseta, í for- setakosningunum í nóvember næstkomandi. En skoðanakann- anir benda tíl að Michael Duk- akis, frambjóðandi demókrata, njóti meiri stuðnings en vara- forsetinn. Hvers vegna eru fleiri hlynntir Dukakis en Bush á sama tíma og fleiri hafa at- vinnu en í einn og hálfan áratug og verðlag er stöðugara en áð- ur? Ástæðumar era margar, sumar flóknar aðrar liggja í augum uppi. George Bush, varaforseti, hefur fengið að gjalda þess umróts og álitshnekkis sem Bandaríkjastjóm hefur orðið fyrir á undanfömum mánuðum og missemm. Það kann að vera að það sé af sem áður var þegar Bush naut þess að standa næstur Ronald Reagan og hlaut umbun fyrir það hversu hollur hanii var forsetanum. Nú virðist varaforsetinn líða fyrir árangursleysi stjómarinnar að koma Noriega frá völdum í Pan- ama og þau vandamál sem Edwin Meese, dómsmálaráðherra hefur skapað. íran-kontra hneykslið get- ur einnig orðið Bush dýrt, eins og slagorð demókrata „Hvar var George?“ getur til kynna. Bók Donalds Regans, fyrrver- andi starfsmannastjóra Hvíta hússins, olli miklum úlfaþyt í Washington, en þar kemur fram að Nancy Reagan, forsetafrú, hef- ur mikla trú á stjömuspámönnum og samkvæmt Regan hafa ráð stjömuspámanns haft áhrif á störf forsetans. Allt þetta hefur haft neikvæð áhrif á framboð varafor- setans og komið demókrötum vel. Dukakis næsti forseti? Skoðanakannanir benda til þess að Dukakis yrði næsti forseti Bandaríkjanna ef kosningar fæm fram nú. Tímaritið Newsweek, birti í síðustu viku niðurstöður í skoðanakönnun sem gerð var eftir að landsfundi demókrata lauk. Þar kom fram að Dukakis nýtur fylgis 55% kjósenda, en Bush aðeins 38%. Sameiginleg könnun stór- blaðsins The Wall Street Joumal og M?C-sjónvarpsstöðvarinnar er heldur ekki fagnaðarefni fyrir repúblikana. Samkvæmt henni em 51% kjósenda hlynntir Dukakis en aðeins 34% fylgja Bush að málum. En það em ekki þessar tölur sem þurfa að valda varaforsetan- um og fylgismönnum hans mest- um áhyggjum, heldur hversu margir kjósendur hafa neikvæðar hugmyndir um Bush. Síðamefnda könnunin bendir til að 46% kjós- enda séu neikvæðir í hans garð, en aðeins 44% jákvæðir. í byijun júlí vom þessar tölur 42% á móti 49%. Um 62% em hins vegar já- kvæðir í garð Dukakis og 18% hafa neikvæðar hugmyndir um hann. í könnun Joumal/NBC sem gerð var fyrir landsfund demó- krata vom sambærilegar tölur 58% og 25%. Dukakis tókst greini- lega að breyta ímynd sinni í hug- um margra kjósenda. Þessar tölur benda til að það verði erfitt fyrir Bush að vinna upp það forskot sem ríkisstjórinn frá MasSa- chusetts hefur í kapphlaupinu að Hvíta húsinu. Og það er fleira sem veldur repúblikönum áhyggjum en beinar óvinsældir varaforsetans. Skoð- anakönnun Joumal/NBC bendir til að 56% kvenna styðji Dukakis en aðeins 26% séu fylgjandi Bush. Áðumefnd könnun Newsweek rennir stöðum undir þetta, þar vom tölurnar 58% á móti 33%, Dukakis í vil. Stuðningur kvenna er mjög mikilvægur þar sem líklega kjósa allt að 10 milljónum fleiri konur en karlar í kosningun- um í nóvember næstkomandi. Stuðningur við Bush er hverf- andi meðal blökkumanna. Aðeins 10% segjast styðja hann en 81% ætla að kjósa Dukakis, samkvæmt könnun Newsweek. Flokkur Abra- hams Lincolns hefur á síðustu ára- tugum þurft að horfa upp á minnk- andi fylgi meðal blökkumanna. (Skoðanakannanir benda þó til þess að stuðningur ungra blökku- manna við Repúblikanaflokkinn fari vaxandi. Það em einkum ung- ir háskólamenntaðir blökkumenn sem greiða repúblikönum at- kvæði.) Fyrir seinni heimsstyijöld fylgdi meirihluti þeirra repúblikön- um að málum, en það hefur gjör- breyst. Bush hefur gert sér grein fyrir þessu og lagt áherslu á að ná til blökkumanna. Hann batt vonir við það að útnefning Lloyd Bentsens, sem varaforsetaefnis demókrata, yrði til að margir blökkumenn gerðust fráhverfir demókrötum þar sem gengið hefði verið fram hjá Jesse Jackson. Þær vonir virðast hafa bmgðist. Á brattann að sækja George Bush er ekki óvanur að hafa vindinn í fangið og hann seg- ist reyndar kunna vel við það. Bush tapaði fyrstu forkosningum repúblikana í Iowa og var spáð ósigri í New Hampshire. Ósigri sem hefði getað gert út um vonir hans að verða næsti forseti Banda- ríkjanna. En á nokkmm dögum sneri Bush dæminu við og vann mjög sannfærandi sigur í New Hampshire og þaðan var leiðin greið. Bush vonast til að sama verði upp á teningnum í nóvember. Og almenningur er fljótur að skipta um skoðun. Um miðjan mars síðastliðinn naut Bush mun meira fylgis en Dukakis, eða 52% á móti 40%. Um miðjan apríl var hlutfallið 45% á móti 43% Bush í vil og um miðjan maí snerist dæm- ið við, þá studdu 54% kjósenda Dukakis en aðeins 38% fylgdu varaforsetanum. Flestir stjóm- málaskýrendur em sammála um að Bush eigi eftir að sækja á og að kosningamar verði mjög jafnar og úrslitin ráðist jafnvel á innan við 100 þúsund atkvæðum, sem hefur ekki gerst frá því að Ric- hard Nixon var kjörinn forseti árið 1968. Reynslan sýnir að Dukakis verður að halda vel á spilunum ef hann á að bera sigur úr býtum í nóvember. Fyrir landsfund demó- krata árið 1976 var fylgi Jimmy Carters, frambjóðanda demókrata, 17%-stigum meira en Fords, þá- verandi forseta. Eftir landsfundinn sýndu skoðanakannanir að 33%- stigum fleiri kjósendur fylgdu Carter að máli en Ford. í kosning- unum vann Carter hins vegar Ford með aðeins 2,1%-stiga mun. Reynsla Ronald Reagans var svip- uð árið 1980, þegar hann bauð sig fram gegn Carter. Fyrir landsfund repúblikana var Reagan með um 3%-stiga fomstu, en eftir lands- fundinn var munurinn 16%, sam- kvæmt skoðanakönnunum. Reag- an hafði sigur í sjálfum kosningun- um með 9,7%-stiga mun. Þegar Reagan sóttist eftir end- urkjöri árið 1984 hafði hann mikla yfírburði yfir andstæðing sinn, Walter Mondale. Fyrir landsfund demókrata var munurinn 14%- stig, en Mondale tókst að vinna forskot Reagans upp og kannanir bentu til að aðeins 2%-stig skildu þá að, stuttu eftir landsfund demó- krata. Reagan vann hins vegar sannfærandi sigur í kosningunum. Liðlega 18%-stig skildu keppinaut- ana að. Varaforsetaefnið skiptir miklu Fréttaskýrendur henda stund- um gaman að því hve mikil áhersla George Bush, varaforseti Bandarl í haust, ávarpar kjósendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.