Morgunblaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 56
EIGNA
MTOUMIV
27711
Swrrir Kmtinsson, sölustjóri - Porieiíur Guðmundsson, sofum
PóróffurHaltóórsson, loQÍr.-Unnsteinn Beckhrt., símí 12320
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Skákmótid í Gausdal:
Landakotsspítali:
Von á sam-
komulagi
umrekstur
GUÐMUNDUR Bjarnason heil-
brigðisráðherra vonast til að
samkomulag náist í byrjun næstu
viku við stjórnendur Landakots-
spítala um rekstur spítalans.
Pulltrúar yfirstjórnar spítalans
áttu fund með ráðherranum í
gær, þar sem þeir gerðu grein
fyrir athugasemdum sínum.
Guðmundur sagði að hvorki hann
né fjármálaráðherra væru tilbúnir
til að breyta verulega því samkomu-
lagi sem þeir hafa náð um rekstur
spítalans. Það væri hins vegar sjálf-
sagt að skoða þau atriði, sem menn
teldu vera óframkvæmanleg eða
brytu í bága við áður gerða samn-
inga. „Ég hef rætt við fjármálaráð-
herra um þau áhersluatriði, sem
Landakotsmenn settu fram við mig,
og við urðum ásáttir um að hug-
Ieiða það yfir helgina hvort þar
væri eitthvað, sem við gætum sætt
okkur við án þess að um væri að
ræða verulegar efnisbreytingar eða
áherslubreytingar og vonumst jafn-
framt til þess að samkomulag tak-
ist á mánudag," sagði Guðmundur.
Þrír Islend-
ingar í 2. sæti
ÞRÍR af íslendingunum fjórum
sem nú tefla á skákmótinu í
Gausdal í Noregi eru í öðru sæti
með 3 vinninga hver. Nokkrir
skákmenn eru í efsta sætinu með
3,5 vinninga. íslendingarnir eru
þéir Margeir Pétursson, Jón
Garðar Viðarsson og Tómas
Björnsson. Fjórði íslendingur-
inn, Þröstur Arnason, er með 2,5
vinninga.
Alls tefla 80 skákmenn á mótinu
í Gausdal, þar af 5 stórmeistarar
og 12 alþjóðlegir meistarar. í fjórðu
umferð mótsins sem tefld var í
gærdag vann Margeir þýska al-
þjóðlega meistarann Schmitt Diel,
Jón Garðar gerði jafntefli við Dan-
ann Kaj Bjerring, Þröstur tapaði
fyrir Tékkanum Banes og Tómas
var með unna biðskák við Tor Krist-
iansen frá Noregi.
Margeir er stigahæsti skákmað-
• urinn á þessu móti. Hann hefur
unnið þijár af skákum sínum en
tapaði einni, gegn Norðmanninum
Austerstad. Um þá skák segir Mar-
geir að hann hafi fómað peði í byij-
» un en Norðmaðurinn hafi varist vel
og gert síðan út um taflið með
öflugum leik.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Atlaga að verðmætameti
Grindavík.
Áhöfnin á frystitogaranum Haraldi Kristj-
ánssyni HF 2 gerir nú tilraun til að slá 44
milljóna króna aflaverðmætamet Akureyrar-
innar EA 10 sem sett var fyrir skömmu.
Verðmæti aflans hjá Haraldi var í gær komið
í 40 milljónir. í vikunni fékk togarinn 35 tonna
hal af þorski í flottroll á Halamiðum. Trollið
sprakk á dekkinu þegar hífingu lauk og flóði
vænn þorskurinn spriklandi um allt dekk. Við
slíkar aðstæður eru höfð snör handtök og
frívaktin ræst út til starfa. Skipstjórinn Helgi
Kristjánsson lá ekki heldur á liði sinu en
hann sést hér til hægri á myndinni algallaður
að blóðga með mönnum sínum aflann sem
var á dekkinu og ekki fór niður í móttöku.
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra:
Fjárlög verði hallalaiis
Búum við útgjaldavanda en ekki tekjuvanda
ÞORSTEINN Pálsson, forsætis-
ráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins, segir að við
næstu fjárlagagerð beri ein-
dregið að stefna að því að fjár-
lög verði hallalaus. Þá sé það
höfuðatriði að ná jafnvægi á
fjárlögunum með þvi að draga
úr útgjöldum ríkisins í stað þess
að auka tekjurnar. Gerð fjár-
laga og lánsfjárlaga var til
umræðu á þingflokksfundi
sjálfstæðismanna á fimmtudag.
„Við leggjum mikið upp úr því
Örtröð í gjaldeyrisdeild-
um bankanna síðustu daga
MIKIL örtröð hefur verið í
gjaldeyrisdeildum hankanna
síðustu daga og er fólk einkum
að taka út ferðagjaldeyri sinn
þar. Sigurður Eiriksson yfir-
maður gjaldeyrisdeildar Lands-
bankans segir að þeir hafi haft
mikið að gera í þessari viku og
vikunni þar á undan.
Aðspurður um skýringar á þess-
ari miklu gjaldeyrisúttekt lands-
manna síðustu daga segir Sigurð-
ur að hann kunni ekki aðrar en
þá að þetta er aðeins fjögurra
daga vika og skömmu eftir mán-
aðamót. „Við höfum heyrt aðrar
skýringar en það er ekkert til að
byggja á eða láta hafa eftir sér,“
segir hann.
Sömu sögu er að segja frá gjald-
eyrisdeild Utvegsbankans. Þar
hefur verið óvenju mikið að gera
í þessari viku og hófst örtröðin
upp úr hádegi á fimmtudag. Þar
á bæ eru menn helst á því að þess-
ari örtröð valdi ótti um að gengis-
felling sé á næsta leiti.-
Hvorki í Landsbankanum né
Útvegsbankanum var hægt að fá
tölur um gjaldeyrissöluna í þessari
viku.
að fjárlögin verði afgreidd án
halla. Við núverandi aðstæður
hefur það verulega efnahagslega
þýðingu,“ sagði Þorsteinn.
„Ástæðan er sú að við erum að
glíma við viðskiptahalla og hátt
vaxtastig. Það er því mikilvægt
til að ná jafnvægi í efnahagslífinu
að ríkissjóður sé rekinn með jöfn-
uði.
Það má með nokkrum sanni
segja að á síðasta ári hafi vandi
ríkissjóðs verið tekjuvandi. Núna
má miklu fremur skilgreina hann
sem útgjaldavanda. Það er búið
að auka verulega tekjurnar og þá
verður ríkið að beita aðhaldi að
því er varðar útgjöldin ef endar
eiga að ná saman,“ sagði forsætis-
ráðherra.
Þorsteinn sagði að með samn-
ingum þeim, sem fjármálaráðherra
náði í gær við banka og verð-
bréfafyrirtæki, hefði tekist að
leysa innlenda lántöku ríkisins á
þessu ári. „Þessir samningar eru
mjög þýðingarmiklir að því er
varðar almenna peningamála-
stjóm í landinu og marka þátta-
skil í samkiptum fjármálaráðu-
neytis og peningastofnana. Með
þessum samningum hafa fjár-
málaráðherra og bankarnir farið
inn á nýjar brautir og þeir em því
merkur áfangi,“ sagði Þorsteinn.
ísfisksölur í Bretlandi:
Salaleyfðá
800 lestum
LEYFT verður að selja 400 lestir
af þorski og ýsu úr gámum í
Bretlandi vikuna 14. til 20. ágúst
nk., að sögn Kristjáns Skarphéð-
inssonar deildarstjóra í sjávarút-
vegsráðuneytinu.
Þijú skip mega selja afla sinn í
Bretlandi vikuna 14. til 20. ágúst,
þannig að gera má ráð fyrir að þá
verði seldar þar 700 til 800 lestir
af þorski og ýsu en sótt var um
leyfi til að flytja út mu
magn, að sögn Kristjáns.
mun meira