Morgunblaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 51
51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Fr íkirkj usöf nuðurinn-
má ekki við klofningi
Til Velvakanda.
Ég er orðinn sár og leiður út af
þessum ósköpum sem á ganga inn-
an Fríkirkjusafnaðarins. Síðast
skrifaði Einar Finnbogason alls
konar óhróður um sr. Gunnar
Bjömsson. Það er sama hvað þetta
blessaða fólk heitir sem þetta skrif-
ar. En ef þið fylgist með þessum
greinum þá em þetta eins og berg-
mál einnar greinar af annarri, eins
og sami maðurinn skrifi þær allar.
Skyldi það vera aðalstarf safnaðar-
stjómarinnar að heilaþvo safnaðar-
meðlimi?
Ég er búinn að hafa kynni af
þessum söfnuði um 48 ára skeið
og fylgst vel með gangi mála. Sr.
Ámi Sigurðsson fermdi mig og
síðan hafa þama verið margir
ágætir klerkar. Sr. Kristján Ró-
bertsson þjónaði þama í fjögur ár
en sagði þa'embætti sínu lausu.
Þá kvisaðist út, og ég hafði það
eftir góðum heimildum, að hann
þoldi ekki lengur við, en lofaði safn-
aðarstjórn að greina ekki frá ástæð-
um fyrir uppsögninni. En sr. Kristj-
án hefur varla gefið eilífðarheit og
sé þetta rétt trúi ég ekki að sá
ágæti prestur segi nú ekki sannleik-
ann. Það er hans skylda.
Fleiri góðir hafa gegnt þessu
brauði. Meðal annarra sr. Þorsteinn
Bjömsson, en því miður varð hann
heilsulaus allt of fljótt. Sr. Emil
Bjömsson er maður glöggur, enda
tók hann sína fylgismenn út úr
söfnuðinum beint á gaddinn, því
enga kirkjubyggingu áttu þeir þá,
en eignuðust svo friðsælt guðshús.
Slíkt vona ég að hendi ekki
Fríkirkjusöfnuðinn oftar, hann má
ekki við slíku.
Um galla sr. Gunnars ætla ég
ekki að fjölyrða, það era nógu
margir um það. En starfsvettvang-
ur hans innan safnaðarins hlýtur
að vera mjög erfíður. Lög, sém
safnaðarstjómin birti, hljóða eitt-
hvað á þá leið, að „æski safnaðar-
stjóm að prestur mæti á fund er
honum það skylt. Hann má náðsam-
lega bera fram tillögur, en rétt
hefur hann ekki til þess að fylgja
þeim fram með kosningu," (hefur
ekki kjörgengi innan safnaðarins).
Nú vil ég fá svar frá sr. Sigurði
Sigurðssyni, formanni Prestafé-
lagsins, hvort þetta tíðkist í öðram
kirkjum landsins. Fá svar frá hon-
um, eða biskupi ef sr. Sigurður
þorir ekki að svara því. Það er
þeirra skylda því ég veit að biskup
hefur fengið að fylgjast með emb-
ættisverkum sr. Gunnars. Ef
Prestafélagið þorir ekki að lagfæra
lög Fríkirkjusafnaðarins þá undrast
maður ekki að Kristur hafi látið
miskunnsama Samvetjann bjarga
manninum við vegarbrúnina, en
ekki prestinn, sem ekki mátti vera
að því. Vonandi era prestar hærra
skrifaðir hjá honum nú á 20. öldinni.
Þessar eijur milli sr. Gunnars og
organista skal ég ekki mikið segja
um. En ekki vora eijurnar milli
Sigurðar ísólfssonar, sem gegndi
organistastörfum um margra ára
skeið, og sr. Gunnars, sem sýnir
sig í því að eftir að hann hætti störf-
um var hann tíður gestur við mess-
ur hjá sr. Gunnari. Um samkomulag
núverandi organista og sr. Gunnars
veit ég ekki, en væri þó ekki hissa
þó öðram eins músíkmanni og sr.
Gunnari mislíkaði frammistaða org-
anistans. Ég hef aldrei heyrt óburð-
ugri kórsöng eftir að núverandi tók
við og kenhi það alls ekki kórnum
sjálfum, því þama era margar góð-
Kæri Velvakandi.
Ég drep niður penna til að segja
álit mitt á þeirri umfjöllun, sem
afreksfólk okkar íslendinga í íþrótt-
um fær á íþróttasíðum blaðanna og
í öðram fjölmiðlum yfirleitt.
Eram við sjálf að reyna að vega
og meta þetta fólk og bera það
saman hvað getu snertir?
Mér persónulega fyndist það eina
rétta vera það, að leyfa þessu fólki
að vera í friði. Það er í erfiðum og
stífum æfingum um þessar mundir.
ar raddir. En organistinn hefur
ekki vald á því, sem hann hefur
tekið að sér.
Fyrir nokkram áram varð mikill
listamaður að fara frá Dómkirkj-
unni, Ragnar Björnsson, og mun
það hafa verið í einhverri ósátt við
kórfélaga, því hann var nákvæmur
og strangur. En engum datt í hug
við það tækifæri að segja upp prest-
inum í stað organistans. Og karla-
kórinn Fóstbræður naut góðs af og
stóð uppi með perluna.
Já, þetta er orðinn alvarlegur
hlutur og safnaðarstjórnin verður
að fara að snúa sér að kristilegu
hugarþeli í mannlegum samskipt-
um.
Megi Guð gefa að söfnuðurinn
öðlist hans ljós.
Ásgeir H.P. Hraundal.
Og þó þetta fólk geri ekki í dag
það sem það kemur til með að gera
á Ólympíuleikunum þá er það eðli-
legt - en það virðast ekki allir skilja
það.
Sumir eiga og verða alltaf að
standa upp úr og era upphafðir of
hátt, oft á tíðum á kostnað annarra
íþróttamanna. Mér finnst mjög svo
óæskilegt að taka einhvern einn út
úr hópnum .og einblína á hann og
ætla honum að gera þetta og hitt.
Það er ósanngjarnt gagnvart þeirri
manneskju og ekki síður hinum,
sem einnig hafa unnið sér þátttöku-
rétt á Ólympíuleikunum ’88. Það
kostar heilmikið álag og erfiði að
ná því takmarki í hvaða grein sem
er.
Það er ljótt að draga fólk í dilka
og dæma löngu áður en úrslit era
kunn. Við vitum að allir gera sitt
besta þegar stundin rennur upp,
hinkram því þar til þá.
Enginn getur ætlast til einhvers
ákveðins árangurs 17. september
og mótsdagana þar á eftir. Og við
höfum nú reynslu af því er við send-
um fríðan hóp íþróttafólks á
Ólympíuleikana í Los Angeles 1984,
sællar minningar. Einar Vilhjálms-
son átti að standa sig manna best,
ekki rétt hjá mér? En viti menn,
hvernig fór? Það var annar íþrótta-
maður góður sem kom heim með
bronsið.
Geram ekki of háar kröfur og
spyijum að leikslokum.
Kærar kveðjur,
3250-6054-759.
Þessir hrlngdu . . .
Embættistakan ekki sýnd
beint
María hringdi:
„Hvers vegna var embætti-
stöku forsetans ekki sjónvarpað
beint? Nú eru íþróttir og hljóm-
leikar sýndir beint, en ekki emb-
áettistakan að nýafstöðnum kosn-
ingum. Þetta er ekki beint lítils-
virðing, en það er eins og fólki
komi þetta ekki við.“
Reiðhjóli stolið
Fyrir um það bil þrem vikum
síðan var Kalkoff drengjareiðhjól
tekið, þar sem það lá við
göngustíg við Stekkjabakka. Hjól-
ið er rautt að lit með BMX púðum
á stöng og stýri, skreytt með
límmyndum. Eigandinn, 7 ára
gamall drengur, skildi hjólið þar
eftir í stutta stund á meðan hann
fór yfír í Mjóddina og það var
horfíð þegar hann kom til baka.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
um reiðhjólshvarfið eru vinsam-
legast beðnir að hafa samband í
síma 76923.
Sólgleraugu í óskilum
Vönduð sólgleraugu í brúnleitri
umgjörð fundust fýrir utaif Do-
mus medica 3. ágúst síðastliðinn.
Upplýsingar í síma 686174.
Ólympíuleikarnir:
Spyrjum að leikslokum
Til sölu þessi glæsilegi M-Benz, ekinn 79.000 km,
sóllúga, sentrallæsing, sjálfskiptur, skoðaður á 10.000
km. fresti frá upphafi. Verð 1.490.000. Möguleiki á
skuldabréfi. Upplýsingar í síma 666560 utan vinnutíma.
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Oðinsgata
Samtún
Hverfisgata
63-115
Skúlagata
Laugavegur101-171
Sólheimar
Austurgerði
Stigahlíð 49-97
Skólavörðustígur
Birkihlíð
Armúli
Garðsendi
Laugavegur1-33
Drekavogur
Álftamýri,
raðhús
K0PAV0GUR
Þinghólsbraut
VESTURBÆR
Vesturgata 1-45
fWnrgitittíifetliilí
i | V
Metsölublað á hveijum degi! |