Morgunblaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988 íslenskt . , grænmeti a markaðinn Kuldarnir í júní töfðu fyrir sprettu, segja garðyrkjubændur Helga Teitsdóttir á Högnastöðum að senda frá sér á markað fallegar gulrófur og spergilkál. Sigurður Tómasson á Hvera- bakka i garði sínum. núna, það gerði kuldinn í vor," sagði Lilja Olversdóttir á Grafar- bakka en hún var að taka upp skínandi fallegar rófur ásamt manni sínum, Emil Kristófers- syni, og syninum, Óskari, þegar að var komið. „Við breiðum akrýldúk yfír allt, það er allt ann- að að hafa hann," bætti Lilja enn- fremur við. „Gulrófur hljóta að verða seinar til hjá þeim sem nota dúkinn ekki og eru að auki með köld garðlönd." Þá hafði fréttaritari einnig tal af kartöflubændum en þeir kváð- ust litið vilja segja um uppskeru- horfur. Spretta hefði verið léleg vegna kuldanna og úrkomunnar í júnímánuði. Þó væri góð sprett- utíð eins og er og ef ágústmánuð- ur og fyrrihluti september yrðu góðir ætti að nást meðaluppskera. - Sig. Sigm. ■ Syðra-Langholti. ÞEGAR fréttarritari Morgun- blaðsins leit til nokkurra garð- yrkjubænda á Flúðum og í ná- grenni til að f orvitnast um upp- skeruhorfur voru þeir i óða önn að undirbúa sendingar á græn- meti á markað í Reykjavík. Fyrst var rennt til Guðjóns Birgissonar á garðyrkjustöðinni á Melum. Hann sagði að nú upp á síðkastið hefði hlýnað og lagast mjög með uppskeruhorfur. Hann væri núna seinni að senda á mark- aðinn en í fyrra. Mest væri það kuldunum í júnímánuði að kenna. Af útigrænmeti er Guðjón aðal- lega með blómkál, hvítkál og kfnakál sem nýlega er farið að rækta og er vinsæl káltegund. Byijað var að senda héðan af svæðinu um 20. júlí. Það liti út fyrir meðaluppskeru. Þá ræktar Guðjón tómata í 900 fermetra gróðurhúsum. Uppskera á þeim hefði verið alveg í meðallagi en verðið hefði verið lágt, lægra en í fyrra. Þar að auki yrðu garð- yrkjubændur nú að bera hluta af söluskattinum. Þetta er allt of lágt verð, það er eina vonin að það lagist það sem eftir er af sumrinu ef þetta á að teljast þol- anlegt ár. Þau Jón Hermannsson og Heiga Teitsdóttir á Högnastöðum voru að ganga frá sendingu á gulrófum og spergilkáli en þau eru með sitt lítið að hveiju, eins og þau orðuðu það við fréttaritar- ann. Kuldinn f júnf hefði seinkað uppskerunni en nú væri vöxturinn að taka virkilega við sér. Sigurður Tómasson á Hvera- bakka tók í sama streng þar sem hann var að skera kál í garði sfnum. „Það eru vissar tegundir sem hafa dafnað vel núna með því að hafa akrýldúk yfír þeim,“ sagði Sigurður. Þetta verður allt boðið upp á grænmetismarkaðin- Þorleifur Jóhannsson á Laxárbakka við uppskerustörf. Lilja Ölversdóttir og Emil Kristófersson á Grafarbakka og Óskar sonur þeirra skera af gulrófum. um, við óttumst að verðið lækki. Það er erfítt með þessa ræktun hjá okkur, að hafa uppúr henni. Allur tilkostnaður hefur aukist mikið,. vinnulaun, áburður, um- búðir o.fl.“ Þorleifur Jóhannsson á Laxár- bakka var einnig í garði sínum ásamt sínu fólki við uppskeru- störf. Hann sagðist vonast til að þetta yrði meðalár í grænmetis- ræktuninni. „Júní var erfíður, það var bæði rok og kalt en mikils virði er að hafa garðlöndin heit en það er ylur í garðlöndunum nær alstaðar á þessu svæði,“ sagði Þorleifur. „Við sáðum með seinasta móti Moigunblaðið/Sigurður Sigmundsson Guðjón Birgisson og Helga Karlsdóttir á Melum að taka blómkálshöfuð í hús. Á gömlu dráttarvél- inni sitja Sigrún, Arnar og Aldís.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.