Morgunblaðið - 06.08.1988, Side 15

Morgunblaðið - 06.08.1988, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988 15 Birkimel, þannig að hlaupið taldist löglegt sem Meistaramót íslands. Tólf hlauparar hófu keppni, allt karlmenn og komust sjö þeirra í mark. Islandsmet var sett eins og að framan greinir. Veður var skap- legt fyrir langhlaupara, 6-10 stiga hiti, nánast alskýjað, sólskin með köflum og hæg norðangola. Ég minnist þess að hafa hlaupið í stutt- buxum og langerma bol á meðan áhorfendur voru klæddir peysum og úlpum. Hlaupnir voru fimm hringir eftir götum í Vesturbænum og út á Seltjamames, en það var heldur leiðigjamt að fara svo oft sömu leiðina. Árið 1982 var maraþonhlaupið svo haldið í Hafnarfirði á vegum FH. Þá var hlaupið frá Lækjar- skóla, tvisvar út á Álftanes og einu sinni út á Garðaholt, en endamark var ið hliðina á pósthúsinu milli Fjarðargötu og Strandgötu. Nítján vaskir hlauparar hófu keppnina, eingöngu karlmenn og níu þeirra komust í mark. Veður var gott, um 10 stiga hiti, sólskin og suðaustan- gola. Mig minnir að ég hafi léttst um 3 kg meðan á hlaupinu stóð. Sighvatur Dýri Guðmundsson úr ÍR sigraði á 2 klst. og 44 mín. Sigurð- ur P. stjómaði hlaupinu að þessu sinni en Sigfús Jónsson lét sér nægja að hlaupa 25 km. Þess má geta að 10 km. götuhlaup kvenna fór fram samtímis maraþonhlaup- inu og voru sumar kvennanna óán- ægðar með að fá ekki tækifæri til að keppa í maraþonhlaupi eins og karlmennimir. Það er ótrúlega stutt síðan að menn töldu að maraþon- Margir erlendir hlauparar koma til landsins til að keppa í Reykjavík- urmaraþoninu í ár. Meðal þeirra er Daniela Pavarini, þrítug kona frá héraðinu Reggio Emilia á Ítalíu. Besti timi hennar til þessa í fullu maraþoni er 2:59.15, sem er frábær tími. hlaup væri beinlínis hættulegt fyrir konur. Árið 1983 var Meistaramót ís- lands í maraþonhlaupi aftur haldið í Hafnarfirði og vom hláupaleiðin og veður svipuð og árið áður. Aftur bar Sighvatur Dýri sigur úr býtum og nú á enn betri tíma en áður, 2 klst. og 32 mín. Reykjavíkurmaraþon var svo haldið í fyrsta sinn 26, ágúst 1984 og hlupu þá 5 konur og 51 karl fulla maraþonvegalengd, 42,2 km. Síðan hefur Reykjavíkurmaraþon verið haldið á hveiju ári. Þátttaka og vinsældir þess hafa vaxið stöð- ugt, enda var valin sú leið að bjóða almenningi að taka þátt og hafa jafnframt hálft maraþon, 21.1 km. og 7 km. skemmtiskokk. Reykjavík- urmaraþon er jafnframt Meistara- mót íslands í maraþonhlaupi og árið 1987 var það Sighvatur Dýri sem enn varð fyrstur íslendinga, en engin íslensk kona tók þátt þá.“ Það sem hefur einkennt Reykjavíkurmaraþonið síðustu ár er vaxandi fyöldi útlendinga og er sannarlega fengui* að fá þessa af- reksmenn og konur sem komin eru út í hreina atvinnumennsku í hlaup- unum. Samkvæmt upplýsingum frá Ferðaskrifstofunni Urvali, sem sér um undirbúning að Reykjavíkurm- araþoninu nú sem áður, taka um 140 útlendingar þátt að þessu sinni, en til samanburðar má geta þess að þeir rétt fylltu hundraðið í fyrra. Síðustu ár hafa útlendingamir haft yfirhöndina í fullu maraþoni en það væri óneitanlega gaman að fá ís- lending í fyrsta sætið í þetta sinn. ítreka skal að frestur til að skrá sig í Reykjavíkurmaraþonið rennur út 15. ágúst og verður ekki tekið við umsóknum eftir það. Skráning í keppnina fer fram hjá Ferðaskrif- stofimni Úrval, Pósthússtræti 13. Afrekaskrá Islands í maraþonhlaupi KARLAR 1. Sigurður P. Sigmundsson FH, 2:19.46 í Berlín, 1985. 2. Ágúst Þorsteinsson UMSB, 2:29.07 í Manchester, 1983. 3. Sighvatur D. Guðmundsson ÍR, 2:32.37 í Hafnarfirði, 1983. 4. Steinar Friðgeirsson ÍR, 2:30.44 í Reykjavík, 1986. 5. Sigfús Jónsson ÍR, 2:38.29 í Windsor, 1978. 6. Jóhann H. Jóhannsson ÍR, 2:41.24 í Hafnarfirði, 1983. 7. Jakob B. Hannesson UÍA, 2:44.34 í Reykjavík, 1987. 8. Högni Óskarsson KR, 2:49.14 í New York, 1976. 9. Bragi Þ. Sigurðsson UMSK, 2:49.44 í Hafnarfirði, 1983. 10. Guðmundur Gíslason Á, 2:50.19 í Hafnarfirði, 1982. KONUR 1. Anna Kristjánsdóttir, KR 3:24.25 í Washington, 1981. 2. Fríða Bjamadóttir, UBK 3:25.00 í Boston, 1984. 3. Lillý Viðarsdóttir, KR 3:53.00 í New York, 1979. og okkur ber heilög skylda að halda honum í góðu lagi. Sá sem tekur þátt í maraþonhlaupi sér ekki eftir því. Stundum þegar þarf að taka á í vinnunni hugsar maður til maraþonhlaupsins og þá er eins og allt verði auðveldara viðfangs." • Ráðleggingar til maraþonhlaupara Að síðustu var Hafsteinn spurð- ur að því hvaða ráð hann gæfí þeim sem stunda eða hyggja á langhlaup. Hann kvað það mikilvægast að ástunda reglusemi, alls ekki að reykja og drekka áfengi í hófi. • Ef menn stefndu að ákveðnu marki yrðu menn að setja sér ströng skilyrði, annars næðist aldrei árangur. Það ætti við um maraþon eins og allt annað. Agi væri nauðsynlegur og skyldu menn borða hollan mat og stunda þrotlausar og reglubundnar æfing- ar. Heilsubótarskokk væri mjög gott fyrir þá sem vildu halda sér í góðu formi en ef menn stefndu á fullt maraþon yrði að hlaupa af fullum krafti flésta daga vikunn- ar. Hafsteinn lagði áherslu á'að hér á íslandi yrði að hita sig vel upp áður en lagt væri í hann, og um fram allt að reyna að klæða sig vel til þess að orkan fari ekki til spillis. Varast skyldi að fara of geyst í byijun, fylgjast ætti vel með því hvað líkaminn þyldi og láta álagið vaxa stig af stigi. „Það er nauð- synlegt að æfa af kappi ef ná á góðum árangri. Þó skal varast að ganga fram af sér, því slæm meiðsl geta hæglega eyðilagt keppnisferil efnilegra íþrótta- manna", sagði Hafsteinn að lok- um. Þegar stigið er frá borði getur maður ekki varist þeirri hugsun að nýji Viðeyjarbáturinn hljóti að vera í góðum höndum hjá þessum mikla íþróttamanni. Báturinn er með tvær vélar innanborðs og kemst 25 sjómílur á klukkustund. Hafsteinn hljóp 42.2 kílómetra á þremur klukkustundum og einni mínútu betur. Þá ætti ekki að bresta þolið. texti: Jóhannes Kári Kristins- son. SAAB CITROÉN Globusi Lágmúla 5

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.