Morgunblaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988 Morgunblaðið/Einar Falur Oryggishjálmur er talinn hafa forðað ökumanni vélhjólsins frá alvarlegum meiðslum. 14 ára ökumaður vélhjóls slasaðist UMFERÐARSLYS varð á mótum Hofsvallagötu og Sólvallagötu á tíunda tímanum í gærmorgun þegar sendibíll og vélhjól rákust þar saman. Ökumaður vélhjólsins, 14 ára og réttindalaus, ók vestur Sólvallagötu og lenti á sendibílnum sem ekið var norður Hofsvallagötu, sem er aðal- braut. Pilturinn fékk opið beinbrot á fæti og var gerð á honum aðgerð á slysadeild Borgarspítalans í gær. Að sögn lögreglu er talið víst að öryggishjálmur hafi forðað honum frá enn alvarlegri meiðslum. VEÐURHORFUR íDAG, 6. ÁGÚST1988 YFIRLIT í GÆR: Um 600 km suöaustur af Reykjanesi er 983 mb. lægð, sem þokast norðaustur. Hiti breytist fremur lítið. SPÁ: í dag lítur út fyrir suð- og suöaustan átt með skúrum á Suð- ur- og Vesturlandi en þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti þar 14—20 stig en 9—13 stig suðvestantil. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á SUNNUDAG: Suðaustlæg átt og úrkomulítiö norðan- lands en rigning eða súld í öðrum landshlutum. HORFUR Á MÁNUDAG: Þurrt og bjart veður norðantil á landinu en skúrir syðra. Hiti 8—12 stig sunnanlands en 13—20 fyrir norðan. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y. Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / 1 o Hitastig: 10 gráður á Celsíus \J Skúrir. 4 * V E' — Þoka = Þokumóða * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma # * * ’, ’ Súld OO Mistur —[- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma Akureyri Reykjavik hiti 12 9 veAur skýiaft úrkoma Bergen 12 skýjað Helsinki 1S skýjaft Kaupmannah. 13 skýjaft Narssarssuaq 8 skýjaft Nuuk 8 súld Ósló 14 iéttskýjaft Stokkhólmur 14 hálfskýjaft Þórshöfn 10 súld Algarve 21 þokumóða Amsterdam 15 þokumóða Barcelona 18 þokumóða Chlcago 28 mistur Feneyjar 17 helðskfrt Frankfurt 1S skýjaft Glasgow 15 mistur Hamborg 14 léttskýjaft Las Palmas vantar London 15 skýjað Los Angeles 19 léttskýjað Lúxemborg 14 léttskýjaft Madríd 14 heiðskfrt Malaga 22 lóttskýjað Mallorca 20 léttskýjaft Montreal vantar New York 26 heiðskfrt Parfs 14 skýjað Róm 24 þokumóða San Dlego 20 skýjað Wínnipeg 18 skýjað Bandaríkjaferð Þorsteins Pálssonar: Ræðir við Ronald Reagan í Hvíta hús- inu á miðvikudag FORSÆTISRÁÐHERRA Þor- steinn Pálsson hefur þegið boð Ronaids Reagans, forseta Banda- rikjanna að koma til Washington til viðræðna í næstu viku. Auk forsetans ræðir Þorsteinn Páls- son við Frank L. Carlucci, vama- málaráðaherra og utanríkis- málanefnd öldungadeildarþings- ins. Þorsteinn Pálsson heldur til New York á morgun, en heimsókn hans til Washington hefst þriðjudaginn 9. ágúst og stendur fram á laugar- dag. Jónína Mikaelsdóttir, aðstoð- armaður forsætisráðherra og Geir Haarde, alþingismaður héldu til Washington á fimmtudag til að undirbúa viðræðumar. Aðrir í fylgdarliði ráðherrans eru eigin- kona hans, Ingibjörg Rafnar, Guð- mundur Benediktsson, ráðuneytis- stjóri og Helgi Ágústsson og Þor- steinn Ingólfsson frá Utanríkisr- áðuneytinu. Forsætisráðherra og fylgdarlið hans byrja á því að fara til Andrews herflugvallarins á þriðjudag, en þaðan verður flogið til Washington þar sem John C. Whitehead, varaut- anríkisráðherra tekur á móti þeim. Fundur Ronalds Reagans og Þor- steins Pálssonar fer fram í Hvíta húsinu fyrir hádegi á miðvikudag og á eftir býður forsetinn til hádeg- isverðar til heiðurs Þorsteini Páls- syni. Síðar um daginn verður fund- ur forsætisráðherra og utanríkis- málanefndar öldungardeildar Bandaríkjaþings í þinghúsinu. Þor- steinn hittir Frank L. Carlucci, vamamálaráðherra í Pentagon á fimmtudag þar sem fundur þeirra verður haldinn. Forsætisráðherra fer einnig í skoðunarferð í Bandarísku heil- brigðisstofnunina og leggur blóm- sveig á leiði óþekkta hermannsins í kirkjugarðinum í Arlington. Ingvi Ingvason, sendiherra og frú Hólm- fríður Jónsdóttir halda móttöku til heiðurs Þorsteini á föstudag. Sérstök dagskrá verður fyrir frú Ingibjörgu Rafnar í ferðinni. For- setafrú Nancy Reagan bíður henni til tedrykkju í einkaíbúð forseta- hjónanna í Hvíta húsinu á miðviku- dag og eiginkona vamamálaráð- herra bíður til hádegisverðar á fimmtudag. Þá mun Ingibjörg m.a. skoða Kennedy listamiðstöðina, National Gallery of Art og National Museum of Women in the Arts. Brottför forsætisráðherra, eigin- konu hans og fylgdarliðs frá Was- hington verður laugardagsmorgun- inn 13. ágúst. Hvammstangi: Erfitt fyrir nýja að- ila að fá sláturleyfi - segir Niels Árni Lund BÆNDUR í Vestur-Húnavatns- sýslu, sem vilja taka við rekstri sláturhúss þrotabús Verslunar Sigurðar Pálmasonar á Hvamms- tanga, hafa ekki sótt um slátur- leyfi enn sem komið er. Sam- kvæmt upplýsingum frá land- búnaðarráðuneytinu verður nýj- um aðilum ekki veitt sláturleyfi á hús sem ekki hafa löggildingu. Framfylgt verður lögum frá Al- þingi um að ólöggildum slátur- húsum verði lokað og er slátur- höfum veittur aðlögunartími til tveggja ára til að lagfæra sín hús. Að sögn Egils Gunnlaugs- sonar, héraðsdýralæknis á Hvammstanga, vilja bændur reka sláturhúsið á undanþágu til nokkurra mánuða áður en þeir ákveða að ráðast í fjárfrekar breytingar á sláturhúsinu, en það skortir talsvert upp á að það sé lögum samkvæmt. Að sögn Níels Áma Lund hjá landbúnaðarráðuneytinu verður er- fitt fyrir nýja aðila að fá slátur- leyfí. Stefnt er að því að fækka sláturhúsum á landinu og verið er að móta reglur um úreldingarsjóð til að fækka sláturhúsum svo kom- ið verði betri rekstrarstöðu á slátur- húsin því þau standa nánast öll höllum fæti. Meðan unnið er að því að fækka þessum húsum er illveij- anlegt að veita nýjum aðilum slátur- leyfi, að sögn Níels Lund. Hann sagði ennfremur að forsenda fyrir nýjum leyfum væri sú að viðkom- andi hús séu löggild. Það verður ekki veitt undanþága til nýrra að- ila. Hins vegar verður þeim aðilum sem reka sláturhús á undanþágu gefinn kostur á aðlögun til tveggja ára til að koma húsunum í löggilt ástand. Að sögn Egils Gunnlaugssonar héraðsdýralæknis á Hvammstanga eru stóru sláturhúsin sem byggð hafa verið hentug til haustslátrunar en þau eru ónothæf í minni slátrun. Hann sagði ennfremur að hvað sem bollaleggingum hagfræðinga liði þá væra lítil sláturhús nauðsynleg til að sinna kröfum neytandans um ferskt kjöt. Um þá stefnu stjóm- valda að fækka sláturhúsum og hafa þau stærri, sagði Egill, að það stangaðist á við kröfur neytenda. Leifur kominn á leiðarenda GÖNGUGARPURINN Leifur Leópoldsson hefur nú um það bil lokið göngu sinni eftir hálend- inu endilöngu. Hann hefur þá gengið 620 kflómetra á 36 dög- um. Göngunni lýkur formlega á Amarstapa á Snæfellsnesi, kl. 12 á hádegi í dag, þar sem full- trúar frá stjóm Krýsuvíkursam- takanna mimu taka á móti Leifi. Tilgangurinn með göngu Leifs er sem kunnugt er að safna áheitum til styrktar Krýsuvíkursamtökun- um, en markmið þeirra er að koma á fót meðferðarstöfnun í Krýsuvík fyrir unglinga í vímuefnavanda. Að sögn Snorra Welding hjá Krýsuvíkursamtökunum hafa nú safnast um 3 milljónir króna, en til þess að hægt verði að ljúka við fyrsta áfanga skólahússins og tengja í það hitaveitu, þarf aðrar þijár milljónir. Söfnuninni er því síður en svo lokið þó Leifur sé kom- inn á leiðarenda. Krýsuvíkursam- tökin hafa sent út fjögur þúsund bréf t.il fyrirtækja og einstaklinga til að minna á söfnunina og á næstu dögum verður hringt í þá aðila og beðið um stuðning þeirra. Kvaðst Snorri vongóður um að takast mynda að ná settu marki og taka á móti fyrstu unglingunum í Krýsuvfk nú í vetur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.