Morgunblaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988
Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna:
Samdrátt-
ur í sölu á
nær öllum
mörkuðum
29% samdráttur
á Asíumarkaði
SAMDRÁTTUR hefur orðið á
sölu afurða Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna á öllum
mörkuðum ef Rússland er und-
anskilið fyrstu sex mánuði þessa
árs. Mestur er samdrátturinn á
sölunni til Asíu eða 29%. Banda-
ríkin fylgja fast á eftir en þar
var samdrátturinn 25,5%.
Þetta kemur fram í nýjasta
fréttabréfí SH. Þar segir að sam-
drátturinn á markaði í Asíu sé að
magni til 4.177 tonn miðað við
sama tíma í fyrra. Á markaði í
Bandaríkjunum hefur magnið
minnkað á þessu tímabili um 3.489
tonn. Á heildina litið er samdrátt-
urinn í útflutningnum tæp 8.000
tonn milli fyrstu sex mánuða þessa
árs og sama tíma í fyrra, eða
17,5%.
I framleiðslu SH húsanna hefur
hinsvegar orðið aukning í nær öll-
um bolfísktegundum. Á móti kem-
ur að loðnuvertíðin brást að þessu
sinni og er því heildarframleiðslan
í tonnum 6,8% minni nú en hún
var fyrstu sex mánuðina í fyrra.
Verulegur samdráttur hefur orðið
í framleiðslu á hörpuskel og humri
og 10% minna magn af rækju
hefur verið fryst nú miðað við
sama tímabil í fyrra.
Mest er aukningin í framleiðsl-
unni á karfa eða 29% en af öðrum
algengum botnfísktegundum má
nefna að þorskframleiðslan hefur
aukist um 15,5%, ýsa um 12,6%
og ufsi um 13%.
Heildarverðmæti útflutningsins
fyrstu sex mánuði þessa árs nam
4,6 milljörðum króna sem er um
300 milljónum minna en á sama
tíma í fyrra.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Framkvæmdir eru hafnar við umferðarmannvirkin við Miklatorg. Bústaðavegur verður brúaður og tengdur Snorrabraut yfir Miklubraut
sem liggja mun í sveig neðan við Tannlæknadeild Háskóla íslands og tengjast Hringbraut við Hljómskálagarðinn.
Miklatorg:
Grafið fyrir umferðarmannvirlgum
FYRSTI áfangi framkvæmda við
umferðarmannvirki þau sem fela
í sér framlengingu Bústaðavegar
i Öskjuhlíð og umferðarslaufu
við Miklatorg er nú langt á veg
kominn. Að sögn Þórðar Þ. Þor-
bjamarsonar, borgarverkfræð-
ings, vonast menn til að geta
opnað þessa tengingu haustið
'89, en framkvæmdir hófust nú
í vor.
Verið er að ganga frá kaupum á
húsum við Vatnsmýrarveg, þar sem
nú eru m.a. bflasölur, en þar sem
þau hús standa mun Miklabrautin
sveigja í átt að flugvellinum, suður
fyrir hús Tannlæknadeildar Há-
skóla íslands og Umferðarmiðstöð-
ina og tengjast Hringbrautinni á
móts við Hljómskálagarðinn. Fram-
hald Bústaðavegar, í Öskjuhlíðinni,
mun liggja neðan Slökkvistöðvar-
innar og síðan verður byggð brú
yfír nýju Miklubrautina, rétt sunnan
við Miklatorg, og hringtorginu
breytt f venjuleg gatnamót með ljós-
um. Bústaðavegurinn, nýji, samein-
ast svo Snorrabrautinni handan
brúarinnar.
Auk þeirra húsa sem þurfa að
víkja fyrir umferðarmannvirkjunum
sagði Þórður að þyrfti að umleggja
hitaveitustokkana sem liggja frá
Miklatorgi að Bústaðavegi, en
stokkamir í hlíðunum yrðu kyrrir á
sínum stað.
Landhelgisgæslan:
Engimi flugstjóri Gæslu-
þyrlunnar er á vaktinni
Fyrst og fremst
íslenskur flokkur
segir Þorsteinn Pálsson
„Sjálfstæðisflokkurinn á fyrst
og fremst íslenskar rætur. Er-
lendar skirskotanir til pólitískra
hugtaka eiga þvi ógjaraa við
hann. Þess vegna höfum við
ekki notað þetta „hægra“ hug-
tak,“ sagði Þorsteinn Pálsson,
forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins, er hann var
inntur álits á fréttum af þvi að
sjálfstæðiskonur hefðu fundað
með „öðrum hægrikonum" á
norræna kvennaþinginu í Ósló.
„Sjálfstæðisflokkurinn er og hef-
ur alltaf verið séríslensk borgaraleg
breiðfylking. Það er mjög óvfða
sem fijálslyndir flokkar erlendis
hafa náð þeirri stöðu,“ sagði Þor-
steinn. „Það stafar einkum af þvf
að Sjálfstæðisflokkurinn er sprott-
inn úr miðri islenskri þjóðfélags-
gerð. Hins vegar höfum við hvorki
látið uppruna okkar né pólitísk lítt
skilgreind hugtök hindra okkur í
því að taka þátt í alþjóðlegri stjóm-
málaumræðu og eiga fundi með.
erlendum stjómmálasamtökum
sem næst okkur standa. Slíkt er
eðlilegur hlutur í heimi aukinna
alþjóðlegra samskipta."
Áðspurður sagði Þorsteinn að
þótt sjálfstæðismenn hefðu löngum
talið sig andstæðinga „vinstri-
flokka" þýddi það ekki að flokkur-
inn væri hægriflokkur, heldur
Þorsteinn Pálsson
stæði valið einfaldlega milli þeirra
flokka, sem kysu að telja sig til
vinstri annars vegar og Sjálfstæðis-
flokksins hins vegar. „Við setjvun
okkur ekki einu sinni á pall frönsku
byltingarinnar," sagði Þorsteinn.
Eins og kunnugt er af mannkyns-
sögunni urðu stjómmálahugtökin
vinstri og hægri fyrst til á franska
þjóðþinginu fyrir um tveimur öld-
um, þar sem íhaldsmenn sátu
hægra megin í salnum en róttækir
vinstra megin.
Fundur um samninga þyrluflugmanna eftir helgi
FLUGSTJÓRI á þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem að sögn Gunnars
Bergsteinssonar forstjóra Landhelgisgæslunnar átti að mæta á vakt
á miðvikudagskvöld, hafði ekki enn mætt til starfa í gær. Ekkert
útkall hafði verið á þessu tímabili, þannig að ekki var vitað hvort
þyrlan væri kyrrsett af þessum sökum. Flugstjórinn sem um ræðir,
Páll Halldórsson, segist vera í sumarleyfi og því hafi hann ekki mætt
til starfa. Að sögn Asmundar Vilhjálmssonar hjá fjármálaráðumeytinu
mun fulltrúi fjármálaráðuneytisins funda ásamt fulltrúum þyrluflug-
manna og Landhelgisgæslunnar um samninga þyrluflugmanna eftir
helgi.
Gunnar Bergsteinsson forstjóri
Landhelgisgæslunnar sagði í samtali
við Morgunblaðið á fimmtudag að
flugstjórinn hefði ekki talið sig fær-
an um að fljúga eins og væri, en
ekki væri um að ræða neina stöðvun
hjá flugmönnum Landhelgisgæsl-
unnar, þar sem aðrir flugmenn hefðu
mætt til starfa. Þegar Gunnar var
inntur eftir því hvaða áhrif fjarvera
flugstjórans hefði ef neyðartilvik
kæmi upp sagði hann að á það yrði
að reyna ef að því kæmi.
„Það starfa þrír flugstjórar á þyrl-
unni, einn þeirra lauk sinni vakt á
þriðjudagskvöld og er því í þriggja
daga fríi, annar er í sumarleyfí og
sá þriðyi átti að mæta á vakt á mið-
vikudag, en hann hefur sem sagt
ekki séð sér fært að mæta til starfa."
Aðspurður sagðist Gunnar ekki
geta sagt neitt um hvort fjarvera
flugstjórans stæði í tengslum við
launamál. „Það hefiir ekki verið
gengið frá samkomulagi við flug-
menn Landhelgisgæslunnar á sama
hátt og gert hefur verið á milli Flug-
leiða og Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna, en hvort það er ástæðan
fyrir fjarveru flugstjórans get ég
ekkert sagt um.“
Morgunblaðið hafði samband við
Pál Halldórssoh flugstjóra og spurði
hann um ástæðuna fyrir því að hann
hefur ekki mætt til starfa.
„Þegar menn fá ekki launin sín
greidd þá mæta menn ekki til starfa,
í það minnsta geri ég það ekki.
Annars er ég að klára mitt sumarfrí
sem lýkur um næstu mánaðamót,
en þá fer ég í launalaust frí í eitt
ár. Það er raunverulega engin launa-
deila uppi þar sem búið er að semja,
heldur er um að ræða hreina vald-
níðslu, þvf við fáum ekki greiddar
umsamdar kjarabætur og á það við
alla flugmenn Landhelgisgæslunnar.
Við erum í Félagi íslenskra atvinnu-
flugmanna og aðalkjarasamningur
FÍA við Flugleiðir hefur gilt fyrir
flugmenn Landhelgisgæslunnar frá
upphafí. Samningamir sem gerðir
voru milli Flugleiða og FÍA nú í
sumar eru innan þess ramma sem
gildandi bráðabirgðalög segja til um
og eru því fullkomlega löglegir, en
við höfum ennþá ekki fengið greitt
samkvæmt þeim. Það er því kominn
hnútur í þetta eina ferðina enn því
miður," sagði Páll Halldórsson.
Flugslysið við Rey kj aví kur flugvöll:
Talið er líklegl að
hreyfill hafi stöðvast
hvað það er sem gerist. Ég veit að
svipað slys gerðist í Bandaríkjunum,
en ég hef ekki fengið nánari upplýs-
ingar um það,“ sagði Skúli. Rann-
sókn slyssins heldur áfram. í gær
fóru rannsóknarmenn til Keflavíkur
að yfirfara gögn í flugturninum þar.
Þar er um að ræða upptökur af sam-
tölum við áhöfn vélarinnar og út-
skrift af flugratsjá.
Að sögn annars fulltrúa
kanadíska fyrirtækisins Geoterrex,
eiganda vélarinnar, voru allir þeir
sem fórust mjög reyndir starfsmenn
með langan starfsaldur að baki og
flugmennimir þaulvanir.
„ATHYGLIN beinist nú einkum
að hreyflunum. Það bendir allt
til þess að annar hreyfillinn hafi
verið stopp,“ sagði Skúli Jón Sig-
urðarson hjá Loftferðaeftirlitinu
í gær, aðspurður um orsakir slyss-
ins. Hann hefur unnið að rann-
sókn á flaki kanadisku Casa 212-
flugvélarinnar sem fórst við
Reykjavíkurflugvöll þann 2. ágúst
síðastliðinn. Sérfræðingar frá
framleiðendum og frá kanadíska
loftferðaeftirlitinu hafa einnig
verið við rannsóknina, ásamt full-
trúum eigenda vélarinnar.
„Það er ekki svo gott að segja