Morgunblaðið - 06.08.1988, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988
Tilsögn í veiðimennsku
og golfi í Hvammsvík
Á útivistarsvæði Laxalóns í
Hvammsvík í Hvalfirði hefur
fólki frá 1. ágúst verið boðin
tilsögn í golfi og veiðimennsku.
Veiðikennslan er í höndum
Þrastar Elliðasonar, en John
Drummond annast golfkennsl-
una.
Að sögn Ólafs Skúlasonar,
framkvæmdastjóra Laxalóns, hef-
ur þess orðið vart í Hvammsvík
að fólk á öllum aldri hefur vantað
leiðbeiningar um veiðimennsku og
hefur Þröstur verið fenginn til að
. bæta úr því. Kennslan er bæði
hugsuð fyrir byijendur og þá sem
lengra eru komnir, t.d. áhuga-
menn um fluguveiði. Bókun í
veiðikennsluna annast verslunin
Veiðivon á Langholtsvegi.
Sú nýbreytni verður höfð við
golfkennsluna að eingöngu verður
um leikkennslu að ræða. Hún fer
þannig fram að John Drummond,
sem er atvinnukennari í golfí, leik-
ur 9 holur ásamt 1-3 meðspilurum
og að leik loknum verður hvert
högg fyrir sig rætt og hvort kylf-
ingurinn hafí tekið rétta ákvörðun
hveiju sinni. Bókun í golfkennsl-
una er í Grafarholti.
Mikil aðsókn hefur verið að
útivistarsvæðinu í Hvammsvík í
Þeir Þröstur Elliðason og John Drummond segja Fyrstu keppendurnir í golfmótinu, sem nú stendur yfir í Hvammsvík, frá vinstri:
fólki til um veiðimennsku og golf í Hvammsvík. Helgi Ólafsson, Kjartan L. Pálsson, Hilmar Karlsson, Peter Salmon, Sigurður Péturs-
son, Ragnar Ólafsson og Björgvin Þorsteinsson.
sumar og gjarnan verið biðlistar
eftir að komast í veiði þar. Á
golfvellinum stendur nú yfír golf-
mót þar sem keppt er um vegleg
verðlaun. Mótið er kallað „Anglo
Icelandic Masters". Það hófst 12.
júlf og lýkur 18. september. Leikn-
ar eru 36 holur og ákveða kylfíng-
ar sjálfír hvenær á fyrmefndu
tímabili þeir leika, 18 eða 36 hol-
ur í senn. Fyrir holu í höggi á
fyrstu braut eru verðlaunin bifreið
frá Sveini Egilssyni og hnattreisa
með Úrval fyrir sama afrek á
síðustu braut vallarins. Þeim sex
kylfíngum sem leika best í mót-
inu, með og án forgjafar, verður
boðið með Flugleiðum til London.
Efstir í mótinu 1. ágúst voru Sig-
urður Hafsteinsson, John Drumm-
ond og Viggó Viggósson án for-
gjafar, en Gunnlaugur Axelsson,
Helgi Ólafsson, Peter Salmon og
Ágúst Húbertsson með forgjöf.
Þröstur í flæðarmálinu ásamt nokkrum ungum veiðimönnum.
GENGISSKRÁNING
Nr. 145. 5. ágúst 1988
Kr. Kr. Toll-
Eln. Kl. 09.16 Kaup Sala gangl
Dollari 46,51000 46.63000 46,10000
Sterlp. 79,34800 79,55300 79,82200
Kan. dollari 38,58200 38,68100 38.17800
Dönskkr. 6,49350 6,51030 6,56460
Norsk kr. 6,81320 6,83070 6,85960
Sœnsk kr.* 7,21310 7,23170 7,25410
Fi. mark 10,46110 10,48810 10,51790
Fr. franki 7,31690 7,33580 7,37750
Belg. franki 1,17910 1,18220 1,18940
Sv. franki 29,58650 29.66290 29,87690
Holl. gyllini 21,85620 21,91260 22,04950
V-þ. mark 24,68030 24.74400 24,88190
ít. lira 0,03345 0,03354 0,03367
Austurr. sch. 3,51280 3,52190 3,54270
Port. escudo 0,30450 0,30530 0,30620
Sp. peseti 0,37640 0.37630 0,37660
Jap. yen 0,34906 0,34996 0,34858
Irskt pund 66,42300 66,59500 66,83300
SDR (Sérst.) 60,23700 60,39240 60,24530
ECU, evr.m. 51,46800 51.60080 51,80720
Tollaengi fyrir júlí er sölugengi 28. júlí
Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70.
Samkomulag Verðlagsstofnunar og gosdrykkjaframleiðenda:
Sanitas skrifar ekki undir
SANITAS hf sktífaði ekki undir
samkomulag sem Verðlagsstofn-
un freistaði að ná milli gos-
drykkjaframleiðenda. Reynt var
að ná samkomulagi um að fram-
leiðendurnir birtu ekki auglýs-
ingar sem fela í sér tilboð um
happdrættisvinninga, varning
eða fríðindi og brjóta í bága við
verðlagslög. Ragnar Birgisson
forstjóri Sanitas hf segir að þeg-
ar samkomulagið var upphaflega
kynnt, hafi Sanitas hf lýst sig
reiðubúið til að ganga að þvi.
Komið hafi hins vegar í ljós að
þegar átti að fara að skrifa und-
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 5. ágúst.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hœsta Lœgsta Meðal- Magn Heildar-
verö verð verö (lestir) verð (kr.)
Þorskur 39,00 39,00 39,00 2,080 81.120
Ýsa 97,00 60,00 89,83 4,987 447.993
Ufsi 15,00 13,00 14,97 4,343 65.035
Karfi 19,00 18,00 18,54 0,876 16.231
Steinbítur 28,00 28,00 28,00 0,105 2.940
Hlýri 23,00 20,00 22,68 0,846 19.185
Langa 21,00 21,00 21,00 0,092 1.933
Lúöa 185,00 160,00 165,66 0,152 25.263
Koli 43,00 25,00 40,96 1,375 56.319
Skötuselssk. 200,00 200,00 200,00 0,101 20.200
Samtals 49,22 14,957 736.217
Selt var aöallega úr Auðbjörgu SH. Nk. mánudag veröur aö
öllum líkindum seldur fiskur úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 39,00 15,00 37,48 20,673 774.792
Lúða 145,00 50,00 78,89 0,148 11.675
Karfi 20,00 20,00 20,00 0,150 3.000
Blálanga 15,00 15,00 15,00 0,173 2.595
Skarkoli 25,00 25,00 25,00 0,343 8.575
Samtals 37,26 21,487 800.637
Selt var úr Jóni Baldvinssyni RE. Nk. mánudag verða m.a. seld
20 tonn af þorski, 6 tonn af ýsu og 4 tonn af ufsa úr Krossvík
AK og frá Hraöfrystihúsi Grundarfjaröar.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 49,00 45,00 47,05. 1,729 81.325
Ýsa 76,50 35,00 71,94 5,846 420.587
Ufsi 17,00 7,00 15,71 12,152 190.949
Karfi 15,00 12,00 14,61 8,465 123.669
Steinbítur 26,50 11,00 18,91 0,665 12.578
Langa 15,00 10,00 14,76 1,023 15.095
Langlúra 15,00 15,00 15,00 0,122 1.830
Koli 26,00 26,00 26,00 0,030 780
Sólkoli 44,00 30,00 36,94 0,558 20.610
Lúöa 158,00 80,00 137,14 1,462 200.497
Grálúöa 10,00 10,00 10,00 0,131 13.010
Öfugkjafta 8,00 8,00 8,00 0,900 7.200
Skata 66,00 53,00 57,80 0,046 2.659
Skötuselur 221,00 221,00 221,00 0,011 2.431
Samtals 32,64 33,141 1 .081.550
Selt var aðallega úr Eldeyjar-Boða GK, Blika ÞH, Guðfinni KE
og Gnúpi GK. Nk. mánudag veröa m.a. seld 70 til 80 tonn af
þorski, 8 tonn af ýsu og 2 til 3 tijnn af öðrum tegundum úr
Aöalvík KE.
ir, hafi atriðum verið bætt inn
í, sem fyrirtækið getur ekki
skrifað undir. Sól hf og Vífilfell
hf undirrituðu samkomulagið.
Verðlagsstofnun mun íhuga að
falla frá kærum á hendur þeim
sem undirrituðu og koma til með
að standa við samkomulagið.
Að mati Verðlagsstofnunar hafa
framangreind fyrirtæki gripið til
ólöglegra auglýsinga. í frétt frá
stofnuninni segir m.a.: „Verðlags-
stofnun getur lögum samkvæmt
kært þessar ólöglegu auglýsingar,
en ákvað að fara þá leið að freista
þess heldur að binda endi á þær
með samkomulagi við gosdrykkja-
framleiðendur." Ennfremur segir
að Verðlagsstofnun ætlaði á móti
að falla frá kærum á hendur þeim,
sem hefðu að mati stofnunarinnar
brotið af sér með auglýsingum.
Komi til þess að verðlagsstofnun
kæri einhveija gosdrykkjaframleið-
endur er það mál um leið farið úr
höndum stofnunarinnar og verður
þá eftirleiðis í höndum ríkissak-
sóknara og dómstóla. Mál þetta er
til komið m.a. vegna verðlaunaveit-
inga fyrir að safna flipum af gos-
dósum og að finna merktar dósir.
Ekki hafa enn verið sendar nein-
ar kærur að sögn Gísla ísleifssonar
lögfræðings Verðlagsstofnunar.
Upphaflega var samkomulagið
bundið við að allir þrír aðilamir
skrifuðu undir, en að sögn Gísla
verður athugað hvort tilefni gefst
til að ákæra. Hugsanlegt er að þeir
aðilar sem skrifuðu undir vilji
standa við það. „Það er þeim til
hagsbóta og líka auðvitað neytend-
um sem við erum náttúrulega mikið
að hugsa um. Þetta er það dýrt
fyrirbæri að vera með þessar aug-
lýsingaaðferðir sem þeir eru með
og hveijir borga það aðrir en neyt-
endur?“ Gísli sagði að ef ekkert
breyttist í þessum auglýsingaað-
ferðum gosdrykkjaframleiðend-
anna, yrði næsta skref að kæra.
Ragnar Birgisson forstjóri Sanit-
as hf segir að ekki hafí verið boðið
upp á að skrifa undir sama sam-
komulag og upphaflega hafí verið
kynnt. „Við vorum beðnir um að
hætta, eins og stendur í fréttatil-
kynningu Verðlagsstofnunar, „...að
birta auglýsingar um framleiðslu-
vörur sínar sem fela í sér tilboð um
happdrættisvinninga, varning eða
fríðindi sem bijóta í bága við...“
þessi lög. Við samþykktum það og
vorum tilbúnir að skrifa undir það.
Síðan var talað við hina aðilana og
mér skilst að þeir hafí verið sam-
mála. Síðan þegar við fengum sam-
komulagið þá er búið að bæta inn
í það punktum sem við erum ekki
sáttir við. Annar er að við lofum
að forðast hæsta stigs auglýsingar
og auglýsingar sem fela í sér ósann-
gjaman samanburð. Það er erfítt
að fá það fram hvað felst í þessu
og við töldum að þetta væri ekki
það sem talað var um. Það hefur
aldrei verið dæmdur einn eða neinn
fyrir þessar sakir, það hefur allt
verið fyrir verðlaun og fríðindi. Hitt
atriðið var um hvemig ætti að
standa að því ef samkomulagið yrði
brotið. Ef Verðlagsstofnun teldi að
um brot væri að ræða myndi hún
birta það í fjölmiðlum. Það emm
við ekki tilbúnir að samþykkja. Ef
þú ert kærður þá er ekki þar með
sagt að þú sért sekur,“ sagði Ragn-
ar Birgisson. „Við höfum ekki feng-
ið á okkur neina kæm og það sem
við yrðum kærðir fyrir væri þá svo-
kölluð markaðskönnun Pepsi. Sam-
kvæmt okkar lögfræðingi brýtur
hún ekki í bága við lög. Við emm
tilbúnir til að skrifa undir sam-
komulagið sem upphaflega var tal-
að um.“
„Við hyggjumst ekki fara út í
neitt slíkt af fyrra bragði ef aðrir
halda að sér höndum,“ sagði Bær-
ing Ólafsson sölustjóri Vífílfells hf
aðspurður um hvort þetta sam-
komulag þýddi, að söluherferðum
væri lokið af þeirra hálfu. Hins
vegar kvað hann ljóst að auglýs-
ingar yrðu almennt með sama hætti
og verið hefur, enda brytu þær á
engan hátt í bága við lög.
Flugmálastj órn:
Nýtt upplýsinga-
kerfi um veður fyr-
ir innanlandsflug
NÝLEGA hefur verið tekið í
notkun tölvukerfi til söfnunar
og miðlunar veðurupplýsinga
fyrir flug. Flugmálastjórn og
Veðurstofan hafa unnið sameig-
inlega að uppsetningu kerfisins.
Flugvellimir í Reykjavík, Vest-
mannaeyjum, á Akureyri, Egils-
stöðum, Isafirði og Homafirði ráða
nú yfir tölvum sem tengdar em
tölvukerfi Veðurstofunnar um
gagnanet Pósts og síma. Aðgang-
ur að kerfinu gerir miðlun upplýs-
inga um veður og flugskilyrði auð-
veldari og öruggari. Fyrirhugað
er að þróa kerfið enn frekar, með-
al annars með því að skrá í það
upplýsingar um ástand flugvalla
svo eitthvað sé nefnt.
Ætlunin er að flytja miðstöð
kerfísins til Flugmálastjómar,
vegna mikils álags á tölvukerfi
Veðurstofunnar, og veita almenn-
um notendum aðgang að því.
(Úr fréttatilkynningu).
Leiðrétting
í frétt í blaðinu á fimmtudag
undir fyrirsögninni „Fjórir dósentar
í prófessorsstöður" misritaðist föð-
umafn eins þeirra. Gísli Már Gísla-
son var sagður Gunnarsson. Morg-
unblaðið biðst velvirðingar á þess-
um mistökum.