Morgunblaðið - 06.08.1988, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988
5
Hótel Örk:
Vonast til að ná til
einnar milljónar manna
Selfossi.
„ÉG Á von á að við náum til
markaðar sem nemur einni millj-
ón manna í Þýskalandi,“ sagði
Björn Lárusson hótelstjóri Hót-
els Arkar í Hveragerði um kynn-
ingarátak á Örkinni sem heilsu-
hótels. Nýlega var þar í skoðun-
arferð hópur þýskra lækna og
blaðamanna frá Hamborg og
Sjávarútvegsráðheira:
Opinber
heimsókn
annar hópur er væntanlegur á
næstunni frá Frankfurt.
Björn sagði að gera þyrfti endur-
bætur á aðkomunni að hótelinu og
setja þyrfti lyftu i það til að geta
tekið á móti þeim gestum sem höfð-
að væri til. Þetta væru framkvæmd-
ir upp á um fimm milljónir króna.
„Þetta er áhugaverður hópur sem
við erum að reyna að ná til. Hann
gefur meira af sér en venjulegir
ráðstefnugestir,“ sagði Bjöm. Hann
sagði og að auk breytinga á hótel-
inu kallaði tilkoma slíkra gesta á
uppbyggingu ýmissar afþreyingar-
þjónustu í Hveragerði, svo sem
skipulagðra gönguferða og fleira.
— Sig. Jóns.
Þýskir læknar og blaðamenn í heimsókn á Hótel Örk. Morgunbiaðið/Sigurður Jðnsson
til Noregs
HALLDÓR Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, fer í opinbera
heimsókn til Noregs á morgun,
sunnudag, í boði norska sjávarút-
vegsráðherrans, Bjame Mork
Eidem. Ráðherramir munu m.a.
skoða sjávarútvegssýningu í
Þrándheimi, að sögn Hermanns
Sveinbjörassonar aðstoðarmanns
sjávarútvegsráðherra.
Frá Noregi heldur Halldór Ás-
grímsson til Finnlands þar sem
hann situr Norrænu fiskimálaráð-
stefnuna dagana 15. til 17. ágúst
nk. en hún er haldin annað hvert
ár. Á ráðstefnunni mun Halldór
m.a. ræða við grænlenska og fær-
eyska fulltrúa um loðnuveiðar Fær-
eyinga við Grænland, að sögn Her-
manns Sveinbjömssonar.
Stykkishólmur:
Öllu starfs-
fólki sagt
upp hjá
Rækjunesi
ÖLLU starfsfólki Rækjuness hf.
í Stykkishólmi, um 80 manns, var
sagt upp um sl. mánaðamót þar
sem rekstrargrundvöllur fyrir-
tækisins er brostinn og það rekið
með 9,5% tapi, að sögn Sigurjóns
Helgasonar forstjóra Rækjuness.
„Verð á hörpudiski hefur fallið
úr 4,60 dölum fyrir pundið fyrir
18 mánuðum í 2 dali nú og verð
á rækju og fiski hefur einnig
fallið að undanförnu,“ sagði Sig-
uijón í samtali við Morgunblaðið.
„Það verður að endurskipuleggja
rekstur fyrirtækisins og fækka
starfsfólki vemlega ef stjórnvöld
fella t.d. ekki gengið á næstunni
um a.m.k. 10%,“ sagði Siguijón.
„Það þurfa hins vegar að vera ein-
hveijar hliðarráðstafnir með geng-
isfellingunni. Ríkið verður t.d. að
draga úr sínum umsvifum til að
minnka þenslu, sem veldur verð-
bólgu, og vextir verða að vera svip-
aðir og í nágrannalöndunum. Eigið
fé fiskvinnslufyrirtækja er nær
uppurið og danskir, skoskir, þýskir
og japanskir aðilar hafa t.d. lýst
áhuga á að kaupa allt að 49% hlut
í mörgum þeirra," sagði Siguijón.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
W
LOADALL LYFTARINN
Teygir sig hátt
Úviðjafnanlegir hæfileikar í starfi
Það er ekkert lát á nýjungunum hjá JCB. Nú
eru það stórvirkir lyftarar sem búa yfir
óviðjafnanlegum hæfileikum í starfi.
LOADALL hafa lárétta bómu með vökvaknúinni
framlengingu sem gefur möguleika á að færa
byrðina fram fyrir lyftarann u.þ.b. 7 metra og
lyfta henni upp í u.þ.b. 11 metra hæð frá jörðu
og allt upp í 15 metra hæð með kranaframleng-
ingu.
Lyftigetan er frá 2.01 að 4.51 í fullri hæð.
Þú getur valið um margar tegundir af
göfflum þ.á.m. gámagaffla, snúnings- og
hliðaríærslugaffla, kranabómu o.m.fl.
LOADALL fæst líka með fjórhjóladrifi
og búinn mismunandi vélastærðum.
Þótt nýir séu hafa LOADALL lyftararnir þegar
sannað ágæti sitt hér á landi á ólíkustu
vinnustöðum, bæði við sjávarsíðuna og við
virkjanir á hálendinu.
Hafið samband og leitið upplysinga.