Morgunblaðið - 06.08.1988, Side 17

Morgunblaðið - 06.08.1988, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988 17 Handrit, bækur og myndir á uppboði Bókavörðunnar BÓKAVARÐAN efnir til fjöl- breytts uppboðs í Templarahöll- inni við Eiriksgötu sunnudaginn 7. ágúst og hefst það kl. 15.00. Seldar verða bækur, m.a. allir Hæstaréttardómar frá upphafí, einnig úr öðrum gömlum dómasöfn- um, m.a. svokölluðum „ísafoldar- dómum", kennslubækur eftir Bjarna Benediktsson, gamlar fast- Hvammstangi: Nýr 70tonna rækjubátúr NÝR 70 tonna rækjubátur, Rósa, hefur nú bæst i fiskiskipaflotann á Hvammstanga. Báturinn er keyptur frá Noregi. Að sögn Friðriks Friðrikssonar, útgerðarmanns og eiganda Rósu, kemur báturinn í stað eldri 50 tonna báts, sem orðinn var úreltur. „Sá gamli fór í brennu á gamlárs- kvöld,“ sagði Friðrik. Styrkur fékkst úr úreldingarsjóði til kaupa á nýja bátnum, sem er sá íjórði með Rósunafninu í eigu Friðriks, en dóttir hans heitir Rósa. eignabækur, allt Almanak Þjóð- vinafélagsins frá 1875—1950, rit eftir Jón Bjamason Únítaraprest, pr. í Vesturheimi 1879, Annáll 19. aldar eftir séra Pétur í Grímsey, ýmsar bækur úr sögu Reykjavíkur, gamlar handritaprentanir og heil- margar bækur úr íslenzkum og norrænum fræðum, ýmsar frum- útgáfur eftir Halldór Laxness, m.a. Kvæðakverið í alskinnsbandi, ís- landsklukkan tölusett í 60 eintök- um. Þá verða seld bréfasöfn, m.a. frá Ásmundi Jónssyni skáldi frá Skúfs- stöðum, sem hann sendi til vina sinna frá Danmörku á stríðsárun- um, bréf sem fjalla um áform Kreugers eldspýtnakóngs að stofna hér á landi eldspýtnaverksmiðju með Kristjáni Torfasyni á Sólbakka við Önundarfjörð. Einnig verða boðnar til sölu nokkrar gamlar franskar tfzku- myndir frá upphafi 19. aldar; gaml- ar myndir og stungur frá Islandi, nokkrar myndir eftir Karl Einars- son Dunganon, hertoga af Sankti Kildu, mynd eftir Alfreð Flóka og e.t.v. fleiri myndverk. Uppboðs- gripimir verða til sýnis hjá Bóka- vörðunni á Vatnsstíg 4, Reykjavík, laugardaginn 6. ágúst kl. 11—15. (Fréttatilkynning) Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Hreinn Guðmundsson við málverk sitt af Stapadraugnum. Stapadraugur- ínn á málverki Vogum. Stapadraugurinn hefur oft verið ofarlega í huga þeirra sem átt hafa leið yfir Vogastapa og margar sögur verið sagðar um þennan draug. Hreinn Guð- mundsson listmálari í Vogum setti sig i stellingar ökumanns á leið um Reykjanesbrautina yfir Vogastapann á síðastliðnum vetri og málaði málverk af því sem fólk telur sig sjá er það verð- ur draugsins vart. Myndin var sýnd á sýningu „Bað- stofunnar" nýlega og vakti nokkra athygli þar sem margir könnuðust við sjónarsviðið og þurftu að segja frá eigin reynslu af ferð yfir Voga- stapa. Sýningargestum til fræðslu fylg- ir prentað mál með málverkinu, en þar stóð: „Vogastapinn var löngum frægur fyrir reimleika og ýmislegt annað dularfullt. í munnmælum tengist Stapadraugurinn tveimur framliðnum mönnum. í þjóðsögum Jóns Ámasonar segir frá vertíðar- manni, Grími að nafni, sem átti að hafa horfið til huldumanna í Grímshól á Vogastapa og birst ferðamönnum á leið um stapanq. Nýrri munnmæli tengja Stapa- drauginn við Stjána bláa, sjómann sem fórst á ferð sinni frá Hafnar- firði til Keflavíkur í desember 1922. Sagt er að ökumenn á leið yfir stap- ann hafi orðið varir við drauginn þar sem hann stóð á vegkantinum með hausinn undir hendinni, veif- andi. Sumir bílstjórar trylltust við sjónina og óku eins og fjandinn væri á hælunum á þeim til Keflavík- ur, en aðrir tóku draugsa upp í, uppgötvuðu svo eftir stuttan akstur að enginn var í bílnum og urðu þá óðir af hræðslu. Þegar komið var á áfangastað og málin athuguð betur lá „draugurinn" brennivíns- dauður í gólfinu aftur í bílnum. Nú orðið sést draugurinn með hausinn undir hendinni aldrei við vegkantinn og hvort það er því að þakka að hann er orðinn þreyttur á leiknum, eða því að draugatrúin er að mestu liðin undir lok fær fólk aldrei að vita.“ - EG LIKAR IFERÐIR Enn eru laus sœti í nokkrar sérferðir Úrvals í haust! Ítalía Langar þig að skoða Róm og Sorrento? En heimsœkja Kaprí, Vesúvíus eða Pompei með íslenskum fararstjóra? Ítalíuferð með Úrvali er í senn sólar-, skoðunar- og slökunarferð. Brottför 19. ágúst, uppselt. Aukaferð 7. september, örfá sœti laus. Vínuppskera Samfelld uppskeruhátíð í vínyrkjuþorpum í dölum Mósel og Rínar. Friðrik G. Friðriksson er fararstjóri. Fyrst og fremst ótrúleg stemn- ing og úrvals skemmtiferð. _ Brottför 21. september og 5. október. Indland Ævintýraferð, ólík öllu sem þú hefur reynt. Nýja Delhi skoðuð og síðan haldið til Himalajafjalla og margir helgustu staðir hindúa skoðaðir. íslensk og indversk fararstjórn allan tímann. Brottför 20. september. Mið-Evrópa Úrvals ökuferð um fegurstu svæði Mið-Evrópu s.s. Móseldal, Rtn- ardal ogSvartaskóg. M.a. komið til Rúdesheim, Heidelberg, Basel, Frei- burg, Lindau við Bodensee, Múnchen og Trier. Fararstjóri er Friðrik G. Friðriksson. 1 ’ ^ r Thailand jH r» • *»s Við skoðum Thailand undir öruggri fararstjórn Jóhannesar V Reykdal, byrjum í Bangkok og höldum síðan norður í land, til Chiang 1 • Mai og Chiang Rai. í ferðalok dveljum við í viku á hinni stórkostlegu Pattaya baðströnd. \ Brottför 25. október, örfá sœti laus. Ólíkar ferðir en allar þó Úrvalsferðir. FERDASKRIFSTOFAN URVAL - fólk sem kann sitt fag! Pósthússtrœti 13 - Sími 26900.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.