Morgunblaðið - 06.08.1988, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988
25
Reuter
Smátt upptökutæki
Japanska fyrirtækið Matsushita Electric kynnti fyrir skemmstu
nýja gerð myndbandsupptökutækja. Þessi nýju tæki eru smærri
og handhægari en þau sem nú eru í notkun meðal almennings
víða um heim. Linsa upptökutækisins er fest á höfuðið eins og
sést á myndinni. Myndbandsupptökutækið, sem er með innibyggð-
um skjá, verður sett á markað í október og mun væntanlega
kosta um 100.000 krónur.
Burma:
Mikill her-
viðbúnaður
í Rangoon
Rangoon. Reuter.
Hermenn gættu þess að ekkert
yrði úr mótmælum í höfuðborg
Burma, Rangoon, í gær en að
undanförnu hefur verið mikið
um mótmælaaðgerðir í borg-
Að sögn sjónarvotta þrömmuðu
vopnaðir hermenn um götur borg-
arinnar til að koma í veg fyrir að
fólk safnaðist saman til að mót-
mæla herlögum sem Sein Lwin,
hinn nýi leiðtogi landsins, lýsti
yfír fyrr í vikunni.
Á fimmtudaginn, þegar íbúar í
Rangoon komu saman víðsvegar
í borginni til að mótmæla herlög-
um , voru 25 borgarbúar teknir
höndum. Herlögum var einnig
mótmælt í Pegu, norðaustan við
Rangoon, á fimmtudag.
Mótmælendur í Rangoon hafa
m.a. krafíst þess að Sein Lwin
verði vikið úr embætti og að verð
á matvælum verði lækkað. Mót-
mæli fólksins virðast skipulögð en
ekki er vitað hvort hveijir standi
að baki þeim.
Stjómarandstæðingar segja að
að rúmlega 200 manns hafi látið
lífíð í óeirðum í Burma undanfama
fímm mánuði.
Skoðanakönnun í Bandaríkjunum:
Dukakís í fararbroddi í
öllum hlutum landsins
Bush ræðst á varnarmálastefnu demókrata
Lob Angelcs. Reuter.
SKOÐANAKÖNNUN, sem birt
var á fimmtudag, gefur til
Afghanistan:
Sovéskar
hersveitir
farnar frá
Kandahar
Moskvu. Reuter
Sovéskar hersveitir fóru frá
borginni Kandahar i Afghanist-
an í gær. Þar með er allt sov-
éskt herlið farið frá Suður-
Afghanistan, að sögn fjölmiðla
í Sovétríkjunum.
Moskvuútvarpið sagði að sov-
éskt herlið færi frá Kandahar og
Kanduz á föstudag og að það
tæki það sex daga að ná til landa-
mæranna. Að sögn sovéska dag-
blaðsins Krasnaya Zvezda eru þá
engar hersveitir eftir í Kandahar
eða annars staðar í Suður-Afg-
hanistan. Blaðið sagði einnig að
uppreisnarmenn úr röðum mú-
slima hefðu oft reynt að ná Kanda-
har á sitt vald. Yfirhéraðsstjórinn
í Kandahar sagðist þó ekki vera
svartsýnn og sagðist treysta því
að héraðið gæti vel séð um varnir
sínar.
Sovéski utanríkisráðherrann,
Edúard Shevardnadze, hóf í gær
viðræður við leiðtoga Afghanistan
um framkvæmd samkomulagsins
um brottflutning sovésks herliðs
frá Afghanistan.
kynna að Michael Dukakis, for-
setaframbjóðandi demókrata,
hafi meira fylgi en George
Bush, frambjóðandi repúblik-
ana, í öllum hlutum Banda-
rikjanna. Könnunin var gerð
dagana 13. maí til 24. júlí og
var henni að mestu lokið áður
en Dukakis var formlega út-
nefndur frambjóðandi demó-
krata á flokksþinginu í Atlanta.
Könnunin var gerð af Gallup
fyrir The Times Mirror-útgáfufyr-
irtækið. Á landsvísu fékk Dukakis
stuðning 51% aðspurðra en Bush
40%. Munurinn var yfír tíu af
hundraði á öllum svæðum landsins
að undanskildum suðaustur-ríkj-
unum þar sem hann var minni. í
niðurstöðum könnunarinnar segir
að kjósendur hallist fremur að
demókrötum eftir að upp komst
um vopnasöluhneykslið svonefnda
er háttsettir embættismenn Reag-
an-stjórnarinnar samþykktu að
selja írönsku klerkastjórninni vopn
gegn því að bandarískir gíslar í
Líbanon yrðu leystir úr haldi.
Hagnaðinum af vopnasölunni átti
síðan að verja til stuðnings
kontra-skæruliðum í Nicaragua.
Á fímmtudag réðst Bush harka-
lega á stefnu Dukakis og sagði
að frambjóðandinn hefði orðið ber
að linkind hvað snerti varnarmál.
„Sé litið á skoðanir hans í heild
merkja þær að horfið verði frá
þeirri þjóðareiningu sem verið hef-
ur verið um grundvallaratriði ut-
anríkisstefnunnar frá stríðslokum
... Forystuhlutverk Bandaríkjanna
á alþjóðavettvangi yrði á enda og
Truman-kenningunni (um að
spoma við útþenslu kommúnis-
mans) ásamt hugsjónum Johns
Kennedys yrði vísað á bug,“ sagði
Bush í ræðu er hann flutti í Tex-
as. Dukakis er á kosningaferðalagi
DOD
Kafbátur af Yankee-gerð undan strönd Bandaríkjanna.
Austurströnd Bandaríkjanna:
Sovéskir kafbátar
komnir á kreik á ný
SOVÉTMENN eru á ný teknir að senda eldflaugakafbáta af Yankee-
gerð upp að austurströnd Bandaríkjanna, að því er segir í frétt í
nýjasta hefti herfræðitímaritsins Jane’s Defence Weekly. Kafbáta-
ferðir þessar voru lagðar af á síðasta ári en þá dró verulega úr
flotaumsvifum Sovétmanna víða um heim.
Tilgangurinn með því að stað- Yankee-gerð í stað kjamorkueld-
í Kaliforníu og sagði fréttamönn-
um að hann vildi, eins og aðrir
Bandaríkjamenn, að vamir lands-
ins væru sterkar. Hins vegar
mætti ekki vanrækja hefðbundin
vopn og einblína á kjamavopn,
„Stjörnustríðs“-áætlunina og
MX-kjamaflaugar á jámbrauta-
vögnum. Hann tók það fram að
hann styddi þá slökunarstefnu, er
Reagan-stjómin framfylgdi nú í
afvopnunarviðræðum við Sovét-
menn.
setja kafbátana, sem bera lang-
drægar kjamorkueldflaugar, undan
austurströnd Bandaríkjanna er sá
að stytta flugtíma þeirra í hugsan-
legum stórveldaátökum og ógna þar
með stjómstöðvum kjamorkuher-
afla Bandaríkjamanna og lang-
drægum sprengjuflugvélum þeirra.
Heimildarmenn Jane’s Defence
Weekly í röðum embættismanna í
bandaríska vamarmálaráðuneytinu
kváðust telja hugsanlegt að ákveðið
hefði verið að hefja kafbátaferðir
þessar að nýju til að bæta upp missi
eldflauga á landi, sem kveðið er á
um í samningnum um upprætingu
meðal- og skammdrægra kjam-
orkueldflauga, sem undirritaður var
í Washington á síðasta ári. Sögðu
þeir að skipstjórum bandarískra
kafbáta af Trident-gerð hefði verið
falið að beina eldflaugum sínum að
hugsanlegum skotmörkum í Sov-
étríkjunum en áður hefði banda-
rískum kjamorkueldflaugum í Vest-
ur-Evrópu og langdrægum stýri-
flaugum verið miðað að þeim. Væri
því hugsanlegt að Sovétmenn hefðu
afráðið að grípa til sambærilegra
ráðstafana en að undanförnu hafa
sérfræðingar talið sig sjá ýms merki
þess að dregið hafí úr umsvifum
flota Sovétmanna víða um heim. Á
hinn bóginn er vitað að Sovétmenn
hafa unnið að því að koma stýri-
flaugum fyrir í kafbátum af
flauga og hefur ennfremur verið
litið á þær tilraunir sem bein við-
brögð við Washington-sáttmálan-
um.
Sovéskur Yankee-kafbátur sökk
undan austurströnd Bandaríkjanna
f októbermánuði árið 1986 eftir að
eldur braust út í kjölfar sprenging-
ar um borð.
Guatemala:
Misheppnuð
byltingar-
tilraun
Guatemala-borg. Reuter.
FORSETI Guatemala, Vinicio
Cerezo, skýrði frá því á fimmtu-
dag að þrír óbreyttir borgarar
hefðu verið handteknir fyrir að
hvetja herforingja til að bylta
ríkisstjórn Iandsins. Cerezo gerði
lítið úr atburðinum og talsmaður
hans tók skýrt fram að herforingj-
ar hefðu ekki átt aðild að málinu.
í maí var gerð tilraun til að bylta
stjóminni og handtók herinn þá sex
herforingja og refsaði flórum öðrum
fyrir aðild að uppreisninni. Nokkrir
óbreyttir borgarar tengdust einnig
málinu.
ISUMARRAÐSTEFNASINE19881
Sumarráðstefna SÍNE verður haldin laugardaginn
6. ágúst nk. kl. 14.00 á Hótel Borg v/Austurvöll.
Á fundinum verður starfið framundan skipulagt og
staðan í dag rædd.
Er mögulegt að leiðrétta framfærsluviðmiðanir LÍN,
og þá hvernig???
Dagskrá fundarins:
A. Kosning fundarstjóra og fundar-
ritara.
Skýrsla stjórnar og fulltrúa SÍNE
í stjón LÍN.
Endurskoðaðir reikningar fyrir
starfsárið teknir til
afgreiðslu.
Fréttir úr deildum.
Stjórnarskipti.
Brýnt er að sem flestir SÍNE
B
C.
D.
E.
F. Tillögur til ályktunar sumarráð-
stefnu afgreiddar.
G. Kosning fulltrúa SÍNE í stjórn LÍN
og sambandsstjórn ÆSÍ.
H. Kosning fulltrúa SÍNE í heildar-
samtök
námsmanna.
I. Önnur mál.
félagar mæti á ráðstefnuna.
Stjórn SÍNE