Morgunblaðið - 06.08.1988, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 06.08.1988, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1988 43 ' Minning: Helgi Ástvalds- son, Siglufirði Fæddur 17. mai 1957 Dáinn 26. júlí 19S8 Hann Helgi vinur okkar er dáinn. Fréttin um þetta hörmulega slys kom mjög við okkur sem til hans þekktum. Hann sem alltaf var svo kátur og hress þegar við hittumst, en nú sjáumst við víst ekki oftar hér á þessari jörðu. Hvers vegna spytjum við, hvers vegna koma fyr- ir svona hræðilegir atburðir, tveir ungir menn teknir í burtu svona snöggt frá fjölskyldum sínum og vinum. Svar við þessari spurningu fáum við ef til vill aldrei. _ Vinur okkar fæddist á Ólafsfirði 17. maí 1957 og var því aðeins 31 árs þegar kallið kom. Hann hét fullu nafni Siguijón Helgi og var sonur þeirra Sigríðar Sæland og Ástvalds Steinssonar. Helgi var næstelstur flögurra systkina. Jón Númi er elstur, þá kom Helgi, því næst Inga Sæland og yngst er Júlí- anna. Helgi ólst upp hér á Ólafs- fírði og átti marga félaga enda allt- af líf og fjör í kringum hann. Hann fann alltaf upp á einhveiju spenn- andi, stundum var áhættan heldur mikil sem tekin var en ævintýraþrá hans var óseðjandi. Helgi var mik- ill íþróttamaður, hér heima var hann í öllum íþróttum sem stundaðar voru og allstaðar náði hann góðum árangri. Strax sem bam bar hann af í fímleikum og sýndi víða um landið ásamt fleiri strákum héðan úr Ólafsfírði og voru þeir nefndir Litlu arabamir. Hann stundaði mik- ið skíði, keppti lengi í alpagreinum og um tíma bæði í göngu og stökki. Margar ógleymanlegar ferðir voru famar og eru þær oft rifjaðar upp í góðra vina hópi. Helgi var mikill tónlistarmaður; hann spilaði á gítar og hófst hans ferill, eins og margra, í skólahljómsveit en þá fór hann að spila á trommur. Hann spilaði í hljómsveit hér í bænum og svo nú seinni árin með Miðaldamönnum frá Siglufírði. Hann var duglegur til vinnu og stundaði sjóinn lengi, einn- ig vann hann við húsamálningu með honum Sigmundi Jóns. Eftir að hann fluttist til Siglufjarðar vann hann við löndun. Helgi giftist Helgu Kristinsdóttur og eignuðust þau tvö böm, Gísla Má, fæddan 1976, og Diljá, fædda 1982. Helgi og Helga slitu samvistir. Hann fluttist til Sigluijarðar ásamt sambýliskonu sinni, Tinnu Lámsdóttur, en þau eignuðust eina dóttur, Sigurlaugu, fædda 1985. Gísli Már bjó líka hjá þeim. Við þökkum Helga fyrir allar ógleymanlegu samverustundimar og sendum öllum aðstandendum hans okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu Helga vinar okkar. Jónína og Haukur Kveðjuorð: Elín Hallgrímsdóttir frá Grímsstöðum Fædd 2. febrúar 1893 Dáin 17. júlí 1988 Foreldrar Elínar voru: Hallgrím- ur Níelsson bóndi og hreppstjóri á Grímsstöðum í Álftaneshreppi og hans kona Sigríður Steinunn Helga- dóttir frá Vogi á Mýmm. Foreldrar Eiínar, Hallgrímur og Sigríður Steinunn, vom bæði af merkum ættum, en það yrði of langt mál að rekja ættir þeirra merku hjóna. Grímsstaðir vom í tíð Hallgríms Níelssonar og hans fjölskyldu mikið menningarheimili. Þar var ágætt bókasafn og sérstaklega man ég þar eftir ljóðmælum eldri skáld- anna, íslendingasögum, Sturlungu og ýmsum merkum ritum frá fyrri tíð. Allar vom þessar bækur í úr- valsbandi. Þá vom hlóðfæri til og söngur iðkaður, þegar tími var til. Hallgrímur Níelsson var á ýms- um sviðum á undan sinni samtíð og fljótur að eignast ýmis heimilis- tæki, sem þá vom varla til á öðmm bæjum og má þar nefna skilvindu, eldavél og verkfæri til jarðvinnslu. Hallgrímur gerði Grímsstaði að stórbýli, stækkaði túnið til muna og byggði upp öll hús jarðarinnar oftar en einu sinni. Það er næstum ótrúlegt, hversu miklu Hallgrímur kom í verk, því að tvisvar sinnum varð hann fyrir stóráföllum í sinni búskapartíð, fyrst brann gamli bærinn, sem var efst í gamla tún- inu, en þá byggði hann stórt timbur- hús neðar í túninu, en það brann til kaldra kola á gamlaárskvöld 1914. Vorið og sumarið 1915 Blóma- og 0 skreytingaþjónusta w ™ hvertsemtiléfniðer. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, Álfticimum 74. sími 84200 byggði hann núverandi steinhús, með tvöföldum steinveggjum, sem þá var lítt þekkt á þeim tíma. Hallgrímur og Sigríður Steinunn eignuðust alls sjö böm, fjóra syni og þijár dætur. Öll voru bömin vel greind og vel látin af öllum, sem þeim kynntust. Ég kynntist Elínu fyrst haustið 1913, en þá var ég nýkominn að Valshamri. Þá bjuggu á Valshamri Soffía, systir Élínar, og hennar maður Níels Guðnason, fósturfor- eldrar mínir. Á sama tíma bjuggu einnig á Valshamri foreldrar Níels- ar, Guðný Kristrún, systir Hallgríms á Grímsstöðum og henn- ar maður Guðni Jónsson. Þá var Elín ung heimasæta á Grímsstöð- um. Á næstu árum var Elín tíður gestur á Valshamri eða þangað til hún flutti alfarin til Reylqavíkur. Ég man alltaf eftir því, hversu hlý- lega hún talaði til mín og sagði mér þá oft ýmislegt, sem mér ung- um dreng þótti gaman áð heyra. Hún kom alltaf með ljós og yl í bæinn. Árið 1918 urðu þáttaskil í lífí Elínar. Það ár giftist hún frænda sínum, Oddi Jónssyni frá Álftanesi, en hann var systursonur Hallgríms á Grímsstöðum, sonur Mörtu og Jóns Oddsonar á Álftanesi. Elín og Oddur eignuðust þijár dætur, Ás- laugu, Soffíu Sigríði og Sigríði Steinunni. Elín og Oddur slitu sam- vistir eftir 17 ára sambúð. Eftir það bjó Elín með dætrum sínum á ýms- um stöðum, en laust fyrir 1960 fluttu þær mæðgur í nýbyggt rað- hús á Álfhólsvegi 12 í Kópavogi, þar sem þær undu vel hag sínum og kunni Elín vel að meta hið fagra útsýni, sem blasti við til norðurs og norðvesturs. Allar dætur Elnar stunduðu framhaldsnám eftir að skyldunámi lauk í bamaskóla, en unnu síðar við skrifstofustörf alla sína starfsævi. Það sem mér fínnst eftirtektarverðast í sambandi við Elínu Hallgrímsdóttur, er hversu orðvör hún var, þegar rætt var um menn og máleftii. Hún sagði aldrei annað en það sem henni fannst sannast og réttast, enda báru allir hlýjan hug til hennar. Oft leitaði ég til Elínar, þegar ég var að færa eitthvað í letur um menn, sem ég vissi, að hún hafði þekkt á sínum yngri ámm. Hún var stálminnug og óhætt var að treysta því, sem hún sagði. Það var mikið áfall fyrir Elínu og dætur hennar, þegar Soffía dóttir hennar dó eftir þungbær veikindi árið 1986. Síðustu æviár Elínar vom henni þung í skauti. Hún tapaði sjóninni smátt og smátt og líkamsþrótturinn hvarf. Síðustu tvö árin var hún á Hjúkmnarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Dætur hennar hugsuðu ávallt vel um móður sína, enda ávallt mjög kært á milli þeirra. Elín Hallgrímsdóttir lifði langa ævi, varð meira en 95 ára. Ég votta dætmm hennar og nánasta skyldfólki mína dýpstu samúð. Magnús Sveinsson frá Hvítsstöðum. t Eiginkona mín, móðir okkar og dóttir, HRAFNBORG GUÐMUNDSDÓTTIR, Hvassaleitl 48, Reykjavfk, verður jarðsungin fró Fossvogskirkju þriðjudaginn 9. ágúst kl. 15.00. Haraldur Valstelnsson og börn, Ragna Kemp. t Eiginkona mín, BETSY HELENE JÓNSDÓTTIR, lést 5. ágúst. Fyrir hönd aðstandenda, Kári B. Helgason. t Elsku drengurinn okkar, STEINGRÍMUR ÖRN STEINGRÍMSSON, HKðargötu 13, Neskaupstað, er látinn. Esther Hauksdóttir, Steingrímur Örn Steingrímssor Magnús Ólafsson, Ásdís Siguröardóttir. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GÚSTAF M. GUÐMUNDSSON, Réttarholtsvegi 93, lést í Borgarspítalanum 27. júlí sl. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auösýnda samúð. Sérstakar þakkir til lækna og starfsliðs á deild A-4 Borgarspítalans fyrir góða umönnun. Karítas Jónsdóttir, Aðalheiður Erna Gústafsdóttir, Magnús Þór Jónsson, Ragnheiður Gústafsdóttir, Gunnar Jón Gústafsson, Ásmundur Birgir Gústafsson, Þórdfs Pálsdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, GRÓU STEINUNNAR ÞÓRÐARDÓTTUR . frá Innri-Veðraá. Kristin R. Magnúsdóttir, Hinrik J. Magnússon, Matthildur Hafsteinsdóttir, Steingrimur Stefnisson, Sigrfður Samsonardóttir og barnabörn. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug viö fráfall SÓLEYJAR ÞORSTEINSDÓTTUR kaupkonu, Hjallabrekku 17. Sigrfður, Sofffa og Svava Ágústsdætur og fjölskyldur. Garðar Þorsteinsson og fjölskylda. t Þökkum innilega samúð og vináttu við andlát og útför ástkærs sonar, eiginmanns, föður, tengdafööur, afa og bróður, HÖSKULDAR STEFÁNSSONAR, Hjallabrekku 12, Kópavogi. Guðrún Össurardóttir, Sigurbjörg Björnsdóttir, Valbjörn Höskuldsson, Hrönn Önundardóttir, Stefán Rúnar Höskuldsson, Þröstur Þór Höskuldsson, Heiða Björg Valbjörnsdóttlr og systkini hins látna. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn biaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.