Morgunblaðið - 06.08.1988, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 06.08.1988, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 6. ÁGÚAT 1988 HAWDKNATTLEIKUR / SPANARMOTIÐ „Eðlilegur munur á liðunum" sagði Bogdan landsliðsþjálfari eft- irstórtap gegn Sovétríkjunum Steinþór Guðbjartsson skrifarfrá Spáni „ÞETTA er eðlilegur munur á liðunum. Það er ekki mögulegt að leika eins og Sovétmenn í 60 mínútur því þeir eru með 12 jafna leikmenn en við höfum ekki eins marga sterka," sagði Bogdan Kowalczyk, landsliðs- þjálfari í handknattíeik, í sam- tali við Morgunblaðið eftir að ísland hafði tapað stórt, 24:32, fyrir Sovétríkjunum í gærkvöldi á Spánarmótinu. Sovétmenn hafa ekki tapað leik síðan á úrslitum Super Cup- keppninnar í fyrra, er Vestur Þjóð- veijar sigruðu þá 20:19, og með sama áframhaldi eru þeir ekki líklegir til þess að tapa á næstunni,- í fyrsta leiknum hér á Spán- armótinu unnu þeir upp sex marka mun Austur-Þjóðverja og jöfnuðu í seinni hálfleik. Tvívegis í leiknum í Vitoria í gærkvöldi náðu þeir af- gerandi forystu eftir að leikurinn hafði verið frekar jafn. Það gerðist • um miðja hálfleikana, staðan var 8:8 er tíu mín. voru til leikhlés en breyttist í 12:8 á næstu 5 mínútum. Sá munur hélst að mestu út hálf- leikinn og staðan var 16:12 í hálf- leik. Besti kaflinn íslenska liðið barðist mjög vel og átti sinn besta kafla fyrri hluta seinni hálfleiks Náðu að jafna 19:19. Þá skoruðu Sovétmenn 20. markið og Kristjáni var síðan óverð- skuldað vikið af velli í 2 mínútur — fyrir ruðning. Við það breyttist leik- urinn, Sovétmenn margefldust og tíu mín. síðar var staðan orðin von- laus — 20:28. Á þessum tíma gerðu Sovétmenn flest markanna eftir hraðaupphlaup og vel útfært spil sem endaði . línusendingum og marki. Leikur íslenska liðsins var allt of sveiflukenndur. Sovéska liðsheildin var mun sterkari og sem dæmi um það má geta að 10 sovéskir leik- menn skoruðu en 6 íslenskir. Þar af gerði Alfreð 10. „Barðttu vantaði“ „Baráttuna vantaði í íslenska liðið, en við gerðum einnig mistök. Alfreð ■^gerði tíu mörk en á ekki að geta skorað nema þrjú gegn okkur undir eðlilegum kringumstæðum. Vam- armenn mínir tóku hann ekki nógu föstum tökum," sagði Evtushenko þjálfari Sovétmanna við Morgvn- blaðið eftir leikinn. Hið rétta er hins vegar að Sovétmenn réðu hreinlega ekki við Alfreð. Hann er einn líkamlega sterkasti leikmaður í alþjóða handknattleik í dag og mörg marka sinna skoraði hann af gífurlegri harðfylgni, jafnvel með mann „á bakinu" eftir að hafa brot- ist í gegn. Þreyta Það var annars greinilegt að leik- urinn gegn A-Þjóðveijum á fimmtu- daginn sat í mönnum því hann var mjög hraður og erfiður. Sovétmenn áttu hins vegar frí á sama tíma og komu því óþreyttir. Þetta er þó engin afsökun, Sovétmönnum höfðu yfirburði á öllum sviðum hand- knattleiksins og leika á miklu hærra plani en önnur landslið í dag. Islenska liðið lék lengst af 4:2- leikaðferð i sókninni — Geir og Þorgils voru þá báðir á línunni, en sú leikaðferð gekk hreinlega'ekki upp gegn þessum sterku mótheij- um. Homamennimir gerðu of mörg mistök og miðjumann vantaði til að stjóma spilinu. Mæta Svfum íslenska liðið hvílir í dag en síðasti leikur þess í mótinu verður á morg- un. Þá verður leikið gegn Svíum. Islands-Sovétríkin 24 : 32 Vitoria — Spánarmótið í handknattleik, föstudaginn 5. ágúst 1988. Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 2:5, 4:5, 4:6, 6:6, 6:7, 7:7, 8:7, 8:12, 9:12, 9:14, 10:14, 10:15, 11:15, 12:16, 16:16, 16:18, 18:18, 19:19, 19:23, 20:23, 20:28, 21:28, 22:29, 23:30, 24:31, 24:32. Mörk íslands: Alfreð Gíslason 10/3, Kristján Arason 4, Atli Hilmarsson 3, Jakob Sigurðsson 3, Karl Þráinsson 2, Þorgils Óttar Mathiesen 2. Varin skot: Einar Þorvarðarson 9, Brynjar Kvaran 1. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Sovétríkjanna: Atavin 6/3, Gopin 5, Tiumentsev 5, Cshepkin 4, Sharo- varov 3, Vasiliev 3, Valutskas 2, Tuchkin 2, Sviridenko 1, Novitski 1. Varin skot: Chumak 6/2, Doroshenko 5. Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Rauchfuss og Buchda frá Austur-Þýskalandi. Þeir dæmdu vel. Áhorfendur: 500. Alfreó Qíslason áttí enn einn stórleikinn. Sovétmenn réðu ekkert við þennan sterka leikmann — sem er einn sá líkamlega sterkasti í alþjóða handknattleik í dag. Bidasoa gerir Atla Hilmars- syni tilboð TVÖ spönsk félagslið hafa sýnt því áhuga á að fá Atla Hilmars- syni landsliðsmann í sínar rað- ir. Annað liðið hefur gert Atla tilboð. Það er, skv. áreiðanleg- um heimildum Morgunblaðs- ins, Ekhorriaga Bidasoa, sem er einmitt frá Irun, þar sem íslenska liðið hefur aðsetur meðan á Spánarmótinu stend- ur. Atli sagði í gær að tilboð félags- ins væri mjög gott, „en ég geri ekkert fyrr en ég kem. Ég þarf að ræða við Framara áður en ég ákveð neitt í málinu," sagði Atli í gær. Lið þetta, Ekhorriaga Bid- asoa, komst í undanúrslit Evrópu- keppni meistaraliða á síðasta keppnistímabili, en var slegið út af Alfreð Gíslasyni og félögum í Tu- sem Essen. Hitt félagið sem hefur áhuga á að fá Atla í sínar raðir er Granholes frá Valencia. Það er einmitt félagið sem ræddi við Júlíus Jónasson fyrr í vor. Atli Hilmarsson hefur fengið tilboð frá Spáni. Hann segist hafa áhuga á að leika ytra, en ætlar að íhuga málið eftir að hann kemur heim. KNATTSPYRNA / 2.DEILD Brottrekstur Haf- þórs afdrifaríkur FH-INGAR unnu stóran sigur á KS eftir að bezta manni Sigl- firðinga, Hafþóri Kolbeinssyni, var vikið af leikvelli í lok fyrri hálfleiks. Einum fleiri náðu FH-ingaryfirhöndinni íseinni hálfleiknum. Leikurinn var baráttuleikur og áttu bæði lið góð færi í fyrri hálfleik en Siglfirðingar þó fleiri. Hafþór Kolbeinsson kom KS yfir en Guðmundur Hilmarsson jafnaði úr víti. Síðan kom að þætti Friðgeirs Hallgríms- sonar dómara. Siglfírðingar voru afar óánægðir með tvo dóma hans í lok fyrri hálfleiks. Fyrst gaf hann Hafþóri Kolbeinssyni rautt spjald fyrir ljótan munnsöfnuð en hafði þó ekki sýnt honum gult spjald áður. KS skoraði síðan mark úr aukaspymu, sem Friðgeir dæmdi Frá Rögnvaldi ÞórOarsyni á Siglufirði af vegna þess að hann var ekki búinn að flauta er hún var tekin. Staðan var því 1:1 í hálfleik. FH-ingar áttu mun meira í seinni hálfleik. Kristján Gíslason og Jón Erling Ragnarsson skoruðu fyrir FH en Paul Friar minnkaði muninn í 3:2 úr víti. Pálmi Jónsson kom FH í 4:2 en Jón Erling var aftur á ferð- inni undir lok leiksins og innsiglaði sigur FH, sem var sanngjam eftir allt það sem á undan hafði gengið. KS - FH 2 : 5 (1:1) Mörk KS: Hafþór Kolbeinsson (17.), Paul Friar (69., víti). Mörk FH: Guðmundur Hilmarsson (37., víti), Kristján Gíslason (55.), Jón Erling Ragnarsson (63., 92.), Pálmi Jónsson (78.). Maður leiksins: Jón Erling Ragnars- son, FH. HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS Lelklr U j T Mörk u 1 T Mörk Mörk Stig FH 11 3 1 0 11:3 7 0 0 23:5 34:8 31 FYLKIR 10 5 0 0 16:8 1 4 0 11:9 27:17 22 V/ÐIR 11 3 1 2 13:8 2 1 2 10:10 23:18 17 ÍBV 10 4 0 1 18:9 0 1 4 5:12 23:21 13 ÍR 10 3 0 3 9:13 1 1 2 5:8 14:21 13 TINDASTÓLL 11 3 0 2 7:9 1 0 5 9:14 16:23 12 SELFOSS 10 1 2 2 5:7 1 2 2 7:10 12:17 10 KS 11 1 4 1 14:15 1 0 4 8:17 22:32 10 UBK 10 1 2 2 9:11 1 1 3 6:12 15:23 9 PRÓTTUR 1 10 0 2 3 7:12 1 2 2 11:12 18:24 7

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.