Morgunblaðið - 06.08.1988, Side 54
54
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 6. ÁGÚAT 1988
fatím
FOLX
■ ÞAU mistök urðu í mynda-
texta í frásögn af leik ÍBK og KA
í gær, að sagt var að Keflvíkingur-
inn á myndinni væri Ingvar Guð-
mundsson. Hið rétta er, að myndin
sýnir Gest Gylfason Keflviking í
baráttu við KA-manninn Friðfinn
Hermannsson.
■ KLAUS Berggren, danski
landsliðsmaðurinn er á förum frá
ítalska knattspyrnufélaginu Roma
til Lyngby í Danmörku. Ekki er
þó gert ráð fyrir að hann verði þar
í vetur heldur fari til einhvers er-
lends liðs í haust og segir Berg-
gren Aston Villa koma til greina
í því sambandi. Berggren, sem er
30 ára hyggst síðan ljúka ferlinum
hjá Lyngby, gamla liðinu sínu í
Danmörku.
■ RICARDO, fyrirliði brasilíska
ólympíulandsliðsins, hefur skrifað
undir þriggja ára samning við
portúgalska félagið Benfica. Fé-
lagið hefur fyrir þijá Brasilíumenn
í byijunarliði sínu, Mozer, Eldo og
Valdo. Ricardo lék áður með
Fluminense í Brasilíu.
> ■ ANTWERPEN í Belgíu hefur
komizt að samkomulagi við ítalska
knattspymufélagið Pisa um sölu
markaskorarans unga, Francis
Severeyns. Pisa féllst á að greiða
jafnvirði 1,1 milljónar dala fyrir
hann. Auitverpen fær einnig rétt
til þess að fá Severeyns til baka
eftir þijú ár.
■ BÚFISKS-opiðgolfmótverð-
ur haldið á Strandarvelli á Rang-
árvöllum á morgun, sunnudaginn
_ 7. ágúst. Leiknar verða 18 holur
með og án forgjafar. Allar nánari
upplýsingar fást hjá Golfklúbbi
Hellu.
■ PÓLSKI knattspymumaður-
inn Andrzej Rudy var í fyrradag
seldur frá Slask Wroclaw til GKS
Katowice fyrir 50 milljónir zloties,-
sem er andvirði tæplega 5,2 millj-
óna ísl. króna. Þetta er metupphæð
sem greidd hefur verið fyrir leik-
mann í innbyrðis viðskiptum pól-
skra félaga.
■ BRANN, liðTeits Þórðarson-
ar og Bjarna Sigurðssonar, fékk
heimaleik þegar dregið var í átta
liða úrslitum norsku bikarkeppninn-
ar. Mótheijar Brann verða þriðju
deildar liðið Rade. Moss, lið Gunn-
ars Gíslasonar leikur á útivelli
Segn Vaalerengen.
I UEFA MEISTARARNIR,
Bayer Leverkusen frá Vestur-
Þýskalandi og hollenska liðið PSV
Eindhoven sém er handhafi Ev-
rópubikarsins áttust við í vináttu-
leik á þriðjudag. Bayer Lever-
kusen sigraði í leiknum með einu
marki gegn engu. Það var pólski
leikmaðurinn Marek Lesniak sem
skoraði fyrir Leverkusen eftir mis-
tök hjá hollenska landsliðsmannin-
um Ronald Koeman í liði Eind-
hoven.
■ TVEIR tékkneskir knatt-
spymumenn, yfírgáfu lið sitt, Sla-
■v- via Praha, er þeir vom á keppnis-
ferðalagi í Vestur-Þýskalandi. í
síðustu viku. Þeir Ivo Knoflicek
og Lubos Kubik hafa í hyggju að
sælq'a um pólitískt hæli í Bret-
Iandi.
■ JUAN Arteche, fyrrum fyrir-
liði spænska knattspymufélagsins
Atletico Madrid, sem rekinn var á
dögunum hefur nú fengið nýjan
samning við félagið. Ástæður þess
að Arteche var rekinn voru þær
að Jesus Gil, forseti félagsins, var
ekki ánægður með hve Arteche
reykti mikið, og þá var hann einnig
ásáttur við hve miklum tíma hann
eyddi í skófyrirtæki sitt. Sættir
hafa nú tekist með þeim félögum
og Arteche mun snúa til baka með
nýjan samning, en hann missir fyr-
irliðastöðuna. Jesus Gil hefur ekki
í huga að endurráða hina tvo leik-
mennina sem hann gaf reisupas-
sann um leið og Arteche.
KNATTSPYRNA STULKNA
Gull & Silfurmótið
á Smárahvamms-
velli um helgina
Hátt í 400 þátttakendur úr 16 liðum
víðs vegar að af landinu
Um helgina verður haldið á
Smárahvammsveili í Kópavogi
Gull & Silfurmótið í knatt-
spyrnu í 3. og 4. flokki kvenna.
Mótið hefst kl. 11.00 fh. í dag
og verður leikið fram á sunnu-
dagskvöld.
Alls taka 350-400 stúlkur á
aldrinum 7-14 ára þátt í mót-
inu. Leikið verður í fjórum riðlum
í 3. flokki en í einum í 4. flokki.
Sextán íþróttafélög af öllu landinu
senda samtals 20 keppnislið til
keppni. Leikið verður á fjórum völl-
um samtímis, alls 60 leikir.
Eftir leikina í dag býður Bæjar-
stjóm Kópavogs keppendum upp á
kjúklinga og tilheyrandi í íþrótta-
húsinu Digranesi og síðan verður
kvöldvaka þar sem glens og grín
verður í fyrirrúmi.
Að loknum leikjum á morgun,
sunnudag, er öllum boðið upp á
Tommahamborgara og HI-C, og
síðan er verðlaunaafhending í
íþróttahúsinu Digranesi. Verðlaun
eru veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti í
báðum flokkum og sigurvegarar fá
farandbikar til varðveislu í eitt ár.
Besti leikmaður hvors flokks fær
viðurkenningu, ennfremur fá
markadrottningar afhentan bikar.
Þá fá allir keppendur áritað viður-
kenningarskjal fyrir þátttöku.
Þetta er í fjórða sinn sem þetta
mót er haldið og fer umfang þess
sífellt vaxandi. Fleiri og fleiri lið
koma til keppni og mörg lið hafa
byijað þátttöku í Islandsmóti eftir
að hafa komið á Gull & Silfurmótið.
Á fyrsta mótinu 1985 vom kepp-
endur um 60 en nú nálgast þeir
400. Þetta sýnir að áhugi stelpna
á knattspymu fer sífellt vaxandi.
Úr fróttatilkynningu frá Guili & Silfri og
knattspyrnudeild Breiðabliks.
Reykjavíkur maraþon
Fimmta Reykjavíkurmaraþonið fer fram 21. ágúst næstkomandi.
Vegalengdimar sem boðið er upp á em að venju þijár, 7 km.
hlaup, hálf-maraþon (21 km.) og maraþon (42. km.).
í fyrra hlupu tæplega þúsund manns, en í ár er stefnt að þvi að gera
hlaupið enn viðameira. Verðlaunapeningar verða veittir öllum þeim sem
ljúka hlaupinu til minningar um unnið afrek.
Skráning í hlaupið fer fram á Ferðaskrifstofu Úrvals fyrir 15. ágúst.
TENNIS / MORGUNBLAÐSMOTIÐ
Gunnar Ragnar Ólafsson sigraði í flokki pilta 13 ára og yngri á Morgun-
blaðsmótinu í tennis.
Jón Páll Gests-
son sigraði í ein-
liðaleik karla
JÓN Páll Gestsson, TBR, sigr-
aði í A-flokki í einliðaleik karla
á Morgunblaðsmótinu ítennis,
sem fram fór á tveimur nýjum
tennisvöllum í Laugardal nú á
dögunum. Hann sigraði Atla
Þorbjörnsson, Víkingi í spenn-
andi úrslitaleik eftir miklar
sviptingar.
M
Íúrslitaleiknum náði Atli fyrst
afgerandi forystu, vann fyrsta
settið léttilega, náði yfírburðastöðu
í öðm setti og hafði oftar en einu
sinni tækifæri til að gera út um
leikinn. Það tókst honum hins vegar
ekki en Jón Páll sýndi að hann ber
það nafn ekki að ástæðulausu og
náði að vinna upp forskotið og vinna
annað settið. Atli byijaði betur í
þriðja setti en eftir það naði Jón
Páll undirtökunum og sigraði. Hann
vann því samtals 2-6, 7-5, 6-4.
í undanúrslitunum sigraði Jón Páll
Kjartan Óskarsson, ÍK, frekar
óvænt en í hinum undanúrslita-
leiknum sigraði Atli Þorbjömsson
Amar Arinbjamar, Víkingi.
Margrót sterkust í kvenna-
flokki
Keppt var í fjómm öðmm flokkum.
í B-flokki einliðaleiks. karla léku
Víkingamir Jónas Björnsson og
Sigurður Ásgeirsson til úrslita. Jón-
as hafði betur og vann 6-3, 6-4.
í tvíliðaleik karla sigmðu Kjartan
Óskarsson, ÍK, og Einar Ásgeirs-
son.ÍK þá Jón Pál Gestsson, TBR
og Amar Arinbjarnar, Víkingi í
úrslitaleik, 6-3, 6-2.
Gunnar Ragnar Ólafsson, 10 ára,
varð ömggur sigurvegari í flokki
13 ára ogyngri. Hann sigraði Aðal-
stein Þorbergsson í úrslitaleik.
Margrét Svavarsdóttir, Víkingi,
sigraði með yfírburðum í einliðaleik
kvenna. Hún lék til úrslita við Dröfn
Guðmundsdóttur, ÍK, og vann 6-2,
6-1.
KEILA
Sigurður
sigraði á
sumarmóti
Sigga
frænda
Sigurður Ingason sigraði í
sumarmóti Sigga frænda í
keilu sem fram fór í Öskjuhlíð
fyrir skömmu. Sigurður vann
Helga Ágústsson í úrslitaleik.
í fyrsta sérmótinu sigraði Ársæll
Björgvinsson Alois Raschhofer í
úrslitum. Næsta og jafnframt
síðasta sérmótið verður haldið
laugardaginn 13. ágúst n.k. Verð-
laun fyrir fyrsta sætið í sérmótun-
um em utanlandsferðir með Am-
arflugi. Sumarmótin munu halda
áfram í keilusalnum í Öskjuhlíð
út ágúst alla fímmtudaga og
sunnudaga kl. 20.00.
Sanitas hefur ákveðið að styrkja
íslenska landsliðið í keilu með því
að gefa öll verðlaun í styrktar-
mót, Pepsí-mót, sem haldin em
alla þriðjudaga í Öskjuhlíð. Keppt
er í tveimur flokkum undir og
yfír 150 í meðalskori.
Slgurvegarar í keilumóti Sigga frænda þeir Sigurður Ingason og Ársæll
Björgvinsson.
iÞrimiR
FOLK
■ OPIÐ unglingamót í golfi,
Browning-mótið verður haldið í
fyrsta sinn á íslandi á morgun,
laugardag. Mótið fer fram á Hva-
leyrarholtsvelli. Keppt verður með
og án forgjafar. Skráning er í síma
53360.
■ DIEGO Maradona hefur sæzt
við Otto Bianchi þjálfara Napólí
og beðizt afsökunar á ógætilegri
gagnrýni sinni. Maradona fór fög-
mm orðum um brasilíska knatt-
spymumanninn Alemao, sem mun
leika með Napólí næsta vetur og
sagðist óska þess innilega, að þeir
yrðu góðir vinir. Skömmu áður
hafði Maradona gagmýnt kaupin
á Alemao. Maradona og Bianchi
létu mynda sig brosandi saman og
fór vel á með þeim eins og áður
þegar allt lék í lyndi.
■ BRASILÍUMENN gerðu jafn-
tefli 1:1 við ólympíulandslið Svía í
knattspymu um helgina. Brasilíu-
menn vom ekki sannfærandi í leik
sínum. Þeir komust yfir með marki
Jorginho í fyrri hálfleik en Jan
Hellstrom jafnaði þegar fímm
minútur vom til leiksloka. Um miðj-
an seinni hálfleik fengu Svíar víta-
spymu en misnotuðu hana.