Morgunblaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988
Frumvarp um af-
nám æviráðningar
f fjármálaráðuneytinu er nú unnið að gerð fjölmargra lagafrum-
varpa sem ætlunin er að leggja fram á Alþingi í haust. Meðai þeirra
er frumvarp um afnám æviráðningar opinberra starfsmanna. Meðal
annarra mála sem unnið er að má nefna undirbúning gildistöku laga
um virðisaukaskatt og vinnu við að hreinsa burt úrelt lög.
Að sögn Stefáns Friðfínnssonar,
aðstoðarmanns íjármálaráðherra,
eru Qölmörg frumvörp á vinnslustigi
í ráðuneytinu. Sumarfrí starfsmanna
og vinna við útreikninga vegna efna-
hagsaðgerða hefðu þó tafið það starf
töluvert.
Meðal þeirra frumvarpa sem ætl-
unin er að leggja fram í haust er
frumvarp um afnám æviráðningar
opinberra starfsmanna. Stefán sagði
það frumvarp vera á málefnalista
ráðuneytisins og ætlunin að leggja
það fram strax og þing kæmi saman
í haust. Töluverð vinna væri þó eftir
við gerð frumvarpsins.
Meðal annarrá mála sem stefnt
væri að að leggja fram nefndi Stefán
frumvörp um skattlagningu fyrir-
tækja og skattlagningu íjármagns-
og eignatekna auk frumvarps um
lífeyristryggingar. Nefnd á vegum
ríkisstjómarinnar hefði líka verið að
skoða samruna fjárfestingarlána-
sjóðanna og hugsanlegt væri að eitt-
hvað yrði gert í þeim málum í vetur.
„Við emm einnig að vinna að laga-
hreinsun líkt og viðskiptaráðuneytið
gerði á síðasta vetri og bókhaldslög-
in hafa menn áhuga á að skoða,"
sagði Stefán. Ætlunin væri að endur-
skipuleggja viðurlög við skattsvikum
og þar kæmu bókhaldslögin mjög við
sögu. Einnig væru þeir áhugamenn
um afnám ríkisábyrgða.
Loks sagði Stefán að mikil vinna
væri framundan vegna virðisauka-
skattsins. Búið væri að setja á lagg-
imar sérstakan vinnuhóp og færi
væntanlega allur veturinn hjá honum
í að undirbúa framkvæmd virðis-
aukaskattsins auk þess sem milli-
þinganefnd væri að fjalla um endan-
lega gerð laganna.
„Við emm með mikið af málum
sem fáir menn eiga að vinna á stutt-
um tíma. Hér verða menn ekki verk-
efnalausir alveg á næstunni," sagði
Stefán.
Hólmaborg
landar 1.200
tonnum
HÓLMABORG SU, skip Hrað-
frystihúss Eskifjarðar hf., kemur
til Eskifjarðar fyrir hádegi i dag
með um 1.200 tonn af loðnu sem
skipið fékk norðvestur af Vest-
fjörðum og verður byijað að
bræða hana í dag, að sögn Aðal-
steins Jónssonar forstjóra hrað-
frystihússins.
Hólmaborg tekur 1.430 til 1.440
tonn af loðnu en asdic-tæki skipsins
bilaði á miðunum. Gert verður við
tækið í dag og skipið fer aftur á
veiðar í kvöld. Loðnan er hins vegar
dreifð og stendur djúpt. Börkur NK,
skip Síldarvinnslunnar hf. á Nes-
kaupstað, fer á loðnuveiðar á morg-
un, miðvikudag og Jón Kjartansson
SU, skip Hraðfrystihúss Eskifjarðar,
fer einnig á loðnuveiðar fyrir næstu
helgi.
Morgunblaðið/Sverrir
Ingibjörg Thors borin tilgrafar
ÚTFÖR Ingibjargar Thors,
ekkju Ólafs Thors, fyrrverandi
forsætisráðherra og formanns
Sjálfstæðisflokksins, var gerð
frá Dómkirkjunni i gær. Ingi-
björg var dóttir Indriða Einars-
sonar, rithöfundar. Fjölmenni
var við athöfnina, sem var bæði
falleg og virðuleg, að sögn séra
Hjalta Guðmundssonar, dóm-
kirkjuprests, sem jarðsöng.
Leikin var tónlist sem hin látna
hafði valið; Fantasía í g-moll,
Adagio, Air á G-streng og Jesu
meine Freude eftir J.S. Bach og
Brúðarmars úr Draumi á Jóns-
messunótt, eftir Mendelssohn. Þá
voru sungnir sálmamir Ó, syng
þínum Drottni, Guðs safnar hjörð
og Vakna, Síons verðir kalla. Órg-
anisti var Hörður Áskelsson, Lov-
ísa Fjeldsted lék einleik á selló
og Mótettukórinn söng. Að at-
höfninni lokinni, báru kistuna
Birgir ísleifur Gunnarsson,
menntamálaráðherra, Matthías
Á. Mathiesen, samgönguráðherra,
Sigurður Bjamason, fyrrverandi
alþingismaður, Ásgeir Pétursson,
bæjarfógeti, Ragnhildur Helga-
dóttir, alþingismaður, Salome
Þorkelsdóttir, alþingismaður,
Davíð Ólafsson, fyrrverandi seðla-
bankastjóri, og Jónas Rafnar,
fyrrverandi alþingismaður.
Ljóðasamkeppni
í tilefni af 75 ára afmæli sínu 2. nóvember 1988,
efnir Morgunblaðið til verðlaunasamkeppni um ljóð.
Verðlaun verða veitt fyrir tvö kvæði, sem dómnefnd
telur bezt að þeim komin, tvö hundruð þúsund krón-
ur fyrir hvort kvæði. Þátttakendur sendi einungis
eitt kvæði hver, áður óbirt.
Skilafrestur er til 15. september 1988.
Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun til höf-
unda, en Morgunblaðið áskilur sér birtingarrétt á
ljóðunum gegn venjulegum ritlaunum.
Dómnefnd mun velja ljóðin, og skipa hana Rannveig
G. Ágústsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Kxistján Karlsson
og Matthías Johannessen.
Ganga skal frá handriti í lokuðu umslagi, merktu
kjörorði, en nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu,
ógegnsæju umslagi, merktu sama kjörorði og handrit.
Þegar úrslit hafa verið birt, má vitja handritanna á
ritstjórn Morgunblaðsins. Þá verða jafnframt afhent
óopnuð umslög með nafni og heimilisfangi, eins og
kjörorð á handriti segir til um.
JWiiTgitmWnblb
20 þús. tonna fram-
leiðsla eftir 20 ár
Grindavík.
í svæðisskipulagi Suðurnesja, meðaltali. Ef litið er fram til ársins
sem nú liggur fyrir sveitarsljórn-
um á Suðurnesjum, er áætlað að
í lok skipulagstímabilsins, sem
nær fram til ársins 2007, verði
ársframleiðsla fiskeldisstöðva á
svæðinu komin I 20 þús. tonn, en
það nemur verðmæti alls sjávar-
afla á Suðurnesjum á ári.
Nú hafa 7—8 stöðvar byijað rekst-
ur eða hafíð framkvæmdir a Suður-
nesjum, og miðast áform þeirra laus-
lega áætlað um 3.000 tonna árs-
framleiðslu fram til 1990. Um 100
manns starfa við þessar stöðvar að
Guðmundur Thorsteinsson
2007 er reiknað með að starfandi
verði 10 stöðvar, því enn hafa ekki
öll landsvæði, sem til greina koma
verið numin, og verður ársframleiðsl-
an komin í 20 þúsund tonn, sem mun
skapa 3-400 störf.
Ef af öllum áformum um fískeldið
verður gæti framleiðsluverðmæti
fiskeldisstöðvanna nálgast verðmæti
allra sjávarafurða á svæðinu. Sjávar-
afurðir eru hins vegar miklu meiri
að magni, eða 45—60 þúsund tonn
eftir því hve loðnubræðsla er mikil
hveiju sinni, en laxinn er miklu verð-
mætari afurð. - Kr. Ben
John Roger DeGroot
Létust á Reykjanesbraut
MENNIRNIR tveir, sem létust í
umferðarslysi á Strandarheiði á
laugardagsmorguninn, hétu Guð-
mundur Thorsteinsson, fertugur
leigubifreiðarstjóri til heimilis að
Dvergabakka 34 í Reykjavík og
John Roger DeGroot, 29 ára Hol-
lendingur, til heimilis að Sogavegi
126 í Reykjavík.
Guðmundur Thorsteinsson lætur
eftir sig eiginkonu og tvö börn. John
Roger DeGroot var ókvæntur og
bamlaus. Hann hafði verið búsettur
hérlendis um skeið og starfað við
garðyrkju.