Morgunblaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988 25 hleðslur. s vandamál á auðveldan hátt. mikla við hinar Forsetakosningar í Líbanon á fimmtudag: Aoun talinn líklegur eftirmaður Gemayels D /itt Beirút. Reuter. MICHEL Aoun, hershöfðingi, yfir- maður líbanska hersins, er af Fiskveiðistefna EB: Milljarð- ur í niður- greiðslur Brussel. Frá Kristófer M. Kristins3yni, fréttaritara Morgunblaðsins. SAMKVÆMT tveimur nýjum reglugerðum, sem samþykktar hafa verið í Brussel, verður unnið markvisst að því að styrkja sjó- menn til veiða á vannýttum stofn- um og fiskiðnaðinn til úrvinnslu og markaðssetningar á afurðum úr þeim. Sömuleiðis verða veittir styrkir til samstarfsverkefna við aðila utan EB, helst í þróunarlönd- unum, um fiskveiðar. Reglugerðunum er ætlað að hnykkja á áætlun sem samþykkt var árið 1986 og fjallaði um uppbygg- ingu og endumýjun í fiskveiðum og vinnslu innan EB. Annars vegar er stefnt að því að auka nýtingu og neyslu á vannýttum fiskstofnum, m.a. er talað um framleiðslu á súrimi (eins konar fískmauki) úr kolmunna. Jafnframt beinist átakið að aukinni og bættri nýtingu þeirra fisktegunda sem offramboð er á. Styrkir verða veittir til markaðsrannsókna, neyt- erdakannana og tilraunaframleiðslu. Jafnframt mun framkvæmdastjórnin styrkja þátttöku fyrirtækja innan EB í sjávarútvegssýningum og sömuleið- is uppsetningu slíkra sýninga í ríkjum bandalagsins. Þá er og gert ráð fyrir því að aðrar þær tillögur sem líklegar þykja til árangurs á þessu sviði verði teknar til greina. Framkvæmdastjórnin áætlar að um 260 milljónum íslenskra króna verði varið til þessa verkefnis næstu þrjú árin. Hin reglugerðin íjallar um sam- starfsverkefni fyrirtækja innan EB með aðilum utan bandalagsins. Ætl- unin er að beina þessu samstarfi sem mest að þróunarríkjunum. Til þessa verkefnis er áætlað að veija rúmlega einum milljarði íslenskra króna á næstu þremur árum. Styrkirnir verða miðaðir við að fiskiskip stundi veiðar á miðum utan bandalagsins í a.m.k. þijá mánuði í senn. Styrkurinn verð- ur miðaður við-stærð fiskiskipanna, þ.e. föst upphæð verður greidd á hvert tonn. Fyrir styrkveitingunum er sett það skilyrði að aðildarríkin leggi á móti sömu upphæð hvert með sínum skipum. mörgum talinn líklegur eftirmað- ur Amins Gemayel, sem forseti Líbanons. Þingið kemur saman til að kjósa nýjan forseta næstkom- andi fimmtudag og er Aoun sagð- ur njóta stuðnings bæði Sýrlend- inga og Bandaríkjamanna, sem talið er að muni vega þungt þegar þingmenn gera upp hug sinn. Aoun skipaði hemum í viðbragðs- stöðu um helgina vegna hótana kristilegra falangista um að þeir muni reyna að hindra eða trufla kosningamar ef erlend ríki reyni að hafa afskipti af þeim. Hermt 'er að falangistar og öfgasveitir hægri- manna séu andvígar því að Aoun verði kjörinn forseti þar sem hann njóti ekki stuðnings allra vopnuðu sveitanna, sem takast á í landinu. Mikil spenna ríkti í Líbanon í gær eftir að hemum var skipað í við- bragðsstöðu og var óttast að átök kynnu að bijótast út. Herinn hefur girt af götur í nágrenni þinghússins til þess að tryggja að þingmenn kom- ist til atkvæðagreiðslunnar. Samkvæmt stjórnarskránni verður næsti forseti Líbanons að vera krist- innar trúar. Hann verður kosinn af 76 þingmönnum af 99, sem hlutu kosningu í þingkosningunum árið 1972. Af kjörnum mönnum eru 22 látnir, en auk þess getur fráfarandi forseti, sem var kosinn á þing 1972, ekki kosið. Kosið verður leynilegri kosningu en enginn er formlega í kjöri. Reuter Líbanskir stjórnarhermenn á verði fyrir framan Mansour-húsið á græna beltinu í Beirút. Þingmenn hafa komið þar saman til funda frá því borgarastríðið braust út í Libanon árið 1974. Mandela ekkií lífshættu Höfðaborg. Rcuter. 4ELSON Mandela, suður-afríski ilökkumannaleiðtoginn, sem lagð- ír var inn á sjúkrahús fyrir nokkr- im dögum vegna sjúkdóms í lung- ím, er ekki sagður vera i ífshættu. Að sögn talsmanns Tygerberg- ijúkrahússins í Höfðaborg í gær hef- ir átt sér stað vökvamyndun við rinstra lunga, svokölluð bijósthimnu- íthelling. Tekið var sýni af lunganu Dg fundust engin merki um krabba- mein. Er líðan Mandela sögð eftir itvikum. Hann er nýorðinn sjötugur og hefur setið í fangelsi frá árinu 1964 fyrir meint áform um samsæri gegn minnihlutastjórn hvítra manna. Hleðslur sem gefa görðum, svo og umhverfi fyrirtækja og stofnana glæsilegt yfirbragð. Hæðarmismunur leysist auðveldlega með Stoðveggjaeiningum. Stoðve B.M. Vallá kynnir nýtt kerfi steinsteyptra ein- inga sem gefa garðinum þínum stílhreint og glæsilegt yfirbragð Með Stoðveggjaeiningum færð þú stílhreinan og fallegan garðvegg og leysir hæðarmismun auðveldlega. Einnig er hægt að útbúa stærri blómaker nteð Stoðveggjaeiningum svo og ýmsar aðrar skemmtilegar hleðslur. Stoðveggjaeiningarnar eru framleiddar úr járnbentri, veðrunarþolinni steinsteypu. Uþpsetning er einföld og festingar fylgja með. jakerfið * Óteliandi Óteljandi möguleikar á útfærslum Stoðveggjakerfíð býður upp á ótæmandi möguleika við lausn margvíslegra vandamála við skipulagningu garða og svæða í kringum einbýlishús, fjölbýlis- hús, fyrirtæki, stofnanir o.s.frv. Pantanasími er (91) 68 50 06. Hafðu samband við okkur.við munum með ánægju veita þér allar frekari upplýsingar. BM. VALLAÍ | Steinaverksmiöja _ Söluskrifstofa Breiöhöfða 3 Sími (91) 68 50 06 Aðalskrifstofa Korngörðum 1 104 Reykjavík Sími (91) 680 600
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.