Morgunblaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988 Islandsmót í hestaíþróttum á Varmárbökkum: Eitt glæsilegasta hestalþróttamótíd Reykjum. MENN voru sammála um að sjaldan eða aldrei hefði verið haldið Islandsmót í hestaiþróttum með öðrum eins glæsibrag og það sem Hörður í Kjósarsýslu hélt nú um helgina. þar hjálpaðist allt að, frá- bær völlur og keppnisaðstaða, veðurblíða alla dagana frá föstudegi til sunnudagskvölds. Mannval knapa í öllum greinum, toppgæðingar sem gerðu keppnina æsispennandi og vel skipað í sæti dómara. Völlurinn að Varmárbökkum er nýgerður eins og kunnugt er af fréttum og unnu menn nótt og dag við að Ijúka öllum undirbúningi og það tókst. Þátttaka var óvenju góð en um 114 knapar voru skráðir til leiks sem síðan dreifðust á hinar ýmsu greinar og aldursflokka. Nokkur þátttaka var utan af landi en flest- ir komu úr Fáki í Reykjavík, og _ flest verðlaunin fóru þangað. Einstaka knapar sköruðu framúr og má þar helst nefna Sigurbjöm Bárðarson, en hann sigraði í þrem greinum, þ.e. fimmgangi, hindrun- arstökki og gæðingaskeiði. Þá var hann kosinn íþróttaknapi ársins og það ekki í fyrsta skipti og verð- skuldað. Þá var árangur Sævars Haraldssonar athyglisverður en hann vann ijórgang fullorðinna og tölt en Álfur Þráinsson vann tvær greinar í unglingaflokki, fjórgang og tölt, og komst vel á blað í öðrum greinum. Þá var athyglisverður árangur hjá ýmsum öðrum knöpum s.s. Tómasi Ragnarssyni og Hinriki Bragasyni. Þeir feðgar Reynir Aðal- steinsson og Gunnar stóðu sig vel og náðu t.d. báðir fyrsta sæti hvor f sínum flokki í hlýðnikeppni. í bamaflokki er ekki úr vegi að minn- » ast á Sigurð Matthíasson sem sigr- aði í tölti í sínum flokki en einnig fímmgang í unglingaflokki og sýndi athyglisverða fagmannstakta. I bamaflokki vom þær dömurnar Edda Rún í fjórgangi og Theodóra Mathiesen í hlýðnikeppni sigurveg- arar hvor í sínum flokki. Ein aukagrein var tekin inní þetta Isiandsmót en það var 250 m skeið og var það vel til fallið til þess að auka fjölbreytni og miklu fremur til þess að gefa vekringum mótsins tækifæri til þess að ná sér í góða tíma á þessari vegalengd, enda mun það hafa verið megintil- gangurinn. Allur viðbúnaður var við hafður ef svo færi að met yrði sett + svo sem vindmælir og nægilegur ijöldi tímavarða á hvem hest en ekki varð af því í þetta skiptið. Einnig var aðstaða tímavarða og kappreiðadómara tæpast nógu góð til þess að hafa möguleika til að fá met viðurkennd. Þessi völlur nægir til kappreiða á 250 m vegalengd en ekki til iengri vegalengda og getur því ekki þjónað Harðarfélög- um á venjulegum hefðbundnum kappreiðum að svo komnu máli, en til stendur að lengja brautina. Áformað var að hafa aðeins tvo spretti, fyrri sprett á föstudags- kvöld og seinni sprett á sunnudag og var það gert en þó með nokkrum aukatilþrifum. Á föstudaginn voru menn svo keppnisglaðir að móts- nefnd þótti ekki annað fært en að hafa aukasprett í 250 m skeiði sem átti þó ekki að taka með í lokaúr- slitin nema ef til vill í niðurröðun ■ í riðla seinni sprettinn. Á sunnudaginn voru seinni sprettir og þá gerðist það að þeir hestar sem sátu eftir á ráslínu en þeir voru tveir, Gæi í 1. riðli og Börkur í 5. riðli, fengu sinn sprett eigi að síður og vom ekki dæmdir úr leik. Þetta féllst dómnefndin á að tilmælum mótsnefndar. Þessi 250 m sprettur sem aukagrein var heldur ekki tekinn svo hátíðlega því hann var hvergi reiknaður með í úrslitum mótsins og engin peninga- verðlaun vom í boði. Þrátt fyrir allt var tilganginum náð að gefa þessum afburða knöpum og hestum tækifæri til þess að ná góðum tíma á þessum frábæra velli. Var það mál manna að vökmstu hestamir röðuðu sér í efstu sætin enda þótt alltaf sé nokkur heppni með í spil- inu. Röðin var þessi: Börkur 22,01, Vani 22,75, Snarfari 22,80, Skelfír 23,30, Símon 23,41, Haukur 23,51 og Hmggnir 23,53. Aðrir hestar náðu ekki að komast undir 24 sek. en þessi árangur sýnir svo ekki er um að villast að keppnin en hörð og við eigum orðið marga snjalla vekringa og frábæra knapa að sjö hestar skuli ná slíkum árangri á sama móti. Að lokum má enn minnast á mótstaðinn sem er hreint. frábær og framkvæmd alveg til fyrirmynd- ar undir ömggri stjórn Valdimars Kristinssonar. Hinsvegar er rétt að það komi fram að svona mannaverk í toppklassa gerast ekki nema með samstilltu átaki margra og það em orð að sönnu. Formaður félagsins, Bjami Matthiesen, og stjóm Harðar ásamt öllum þeim sem að þessu stóðu má færa þakkir og ekki verð- ur auðvelt að halda næsta mót þeg- ar kröfurnar miðast nú við það besta sem gerist. Úrslit mótsins Úrslit urðu sem hér segir: Fullorðnir: Fjórgangur 1. Sævar Haraldsson ....54.40 á Kjarna (Fákur) 2. Vignir Siggeirsson ....50.49 á Blesa (Andvari) 3. Siguijón Gylfason ....52.36 á Hörpu (Gustur) 4. Sigurbjöm Bárðarson.... ....51.85 á Hjalta (Fákur) 5. Örn Karlsson ....50.49 á Golu (Andvari) Fimmgangur 1. Sigurbjörn Bárðarson.... ....55.20 á Höldi (Fákur) 2. Tómas Ragnarsson ....57.00 á Snúði (Fákur) 3. Hinrik Bragason ....56.60 á Vafa (Fákur) 4. GuðniJónsson ....55.00 á Atlasi (Fákur) Morgunblaðið/Bjami Sigurður V. Matthíasson sigraði í fimmgangi í flokki unglinga. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Sævar og Kjarni komnir á toppinn með sigri í tölti og fjórgangi. 5. ...91.47 2. 3. 2. 3. 2. 3. ...47.3 ...59.3 ...42.0 ..90.75 ..86.00 .vantar ....41 ....40 ....37 Morgunblaðið/Bjami Álfur Þráinsson átti góðu gengi að fagna er hann sigraði í tölti og fjórgangi auk þess að vera stigahæstur í unglingaflokki. 2. 5. Egill Þórarinsson.......53.00 á Kolu (íþróttad. Skagf.) Töltkeppni 1. Sævar Haraldsson........93.07 á Kjarna (Fákur) 2. Sigurbjöm Bárðarson....90.13 á Hjalta (Fákur) 3. Hinrik Bragason........89.33 á Skelmi (Fákur) 4. ÖmKarlsson.............88.30 á Golu (Andvari). Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Tómas Ragnarsson kemur hér áhyggjufullur í mark á Berki sem þarna fór á besta tíma sumarsins í 250 metra skeiði. Siguijón Gylfason...... á Hörpu (Gustur) Hindrunarstökk 1. Sigurbjöm Bárðarson.... á Hæringi (Fákur) Barbara Meyer........... á Sólon (Fákur) Reynir Aðalsteinsson.... á Stjömublakki Gæðingaskeið 1. Sigurbjörn Bárðarson... á Snarfara (Fákur) Reynir Aðalsteinsson.... á Randveri (Faxi) Sigurður Marínusson.... á Glaumi (Fákur) Hlýðnikeppni B 1. Reynir Aðalsteinsson... á Stjömublakki Maaike Burggrafer....... á Fálka (Fákur) Sigurbjöm Bárðarson..... á Hæringi (Fákur) Unglingar: Fjórgangur 1. Álfur Þráinsson........ á Rökkva (Fákur) Halldór Viktorsson...... á Herði (Gustur) Edda SólveigGísladóttir.. á Janúar (Fákur) Hjömý Snorradóttir...... á Létti (Fákur) Ingibjörg Guðmundsd..... á Stíganda (Fákur) Fimmgangur 1. Sigurður V. Matthíasson . á Dagfara (Fákur) Hjömý Snorradóttir......... á Heródes (Fákur) Álfur Þráinsson......... á Ingu (Fákur) Gunnar Reynisson........ á Ófeigi (Faxi) Edda Rún Ragnarsdóttir. á Fjalari (Fákur) Töltkeppni 1. Álfur Þráinsson........ á Rökkva (Fákur) Annað mót í deiglunni AÐ sögn Valdimars Kristinsson- ar mótsstjóra er hestamannafé- lagið Hörður þegar farið að huga að næsta móti á nýja skeiðvellin- um í Mosfellsbæ. Hestamannafélagið íhugar að halda annað mót eftir um það bil hálfan mánuð í Ijósi þess hve vel brautin reyndist á íslandsmótinu. Að sögn Valdimars létu þeir sem kepptu í skeiðinu í Ijós mikinn áhuga á að fá tækifæri til að keppa á vellinum áður en hestunum verður sleppt í haustgöngur. Sagði Valdi- mar að væntanlega þyrfti að taka ákvörðun um það fljótlega. 5. 2. 3. 4. 5. .49.98 .49.64 .45.05 .44.37 .46.41 .47.20 .46.00 .36.80 .44.60 .30.40 .82.40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.