Morgunblaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988
55
Morgunblaðið/Bjami
Sigurbjöm Bárðarson sigraði í fimmgangi fjórða árið i röð eftir jafna keppni við Tómas Ragnarsson
og Snúð, Hinrik Brakason og Vafa, Guðna Jónsson og Atlas og Egil Þórarinsson og Kolu.
2. Borghildur Kristinsd.....76.27
á Hlekk (Geysir)
3. Halldór Viktorsson .......80.00
á Herði (Gustur)
4. Edda SólveigGísladóttir....73.87
á Janúar
5. Gunnar Reynisson..........73.60
á Völvu (Faxi)
Hlýðnikeppni A
1. Gunnar Reynisson...........9.75
á Ófeigi (Faxi)
2. Hjömý Snorradóttir.........9.50
á Létti (Fákur)
3. Edda Sólveig Gísladóttir..8.50
á Seif (Fákur)
Fjórgangur Börn:
1. Edda Rún Ragnarsdóttir ...43.01
á Viðauka (Fákur)
2. Róbert Petersen........44.71
á Rúti (Fákur)
3. Gísli Geir Gylfason....44.54
á Prins (Fákur
4. ÞorvaldurÁ. Þorvaldsson..43.01
á Skúmi (Fákur)
5. Guðmar Þór Pétursson...43.18
á Limbó (Hörður)
Töltkeppni
1. Sigurður V. Matthíasson ...70.13
á Bróður (Fákur)
2. Edda Rún Ragnarsdóttir ...68.80
á Viðauka (Fákur)
3. Gísli Geir Gylfason....70.40
á Prins (Fákur)
4. ÞorvaldurÁ. Þorvaldsson..71.47
á Skúmi (Fákur)
5. Guðmar Þór Pétursson...68.53
á Limbó (Hörður)
Hlýðnikeppni
1. Theodóra Mathiesen......11.25
á Tobba (Hörður)
2. Sigurður V. Matthíasson.8.50
á Greiða (Fákur)
3. Guðmar Þór Pétursson.....8.25
á Vini (Hörður)
250 metra skeið
1. Börkur............22.01 sek.
Eig/knapi Tómas Ragnarsson
2. Vani...................22.75 sek.
Eig/knapi Erling Sigurðsson
3. Snarfari...............22.80 sek.
Eig/knapi Sigurbj. Bárðars.
J.
„Mótssvæðið stóðst þær
kröfur sem gerðar voru“
Morgunblaðið náði tali af Valdi-
mar Kristinssyni mótstjóra og
innti hann fregna af framkvæmd
mótsms.
„Mótið gekk mjög vel og þó við
hefðum verið á síðustu stundu tókst
það með samstilltu átaki félaga í
hestamannafélaginu Herði og með
stuðning frá ýmsum aðilum. Má þar
nefna Mosfellsbæ sem ákvað á
síðasta vetri að veita okkur 500.000
króna styrk og Loftorku h.f. og
fleiri mætti sjálfsagt telja. Eg tel
að mótssvæðið hafi fyllilega staðist
þær kröfur sem gerðar voru til þess
og virtust keppendur vera mjög án-
ægðir með vellina. Þar er kannski
athyglisvert hvemig skeiðbrautin
reyndist því hún var notuð í fyrsta
sinn en gengið var frá efsta lagi
hennar tveimur dögum fyrir mótið.
I fyrsta sinn sem keppt er á braut-
inni skilar hún fimm bestu tímum
ársins í 250 metra skeiði.
- Hvernig gekk framkvæmd
mótsins?
„Við erum ágætlega ánægðir með
útkomuna á mótshaldinu. Fram-
kvæmd dagskrár var í þokkalega
góðu lagi og veitingasala og að-
göngumiðasala gekk með ágætum.
Þegar við tókum mótið að okkur var
helsta markmið okkar að lyfta ís-
landsmótinu á hærra plan og er ég
ekki frá því að það hafí gengið eft-
ir. Það kom mér skemmtilega á óvart
hversu vel og skipulega félagar mínir
í Herði unnu að þessu móti því eftir
því sem ég best veit hefur enginn
þeirra unnið við mót af þessari
stærðargráðu áður. Vil ég nota tæki-
færið og þakka þeim fyrir frábær
störf,“ sagði Valdimar Kristinsson
að lokum.
Morgunblaðið/Bjami
Valdimar Kristinsson mótsstjóri afhendir Sigurbirni Bárðarsyni bik-
ar fyrir sigur í fimmgangi.
Sogn í Ölfusi:
Fólkið lærir að
lifa á annan hátt
Haldið upp á 10 ára starfsafmæli
Selfossi.
Á TÍU ára starfsferli meðferðar-
heimilisins Sogns í Ölfusi hafa
verið skráðar 4.116 innritanir til
þeirrar 28 daga meðferðar sem
áfengissjúklingnm er veitt þar
að lokinni meðferð á sjúkrastöð-
inni Vogi í Reykjavík. Aldur
sjúklinganna er á bilinu 16-80 ára
og um fjórðungur þeirra er kon-
ur. Það er SAÁ sem rekur heimil-
ið ásamt öðrum meðferðarstofn-
unum en á vegum samtakanna
er gert ráð fyrir að um sjö þús-
und manns hafi farið i meðferð
gegn áfengissýki.
Á Vogi er sjúklingunum hjálpað
til að vinna úr tilfinningaleguni
málum og þeim kennt að greiða úr
sínum vanda án þess að nota áfengi
eða lyf í því sambandi. Þetta er
gert með viðtölum og hópvinnu
ýmiskonar. „Fólk er þjálfað í að
mæta lífínu og skipuleggja sína
nánustu framtíð. Það þarf í raun
að kenna einstaklingunum að lifa
upp á nýtt,“ sagði Sigurður Gunn-
steinsson forstöðumaður á Sogni.
„Fólk þarf að geta mætt þessum
venjubundnu kringumstæðum sem
verða á vegi þess. Það þarf að læra
að lifa með þessum aðstæðum, sem
það mætir í lífinu, á annan hátt en
það hefur gert undanfarin, kannski
20 ár,“ sagði Óttar Guðmundsson
yfirlæknir á Sogni. Um árangurinn
sagði hann að slíkt væri alltaf erf-
itt að meta. Um þriðjungur sjúkl-
inganna héldi sig alveg frá áfengi,
þriðjungur félli aftur en virfeaði
betur í samfélaginu en áður og svo
væri sennilega um þriðjungur sjúkl-
inganna sem verr tækist með. Varð-
ándi þann hóp sagði hann að unnið
væri að því að bæta meðferðina
með það að markmiði að hún virk-
aði betur. Annars sagði hann að
meginárangurinn væri sá og það
ætti við um alla sjúklingana að
þeim liði mun betur eftir meðferð
en áður.
Varðandi fyrirbyggjandi aðgerðir
sögðu þeir Óttar og Sigurður að
þörf væri á auknum upplýsingum
til almennings. Vinna þyrfti að því
að breyta almenningsálitinu og gera
það andvígt áfengi. Fólk þyrfti að
gera sér grein fyrir því að áfengi
væri gífurlega hættulegt efni og
hefði slæmar afleiðingar í för með
sér.
Sigurður sagði það greinilegt að
starfsemi SÁA hefði breytt mjög
viðhorfum fólks til áfengissýkinnar
og það væri mikilvægur árangur
af starfinu. Það væri til dæmis
áberandi að fólk byijaði fyrr að
tala um að viðkomandi einstakling-
ur færi í meðferð.
Óttar sagði að meðferðarstofnan-
irnar væru orðnar hluti af sam-
félaginu og viðhorfin gagnvart
vandamálinu væru breytt, það væri
búið að létta skammarstimplinum
af alkóhólistanum. Einstaklingar,
sem hvergi mundu leita sér með-
ferðar, kæmu í meðferð. Það væri
greinilegt að hinir svokölluðu földu
alkóhólistar kæmu nú í meðferð.
Á sunnudag var fjölmenni á
Sogni í tilefni 10 ára afmælisins.
Þá var velunnurum boðið upp á
afmæliskaffi og notalega samveru-
stund á þessum friðsæla stað í Ölf-
usinu. Sig. Jóns.
Strandasýsla:
Böm Stefáns
frá Hvítadal
í heimsókn
Laugarhóli, Bjarnarfirði.
ÞESS var minnst við hátíðlega
athöfn i Hólmavíkurkirkju síðast-
liðið haust, að skáldið Stefán frá
Hvítadal hefði þá orðið hundrað
árá. Við þá athöfn mættu meðal
annarra sonur skáldsins, Jón Mar- ^
teinn Stefánsson og kona hans.
Hann kom aftur nú í ágústmánuði
ásamt systrum tveimur stystrum
sínum sem ekki gátu verið við-
staddar í haust. Heimsóttu þau
meðal annars fæðingarstað hans
í Hólmavík, en enn má merkja
rústir hússins.
Sigurður, faðir Stefáns frá Hvítad-
al, varð fyrstur til að byggja sér hús
á Hólmavík, sem áður hét Hólma-
rifsvík. Var hann því frumbyggi stað-
arins. Var hann þekktur smiður og
byggði margar kirkjur á Ströndum
um sína daga. Skoðuðu þessi bama-
böm hans kirkjur þær sem enn
standa, byggðar af áfanum. Þá fóru
þau m.a. að Felli, skoðuðu tóftir
húss þess sem Stefán er fæddur í. w
Ein systirin, Elín, er búsett í
Bandaríkjunum og notaði því tæki-
færið er hún var hér í heimsókn, til
að skoða þessar slóðir. Anna dóttir
hans var nú einnig með í ferðinni,
en hún er búsett í Reykjavík.
- SHÞ
Þingeyn:
Viðræður um stofn-
un nýs sláturfélags
NÚ standa yfir viðræður milli
stjórnar Kaupfélags Dýrfirðinga
og aðila sem áhuga hafa á að
stofna nýtt sláturfélag, sem þjón-
að gæti báðum ísafjarðarsýslum
og tæki að sér rekstur sláturhúss
Kaupfélags Dýrfirðinga á Þing-
eyri, en það slát.urhús er eina slát-
urhúsið í ísafjarðarsýslum sem
er löglegt.
Magnús Guðjónsson, kaupfélags-
stjóri á Þingeyri, sagði í samtali við
Morgunblaðið að meginástæðan fyr-
ir þessum viðræðum væri sú að
bændur í N-ísafjarðarsýslu stæðu
nú uppi sláturhusalausir.
„Sláturhúsið hér á Þingeyri er
eina sláturhúsið í Ísaíjarðasýslum
sem uppfyllir öll sett skilyrði, og í
því hefur verið slátrað fyrir bændur
á félagssvæði Kaupfélags Dýrfirð-
inga, sem nær yfír Dýrafjörð og
norðurhluta Arnarfjarðar. Bændur í
Önundarfirði, Súgándafirði og ísa-
fjarðardjúpi standa hins vegar uppi
sláturhúsalausir nú í haust, og við
emm ekki tilbúnir til þess að taka
þá beint inn í viðskipti á sömu kjör-
um og okkar félagsmenn hafa notið,
fyrst og fremst vegna þessað rekstr-
argrundvöllur fyrir sláturhús hefur
ekki verið til staðar undanfarin ár,
og því er ekki hægt að standa undir
því að bæta á sig taprekstri.
Ef samningar nást aftur á móti í
yfirstandandi viðræðum, þá þýðir
það væntanlega að sláturhúsið verð-
ur selt nýju félagi sem þeir aðilar
sem nú standa í viðræðum við okkur
yrðu hluthafar í, og þar með taldir
eru bændur. Það félag kæmi til með
að þjóna því svæði sem þetta slátur-
hús hér á Þingeyri hefur þjónað, auk
þeirra syæða sem sláturhúsin á Flat-
eyri og ísafirði þjónuðu áður, en slát-
urhúsið á ísafirði var lagt niður fyr-
ir nokkrum árum og á Flateyri verð-
ur ekki slátrað í haust,“ sagði Magn-
ús.