Morgunblaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.08.1988, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988 Öskadraumur forstjór- anna - Martröð fólksins eftirÁsmund Stefánsson Það kann vel að vera að margir forstjórar vakni á morgnana af þeim draumi, að þeir hafi gengið inn í fyrirtæki sitt og lækkaði alla starfsmenn í kaupi. Draumar gera varla tilka.ll til almennrar umræðu í þjóðfélaginu, nema því aðeins að svo ólíklega vilji til, að ábyrgir aðil- ar í þjóðfélaginu geri sig líklega til að gera þá að veruleika. Þó svo að framkvæmdastjóri ríkisstjórnarinn- ar sé fyrrverandi framkvæmdastjóri VSÍ, hefði ég ekki að óreyndu trúað því að ríkisstjóm hans tæki þessa forstjóradrauma til alvarlegrar um- ræðu. Svo virðist hins vegar vera og þess vegna er óhjákvæmilegt að taka málið alvarlega. Að lækka laun í niðurfærsluleið er lækkun launa almennt talinn sá þáttur sem auð- veldastur er í framkvæmd. Það blasir hins vegar við að launalækk- un með valdboði yrði aðeins sums staðar að raunveruleika. Það fólk sem býr við taxtakaup mundi lækka í kaupi. Óljóst er hvort kaup ann- arra myndi lækka og launaskrið mundi víða bæta lækkunina upp á stuttum tíma. Valdboðin launalækkun er því aðferð til aukinnar misskiptingar og aukins óréttlætis. Að lækka vexti Daginn eftir að Alþýðublaðið kynnti lesendum sínum niður- færsluhugmyndina fylgdi blaðið málinu eftir með viðtali við við- skiptaráðherrann sinn, Jón Sigurðs- son, um aðgerðir á peningamark- aði. Innihaldinu var lýst í fyrirsögn: „Lögþvinguð vaxtalækkun nær ekki tilgangi sínum.“ Sem sagt þar er skýrt og skorinort sagt að ekki þýði að beita valdboði á vextina. Verðið á fjármagni á að ráðast á markaði og fóik og fyrirtæki eiga að trúa því að vextimir muni lækka á næstunni. Ef spurt er af hve'iju er svarið nánast: Af því bara. Reyndar er rétt að minna á að undanfarið hefur frést að hugmynd- ir séu uppi um að hækka vexti húsnæðislána upp í markaðsvexti sem þýddi nærri þreföldun þeirra að raunvirði. Að lækka vöruverð í vor flutti ég í Verðlagsráði til- lögu um að verslunin fengi ekki að leggja á nema sem svaraði hluta þess sem vörur hækkuðu vegna gengisfellingarinnar. Á ámm áður var slíkri aðferð oft beitt samhliða gengisfellingu. í vor var tillagan felld með atkvæði fulltrúa ríkis- stjómarinnar. Það er eðlilegt að spyija: Trúir því einhver, að ríkisstjóm, sem ekki einu sinni treysti sér til slíkra að- gerða þá, sé nú reiðubúin til þess að jækka vömverð með valdboði? Ég trúi því ekki að ríkisstjómin gsti fengið nokkum mann til að trúa því að hún sé reiðubúin til að beita beinum aðgerðum til að lækka verðlag. í Morgunblaðinu á sunnudag er reyndar viðtal við formann for- stjóranefndarinnar þar sem hann segir að verslunin „yrði að lækka verð á vömm í samræmi við minnk- aða kaupgetu almonnings" ef niður- færsluleiðin er farin. í stuttu máli, ef launalækkunin skilar þeim árangri að fólk hafi ekki efni á því að kaupa vömrnar er líklegt að þær lækki í verði. Einhver kann að spyija hvort þessi röksemdafærsla geti flokkast undir bjartsýni. Hvað felur niðurfærslu- leiðin í sér? 1. Kauplækkun hjá þeim sem búa við taxtakaup og ekki hafa tök á að ná launaskriði, þ.e. kauplækkun hjá láglauna- fólki. 2. Ekkert yrði gert með vextina, grái markaðurinn dansar áfram og hugsanlega yrðu vextir húsnæðislána færðir upp í markaðsvexti. 3. Verðlag yrði áfram fijálst og réðist á markaði. Forstjórana dreymir ekki um að lækka neitt nema kaupið. Allt ann- að á að koma af sjálfu sér í drauma- heimi markaðarins. HAGSTÆÐASTA VERÐIÐ Chevroiet Monza SL/E 1,8 lllra vél beinskiptur/sjálfskiptur "Bm Chevrolet Monza SL/E 2,0 lílra vél sjálfskiptur________________________________________ Chevrolet Monza Classic 2,0 lítra vél beinskiptur/sjálfskiptur Öll hugsanleg greiðslukjör t.d.: __ 25% út - algangur á 30 mán. 50% út - afgangur á 24 mán. 75% úT- afgangur i 6-8 rrón. Sumarkjör okkar á Chevrolet Monza þýða - þrátt fyrir gylliboð annarra - hagstæöasta veröið á markaðnum í dag [þíjfr'' muiuri BiLVANGUR sf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 Ásmundur Stefánsson „Lækkun launa lág- íaunafólks leiðir til aukinnar misskipting- ar. Vandi efnahagslífs- ins stendur hins vegar allur óleystur. Allt mundi loga á vinnu- markaði, því útilokað er að launafólk taki svona aðför með friði og spekt.“ Hver yrði árangur niður- færsluleiðar? Lækkun launa láglaunafólks leið- ir til aukinnar misskiptingar. Vandi efnahagslífsins stendur hins vegar allur óleystur. Allt mundi loga á vinnumarkaði, því útilokað er að launafólk taki svona aðför með friði og spekt. Óskadraumur forstjóranna yrði martröð fyrir fólkið. Er engin lausn á vandanum? Því fer fjarri að vandinn sé óleys- anlegur. Hann verður hins vegar ekki leystur með einföldum aðgerð- um. Hann verður ekki leystur með óskadraumi forstjóranna og hann verður ekki leystur með gengisfell- ingu. Varanleg lausn kallar á jafnvægi í efnahagsmálum. Til þess að ná því jafnvægi verð- ur að ná tökum á fjármálum hins opinbera. Með réttum skattaað- gerðum má t.d. taka af kaupmætti þeirra sem best mega við því, þ.e. frirtækja sem hafa burði, hátekju- fólks og þeirra sem græða á vaxta- okrinu. Það verður einnig að ná tökum á peningamálunum. Það verður að stemma stigu við vaxtaokrinu. Setja hömlur á gráa markaðinn. Það verður að stokka upp í at- vinnulífinu, þannig að reksturinn verði öflugur og hagkvæmur. Þetta er ekki einfalt verkefni. En þetta er það verkefni sem við er að fást. Vandinn mun áfram standa óleystur svo lengi sem ráða- menn flýja af hólmi á vit hinna ein- földu lausna hvort sem er gengis- fellinga eða óskadrauma forstjór- anna. Höfundur er forseti Alþýðusam- bands ísiands. DRÁTTARVÉLIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.